Múrinn-vefrit um þjóðmál, pólitík og menningu
Múrinn-vefrit um þjóðmál, pólitík og menningu
 
 

Fréttir - 3. árgangur

Þegar aldamótakynslóðin féll frá 10.1.2002
Í apríl næstkomandi munu Íslendingar minnast aldarafmælis Halldórs Laxness. Þegar hann lést féll ekk einn maður frá, heldur heil kynslóð.

Þjóðnýting er lausnin 11.1.2002
Hver er besta leiðin til að styggja krata og íhaldsmenn? Jú, að stinga upp á þjóðnýtingu!

Áður en haninn gól tvisvar... 12.1.2002
Það hefur hlálegt að fylgjast með fréttum undanfarna daga af framboðsmálum fyrir komandi borgarstjórnarkosningarnar. Vart má á milli sjá hvort R-listinn eða Sjálfstæðisflokkurinn er þreyttari og slappari og fyrir kjósendum liggur að finna illskársta kostinn.

Klíkuskapur á útleið? 13.1.2002
Það er ekki orðum aukið að Björn Bjarnason er harður andstæðingur Múrsins og allra sem hafa svipaða afstöðu til stjórnmála. Nýleg ráðning Landsbókavarðar sýndi hins vegar að það er ekki það sama að vera rammpólitískur og rangsleitinn.

Þrælsótti alþjóðasamfélagsins 14.1.2002
Meðferð sigurvegara á sigruðum andstæðingum sínum er eitt af því sem segir til um siðferðisstig þjóða. Ljóst er að siðferðisstig Bandaríkjamanna er ansi lágt um þessar mundir. Alþjóðasamfélagið beygir höfuðið í þrælsótta í stað þess að standa vörð um mannréttindi.

Inn í ójafnaðarsamfélagið 15.1.2002
Ný skýrsla frá Hagfræðistofnun háskólans staðfestir það sem marga hefur lengi grunað, að ójöfnuður fer vaxandi á Íslandi.

Friðarvonir slokkna í Kólumbíu 16.1.2002
Viðræður milli ríkisstjórnarinnar og skæruliðahreyfinga í Kólumbíu virðast farnar út um þúfur. Er sagan frá Guatemala að endurtaka sig?

Hláleg refsingastefna 17.1.2002
Jón Steinar Gunnlaugsson hefur rétt fyrir sér. Það er hróplegt ósamræmi í því að fíkniefnasmyglarar séu dæmdir í tólf ára fangelsi en þeir sem framið hafa gróf ofbeldisverk í nokkra mánaða og allt að fimm ára fangelsi.

Kúgararnir eru að sigra 18.1.2002
Ef ekki verður að gert verður öll friðarviðleitni seinustu ára senn fyrir gýg og öfgamenn í Ísrael munu þó vera sigri hrósandi en alþjóðasamfélagið setja ofan.

Dregur til tíðinda á Kýpur? 19.1.2002
Margt bendir til að friðvænlegra sé á Kýpur nú en um langa hríð. Hver er bakgrunnur deilna Grikkja og Tyrkja á eyjunni?

Varúðarreglunni snúið á haus 20.1.2002
Bandaríska efnaiðnaðarfyrirtækið Crompton hefur stefnt ríkistjórn Kanada fyrir nýlegt framlag til baráttunnar gegn krabbameini.

Er þörf á uppgjöri við fortíðina? 21.1.2002
Vel má vera að þörf sé á stórfelldu uppgjöri við fortíðina, ekki við illmenni hennar heldur þá sem hafa borið blak af þeim og stutt málstað þeirra. En þá er rétt að gæta þess að það uppgjör verði rækilegt og að enginn verði undanskilinn. Og alls ekki ber að undanskilja þá menn sem krefjast nú uppgjörs við aðra.

Ríkur kóngur í fátæku landi 22.1.2002
Seinastliðinn föstudag fullyrti stjórnarandstöðudagblað í Kyrrahafsríkinu Tonga að konungur landsins ætti 700 milljónir Tongadala. Þetta er há upphæð miðað við að innanlandsframleiðsla landsins nemur 450 milljón Tongadala.

"Þetta verður keppni..." 23.1.2002
Fyrir nokkrum dögum taldi Inga Jóna æskilegt að fram færi æsispennandi slagur á milli borgarstjóraefna Íhaldsins í Reykjavík. Nú er hún búin að skipta um skoðun.

Minna má gagn gera 24.1.2002
Kannski finnst einhverjum landsmönnum það vera skemmtileg tilhugsun að geta seinna meir sagst hafa lifað þá tíma þegar nánast var hlegið að fólki sem minntist á Genfar-sáttmálana í sambandi við styrjaldir.

Að stilla fólki upp við vegg 25.1.2002
Það eru vonbrigði að forystusveit Vinstrihreyfingarinnar - græns framboðs í Reykjavík skuli láta hafa sig út í að stilla samherjum sínum upp við vegg, eins og gert var í gær frammi fyrir alþjóð.

Enn dregur úr samkeppni í flugrekstri 26.1.2002
Þeir sem þykjast hafa sérstakan áhuga á frjálsri samkeppni setja kíkinn iðulega fyrir blinda augað þegar kemur að flugrekstri. Af hverju stafar það?

Halldór Laxness sagði satt 27.1.2002
Fyrir hvaða lygar er Hannes H. Gissurarson, öðru nafni "Bókin með svörin", að ákæra Halldór Laxness?

Baráttan við fátæktina í uppnámi vegna Bandaríkjastjórnar 28.1.2002
Alþjóðavæðingin svokallaða er ekki alltaf velkomin og nú hefur viðleitni til að auka stuðning ríkra þjóða við fátækustu þjóðir heims siglt í strand vegna andstöðu Bandaríkjamanna.

“Það er algjör vitleysa!” 29.1.2002
Er betra að brenna peninga en að greiða skatta?

Meiri dráp – hvað sem þau kosta 30.1.2002
Þrátt fyrir að vaðallinn í stefnuræðu George Bush hafi verið svo mikill að sumum hafi verið hvíld í þessum 70 hléum sem forsetinn gerði vegna fagnaðarlátanna, þá var hann með ákveðna hluti alveg á hreinu.

Eru góð ráð alveg svona dýr? 31.1.2002
Hinir fjórir fræknu í einkavæðingarnefndinni hafa verið duglegir, bæði við vinnu og sérfræðivinnu. Má vænta þess að einhver stjórnmálamaður "axli ábyrgð" á öllum subbuskapnum?

„Bókvitið verður ekki í askana látið“ 1.2.2002
Umræða um styttingu stúdentsprófsaldur er þörf og mikilvæg en því miður er umræðan byggð á kolröngum forsendum.

Skýrar línur 2.2.2002
Það er hafinn mikill slagur um völdin í Reykjavík. Í dag ákveða félög vinstri flokkanna þriggja hvort farið verður í sameiginlegt framboð. Við þá ákvörðun þarf að hafa í huga að í samstarfi við aðra flokka komast áherslur VG á dagskrá og Reykjavík verður stjórnað á jákvæðum nótum.

Fjölmenn mótmæli í New York 3.2.2002
"Ég er föðurlandsvinur og ég mótmæli," stóð á einu af óteljandi kröfuspjöldum sem andófsmenn báru í fjölmennum mótmælagöngum í New York í gær.

Laugavegur verði göngugata! 4.2.2002
Nýr Reykjavíkurlisti verður um margt frábrugðinn hinum gamla. Þar munar um þátttöku Vinstri-Grænna sem hljóta að leggja áherslu á velferðarmál og umhverfisvænni borg.

Saga af tveimur föngum 5.2.2002
Undanfarnar vikur og mánuði hafa nokkrir Bretar verið handteknir í Afghanistan. Ritstjórnarfulltrúi Múrsins hitti einn þeirra að máli á dögunum.

Óvænt forsetaefni? 6.2.2002
Forsetakosningar verða senn í Frakklandi. Allra augu beinast að Chirac og Jospin, en ekki má afskrifa þriðja frambjóðandann.

Lækkað vöruverð - á kostnað hverra? 7.2.2002
Tillögur sérstakrar nefndar um leiðir til að lækka verð á grænmeti virðast einkum snúast um að færa fjármuni úr einum vasa í annan.

Alþjóðavæðing fyrir byrjendur 8.2.2002
Mikið er fjallað um alþjóðavæðinguna og baráttuna gegn henni. En um hvað snýst málið í grundvallaratriðum?

"Kyrrahafslausnin" vekur óhug 9.2.2002
Ríkisstjórn Ástralíu segist ekki hafa neitt að fela hvað aðbúnað flóttamanna snerti og hefur í samræmi við það bannað fréttamönnum að heimsækja flóttamannabúðir á nokkrum stöðum.

Við grípum barnið! 10.2.2002
Líftryggingar snúast ekki um að lengja líf þeirra sem tryggja sig, ekki frekar en að slysastryggingar snúast um að afstýra slysum. Tryggingar snúast ekki um fólk heldur um peninga, þvert á vinsælt slagorð.

Alþjóðavæðing fyrir spekinga 11.2.2002
Ef einhverjir skyldu telja sig of mikla spekinga til að taka mark á skrifum Múrsins um alþjóðavæðingu, þá er rétt að stíga skrefinu lengra.

Hvað á að gera við Afríku? 12.2.2002
Evrópumenn eru hættir að taka neina ábyrgð á vandamálum Afríku. Negrarnir hafa búið við sjálfstæði í 30-40 ár og hafa fengið sín tækifæri, er iðulega viðkvæðið. En er þetta satt?

Er alþjóðavæðingin góð fyrir hina fátæku? 13.2.2002
Fyrir tæpum hálfum mánuði, á sama tíma og Alþjóðaviðskiptastofnunin fundaði í New York, fór fram önnur og ekki síður merkileg ráðstefna í brasilísku borginni Porto Alegre. Þar funduðu regnhlífarsamtök félagasamtaka og stjórnmálahreyfinga sem berjast gegn alþjóðavæðingunni og neikvæðum afleiðingum hennar.

Áminningin sem gleymdist 14.2.2002
Hefur Brynhildur Ólafsdóttir ekkert þarfara við tíma sinn að gera en að þýða rangar fréttir yfir á íslensku?

Liljan sem enginn vildi kveðið hafa 15.2.2002
Einkavæðing Landssímans er mesta stjórnmálaklúður seinustu ára og Davíð Oddsson ber þyngsta ábyrgð.

Reglur um íslenska skipulagsumræðu 16.2.2002
Til að veita örlítilli ljósglætu inn í myrkrastofur einhverrar óskiljanlegustu umræðu á Íslandi eru hér settar fram fimm reglur sem koma í góðar þarfir á kosningaári.

Þar sem neyðin er stærst ... 17.2.2002
Ýmsir auðhringar hafa látið undan þrýstingi og heitið því að nýta sér ekki neyð í fátækum ríkjum til að færa framleiðslu sína í þrælakistur og draga úr kostnaði. En það gengur misjafnlega vel að efna loforðin.

Hættið að telja – þetta eru “þeir”! 18.2.2002
Að líkindum hafa allt að 8000 óbreyttir borgarar fallið af völdum loftárásanna á Afghanistan. Og flestir fjölmiðlar eru hættir að nenna að flytja fréttir af málinu.

Er ekki allt í lagi? 19.2.2002
Engin göng verða boruð á Íslandi í bráð þar sem ríkisstjórninni hefur ekki tekist að selja Landssímann. Þó nutu bæði Einkavæðingarnefnd og stjórn Símans ráðgjafar dýrustu og bestu sérfræðinga á þessu sviði - sjálfra sín.

Kátir voru karlar 20.2.2002
Í Evrópusambandinu eru margar reglur en þar með er ekki sagt að anda þeirra sé alltaf fylgt til hins ítrasta.

Möndulveldi hins illa 21.2.2002
Hversu krúttlegur er George Bush? Maðurinn sem á erfitt með þriggja atkvæða orð og að borða saltkringlur er líka maðurinn sem gefur skít í mannréttindi og hvaðeina sem ekki hentar hagsmunum bandarísku hernaðarmafíunnar.

Farsinn sem fylgir harmleiknum 22.2.2002
Siðferði forstöðumanna ríkisstofnana eftir 11 ára stjórn Sjálfstæðisflokksins er ekki upp á marga fiska. Ætli fólk fari ekki bráðum að fá nóg af þessu?

Kosningar um niðurrif friðaðra húsa 23.2.2002
Fyrsta ræða Björns Bjarnasonar um borgarmálin var fremur ódýr retórík um gönguferð í miðbænum. Hver verða hin raunverulegu stefnumið Sjálfstæðisflokksins í Reykjavík fyrir kosningarnar í vor?

John Howard í vanda 24.2.2002
Menn hefðu kannski ekki haldið að til væru stjórnmálamenn sem væru svo ósvífnir að ljúga því á aðra menn að þeir séu að reyna að bana börnum sínum til þess að sigra í kosningum. En John Howard er John Howard.

Sharon rúinn trausti 25.2.2002
Ariel Sharon stendur á krossgötum. Hann hefur um eins og hálfs árs skeið beitt Palestínumenn miklu harðræði. Nýlegar kannanir sýna mikla andstöðu Ísraela við stefnu hans og ljóst er að hann þarf að breyta til.

Við hverja má brjóta trúnað ... og hverja ekki 26.2.2002
Enn og aftur er forsætisráðherra hneykslaður á landsmönnum fyrir skilningsleysi og skort á innsæi í viðskiptalífið.

Stíflan sem tókst að stöðva 27.2.2002
Sigur andstæðinga hinnar neikvæðu hliðar alþjóðavæðingarinnar á tyrkneskum stjórnvöldum var sögulegur. Rétt er að rifja hann upp.

Umhverfismálum í Danmörku stefnt í voða 28.2.2002
Björn Lomborg hefur verið settur yfirmaður nýrrar Umhverfisstofnunar Danmerkur á sama tíma og alræmd vinnubrögð hans eru til umfjöllunar siðanefndar vísindamanna þar í landi.

Herlög taka gildi á Madagaskar 1.3.2002
Sjálfstæðisflokkurinn er með allt niður um sig í spillingarmálum og höggstaðurinn aldrei betri. Múrinn er þó sallarólegur og hefur ekki gleymt Madagaskar. Og reynið bara að bera fram öll nöfnin sem koma fyrir í greininni!

Klukkan tifar 2.3.2002
Það kemur ef til vill einhverjum á óvart að kjarnorkuógnin fari nú vaxandi. En það er niðurstaða útgefanda vísindatímaritsins Bulletin of Atomic Scientists.

Versta ríkisstjórn í heimi? 3.3.2002
Það styttist í kosningar í Zimbabwe. Mikið er skrifað um ofríki Mugabe forseta, en kannski á sú gagnrýni sér flóknari skýringar.

Horfið á sjónvarpið í kvöld! 4.3.2002
Að horfa á sjónvarp er góð skemmtun. Ekki spillir fyrir ef sjónvarpsefnið er bæði vandað og fróðlegt.

Ennþá betri Davíð? 5.3.2002
Einu sinni þótti mikilvægt að stjórnendur væru stilltir. Á öld kjarnorkuvopna þykir hins vegar betra að þeir gefi tilfinningunum lausan tauminn. En var Össur að gera það eða var hann að herma eftir Davíð einu sinni enn?

Árni Þór Sigurðsson oddviti Reykjavíkurlistans 6.3.2002
Framboðsmál Reykjavíkurlistans eru óðum að skýrast og nú er orðið ljóst að Árni Þór Sigurðsson mun verða í efsta sæti listans.

Leikur að orðum 7.3.2002
Ný skýrsla bandaríska utanríkisráðuneytisins um mannréttindaástandið í heiminum er fróðleg lesning með tilliti til þess hverjir eru inni og hverjir eru úti í ár.

Engir krísufundir 8.3.2002
Í sumum flokkum er allt í pati ef ein skoðanakönnun sýnir smávægilega niðursveiflu. Aðrir eru sallarólegir.

Liðugt krítað hjá Landsvirkjun 9.3.2002
Skemmdarsamstarfsemi sú sem vinna á gegn hálendi Íslands með því að reisa Kárahnjúkavirkjun hefur jafnan verið réttlætt með því að af framkvæmdum þessum verði efnahagslegur ávinningur. Það er hins vegar ekki rétt.

Enginn skyldi skáldin styggja 10.3.2002
Það bar til í vikunni að indverski rithöfundurinn Arundhati Roy sat einn dag í fangelsi í Nýju-Delhi og var þar að auki gert að greiða 2000 rúpíur (u.þ.b. 3500 kr.) í sekt fyrir að óvirða hæstarétt Indlands.

Alþjóðavæðingin og Karl Th. 11.3.2002
Pistlahöfundur Rásar 2, Karl Th. Birgisson, ákvað að bera fordóma sína enn einu sinni á torg um daginn og í þetta sinn gegn þeim sem mótmæla um þessar mundir skuggahliðum alþjóðavæðingarinnar.

Apaplánetan 12.3.2002
Það er kannski ekki hægt að vonast eftir því að núverandi stjórnvöld í Bandaríkjunum hlusti mikið á Katsumoto Saotome og aðra sem telja að margt megi læra af sögunni. En hvers má vænta af stjórnvöldum annarra ríkja, þar á meðal Íslands?

Davíð og Sturla leysa vandann! 13.3.2002
Þjóðarleiðtogarnir urðu varir við óánægju hjá þjóðinni og áttuðu sig fljótt á orsökinni: Þjóðinni blöskraði vitaskuld hvað stjórn Landssímans hafði lág laun!

Sýnum hug okkar til glæpaverka Ísraelsstjórnar 14.3.2002
Í skjóli bægslagangsins í Bandaríkjaher undanfarna mánuði hefur Ísraelsstjórn séð sér leik á borði og framið hvern glæpinn af öðrum í Palestínu. Í dag gefst kjörið tækifæri til að tjá afstöðu sína til þessa framferðis ríkisstjórnar Sharons.

Hver einasti dagur er baráttudagur 15.3.2002
Vissulega halda Íslendingar, eins og aðrir, upp á alþjóðlegan baráttudag kvenna. En er þessi dagur kannski hreinn puntdagur eins og mæðradagurinn sem felur í sér klapp á öxl þeirra sem dagurinn er ætlaður án þess að hafa neitt raunverulegt gildi?

Um þróuð ríki og vanþróuð 16.3.2002
Til er sáttmáli um að koma skuli á fót alþjóðlegum sakadómstól. Þegar farið er yfir þau ríki sem hafa staðfest hann má sjá hverjir hafa raunverulegan áhuga á að rétta yfir stríðsglæpamönnum, óháð því í hvaða „liði“ þeir eru.

Fundahöld munu að lokum leysa vandann 17.3.2002
Flestir munu viðurkenna að ofbeldið mun ekki leysa vanda Miðausturlanda. Er sá vandi þar með orðinn að undantekningu frá meginreglu?

Lengi er von á engu 18.3.2002
Norsk Hydro hefur frestað ákvörðun um hugsanlega þátttöku sína í álversbyggingu við Reyðarfjörð og tilraunir Framsóknarflokksins til að berja í brestina gerast stöðugt aumkunarverðari.

"Nasistaákvæði" til varnar smánaðri þjóð 19.3.2002
Einhver hefði haldið að það lægi beint við að ákæra þá sem kasta eldi að húsi fyrir eignaspjöll, vítavert gáleysi, eða eitthvað þvíumlíkt. Ríkissaksóknari hefur hins vegar ákveðið að styðjast við gamalt og vont lagaákvæði sem hefur m.a. verið notað til að rétta hlut Hitlers hér á landi.

Gallup setur niður 20.3.2002
Könnun Gallup og Samtaka iðnaðarins á afstöðu landsmanna til aðildar að Evrópusambandinu er hvorugum aðilanum til sóma.

Að breyta hagkvæmt? 21.3.2002
Aukin áhersla er nú lögð á siðfræði og siðgæðisvitund skólabarna á grunnskólaaldri og er það vel. En hvernig standa siðferðismál hjá öllu eldra fólki, segjum t.d. stjórnmálamönnum? Getur verið að taka þyrfti upp kennslu í siðfræði t.d. á Alþingi?

Sigur! 22.3.2002
Sextán ára gamalt baráttumál Ingibjargar Sólrúnar og félaga hefur loks náð fram að ganga. Það eru gleðitíðindi!

Lifa mótmæli dauðann af? 23.3.2002
Frændur okkar Danir mótmæla nú kröftuglega því sem Íslendingar hafa látið yfir sig ganga þegjandi og hljóðalaust. En hvers vegna trúa Íslendingar því ekki að það til neins að mótmæla?

Drögum Saddam fyrir rétt 24.3.2002
Í áratug hefur íröskum almenningi verið refsað fyrir syndir leiðtoga sinn. Það er kominn tími til að hann sjálfur verði leiddur fyrir rétt fyrir ótrúlega grimmd sína gagnvart Kúrdum.

DV við sama heygarðshornið 25.3.2002
Hver er elsta atvinnugrein í heimi? Geta slökkviliðsmenn átt vinkonur? Á hverju mega ungar stúlkur eiga von innan um ölóða karla? DV kann svör við þessum spurningum!

Framsókn til Brüssel 26.3.2002
Utanríkisráðherra kappkostar nú að vekja áhuga þjóðarinnar á ESB. En hvaða undanþágur gætum við fengið frá sjávarútvegsstefnu sambandsins? spyr Ragnar A. Þórsson. Og hvað segir varaformaður Framsóknarflokksins um málið?

Stjórnarandstaðan á Ítalíu sækir í sig veðrið 27.3.2002
Sergio Cofferati kom, sá og sigraði í Róm um síðustu helgi og á Ítalíu þykir mörgum sem fram sé kominn nýr leiðtogi vinstri- og miðjuaflanna í landinu.

Uppreisn í Verkamannaflokknum? 28.3.2002
54% Breta segjast hafa orðið fyrir vonbrigðum með Tony Blair og 20% kjósenda telja að hann eigi að hætta þegar í stað. 118 þingmenn Verkamannaflokksins hafa lagt fram tillögu sem gengur þvert á yfirlýsingar hans í utanríkismálum. Og Gordon Brown situr á hliðarlínunni og bíður.

Á enn að höggva í sama knérunn í Argentínu? 29.3.2002
Eitt er að kveikja í húsi en annað þegar brennuvargurinn stendur sallarólegur, horfir á bálið og segist vera eini maðurinn sem geti slökkt eldinn. Það er það sem er að gerast í Argentínu núna.

Þjóðverjar rasistar? 30.3.2002
Helmut Schmidt, fyrrum kanslari Vestur-Þýskalands, lætur ýmislegt flakka í endurminningum sínum sem koma út eftir helgi.

Verður kjarnorkuafvopnun snúið við? 31.3.2002
Nýlegar yfirlýsingar ráðamanna í Washington og Lundúnum um kjarnorkuvopn koma eins og köld vatnsgusa framan í þá sem unnið hafa að kjarnorkuafvopnun og bundið við hana vonir. Í hvaða fylkingu ætla íslensk stjórnvöld að skipa sér?

Kissinger fyrir rétt? 1.4.2002
Rannsóknardómari í Chile hefur nú formlega stefnt Henry Kissinger fyrir rétt vegna rannsóknar á ýmsum glæpaverkum herforingjastjórnar Augusto Pinochet þar í landi.

Íslenska lögreglan vill óeirðir! 2.4.2002
Stjórnvöld sóa gríðarlegum fjárhæðum og lögreglumenn fótbrjóta sig unnvörpum til að búa sig undir uppþot og læti sem hvergi eru til annars staðar en í kollinum á Sólveigu Pétursdóttur.

Að styrkja eða ekki styrkja 3.4.2002
Meðal fórnarlamba hinnar sérkennilegu hentistefnu ríkisstjórnarinnar í mennta- og menningarmálum er Leikfélag Íslands sem þó var einkaframtak og um tíma vel séð af frjálshyggjuliðinu sem myndar þessa sömu ríkisstjórn.

Herskipið Bada Bing 4.4.2002
Skáldjöfrarnir á Pressunni eru iðnir að skálda upp reyfara hversdagslífsins. Í þeirra leikgerð á borgarstjórnarkosningunum í Reykjavík virðist Ingibjörg Sólrún leikin af James Gandolfini en Heath Ledger á stórleik í hlutverki Senjór Einars.

Sjálftökusýkin breiðist út 5.4.2002
Það skiptir nákvæmlega engu máli hvort greiðslurnar til Skúla Bjarnasonar eru á svipuðu róli og greiðslur til einhverra annarra. Það skiptir heldur engu máli í þessu sambandi hvernig vinnan að uppbyggingu hins nýja fyrirtækis Strætó bs. gengur.

Frjálshyggjumenn falla á eigin prófi 6.4.2002
Katrín Fjeldsted greiddi atkvæði gegn stjórnarfrumvarpi með þeim rökum að stórfelld afskipti ríkisins af atvinnustarfsemi ættu að tilheyra fortíðinni. Ekki eru allir þeir sem kalla sig "frjálshyggjumenn" tilbúnir til þess.

Gömul og ný stríð 7.4.2002
Það er sannarlega sögulegt að Davíð Oddsson hafi lagt blómsveig á leiði Ho Chi Minh en spyrja má hvort það beri vott um breytt viðhorf hans til hernaðar.

Engan Osama í okkar girðingu! 8.4.2002
Undirbúningur hins opinbera fyrir ráðherrafund NATO um miðjan maí tekur sífellt á sig kostulegri myndir sem minna meira á lögregluríki en lýðræði.

Ísrael er hryðjuverkaríki 9.4.2002
Ísraelsríki væri ekki til nema vegna alþjóðasamfélagsins. Á þessari stundu er óhætt að kalla Ísrael skrímsli sem alþjóðasamfélagið hefur búið til. Og skrímsli er réttnefni yfir hryðjuverka- og rasistaríkið sem Ariel Sharon stjórnar.

Goðsögnin um örlæti Baraks 10.4.2002
Meðal goðsagna sem Ísraelsmenn halda á lofti og teknar eru trúanlegar í Bandaríkjunum er goðsögnin um friðarvilja Ehuds Baraks og ofstæki Jassírs Arafats í að hafna friðartilboðum hans í Camp David fyrir tveimur árum.

Orð Davíðs ómerk 11.4.2002
Nýlegt frumvarp ríkisstjórnarinnar um tugmilljarða ríkisábyrgð fyrir fyrirtækið deCode ætti að gefa eigendum Tröllavídeós og fleiri samkeppnisfyrirtækja von um auknar ríkisábyrgðir í áhætusömum samkeppnisrekstri.

Bush og Blair á búgarðinum 12.4.2002
Strákarnir á búgarðinum eru talsvert illvígari en strákarnir á borginni á sínum tíma. Einhver hefði haldið að fulltrúi „hins nýja vinstris“ ætti ekki mikið sameiginlegt með afturhaldskóngi heimsins en það hefur reynst öðru nær.

Kópavogur slæst í hópinn! 13.4.2002
Hvað eiga Ingibjörg Sólrún Gísladóttir, Kristján Þór Júlíusson og Gunnar Birgisson sameiginlegt? Það veit Múrinn.

Stjórnarskipti í Ungverjalandi? 14.4.2002
Dagar Viktors Orban forsætisráðherra Ungverjalands í embætti eru nú senn taldir. Ýmsir munu fagna því.

“Þjóð sem er þver ...” 15.4.2002
Chávez var steypt og Chávez sneri aftur en hvernig fjölmiðlunum datt í hug að trúa herforingjunum í Venezúela er ráðgáta.

Franskir forsetaframbjóðendur á fullri ferð 16.4.2002
Franskir kjósendur geta valið um fleira en Jospin og Chirac í forsetakosningunum eftir tæpa viku. Þar á meðal eru þrír „trottar“, einn græningi og „vandræðabarnið“ Chevenement.

Jenin 17.4.2002
Martröð óbreyttra borgara í Jenin mun síðar umhverfast í draum þjóðernisofstækismanna, sem munu varðveita minninguna um "endanlega lausn" Ísraelshers á Palestínuvandamálinu.

Hræsnararnir kveinka sér 18.4.2002
Forseti Íslands hefur því miður ekki nýtt embætti sitt nægilega vel til að vekja athygli á málum sem virkilega skipta máli. Það er fagnaðarefni þegar hann gerir það. Jafnvel þótt það gleðji ekki alla.

Illt er að kenna Sámi frænda að sitja 19.4.2002
Bandaríkjastjórn hefur neitað því með öllu að hafa stutt valdaránstilraunina í Venezuela. New York Times hefur þó fengið það staðfest að bandarískir embættismenn höfðu fundað með valdaræningjunum áður. Ef marka má stefnu Bandaríkjamanna í verki virðast menn þar á bæ ennþá telja að morðið á Allende hafi verið gott og göfugt.

Háskólanemar og herfræðingar 20.4.2002
Tölvunarfræðinemar í Háskóla Íslands þurfa að sjálfsögðu að víkja þegar hernaðarsérfræðingar NATO með Halldór hermálaráðherra í broddi fylkingar ræða mikilvægi sjálfs sín.

Heiðrum minningu Laxness! 21.4.2002
Víða erlendis er helstu rithöfundum þjóðanna sómi sýndur með því að reka söfn á heimilum þeirra. Þau eru minningarstaðir þar sem saga skáldsins og verka hans er rifjuð upp. Ekki getur talist nema eðlilegt að Íslendingar búi til slíkt safn um merkasta rithöfund þjóðarinnar á síðari öldum.

Um öryggi Davíðs Oddssonar og öryggisleysi 22.4.2002
Forsætisráðherri er brugið þessa dagana. Rummy vinur hans misskilur nefnilega hlutverk Íslands í heiminum.

Le Pen: Fylgikvilli lýðræðisins 23.4.2002
Það fylgi sem le Pen fékk í fyrri umferð forsetakosninganna í Frakklandi hefur vakið mörgum hroll. En við hvern er að sakast?

Vaxtaflónið snýr aftur 24.4.2002
Eiga Seðlabankastjórar að ganga erinda Landsvirkjunar og hvernig samræmist það nýjum lögum um sjálfstæði bankans? Þetta eru spurningar sem ríkisstjórnin og Finnur Ingólfsson hefðu mátt spyrja sig, áður en iðnaðarráðherrann fyrrverandi var sendur til að berja í brestina á endalausum atkvæðaveiðum Framsóknar austur á landi.

Er Vladimir Pútín velkominn til Íslands? 25.4.2002
Eins og við var að búast vöknuðu ungir sjálfstæðismenn til lífsins við fregnir af komu Jiang Zemins. Þar á bæ ætla menn ekki að láta þetta gullna tækifæri sér úr greipum renna til að minna landsmenn á ógnina af heimskommúnismanum, sem er að vísu sagður dauður alla aðra daga ársins en þá sem kínverskur kommissar er í heimsókn.

Nýir lampar fyrir gamla 26.4.2002
Við bjóðum ykkur lægri skatta, meiri framkvæmdir, lúxusvillur á Geldinganesinu. Við brosum mest, við höfum hæst, við erum langbest og frábærust og enginn getur gert neitt rétt nema við.

Menntastefna í felum 27.4.2002
Stefnan ríkisvaldsins í menntamálum virðist vera sú að einkaskólar skuli fá allt sem þeir vilja, hvað sem þeir kenna. Háskóli Íslands situr eftir í spennitreyju og ekkert tillit tekið til þess að hann heldur uppi öllu vísindastarfi sem um munar á Íslandi

Vopnaeftirlitsmaður missir vinnuna 28.4.2002
Hvers vegna vill Bandaríkjastjórn losna við starfsmann Sameinuðu þjóðanna, sem vill að Írakar taki þátt í alþjóðasamvinnu um vopnaeftirlit? Hvaða hagsmunum þjónar slíkt?

Stórir strákar 29.4.2002
George Bush Bandaríkjaforseti hefur nú lært nafnið á forsætisráðherra Kanada. En metnaður Jean Chrétien til að verða frægur meðal stórmenna heimsins hefur ekki verið ókeypis.

Heimsmet í heimsku? 30.4.2002
Í einu og sama málinu hefur ríkisstjórninni tekist að sýna að hún hefur ekkert fjármálavit, ekkert siðferðisþrek, engan skilning á lýðræðislegri umræðu og ekki minnsta vott af áliti á kjósendum.

Baráttudagur skal hann heita! 1.5.2002
1. maí er, eins og þjóðhátíðardagurinn, fyrirbæri sem vísar til nútímalífs en ekki fornrar trúariðkunar. En eðli þessara tveggja frídaga er þó ólíkt.

Óvissa í Færeyjum 2.5.2002
Úrslit lögþingskosninga á Færeyjum sl. þriðjudag hafa valdið því að framtíð eyjanna er nú óviss, ekki síst staða þeirra gagnvart Danmörku.

Ræða Margrétar Guðnadóttur 1. maí 3.5.2002
Margrét Guðnadóttir prófessor hélt ræðu á Rauðum 1. maí. Múrinn fékk leyfi til að birta hana, enda er hér á ferð brýn hvatning sem á erindi við alla.

Hvers vegna eru lög og regla? 4.5.2002
Hvort er betra að samfélag styðjist við skráðar reglur eða óskráðar? Og hvers vegna vilja sumir auka reglugerðafargan í samfélaginu?

Fréttamenn í sandkassanum 5.5.2002
Í fréttaskýringaþættingum 60 Minutes fannst nýlega þægileg skýring á því hvers vegna öflugasti, dýrasti og tæknivæddasti her heims reyndist gagnslaus gegn hryðjuverkamönnunum síðastliðið haust.

Stríðshaukunum svarað fullum hálsi 6.5.2002
NATO-bruðlfundur ríkisstjórnarinnar síðar í mánuðinum er að öllu leyti fyrirsjáanlegur. Íslenskir friðarsinnar efna hins vegar til annarrar ráðstefnu nokkrum dögum fyrr.

Hetjur ljósvakans 7.5.2002
Meðan aðrar sjónvarpsstöðvar eru á fallandi fæti standa starfsmenn Ríkisútvarpsins sig í stykkinu þrátt fyrir erfiðar aðstæður og skilningsleysi yfirvalda menntamála.

Morðið á Pim Fortuyn 8.5.2002
Málflutningur Pim Fortuyns og vinsældir hans eru dæmigerð fyrir þá öldu útlendingahaturs sem nú skekur hvert Evrópulandið á fætur öðru. En eftir að byssur héldu innreið sína í stjórnmálabaráttuna er allt á hvolfi í Hollandi.

Fleiri andstyggileg stórfyrirtæki, takk! 9.5.2002
Nú hefur bandaríski álrisinn Alcoa tekið við hlutverki Norsk Hydro í sögunni endalausu. Íslendingar ættu að hugsa sig tvisvar um áður en þeir opna faðminn fyrir Alcoa sem hefur vægast sagt vafasama afrekaskrá.

Möguleiki á vinstristjórn í Hafnarfirði 10.5.2002
Í Hafnarfirði eru VG dvergur en Samfylkingin risi. Stundum þarf hins vegar risinn dverg á herðarnar til að vera nógu stór.

Gestur Halldórs og vinir hans 11.5.2002
Fyrir rúmri viku felldi Giovanbattista Tona, dómari á Sikiley, niður morðákærur gegn forsætisráðherra Ítalíu, Silvio Berlusconi, en hann er sem kunnugt er væntanlegur til Íslands á vegum Halldórs Ásgrímssonar.

Jimmy Carter á Kúbu 12.5.2002
Bandaríkjastjórn lætur nú ófriðlega við allar þjóðir sem ekki dansa eftir hennar höfði, þarámeðal Kúbu. Á sama tíma er söguleg heimsókn Carters fv. forseta til eyríkisins fagra.

Þrínættur gestur þykir verstur 13.5.2002
Ráðstefna nokkur í Reykjavík raskar mjög lífi þeirra sem búa og starfa í nágrenni hennar enda þykir hún svo mikilvæg að bera megi út stúdenta á miðjum próftíma. Í fjölmiðlum er henni líst nánast sem ferðamálaátaki og jákvæðnin lekur af fréttamönnum. En hverjir eru að koma hingað að funda á bak við girðingar?

Öryggi Íslendinga ógnað 14.5.2002
Hann er dýr. Hann er engin landkynning. Hann ónáðar heiðarlega og friðsama borgara. Og umfram allt breytir hann Íslandi úr vopnlausu landi í hernaðarsvæði þar sem leyniskyttur eru á þökum að fylgjast með börnum að leik. Hver er hann?

Ísraelskt landrán 15.5.2002
Nýleg skýrsla ísraelskra mannréttindasamtaka sýnir að þrátt fyrir að landnemabyggðir þekji aðeins 1,7% af Vesturbakkanum hafa Ísraelsmenn stolið 42% af landsvæðum Palestínumanna þar.

Óskalisti róttæklingsins 16.5.2002
Róttæklingar á Íslandi þurfa ekkert að skammast sín þessa dagana. En það er þó margt fleira sem þeir gætu hrint í framkvæmd, ef vilji og atorka eru fyrir hendi.

Alvöru þjóð? 17.5.2002
Hvernig eru „alvöru þjóðir“ skilgreindar. Er miðað við ferðatöskufjöldann sem hægt er að sprengja upp fyrir hvern leiðtogafund? Er það miðað við hversu margar leyniskyttur er hægt að hafa á húsþökum í Vesturbænum innan um skólabörn? Eða eru „alvöru þjóðirnar“ þær sem banna fólki af öðrum uppruna að vera á svæðinu þegar fyrirmennin leggja á ráðin?

Pönkumst á drottningunni! 18.5.2002
Það eru ekki bara aðdáendur Bretadrottningar og hennar skylduliðs sem farnir eru að undirbúa krýningarafmælið í sumar.

Verða Grænlendingar sviknir einu sinni enn? 19.5.2002
Utanríkisráðherrar Bandaríkjanna og Danmerkur virðast hafa átt "árangursríkar" samræður, eins og það er kallað, á NATO-fundinum í Reykjavík.

Austur-Tímor verður sjálfstætt ríki 20.5.2002
192. ríkið hefur nú bæst í hóp þeirra sem eiga aðild að Sameinuðu þjóðunum. Íbúar þess eiga að baki skelfilega sögu fjöldamorða og harðræðis og búa við mikla fátækt.

Frjálslyndir í oddaaðstöðu? 21.5.2002
Frjálslyndir hafa staðið sig vel í kosningabaráttunni í Reykjavík. Þeir eru þó ekki besti kosturinn fyrir vinstrisinnaða og umhverfissinnaða kjósendur.

Tónninn sleginn á Írlandi 22.5.2002
Hvaða áhrif kunna írsku kosningarnar að hafa á málefni Evrópusambandsins?

Kemur Bush til bjargar Húmanistum? 23.5.2002
Mega Íslendingar eiga von á viðskiptabanni frá Bandaríkjastjórn? Hvað eiga Kastró og Davíð Oddsson sameiginlegt?

Kata sendir þér sms á kjördag 24.5.2002
Lesendur Múrsins eru hvattir til að neyta atkvæðisréttar síns á morgun og hafa í huga að hjartað slær til vinstri.

Viðrar vel til vinstrisveiflu 25.5.2002
Ekki er útlit fyrir mikla vinstrisveiflu í dag en R-listinn stendur þó sterkt og menn geta alltaf leyft sér að vona.

Bretar vilja ekki evru 26.5.2002
Eru Bretar að fara að taka upp evruna? Ekki segja kannanir.

Hver er pólitískur flóttamaður? 27.5.2002
Hingað er komið fólk frá Rúmeníu og vill fá hæli. Yfirvöld og embættismenn virðast ekki par hrifin og ekki vilja skilgreina fólkið sem pólitíska flóttamenn. En hverjir eru pólitískir flóttamenn ef ekki sígaunar?

Tíðindalaust af sveitarstjórnarvígstöðvum 28.5.2002
Eftir kosningarnar hefur VG styrkt sig í sveitarstjórnum þó að úrslitin séu víða talsverð vonbrigði. Aðrir flokkar standa meira og minna í stað þó að hér og þar vinnist glæstir sigrar.

Af þögn og föðurlandsást 29.5.2002
Bandaríkin státa sig af því að einstaklingsfrelsið sé hvergi meira en þar. Samt eru börn þar látin sverja fánanum hollystueið.

Holur hlátur markaðsins 30.5.2002
Ýmsir sem kalla sig „frjálshyggjumenn“ setja stundum jafnaðarmerki milli frelsis og markaðsveldis. Ekki þarf þó alltaf svo að vera.

Vargöld á Vestur-Papúa 31.5.2002
Jafn ánægjulegt og það er að loksins virðist hafa tekist að leiða sjálfstæðisbaráttu Austur-Tímor til lykta þá er það áhyggjuefni hvernig Indónesíustjórn traðkar enn í dag á íbúum Vestur-Papúa.

Stærsta útlagaríkið 1.6.2002
Bali-fundurinn, sem haldinn er til undirbúnings heimsráðstefnu SÞ um sjálfbæra þróun og baráttuna gegn fátækt í Jóhannesarborg síðsumars, er nú hálfnaður og horfur á að árangur náist vægast sagt slæmar. Eitt helsta ljónið í veginum er stærsta útlagaríkið.

Sjómannadagurinn sums staðar haldinn hátíðlegur 2.6.2002
Í sumum bæjum landsins er einn af meiri hátíðisdögum ársins í dag. Í einu bæjarfélagi er líka haldið upp á nýjan hátíðisdag í fyrsta skipti.

Davíð fjögur ár enn? 3.6.2002
Kannski er þjóðin farin að þreytast aðeins á Davíð en hann hefur ekkert að óttast ef marka má skoðanakönnun DV í dag.

Hnattvæðing vitfirringarinnar 4.6.2002
Það stefnir í stríð milli Pakistans og Indlands. Bandaríkin og Bretland eru ekki að gera neitt því til varnar - þvert á móti.

Hernámsstjórnin sýnir klærnar 5.6.2002
Brottvísun íslensks hjálparstarfsmanns frá Ísrael er móðgun við alla þá sem eru að reyna að ganga á milli og draga úr neyðinni á þessum slóðum. Hún er líka móðgun við Ísland og Íslendinga. Og síðast en ekki síst er hún móðgun við íslenska utanríkisráðherrann, sem fyrir skömmu sótti heim Ariel Sharon.

Veruleikanum skipt út í fjögur ár 6.6.2002
Þjóðminjasafnið er merkilegt safn en heilu árgangar íslensks æskufólks mun aldrei uppgötva það vegna þess hversu hægt gengur að endurbæta húsið. Á meðan hefur peningum hins vegar verið ausið í önnur verkefni.

Gæðingar gjaldeyrissjóðsins 7.6.2002
Kyrgistan var eftirlæti frjálshyggjumanna fyrir áratug. Nú mæla þeir minna um það.

Ungir framsóknarmenn fordæma kjósendur í Skagafirði 8.6.2002
Ungir framsóknarmenn í Skagafirði hafa fordæmt meirihlutann í sveitarfélaginu sem ekki hefur enn tekið við stjórnartaumunum eða birt málefnasamning sinn. Jafnframt fordæma þeir aðferðir og vinnubrögð í viðræðum, sem þeir tóku ekki sjálfir þátt í.

Lögregluríkið Ísland 9.6.2002
Undir yfirstjórn Sólveigar Pétursdóttur hafa yfirvöld dómsmála á Íslandi tekið upp ótrúlega hörku í samskiptum við útlendinga sem hafa ekkert til saka unnið en að koma til Íslands eða vilja gera það. Mál friðsamra andófsmanna frá Kína er eitt af mörgum dæmum um það frá undanförnum mánuði.

Okkar fólk á vettvangi 10.6.2002
Það eru ekki stjórnmálamenn heldur frjáls félagasamtök sem mest hafa gert til að tryggja frið í heiminum. Það má t.d. sjá í Palestínu um þessar mundir.

Mandela gagnrýnir aðbúnað Lockerbiefangans 11.6.2002
Nelson Mandela, fyrrverandi forseti Suður-Afríku og friðarverðlaunahafi Nóbels, gangrýnir þann aðbúnað sem Líbýumaðurinn Abdul Basit al-Megrahi þarf að þola í bresku fangelsi.

Palestínuvandinn og máttleysi Evrópuríkja 12.6.2002
Það er ekki flókið að finna lausnina á vanda Palestínu: Kúgun Ísraels verður einfaldlega að linna. En þó að ýmsir framámenn Evrópu skilji þetta kemur það fyrir lítið þar sem helstu ákvarðanir í utanríkismálum eru teknar í Washington.

Sumarið er tíminn 13.6.2002
Sumar- eða vorboðarnir eru misjafnir en sá versti er hin árvissa lokun deilda í heilbrigðiskerfinu í ríki Davíðs.

Hve mörgum prófum mun ríkisstjórn Íslands falla á? 14.6.2002
Í gær kom hingað til lands fimm manna fjölskylda og sótti um pólitískt hæli. Þetta eru hjón með tvö börn og systir konunnar. Fjölskyldufaðirinn er Kúrdi en kona hans frá Georgíu. Hafa þau ástæðu til að vera bjartsýn?

Merkisdagur í vísindasögunni 15.6.2002
250 ár er ekki langur tími í jarðsögunni, en óratími í stuttri sögu nútímaeðlisfræði.

Kosningar í Tékklandi 16.6.2002
Allt bendir til að hinn litlausi Vladimir Spidla verði næsti forsætisráðherra Tékka en „seinasti Thatcheristinn í Evrópu“ hverfi af sjónarsviðinu.

Hæ hó jibbíjei og jibbíjei! 17.6.2002
Þeir sem eru trúa frekar á mannkynið en upphafna þjóðernisvitund ættu að hugsa sig tvisvar um áður en þeir taka þátt í helgileiknum á 17. júní.

Daglegt brauð? 18.6.2002
Fréttastofur Íslands hafa greint frá því að einn þjóðhöfðingi heimsins hafi gefið fyrirmæli um að ráða annan af dögum, eins og ekkert sé sjálfsagðara.

Öryggi á kostnað mannréttinda 19.6.2002
Stjórn Tony Blair í Bretlandi hefur lagt drög að frumvarpi sem kallað er „snooper´s charter“ af gárungum þar í landi. Ekki fæst betur séð en að íslensk stjórnvöld séu hér mjög í takt við erlenda strauma.

Fer Brasilía sömu leið og Argentína? 20.6.2002
Efnahagshrunið í Argentínu var mesta niðurlæging alþjóðabankastofnanna í manna minnum. Vonandi endurtekur leikurinn sig ekki í Brasilíu.

Það sem þér kemur ekki við 21.6.2002
Það er víðar en á Íslandi sem saklaust fólk er leikið grátt af lögregluyfirvöldum í nafni öryggis. En sums staðar eiga viðkomandi þó rétt á skýringum sem enn er fáheyrður munaður hérlendis.

Mannréttindi afstæð í Bandaríkjunum 22.6.2002
Núna hefur hæstiréttur Bandaríkjanna bannað aftökur á þroskaheftu fólki, að vísu með naumum meirihluta. Víða er þó pottur brotinn í ríki Sáms frænda þó að fáum Íslendingum finnist ástæða til að ræða það.

Múrstiklur II 23.6.2002
Villur í Vegahandbókinni eru meðal þess sem skemmta má sér við að ræða á ferðalögum um landið.

Hernámið heldur áfram 24.6.2002
Á sama tíma og Ísraelsstjórn undirbýr allsherjarstríð gegn Palestínumönnum, reynast bandarískir jafnt sem evrópskir stjórnmálamenn ófærir um að miðla málum.

Engin von handa Palestínumönnum 25.6.2002
Bush Bandaríkjaforseti hefur ekkert fram að færa til að leysa vandamál sem stafa af hernámi Ísraelsmanna á Palestínu.

Af vinnandi konum í Mexíkó 26.6.2002
Nýjasta bjargvætturin í áldraumi ríkisstjórnarinnar er bandaríski álrisinn Alcoa. Umhverfisstefna fyrirtækisins er ekki merkileg en stefna fyrirtækisins í verkalýðsmálum er jafnvel enn svartari.

Uppreisn kjölturakkanna hafin? 27.6.2002
Í „stríðinu gegn hryðjuverkamönnum“ fylgir Bush sömu reglu og nasistaforinginn sem sagðist sjálfur ráða því hver væri gyðingur: Hann skilgreinir hvað sé hryðjuverk og hver hryðjuverkamaður. En nú er hann loksins tekinn að ganga fram af jafnvel traustustu flöðrurum sínum.

Verkalýðsleiðtogar í fangelsi í Suður-Kóreu 28.6.2002
Þó að fagna megi árangri knattspyrnuliðs Suður-Kóreu í HM er ekki þar með sagt að allt sé í sómanum í því fagra landi. Ekki er td gaman að vera verkalýðsleiðtogi þar.

Guðfræði og heilbrigð skynsemi 29.6.2002
Heilbrigð skynsemi flestra segir þeim að George Bush sé ekki útvalinn af Guði til að stjórna Bandaríkjunum. En þar í landi er það sjónarmið litið hornauga.

Friðarsinni veldur uppnámi 30.6.2002
Flestir sakborningar fagna því þegar saksóknari fellur frá ákæru, en ekki þó hún Lindis Percy.

Er breytinga von í Bólivíu? 1.7.2002
Tíðinda er von í bólivískum stjórnmálum. Örsnauðir bændir landsins hafa nú eignast talsmann, en gamlir stjórnmálarefir endurmeta stefnu sína í ljósi aðstæðna.

Of lítið, of seint? 2.7.2002
Nú hafa ríkustu þjóðir heims tekið að sér að hjálpa fátæku álfunni Afríku. En aðstoðin var bæði rýrari í roðinu en flestir sérfræðingar hafa talið nauðsynlegt og þar að auki ýmsum skilyrðum háð.

Bara mistök... 3.7.2002
Á Vesturlöndum þykja það sjálfsögð mannréttindi að geta haldið upp á brúðkaup að sínum sið. Á sumum stöðum nýtur fólk ekki slíkra mannréttinda, þegar hugdjarfir sprengjuflugmenn taka til sinna ráða í baráttunni við hryðjuverk.

Handagangur í öskjunni í Edinborg 4.7.2002
Skosku þingkosningarnar næsta vor eru æsispennandi. Tommy Sheridan er í uppsveiflu en allt er í voða hjá SNP.

Einstefna í atvinnumálum 5.7.2002
Ríkisstjórn sem kennir sig við frjálslyndi í efnahagsmálum aðhyllist engu að síður ríkisstyrki til mengandi stóriðju og fer þar fram með offorsi.

Hausinn af! 6.7.2002
Mesta stórveldi heims ætlar nú að taka sér rétt til að setja ríkisstjórnir annarra landa af og fá "vinveittar ríkissjórnir" til valda, í trássi við alþjóðalög og samninga. Hvar endar þetta?

Múrstiklur III 7.7.2002
Hvers vegna ætti maður að ganga á Hengil? Eru mómiklar þúfur eða sérkennilegir steinar gagnleg kennileiti? Í þessum greinaflokki er sem fyrr stiklað á stóru.

Eru nú tveir kostir? 8.7.2002
Davíð eða Halldór? Landsbankinn eða Búnaðarbankinn? Eru þetta þeir valkostir sem Íslendingar eiga að velja á milli?

Viðfelldin fjöldamorð? 9.7.2002
Nú er að koma á daginn að það sem talsmenn Bandaríkjahers kölluðu "hörkuorrustu" ("pitched battle") milli bandarískra B-52 sprengjuflugvéla og bundinna fanga var allt annað en það.

Hver verður næsta ríkisstjórn? 10.7.2002
Nú er meðgöngutíminn fyrir næstu kosningar að hefjast, níu mánuðir eftir og ljóst er að ýmis kosningabörn eru komin í magann. Þar á meðal eru vitaskuld margar ófæddar ríkisstjórnir.

Púkinn 11.7.2002
Frétt dagsins er steikt.

Hellawell hættur! 12.7.2002
Refsingar fyrir neyslu og sölu á kannabis í Bretlandi hafa nú verið mildaðar. Sitt sýnist hverjum um þá ákvörðun, en hvaða aðrar lausnir eru í boði?

Málflutningur í skötulíki 13.7.2002
Stofnun samtakanna Heimssýnar virðist hafa komið miklu fáti á svonefnda "Evrópusinna" sem eru að tæma slagorðabankann á nokkrum dögum.

Góðlegur harðjaxl deyr á Bastilludegi 14.7.2002
Hann var góðlegur, lágvaxinn, haltur og með þykk gleraugu. En líka harðjaxl og hægri hönd eins versta harðstjóra 20. aldar.

Göng eru þarfaþing 15.7.2002
Færeyingar slá ekki slöku við í vegamálum. Íslendingar geta margt af þeim lært í byggðamálum.

Andstæður mætast í Bólivíu 16.7.2002
Cocabóndinn Evo Morales er ekki þóknanlegur Bandaríkjastjórn. En árangur hans tryggir það að sjónarmið indíána fá nú loksins að heyrast í Bólivíu.

Nýlendudraugar kveðnir niður 17.7.2002
Eitt stærsta land Afríku var persónuleg eign eins Niðurlendings fyrir einni öld. En hvernig fór hann með eign sína?

Glöggt er gests augað 18.7.2002
NY Times sýnir Íslandi áhuga þessa dagana og umfjöllun blaðsins um Alcoa-málið afhjúpar ýmsar þversagnir.

Spegill, spegill, herm þú mér... 19.7.2002
Það er kominn tími til þess að íslensk stjórnvöld fari að skilja mikilvægi Ríkisútvarpsins og veita stofnuninni nægilegt rekstrarfé.

Svartur dagur í sögu þjóðarinnar 20.7.2002
Í gær fórnuðu íslensk stjórnvöld náttúruperlum sem eiga engar sínar líkar í heiminum fyrir nokkur austfirsk atkvæði. Föstudagurinn 19. júli verður svartur dagur í sögu íslenskrar náttúru og þjóðar.

Verkalýðshreyfing á tímamótum 21.7.2002
Í gær dró til tíðinda í breska verkalýðsfélaginu Amicus.

Stoppið vagninn – ég vil fara út! 22.7.2002
Það er fjári hart að þurfa sem skattborgari á Íslandi og þar með eigandi í Landsvirkjun, að horfa upp á fyrirtækið steypa sér í framkvæmd sem hæglega getur reynst nýtt Blönduævintýri á öðrum og stærri skala. En það er gjörsamlega óþolandi að vera tvöfaldur hlutahafi í ævintýrinu sem útsvarsgreiðandi í Reykjavík.

Bananalyktin gýs upp á ný 23.7.2002
Stjórnmálamenn eiga ekki að vera með puttana í rekstri fyrirtækja, segja ráðherra, en meina í rauninni "nema ég".

Vel heppnuð barnamorð á Gaza 24.7.2002
Sharon er kátur yfir árangursríkri aðgerð á Gazasvæðinu. Sú aðgerð þýddi dauða átta barna en þessi vildarvinur Bandaríkjastjórnar sefur vel yfir því.

Borgarstjóri í landsmálin? 25.7.2002
Mario Cuomo var frægur ekkiframbjóðandi til embættis Bandaríkjaforseta. Formaður Samfylkingarinnar býr við annan slíkan en öll sú umræða er þó í raun fánýt í ljósi aðstæðna í borgarmálum.

Lýðræðisríkið Ísland? 26.7.2002
Eru drottningarviðtöl íslenskra ráðamanna lýðræðinu til góðs? Eða sýna þau skort á gagnrýninni umræðu sem er forsenda virks lýðræðis?

Geimskip yfir Suðurgötunni? 27.7.2002
Hvað segja fljúgandi furðuhlutur í Vesturbænum og loftsteinn á leið til Jarðar okkur um vanda nútímavísinda?

Alþjóðavæðingin og fótboltinn 28.7.2002
Víðsvegar um heim eflist baráttuhreyfingin gegn alþjóðavæðingu fjármagnsins. Getur lífið orðið meira eins og fótboltaheimurinn?

Hvernig á að einkavæða banka? 29.7.2002
Í einkavæðingu duga engar kreddur. Það þarf að huga til eðlis starfseminnar sem rætt er um að einkavæða, ekki aðeins þegar ákveðið er hvort skuli selt, heldur líka þegar ákveðið er hvernig skuli selt.

Rauða Helen að grænka? 30.7.2002
Helen Clark hefur verið kölluð „rauða Helen“ af andstæðingunum með tilvísun til róttækni hennar í æsku. Mun hún nú mynda rauðgræna stjórn í Nýja Sjálandi?

Ímyndarvandamál 31.7.2002
Ráðgjafarnefnd Bandaríkjastjórnar segir að hún hafi slæma ímynd erlendis. En kemur sú ímynd kannski heim og saman við veruleikann?

Heimurinn árið 0 1.8.2002
Ekki aðeins lýðræðið í Aþenu forðum byggði á kúgun og þrælahaldi. Sama gildir um alheimshagkerfi nútímans. Hér segir frá því sem aldrei kemst í fréttatíma Sjónvarpsins.

Eigum við val? 2.8.2002
Erum við þægar leikbrúður markaðsmanna og þeirra sem hafa peninga til kaupa sér pólitíska umræðu?

Múrstiklur IV: Um fossa 3.8.2002
Glænýjar fréttir úr landafræðinni: Stigafoss er hærri en bæði Háifoss og Hengifoss!

Að launa illt með góðu 4.8.2002
Að mati John Stuart Mill er það einkenni lýðræðissinna að þeir vilja að „rangar“ skoðanir fái að heyrast og óttast ekki umræðu. Ekki á sig lýsing við um núverandi ríkisstjórnarflokka.

Einu sinni, einu sinni enn 5.8.2002
Endalok kalda stríðsins hafði stundum í för með sér að Bandaríkin sneru baki við verstu hrottunum í eigin liði, en nú er allt að endurtaka sig.

Gleymum ekki fórnarlömbunum! 6.8.2002
Full ástæða er til að minnast fórnarlamba kjarnorkuárásarinnar á Hiroshima, 57 árum eftir þann skelfilega atburð.

Fótboltinn og pólitíkin 7.8.2002
Ritstjóri Pressunnar kemst kannski á þing, en aldrei á íþróttadeild Moggans.

Stærsta fangelsi í heimi 8.8.2002
Á Ísraelsmönnum að líðast endalaust að kúga og svelta palestínsku þjóðina?

Staðlausir æsingastafir 9.8.2002
Stríð má aldrei verða að eðlilegum viðbrögðum við hverju sem er. Rök æsingamanna fyrir stríði gegn Írak standast alls ekki nánari skoðun.

Valið milli kúks og skíts í Kaliforníu 10.8.2002
Engir heiðarlegir frambjóðendur þar. Ennþá verra en á Íslandi!

Álver og einkabílar 11.8.2002
Íslendingar vilja ekki vera umhverfissóðar og eru það ekki í eðli sínu. En þeir þurfa að fara að vera með fullri meðvitund þegar rætt er um umhverfismál.

Nýi stíllinn forsetans 12.8.2002
Forverar Ólafs Ragnars Grímssonar reyndu fremur að skjóta sér undan hersýningum og tilheyrandi umstangi á ferðum sínum. Núverandi forseti, friðarhöfðinginn sjálfur, virðist sérstaklega í slíkar uppákomur.

Tjörnin er gallagripur 13.8.2002
Bygging bílastæðahús undir Tjörninni er viðkvæmt pólitískt mál. Væri hægt að skjóta sér hjá því?

"Farsæli forsetinn" 14.8.2002
Vísir birti nýlega minningargrein um Reagan sem að vísu er enn á lífi. Tímasetningin reyndist þó hátíð hjá innihaldinu.

Ekki-fréttir vikunnar 15.8.2002
Á sumrin gerist ekki neitt. En samt þurfa að verða fréttir. Hvernig má leysa það? Nú, auðvitað með því að búa þær til! Hér eru nokkur ímynduð sýnishorn.

Kosningar nálgast — hverjir eru valkostirnir? 16.8.2002
Kjósendur hafa sjaldan átt skýrara val en á næsta ári.

Hver er ég, hver ert þú? 17.8.2002
Femin.is er vefsíða um áhugamál kvenna. Og hver eru þau? Jú, það eru megrun og „sex“.

Íslenska stríðshetjan og Kólaskagi 18.8.2002
Sumir japanskir hermenn héldu seinni heimsstyrjöldinni áfram í 30 ár þó að fávís almúgi teldi henni lokið. Ein slík stríðshetja er hér á landi.

Gæslan og löggæslan 19.8.2002
Íslensk stjórnvöld eru dugleg að eyða um þessar mundir. Þau eru líka dugleg að spara. Spurningin er: Í hvað er fjármunum ausið en hvað er sparað?

Friðarvon í Palestínu? 20.8.2002
Hvernig er hægt að sætta Ísraelsmenn og Palestínumenn? Er árás á Írak skref í þá átt?

Afríku stafar hætta af hlýrra lofstlagi 21.8.2002
Nýleg skýrsla umhvefissamtaka bendir til að einstætt dýra- og plöntulíf Afríku sé í hættu ef ekki verður gripið til aðgerða í loftslagsmálum. Bandaríkjastjórn dregur þó lappirnar í þeim efnum.

Svindlað í spilum 22.8.2002
Sumir virðast aldrei geta sleppt því að svindla, ekki einu sinni í spilum. Þetta virðist eiga við um bandaríska herinn.

Umhverfissóðinn Alcoa 23.8.2002
Þeir gerðu það í Ghana, þeir gerðu það í Brasilíu og þeir gerðu það meira að segja í Bandaríkjunum og gera enn. Á Ísland að verða næst?

Nýr vettvangur – ný von 24.8.2002
Áður voru það óblíð örlög sem biðu uppgjafabisnessmanna. En nú hafa þeir fundið sér nýtt tækifæri.

Lest er hagkvæm 26.8.2002
Á að gera meiri kröfur um hagkvæmni af lest en hægt er að gera af nokkru öðru samgöngukerfi? Það virðist vera skilningu sumra.

Það sem enginn sér ... 27.8.2002
Er það, sem enginn hefur séð, ekki til og það, sem fáir hafa séð, þar af leiðandi varla til? Og er þá ekkert annað að gera en sökkva því í vatn?

Reaganisminn hefur innreið sína í íslenskt heilbrigðiskerfi 28.8.2002
Þegar sjöunda ríkasta þjóð heims rekur fárveikt fólk út af sjúkrahúsum og enginn ráðamaður þykist bera ábyrgð á ástandinu þá kominn tími til að staldra við og spyrja hvert stefni.

Stóriðjuorðabókin stækkar 29.8.2002
Margir af þeim frösum sem fylgismenn risavirkjana og stóriðju nota óspart virðast hljóma ágætlega að lítt athuguðu máli. En svo fer gamanið að kárna.

Fallandi gengi 30.8.2002
Gengi Decode er í lágmarki og þjóðin hefur fengið gott dæmi um viðskiptavit Davíðs og Halldórs.

Vitnið sem brást 31.8.2002
Stríðsglæparéttarhöldin yfir Milosevic virðast vera að leysast upp í vitleysu.

Byrði hvíta mannsins 1.9.2002
Nú láta hægrimenn um heim allan sem vandamál Afríku séu einfaldlega Mugabe forseti Zimbabwe og fleiri spilltir stjórnendur. En málið er miklu miklu flóknara og sökudólgarnir ekki aðeins svartir.

Batnandi mönnum er best að lifa 2.9.2002
Í seinasta Reykjavíkurbréfi Morgunblaðsins gætti sjaldséðra efasemda um réttmæti þess að Bandaríkjaher
stjórni heiminum eftir höfði ráðamanna í Washington. Eflaust er ástæða til að gleðjast, þótt lengra megi ganga.

Stríðsvetur 3.9.2002
Það er ekki einungis innanlandspólitíkin sem er farin að endurtaka sig frá 1998-1999. Stjórnir nokkurra ríkja heims eru farnar að búa sig undir stríðsátök.

Miðopna öfganna 4.9.2002
Skyldi Morgunblaðið ætla að bjóða David Irving næst til að skrifa í blaðið um það hvort helförin hafi átt sér stað? A.m.k. væri það í samræmi við "vísindastefnu" blaðsins.

Ridiculus mus 5.9.2002
"Fjallið tók jóðsótt og það fæddist mús." Hið sama má segja um efnislegt innihald í gagnrýni Atla Harðarsonar á "græningja".

Samræmt eða einstaklingsmiðað nám? 6.9.2002
Nú hefur ný hugmyndafræði rutt sér til rúms í íslensku skólakerfi.

Blóðskuld 7.9.2002
Stundum er sagt að fólk búi við þær ríkisstjórnir sem það eigi skildar en getur einhver þjóð verðskuldað Tony Blair?

Hver er Grigory Pasko? 8.9.2002
Það erekki nóg að undirrita alþjóðlega sáttmála, það verður líka að framfylgja þeim.

Velferð okkar allra 9.9.2002
Í næstu þingkosningum verður kosið um velferðarmál enda skipta þau langflesta landsmenn miklu máli.

Sinnepsolíusamsærið mikla 10.9.2002
Þegar nokkrir tugir manna létust eftir að hafa neytt mengaðrar matarolíu greip Indlandsstjórn í taumana. En hverjir voru í raun hinir seku?

Glötuð tækifæri 11.9.2002
Ári eftir hryðjuverkin á New York er við hæfi að líta til baka og velta fyrir sér því sem gerst hefur í kjölfar þeirra. Þar getur að líta ýmis glötuð tækifæri.

Fyrst er að vilja ... 12.9.2002
Mikill meirihluti þjóðarinnar er andvígur sölu ríkisbanka. En ríkisstjórnin ætlar samt að fara sínu fram og það sem meira er, henni tekst sérlega illa upp við verkið.

Búlgarskar eiturregnhlífar á útsölu? 13.9.2002
Í ríki sem ekki á nóg fé til að leyfa heilabiluðum að dvelja á spítala er nú ætlunin að fara að stofna leyniþjónustu. Vonandi verða keyptar útsöluvörur til að spara.

Góður penni á villigötum 14.9.2002
Er Gunnar Smári Egilsson hættur að vera beittur þjóðfélagsrýnir og orðinn að geðstirðu gamalmenni sem getur ekki nema nöldrað?

Hin gleymdu fórnarlömb 16.9.2002
Í Sabra og Sjatilla hrundu engar glæsibyggingar. Fórnarlömbin þar voru fyrst og fremst fólk. En heimur þess breyttist vissulega þann dag.

Persson sigurvegari — eða hvað? 17.9.2002
Eyðimerkurganga sænsku borgaraflokkanna heldur áfram — eða hvað?

Það gerist ekki hér 18.9.2002
„Það gerist ekki hér,“ sögðu menn til skamms tíma á Íslandi þegar kynferðislegt ofbeldi gegn börnum bar á góma. Síðar kom í ljós að það gerðist líka hér eins og flest sem gerist annars staðar.

Jakkaföt og marmari 19.9.2002
Á að bæta við einni hæð á þetta hús? Er betra að kenna í þessu plássi eða hinu? Á að leggja veginn hérna megin eða hinum megin? Hlýtur ekki einhver sérfræðingur að vita það?

Riddararnir sem segja Ni! 20.9.2002
The Holy Grail var fyndin mynd, ekki síst riddararnir sem sögðu Ni! Óbilgirni þeirra er hins vegar því miður ekki einstök í sinni röð.

Norður og suður glíma á Fílabeinsströndinni 21.9.2002
Stjórnarhermenn á Fílabeinsströndinni hafa myrt Guei, fyrrverandi forseta landsins. Hvað býr að baki ofbeldinu?

Íslenski herinn 22.9.2002
Hvaða her er þetta sem á að ræða á NATO-fundinum í Varsjá í vikunni?

Engin gjöreyðingarvopn í Írak 23.9.2002
Ríkisstjórn Íraks hefur nú samþykkt að taka á ný við vopnaeftirlitsmönnum Sameinuðu þjóðanna. En starfi þeirra er í raun lokið og búið að eyða 90% af hættulegustu vopnum Íraka.

Þjóðráð ungliðanna 24.9.2002
Lukku-Láki er ekki einn um að veita þjóðráð. Ungliðar VG geta veitt þau líka.

Miklar fréttir af litlu sem engu 25.9.2002
Skyldi einhver íslenskur fjölmiðlamaður hafa lesið Íraks-skýrslu Tony Blair áður en viðkomandi sagði fréttir af henni í gær?

Leiðtogi stjórnarflokks leitar á náðir Frakka 26.9.2002
Fréttir af ólgu á Fílabeinsströndinni vekja upp fleiri spurningar en svör. Hverjir eigast þarna við? Hver er forsaga málsins?

Söguspeki ritstjórans 27.9.2002
Leiðari Óla Björns Kárasonar í DV í gær er dæmi um það hvernig fylgispekt við risaveldi útilokar gagnrýna hugsun. Þeir sem tala hástöfum um lærdóma sögunnar ættu kannski að byrja á lærdómum síðasta árs áður en lengra er leitað.

Almenningur á götum úti 28.9.2002
Þó margir telji ljóst að stríðsþyrstar ríkisstjórnir í Washington og London muni ráðast á Írak áður en langt um líður er almenningur í Bretlandi ekki búinn að gefast upp.

Vinnur Lula loksins sigur? 29.9.2002
Róttæklingurinn Luiz Inacio da Silva er með 20% forystu í könnunum þegar vika er til forsetakosninga í Brasilíu. Eftir fjölmarga ósigra virðist næstum útilokað að hann glutri forskotinu niður að þessu sinni. En samt ...

Síðasta sprænan í dalnum 30.9.2002
Ríkasta land í heimi er á góðri leið með að verða sárfátækt. Vilja Íslendingar feta sömu slóð?

Nóg af steypu! 1.10.2002
Markmið Háskóla Íslands næstu 3 árin einkennast af fögrum orðum en þeir sem til þekkja hljóta að spyrja um efndir á fyrri heitstrengingum.

Virðing Sameinuðu þjóðanna 2.10.2002
Nú er Sameinuðu þjóðunum í einu orðinu hótað af þeim sem í öðru segjast bera virðingu þeirra mest fyrir brjósti.

Heimsveldið og alþjóðasamfélagið 3.10.2002
Stærsta útlagaríki heimsins er ekki í Mið-Austurlöndum heldur vestan Atlantsála og leiðtogar þess gera allt sem þeir geta til að grafa undan alþjóðasamfélaginu.

Hugsum til framtíðar 4.10.2002
Hið óþjála slagorð sem náttúruverndarsinnar höfðu uppi á Austurvelli 1. október felur í sér uppbyggilega og framsýna atvinnustefnu, stefnu sem andstæðingar þeirra fást ekki til að ræða.

Argentínumenn missa trúna á lýðræðið 5.10.2002
Ný skoðanakönnun Latinobarometro sýnir pólitísku hliðina á hruninu sem varð í landinu um síðustu áramót þegar nýfrjálshyggjumódel Alþjóðagjaldeyrissjóðsins reið efnahagslífi tilraunadýrsins að fullu.

Á pí að vera fjórir? 6.10.2002
Forseti alþingis hefur gefið út tilskipun um það að Egilssaga sé eftir Snorra Sturluson. En eru slík opinber afskipti af niðurstöðum vísindamanna til góðs?

Ráðherra hinna fáu 7.10.2002
Geir H. Haarde hefur hafið keppni um Íslandsmeistaratitil í rökfimi en fer líklega best að hætta í miðju kafi. Eða bara sem fyrst.

Í takt við Davíð 8.10.2002
Forsætisráðherra er ekki bara hnefaleikakappi góður heldur sérfræðingur í tónfræði, sérstaklega þeirri list að ganga í takt. Og nú hefur hann gefið háskólamönnum góð ráð þar um.

Stórsigur Lula – afhroð frjálshyggjumanna í Brasilíu 9.10.2002
Nokkuð hefur borið á furðulegum túlkunum kosningaúrslitanna í Brasilíu hjá íslenskum fjölmiðlum og virðist sem óskhyggjan beri menn stundum nokkuð af leið.

LEYNDÓ 10.10.2002
Er leynilögregla sem njósnar um Íslendinga og ofsækir fólk fyrir stjórnmálaskoðanir virkilega það sem helst vantar hér á landi?

Múrinn rokkar í kvöld 11.10.2002
Í kvöld verða undur nokkur og stórmerki á Hallveigarstöðum sem standa við Túngötu.

Já er ekkert svar 12.10.2002
Jimmy Carter fékk Nóbelsverðlaun fyrir að trúa á samningaleiðina. Ríkisstjórn Íslands fylgir hins vegar öðrum Bandaríkjaforseta sem sinni leiðarstjörnu. Þó að flestir Íslendingar séu Lútherstrúar.

Draumur um straum? 13.10.2002
Þó það heyri undir stjórnvöld en ekki stjórn Landsvirkjunar að marka stefnu í raforkumálum í landinu þá er óhjákvæmilegt að spyrja hver starfi í umboði hvers í ljósi nýlegrar umræðu um þessi mál.

Atrenna að heimsmeti í hræsni 14.10.2002
Hvað kallast það að ráðgera innrás í Írak og rölta með herforingjum þaðan um stórsýningu vopnaframleiðenda á sama tíma?

Að borða hval er þjóðlegt sport 15.10.2002
Íslendingar eru hvalveiðiþjóð og í þessu eina máli hafa þeir þorað að taka sjálfstæðu afstöðu, þó að óvinsæl væri.

Rauði listinn lengist enn 16.10.2002
Rauði listinn um dýrategundir í útrýmingahættu var nýlega gefinn út á ný. Enn fjölgar tegundum á honum.

Eðlileg morð? 17.10.2002
Leyniskyttan sem komist hefur í heimsfréttirnar er ekki eini morðinginn í Virginíuríki. Hvers vegna vekur mál hans þá svona mikla athygli?

Leysa lyfin vandann? 18.10.2002
Verða Íslendingar ekki að fara að tala meira um vandamál sín áður en allir verða komnir á geðlyf? Múrinn veltir upp lausnum á þessum vanda.

Lagaákvæðin sem vantar 19.10.2002
Pétur Blöndal og Múrinn vilja ala upp börnin. Til þess þarf velútfærð lög.

Að þiggja það sem er ókeypis 21.10.2002
Forsætisráðherra telur að fólk leiti til Mæðrastyrksnefndar að óþörfu. Hvenær ætlar hann að taka ofan gleraugun og horfast í augu við þá neyð sem stjórnarstefna hans hefur skapað?

Fátt er svo með öllu illt 22.10.2002
Með Nice-sáttmálanum verða breytingar á stofnsáttmála Evrópusambandsins sem gætu gert tvíhliða samninga auðveldari. Það eru góð tíðindi fyrir Íslendinga.

Vopnaeftirlitsmanni rænt! 23.10.2002
Það væri ömurlegt ef menn létu það viðgangast að vísindamanni, sem hefði flúið frá Írak og látið vestrænum fjölmiðlum í té upplýsingar um kjarnorkuvopn Íraka, væri síðan rænt af leyniþjónustu Saddams.

Breskur stálnagli lætur gamminn geysa! 24.10.2002
Loksins, loksins er Mark Steel kominn og mun troða upp í Stúdentakjallaranum í kvöld.

Hryðjuverkamenn eru af ýmsum toga 25.10.2002
Téténskir hryðjuverkamenn halda nú nokkurhundruð leikhúsgestum í gíslingu í Moskvu. Það vekur upp spurningar um hverjir teljast hryðjuverkamenn og hverjir ekki.

Gegn fordómum? 26.10.2002
Nýleg könnun um viðhorf Íslendinga til íbúa af erlendum uppruna gaf ekki tilefni til bjartsýni. Til að koma á fjölmenningalegu samfélagi er hægt að grípa til ýmissa ráða.

Öryggi, vopn og leyniskyttur 27.10.2002
„Óvirnir“ koma ekki alltaf að utan og þeim verður ekki til lengdar svarað í sömu mynt. Þessar og fleiri ályktanir má draga af ofbeldisverkunum sem núna setja svip sinn á hinn vopnaða heim okkar.

Er ekki kominn tími til átta sig? 28.10.2002
Dráp rússneskra yfirvalda á 50 hryðjuverkamönnum og 117 óbreyttum borgurum í leikhúsi í Moskvu nú um helgina eru skelfilegur vitnisburður um afleiðingar þess pólitíska rétttrúnaðar að ofbeldi leysi allan vanda.

Ný von fyrir vinstrimenn í Rómönsku Ameríku 29.10.2002
Vinstrimaðurinn Luis Inacio da Silva var eitt sinn skóburstunardrengur og verkamaður í stáliðnaði. Helsta verkefni hans er að draga úr misskiptingu auðs í fátæku landi sem er að sligast undir afborgunum til alþjóðastofnana.

Blóðþorsti bandaríska réttarkerfisins 30.10.2002
Umræða um réttarhöld yfir leyniskyttunum í Bandaríkjunum snýst öll um vilja ákæruvaldsins til að taka unglinga af lífi. Þetta vekur upp spurningar um bandarískt réttarkerfi og ofbeldismenningu.

Gore Vidal gagnrýnir Bush 31.10.2002
Rithöfundur sem býr í útlegð er einn fárra Bandaríkjamanna sem gagnrýnir núverandi stjórnvöld og sakar þau um að bera sjálf ábyrgð á hryðjuverkum.

Þannig á að sameina 1.11.2002
Það er að vísu ekki háttur Samfylkingarforystunnar að vera samkvæm sjálfri sér en öllu má ofgera.

Þegar hentistefna verður að trú 2.11.2002
Það sem einu sinni var haft stjórnmálamönnum til háðungar er nú hrós, mál málanna 1999 skiptir ekki lengur máli og íslenskir kratar leggja nótt við dag að semja afsakanir fyrir því að horfa til hægri eftir næstu kosningar.

Á hvaða plánetu búa þeir? 3.11.2002
Þegar stríðsgleði Bandaríkjastjórnar er farin að ganga fram af herforingjum og háttsettum mönnum í Pentagon er von að spurt sé á hvaða plánetu þau stjórnvöld eiginlega ali manninn.

Síðasta landnámið 4.11.2002
Það er ekki lengra en átta ár síðan upptök Mekong-fljótsins voru könnuð af mönnum í fyrsta sinn enda eru Himalaja-fjöllin ekki með greiðfærari svæðum heims. Nú er öllu Mekong-svæðinu meira og minna ógnað af 40 milljarða dollara hagsmunum stóriðju og raforkuframleiðslu ásamt risavöxnum hugmyndum um samgöngur og stórfelldan ferðamannaiðnað.

Sigur íslamsflokks í Tyrklandi 5.11.2002
Flokkur með „íslamskar áherslur“ vann stórsigur í þingkosningum um helgina, ekki síst vegna rangláts kosningakerfis. En ekki er sopið kálið þó í ausuna sé komið.

Ritskoðunin gengur samkvæmt áætlun 6.11.2002
Það er ritskoðun út um allt. Ekki bara á Kistunni.

Illur grunur um árásir NATO staðfestur 7.11.2002
Mengunin af völdum loftárásanna á Júgóslavíu 1999 mun þrengja að mörgum kynslóðum í landinu, langt inn í framtíðina og nú eru uppi vangaveltur um að slíkar árásir brjóti í bága við alþjóðalög.

Eins og allir hinir 8.11.2002
Þurfa íslenskir kjósendur að gera það sem „allir hinir“ gera? Eða eigum við ennþá frjálsan vilja, þó að við séum jafnvel „aðilar að þróun“.

Leynimenntastefna ríkisins 9.11.2002
Íslensk stjórnvöld reka hér menntastefnu sem þau firra sig ábyrgð á og meginatriði hennar virðist vera að þvinga fram skólagjöld þar sem þau eru ekki tekin nú.

Múrstiklur 10.11.2002
Einhver hefði kannski haldið að Múrinn nennti að halda úti pólitískri umræðu á sunnudögum líka. En það er nú annað enn. Í staðinn geta menn lesið um vetraríþróttir á Múrnum.

Gömul ógn í nýjum heimi 11.11.2002
Stundum er rætt um að öryggismál þurfi að ræða í nýju samhengi. Sömu menn eru hins vegar fastir í röngum skilgreiningum á hugtökum á borð við „ógn“ og „öryggi“.

Ys og þys út af engu 12.11.2002
Eftir öll lætin í kringum prófkjör Samfylkingarinnar er niðurstaðan sú að víðast hvar verða bornir fram óbreyttir listar frá seinustu kosningum. Til hvers er þá leikurinn gerður?

Svona gera menn ekki 13.11.2002
Utanríkisstefna Ísraels byggist örðu fremur á hefndarreglunni. Réttlæti eða ranglæti skiptir engu, bara það að sýnast sterkur og hefna sín.

Sprengjuvörpu á hvert heimili 14.11.2002
Vefritið Deiglan tók nýlega fyrir það þjóðþrifamál sem "sjálfsvarnarbúnaður" er.

Eftirlætisnemandi skítfellur aftur 15.11.2002
Efnahagshrunið í Argentínu um síðustu áramót var eitthvert mesta kjaftshögg sem nýfrjálshyggjuklerkarnir hjá Alþjóðagjaldeyrissjóðnum og Alþjóðabankanum hafa fengið í seinni tíð.

Að hengja Óðin fyrir Gísla 16.11.2002
Greinarhöfundur Múrsins gerði ljót mistök sl. sumar sem brýnt er að leiðrétta.

Dulin aðskilnaðarstefna 17.11.2002
„Börn eru tilgangur lífsins“ segja foreldrar oft, barnlausum Múrverja til mikillar skapraunar. En af hverju fá þá börnin og foreldrarnir að hittast? Eru börnin hinn týndi tilgangur?

Varnarsigrar í Santiago 18.11.2002
Er eitthvað vit í því að skjóta dýr til að koma í veg fyrir útrýmingu þeirra? Ekki er samfélag þjóðanna á þeirri skoðun.

Morgunblaðið og velferðarkerfið 19.11.2002
Morgunblaðið treystir ekki Steingrími J. fyrir velferðarmálunum. Það treystir á að Davíð ætli þar á 13. stjórnarárinu að hjálpa hinum fátæku og snauðu — eða á það kannski að gerast á 20 ára embættisafmælinu? Væri nú ekki viðeigandi að losa fanga núverandi stjórnarstefnu úr prísundinni einmitt þá?

Haukþing á bergi 20.11.2002
Alþingi var ekki endurreist sem haukþing á bergi á sínum tíma en víst er að í Washington má finna haukþing þó með öðrum hætti sé.

Ofsóttur minnihlutahópur 21.11.2002
Á Íslandi hafa hingað til ekki verið ofsóttir minnihlutahópar. Nú hefur orðið breyting þar á og svo virðist sem Framsóknarmenn séu hvergi óhultir.

Eitthvað var gert – hver er árangurinn? 22.11.2002
Ári eftir stríðið í Afganistan hefur ennþá enginn verið handtekinn sem hægt er að bendla við hryðjuverkin gegn World Trade Center. Usama Bin Laden er sprækari en nokkru sinni fyrr. 10 þúsund saklausir Afganistan voru drepnir. Og NATO og íslenska ríkisstjórnin hrópa húrra, húrra, húrra, og vilja nýja „aðgerð“ af sama toga.

Hótanir litla gerpisins 23.11.2002
Frammistaða íslenskra stjórnvalda rifjar stundum upp skólalóðina í bernsku.

Hungraðir sveltir til hlýðni 24.11.2002
Robert Mugabe, forseti Zimbabwe, misnotar neyðarhjálp til að svelta óþæga landsmenn til hlýðni. Önnur ríkisstjórn gerir það raunar líka.

Undarlegar aðferðir lögreglu 25.11.2002
Framhaldsskólanemi skrifaði Morgunblaðinu og lagði til að stjórnmálamenn hættu að tala um skelfilegt ástand alþjóðamála svo landsmenn gætu öðlast hugarró. Nú virðist sem neminn verði að skrúfa bæði fyrir erlendar og innlendar fréttir til að halda sönsum.

Múrinn 26.11.2002
Ísrael skákar í skjóli þess að sum ríki eru jafnari en önnur en í hinu nýju alheimskerfi. Það hefur aldrei verið skýrara en nú þegar þeir eru teknir að rísa múr til að loka inni Palestínumenn, án þess að heyrist hósta né stuni frá þeim sem hvað ákafast ræddu Berlínarmúrinn á sínum tíma.

Til hvers er tollurinn? 27.11.2002
Eru aðgerðir lögreglunnar gegn Ástþóri Magnússyni til marks um óþol ráðamanna fyrir gagnrýninni umræðu um utanríkisstefnu ríkisstjórnarinnar? Hvers vegna treystir ríkisstjórnin sér ekki í slíka umræðu?

Ertu friðarsinni eða stríðsæsingamaður? 28.11.2002
Ritstjórn Múrsins hefur rökstuddan grun um að efnt verði til mótmælafundar á Austurvelli á morgun, föstudaginn 29. nóvember klukkan 12:30, og telur það borgaralega skyldu sína að vekja á því athygli.

Engin vettlingatök í Ameríku 29.11.2002
Davíð Oddsson hefur gefið það út að þeir sem brjóti gegn nýju hryðjuverkalögunum verði ekki teknir neinum vettlingatökum. Fyrirmyndirnar má sækja til fyrirmyndarríkisins í vestri ef á þarf að halda.

Neyslustýring ríkisins 30.11.2002
Er verið að stýra neyslu landsmanna og mismuna þeim sem drekka sterk vín og hinum? Múrinn sér ekki betur.

Hagsýnir herramenn 1.12.2002
Af hverju hefur það haft jafn alvarlegar afleiðingar og raun ber vitni að tankskipið Prestige fórst út af strönd Galisíu fyrir hálfum mánuði?

Friður á uppsprengdu verði 2.12.2002
Bardagar halda áfram í stríði sem er löngu lokið í Afghanistan. Hvaða lærdóma má draga af því?

Aðeins tveir flokkar? 3.12.2002
Eru tveir flokkar á Íslandi? Eða hafa fjölmiðlar ekki lengur þá skyldu að gæta jafnvægis í fjölmiðlaumfjöllun? Hvaða áhrif hefur það á lýðræðið í landinu?

Flokkurinn sem ekkert breyttist 4.12.2002
Stórsigur sitjandi þingmanna Samfylkingarinnar í nýafstöðnum prófkjörum virðist af mörgum vera túlkaður sem stórkostleg vinstrisveifla.

Sósíalistar sigra í þingkosningum á Grænlandi 5.12.2002
Í þingkosningunum á Grænlandi sl. þriðjudag kusu landsmenn til vinstri, með sjálfstæði og gegn heimsvaldastefnu. Úrslitin gætu haft áhrif á nýjustu stjörnustríðsáform Bandaríkjastjórnar sem danska hægristjórnin hefur lýst stuðningi við.

Dýrkeypt barátta um forystusæti 6.12.2002
Sérkennileg vígsluuathöfn átti sér stað í Fljótsdalnum í gær þegar brú yfir Jökulsá var formlega tekin í notkun. Ó já. Afar sérkennileg.

Stríð á dag kemur skapinu í lag 7.12.2002
Hvaða máli skipta frelsi og lýðræði þegar peningar eru annars vegar? Ekki miklu ef miða á við utanríkisstefnu Bandaríkjamanna.

Bush tapar naumlega fyrir Saddam 8.12.2002
Naumt tap Bandaríkjaforseta fyrir Saddam Hussein var vissulega ekki í vinsældakeppni en samt sem áður merkilegt.

Nýju óskabörnin 9.12.2002
Mikið er látið í fjölmiðlum með erlendu verktakafyrirtækin sem buðu í Kárahnjúkavirkjun. Þau hafa komið víða við á undanförnum árum og gert ýmislegt sem vert er að minnast.

Friðarverðlaun á villigötum 10.12.2002
Í dag fær Jimmy Carter friðarverðlaun Nóbels. Þó hann hafi talað fyrir friði á síðustu árum er ýmislegt í hans fortíð sem gefur lítt tilefni til slíkrar verðlaunaafhendingar.

Endalok 30 ára stríðsins? 11.12.2002
Angóla er auðugt land frá náttúrunnar hendi, en langvinnt stríð hefur gert líf íbúanna að hreinni hörmung. Er úrlausn í nánd?

Framhaldsskólinn í megrun? 12.12.2002
Sjálfstæðisflokkurinn hefur verið að brýna sparnaðarhnífinn og framhaldsskólarnir eru næsta fórnarlambið. Þar á bæ ættu menn svo sannarlega að hafa áhyggjur því að sporin hræða.

Enn ein náttúruperlan í hættu 13.12.2002
Héðinsfjörður er vinsæll áningarstaður ferðamanna. Það gæti breyst með nýjum jarðgöngum.

Nasistaákvæðið endurlífgað 14.12.2002
Dómur Hæstaréttar yfir þremur mönnum sem köstuðu molotovkokkteil í bandaríska sendiráðið hefur vakið nokkra athygli enda er þar endurlífgað sama ákvæði og Steinn Steinarr var dæmdur samkvæmt þegar hann reif niður fána nasista.

Flestir samviskufangarnir lausir úr haldi 15.12.2002
Nýlega var upplýst í Bandaríkjunum að flest af því fólki, sem var hneppt í varðhald eftir hryðjuverkin í New York á síðasta ári, hefði verið látið laust, sent úr landi eða sakfellt fyrir smávægileg afbrot sem ekki tengjast hryðjuverkunum með nokkru móti.

Úr afrekaskrá Impregilo 16.12.2002
Friðrik Sophusson benti réttilega á það að Impregilo hefði mikla reynslu af stíflugerð. Impregilo hefur líka mikla reynslu af tilboðsgerð.

Frá söguburði til stríðs 17.12.2002
Fréttaflutningur af málefnum Íraks er með hreinum ólíkindum. Gegn fölsununum og skruminu standa þó fjölmargir einstaklingar um víða veröld. Þar á meðal er Sean Penn...

Um orðheldni og einkavæðingu 18.12.2002
Jón Krisjánsson heilbrigðisráðherra hefur hingað til verið talinn maður grandvar og orðheldinn. Nýleg einkavæðingaráform í heilsugæslunni kasta rýrð á þá ímynd, þrátt fyrir máttlausa tilburði ráðherrans til að breiða yfir það.

Útlendingarnir sem stela störfunum 19.12.2002
Frétt dagsins fjallar um stöðu flóttamanna í heiminum. Hissa? Áttuði von á einhverju öðru?

Framtíð Reykjavíkurlistans 20.12.2002
Ingibjörg Sólrún Gísladóttir hefur nú yfirgefið hluta kjósenda sinna frá því í vor. Hún hefur ekki lengur meirihlutastuðning í borgarstjórn og hlýtur að segja af sér á næstu dögum. Reykjavíkurlistasamstarfið á að lifa það af.

Danir deila um eldflaugar 21.12.2002
Danir eru ekki á eitt sáttir um að leyfa Bandaríkjamönnum að nota Thule-herstöðina fyrir eldflaugavarnakerfi sitt. Er eitthvert gagn í kerfinu? Er rétt að svara vopnum með stærri og fleiri vopnum?

Boltinn hjá Samfylkingunni 22.12.2002
Vinstrigrænir og Framsóknarmenn hafa með ákveðnum hætti lýst því yfir að þeir vilji halda R-listasamstarfinu áfram. En hvað gerir Samfylkingin?

Gangan langa 23.12.2002
Gangan gegn ofbeldi og fyrir friði er eflaust orðin með þeim lengri í sögu mannkyns en hún er að líkindum sú brýnasta. Þar geta allir lagt sitt af mörkum, hvort sem fleiri eða færri ganga saman hverju sinni.

Afganistan, Írak og gullfiskarnir 24.12.2002
Á sínum tíma lærðum við að elska kúgaðar konur í Afganistan nógu mikið til að sprengja þær í tætlur af mannúðarástæðum en nú virðast flestir vilja gleyma þeim sem lifðu ást okkar af.

Midge – ógn og skelfing vestursins 25.12.2002
Hún kom í heiminn 1963 og var hvers manns hugljúfi til skamms tíma. En nú er hún "fallin kona".

Af tvöföldu siðferði 26.12.2002
Jólaboðskapur George Robertsons framkvæmdastjóra Nató er boðskapur stríðs og hörmunga. Robertson hefur með honum sýnt að hann er ekkert annað en skósveinn Bush Bandaríkjaforseta.

Jólaleikrit Samfylkingarinnar? 27.12.2002
Það er kannski ekki skemmtilegt en skáldskapur samt og meiningin að þeir sem áttu að vera með að tækju sín hlutverk án þess að mögla.

Þetta er allt saman samsæri 29.12.2002
Biturleiki einkennir skrif íslenskra jafnaðarmanna um þessar mundir, hvort sem þar eru á ferð fyrrverandi formaður að gera upp við samsæri "Moskvutrúboðsins“ eða stuðningsmenn nútímalega jafnaðarmannsins sem er ekki bundinn af jafn miklu fánýti og orðum sínum.

Nokkur orð um traust 30.12.2002
Hetjan í ævintýrinu plataði tröllin með því að skjóta sér í kringum sannleikann, en þannig kemur maður ekki fram við samherja sína.

Nýársleikrit Múrsins – sjónarspil í þremur þáttum. 31.12.2002
Hér er ekkert hopsasa á eldhúsborðinu eins og í RÚV-leikritunum í gamla daga. En gott er það samt.

Nýárshugvekja 1.1.2003
Múrinn er í áramótaskapi og einn ritstjórnarmeðlima strengir áramótaheit.

Alltaf að græða 2.1.2003
Ríkisstjórn Íslands þykist viðskiptasinnuð. Viðskiptavit hennar sjálfrar er hins vegar í mýflugumynd, hvort sem kemur að fjarskiptum, álverum eða bönkum.

Frumkvæði Suður-Kóreu í friðarmálum 3.1.2003
Ástæða er til að fagna því frumkvæði sem ríkisstjórn Suður-Kóreu hefur nú tekið í málefnum skagans. Þrátt fyrir svarthvíta mynd sem dregin hefur verið upp á Vesturlöndum er saga seinustu hálfrar aldar full af glæpum og lögbrotum á báða bóga.

Ráðherrar og túkallar 4.1.2003
Þegar spurt er hvort ríkisstjórnin myndi láta reisa Kárahnjúkavirkjun, vitandi að það yrði stórfellt tap af henni, þá bendir allt til að svarið sé já.

Vilhjálmur meiddur og heill gerr 5.1.2003
Sturlungaöldin hjá Sjálfstæðisflokknum í Norðvesturkjördæmi er farin að fylgja Sturlungaöldinni gömlu nákvæmar en nokkurn hefði órað fyrir. Var einhver að tala um að við lifðum ekki á spennandi tímum?

Kos ví dónt rilí gif a dem 6.1.2003
Sumu fólki er alveg sama um allt nema virkjanir... og kók.

Andstaðan skiptir máli 7.1.2003
Á Íslandi fer heldur lítið fyrir andstöðu við stríð í Írak. En ætlum við virkilega að leyfa Bandaríkjamönnum að fara í stríð án nokkurra skynsamlegra raka? Er skilyrðislaus hlýðni við Bandaríkjamenn hin „raunverulega miðja“ í íslenskum stjórnmálum?

Þegjandaleg draumaverksmiðja 8.1.2003
Hollywood hefur gjarnan látið í sér heyra þegar kemur að mannúðar- og friðarmálum. En draumaverksmiðjan þegir um stríðið gegn Írak.

Þegar Kiribati flýtti aldamótunum... 9.1.2003
Kastró frestaði jólunum, en íbúar Kyrrahafseyjanna létu nægja að hnika sér til um einn dag. Það var þó ekki að ástæðulausu.


Hleðslur - 3. árgangur

Stríðum gegn stríði 11.1.2002
Íslendingar eiga nú í stríði að undirlagi Bandaríkjaforseta. En hver er hinn skilgreindi óvinur? Eru hryðjuverk aðeins framin af leynisamtökum þeirra sem eru undir í samfélaginu?

Um hvað er kosið? 15.1.2002
Af hverju ætti almenningur og aðrir en þeir sem málið varðar að hafa skoðun á því hvernig sjálfstæðismenn velja leiðtoga sinn í Reykjavík?

Svört skýrsla Barnahjálparinnar 18.1.2002
Umbyltingarnar í Austur-Evrópu á seinustu árum eiga sér skuggahlið. Nýlega birti Barnahjálp Sameinuðu þjóðarinnar hnausþykka skýrslu um fátæk börn í þessum heimshluta.

Hlekkjaðir fangar í vírnetsbúrum 22.1.2002
Meðferð Bandaríkjamanna á stríðsföngum frá Afganistan hefur verið gagnrýnd af mannréttindasamtökum um víðan heim og margir spyrja sig af því hvert vestræn ríki stefni í mannréttindamálum.

Hið sanna ástand Lomborgs 25.1.2002
Í nýju hefti Scientific American fá „vísindi“ tölfræðingsins Lomborg falleinkunn.

Hvert er hlutverk Kanasjónvarpsins? 29.1.2002
Á amerísk þjóðernisremba Jay Leno erindi við Íslendinga? Og þá hvaða erindi?

IMF: Alþjóðleg hjálparhönd eða ólýðræðisleg blóðsuga? 1.2.2002
Hvað er það í uppbyggingu, stefnu og störfum Alþjóðagjaldeyrissjóðsins sem veldur því að hann er ein óvinsælasta stofnunin meðal þeirra sem andæfa alþjóðavæðingu fjármagnsins?

Hver er José Bové? 5.2.2002
Hann hefur verið kallaður "atvinnumótmælandi", "brjálæðingur" og "hryðjuverkamaður". En hver er hann? Hér er rakin saga eins helsta andófsmanns nútímans.

Ófriðarverðlaun Alfreds 8.2.2002
Það hljómar eins og ósmekklegur brandari að Tony Blair og George W. Bush hafi verið orðaðir við friðarverðlaun Nóbels. Velta má fyrir sér helstu afrekum þeirra á því sviði.

Regnskógar Indónesíu í hættu 12.2.2002
Frjálshyggjan á að leysa öll mál og þar á meðal umhverfisvandann enda fari menn betur með eigið fé en annarra. Dæmin sanna hins vegar að svo er ekki.

Risaveldin: Fangabúðir heimsins? 15.2.2002
Sitt sýnist hverjum um hver sé forystuþjóð hins frjálsa heims. En ætli það ríki þar sem flestir þegnar sitja bak við lás og slá hljóti ekki að teljast í forystu hins ófrjálsa heims.

Jóhannesarborg - félagslegir þættir sjálfbærrar þróunar 19.2.2002
Á hausti komanda standa Sameinuðu þjóðirnar fyrir heimsráðstefnu í Jóhannesarborg til að meta stöðuna í málefnum sjálfbærrar þróunar. Nú verður aðaláherslan lögð á félagslegu þættina.

Ráðagóðu riddararnir 22.2.2002
Engin heimsins völva hefði getað séð fyrir meistaralega fléttu stjórnenda Landssímans í fasteignaviðskiptum enda minnir hún meira á jarðasölubrandarann í áramótaskaupinu en afburðahæfa stjórnendur sem verðskulda meira en milljón á mánuði.

“Okkar tíkarsonur” í Angóla fallinn frá 26.2.2002
Sagan af Jonas Savimbi, stofnanda og leiðtoga Unitaskæruliðahreyfingarinnar í Angóla, er dæmi þess hvernig Kalda stríðið varð vatn á myllu illmenna um allan heim. Þrátt fyrir svarthvíta heimsmynd náðu svart og hvítt oft saman - til að gera illt.

Nýr formaður PRI sakaður um kosningasvindl 1.3.2002
Það er næstum spaugilegt að flokkurinn sem stundaði kosningasvindl í áratugi skuli loga í deilum um innanflokkssvindl. En stefnumið nýja formannsins eru fremur skringileg en brosleg.

Stórverkefni framundan í vegagerð 5.3.2002
Enginn áhugamaður um malbikun vega má láta þessa úttekt á langtímaáætlun í vegagerð framhjá sér fara!

Gerum eins og íhaldið! 8.3.2002
Reykvíkingar kjósa ekki eftir póstnúmerum. Það skilja Sjálfstæðismenn og fleiri mættu af því læra.

Átján ára stúdentsprófsaldur? 12.3.2002
Áhrifamenn í þjóðfélaginu hvetja nú til þess að stúdentsprófsaldur sé lækkaður. Það er áhugaverð hugmynd en þarfnast ígrundunar.

Vitund og vild 15.3.2002
í útbreiddustu fréttamiðlum heimsins ber lítið á því að minnst sé á hið augljósa samhengi "stríðsins gegn hryðjuverkum". Það hentar þeim betur að styðjast við framsetningu Bush Bandaríkjaforseta á málunum, er álit Árna Björnssonar þjóðháttafræðings.

Langlíf mannvonska Cecil Rhodes 19.3.2002
Norðan við Zambezi þekkja menn vel bann við frjálsum skoðanaskiptum, illvirki í því skyni að taka land eignarnámi og dreifa því upp á nýtt á rasískum forsendum, stjórnmálamenn sem eru ávallt tilbúnir að beita vopnuðum og jafnvel einkennisklæddum skríl til að drepa andstæðinga sína. Þessir siðir voru fluttir til þessa svæðis af Bretum.

Svartir dagar 22.3.2002
Sigurður Heiðdal reyndist ótrúlega sannspár í framtíðarhrollvekju sinni, Svörtum dögum, sem út kom árið 1942. Þar segir frá valdatöku kapítalísta á Íslandi sem eru ekki síður að sér í einkavæðingu og einkaframkvæmd en félagar þeirra í nútímanum þó að Davíð og félagar hafi vonandi komið sér upp peningaskáp með loftgötum.

Gott að búa í Farum 26.3.2002
Það er ekki bara Gunnar Birgisson sem talar digurbarkalega um hve allt sé best hjá honum. Það gerðist einnig í Farum þar sem skemmtilegur og röggsamur borgarstjóri varð stjarna seinustu þingkosninga á þeim forsendum að allt væri best í einkaframkvæmd. Nú er hann jafn fallin stjarna og Árni Johnsen en hvaða lærdóm má draga af því?

Söguleg samþykkt 29.3.2002
Fundur leiðtoga Arabaríkjanna var sögulegur og sýnir svo ekki verður um villst skipbrot ofbeldisstefnu Sharons, en um leið að þeir sem vilja leysa deilumálin með skynsemi og í friði gætu þrátt fyrir allt haft að lokum erindi sem erfiði.

Páskafrí eða Ramadanfrí? 2.4.2002
Í ýmsum löndum hafa engin trúarbrögð sérstöðu í að hátíðir þeirra séu almennir frídagar heldur getur hver tekið sér frí á sinni hátíð. Hvað ætli það sé langt í að slíkt frelsi ríki á Íslandi?

Allir í strætó! 5.4.2002
Margt gott hefur verið gert í strætómálum hér á höfuðborgarsvæðinu. En þó má vafalaust margt bæta enn og læra af frændum okkar Dönum.

Að hengja orð fyrir hugarfar 9.4.2002
Það er lenska í umræðu um innflytjendur að kenna orðum um fordóma. En ætli fordómarnir verði ekki til annarstaðar en í málinu þegar grannt er skoðað?

Nýr forseti í Costa Rica 12.4.2002
Lesendur Múrsins hafa beðið í ofvæni eftir úrslitum í forsetakosningum í Costa Rica sem aðrir fjölmiðlar hafa leitt hjá sér. Hér segir frá þessu eina herlausa landi í álfu herforingjanna og frá mikilvægi jakkaleysis í kosningabaráttu þar í landi (sem betur fer hafa frambjóðendur þar ekki uppgötvað sundskýluna).

Til hvers er barist? 16.4.2002
Hverjar eiga áherslur verkalýðshreyfingarinnar að vera? Hvernig á hún að bregðast við þrýstingi frá alþjóðaneti fjármagnseigenda?

Vinstrigrænir og sveitarstjórnarkosningarnar 19.4.2002
Í sveitarstjórnarmálum eru umhverfismálin ofarlega á baugi. Eitt stjórnmálaafl á Íslandi hefur gert þau að höfuðatriði. Hér verður farið yfir stöðu Vinstrihreyfingarinnar — græns framboð í komandi sveitarstjórnarkosningum á rækilegan, langdreginn og þurran hátt. Bara fyrir þá hörðustu!

Evrópskur kosningablús 23.4.2002
Mörg ótíðindin koma upp úr evrópskum kjörkössum þessa dagana og full ástæða til að taka fasistahættuna alvarlega.

Saga þriggja unglingspilta 26.4.2002
Mörgum sem fjalla um stríðið í Palestínu finnst mikilvægt að fordæma sjálfsmorðsárásir Palestínumanna. Hér er sagt frá einni slíkri og þeim sem þar voru að verki.

1997-2002 30.4.2002
Fyrir fimm árum lýstu kratar yfir endalokum sögunnar. Sagan hélt áfram, en nú virðist krötum öllum lokið.

Látum af hræsninni 3.5.2002
Ekki aðeins er sitthvað Sharon eða Saddam þegar kemur að því að virða ályktanir Sameinuðu þjóðanna. Það er bersýnilegt að mannslíf Araba skipta engu máli hjá Sameinuðu þjóðunum sem nær væri að kalla hagsmunasamtök Vesturlanda.

Endurunninn einræðisherra 7.5.2002
Nýlátinn er maðurinn sem að sögn New York Times „guided Bolivia to democracy“. Veruleikinn er öllu nöturlegri. Því að það voru ekki bara dætur Banzers sem léku sér með Barbie.

Hver er Ramsey Clark? 10.5.2002
Halldóri Ásgrímssyni og forystumönnum Varðbergs finnst mikið öryggi að Bandaríkjastjórn geti með 22 kafbátum eytt 9000 stórborgum. Ramsey Clark, fv. dómsmálaráðherra Bandaríkjanna, er á annarri skoðun.

Sharon of sáttfús? 14.5.2002
Likudbandalagið hefur samþykkt ályktun sem er furðu berorð og hræsnislaus. Þar með tókst Netanyahu að auðmýkja Sharon keppinaut sinn. Allir vita hins vegar að Sharon er engin friðardúfa en Bandaríkin sitja í súpunni með heimskulega stefnu sína um að fylgja Ísrael í nánast hvaða ævintýri sem er.

Dýrategundum fer ört fækkandi 17.5.2002
Þar sem Kyotosáttmálinn um að draga úr útblæstri gróðurhúsalofttegunda er í uppnámi, vegna andstöðu Bandaríkjastjórnar, er útlitið dökkt fyrir ísbirni á norðurslóðum.

Fórnarlömbin í Afganistan 21.5.2002
Yfirvöldum í Bandaríkjunum og á Íslandi og heimspressunni finnst „ekki áhugavert“ hversu mörg fórnarlömb stríðs Bandaríkjanna við Afganistan eru. Hér verður samt reynt að slá á þá tölu.

Hvers vegna er George Bush mótmælt? 24.5.2002
Berlínarbúar hafa verið friðsömu fólki um alla Evrópu fyrirmynd og hafa komið rækilega á framfæri andúð sinni á hernaðarhyggju George Bush.

Harðlínumaður sigrar í Kólumbíu 28.5.2002
Sigur Alvaro Uribe í forsetakosningunum í Kólumbíu á sunnudag boðar ekki gott fyrir landsmenn ef nýi forsetinn efnir helsta kosningaloforð sitt.

Af sigrum og ósigrum 31.5.2002
Guðmundur Auðunsson í London fer yfir úrslit sveitarstjórnakosninganna, sigra og ósigra og hvað megi af þeim læra í gestapistli sínum.

Múrstiklur sumarsins 4.6.2002
Í tilefni sumarsins er aldrei þessu vant ekki fjallað um kjarnorkuvá, fjöldamorð, stjórnarbyltingar, Alþjóðlega gjaldeyrissjóðinn eða viðskiptabann á Írak í Hleðslunni, heldur gönguferðir.

Arkitekt nútímastjórnmála í Perú 7.6.2002
Já, svo sannarlega var hann arkitekt. Því miður er lífið meira en arkitektúr og þó að Fernando Belaúnde Terry væri grandvar maður var hann tvisvar kjörinn forseti Perú og fór tvisvar frá við lítinn orðstír.

Hvað er svona hættulegt við leikfimi? 11.6.2002
Frá sjónarhorni Íslendinga virðist harka Kínastjórnar andspænis iðkendum Falun Gong fullkomlega óskiljanleg, hliðstæð því ef íslensk stjórnvöld færu að banna World Class og handtaka alla sem þann stað stunda. En þó að ótrúlegt megi virðast hafa lengi verið ákveðin tengsl milli leikfimi og stjórnmála í Kína.

Innan við varnarmúrana 14.6.2002
Kallið er komið til Íslendinga um að láta af þjóðlegri íhaldssemi og gerast heimspólitískir Evrópumenn. En er hin fjölmenningarlega Evrópa veruleiki eða tálsýn?

Hætt´að telja, þett´er ég! 18.6.2002
Hver er munurinn á 300 manns og 5.000? Það virðist sumum ætla að ganga illa að læra!

Pólitísk tilræði framtíðin? 21.6.2002
Einu sinni skömmuðust bandarísk yfirvöld sín pínulítið fyrir banatilræðin við Castro sem gengu m.a. út á að losa um skegg hans og valda honum kláða. En nú kann enginn lengur að skammast sín í Bandaríkjunum.

Hvað með þessa sígauna? 25.6.2002
Ekki fengu sígaunarnir sem hingað komu um daginn sem pólitískir flóttamenn og mál manna að lítil von væri til þess enda kæmu þeir frá landi sem sem stefnir hraðbyri inn í ESB. En eru mannréttindabrot óhugsandi í ríkjum NATO og ESB?

Í fótspor Arbenz 28.6.2002
Réttri hálfri öld eftir að Jacobo Arbenz gerði alvarlega tilraun til að útrýma fátækt í Guatemala hafa samtök jarðnæðislausra manna náð umtalsverðum árangri með því að feta svipaða slóð í Brasilíu.

Er kapítalismi goðsögn? 2.7.2002
Um allan heim veltir fólk því nú fyrir sér hvað gerist næst á hinum alþjóðlega fjármálamarkaði. En hvað er satt og rétt í sýndarveruleika markaðarins?

Jón ráðherra og einkavæðing heilsugæslustöðva 5.7.2002
Á tyllidögum er Framsóknarflokkurinn félagshyggjuflokkur og þeim sem óar við frjálshyggju Halldórs og Valgerðar hafa huggað sig við félagshyggjumennina Guðna, Pál og Jón. En verðskuldar Jón Kristjánsson að vera sú hetja vinstrimanna sem raun ber vitni?

Að halda friðinn 9.7.2002
Þó að oft sé deilt á ríkisvaldið nú á dögum á ofbeldi í skjóli ríkisvalds sér samt marga formælendur, jafnvel þó sömu og þykjast helstu andstæðingar ríkisvaldsins.

Ecevit í öndunarvél — en ekki dauður enn 12.7.2002
Aðdáendur fótboltamannanna Emre og Hasan Sas og Júróvisjónlaga frá Tyrklandi geta kæst yfir þessari afar ítarlegu úttekt á tyrkneskum stjórnmálum. Þar er í aðalhlutverki Bülent Ecevit sem hefur þýtt Tagore en er samt ekki gjaldgengur sem forseti Tyrklands. Hann er orðinn 77 ára og mænan að plaga hann en hefur hann gefist upp? Onei. Allt er í háalofti og tyrkneskir fréttaskýrendur vitna eins og ödipusar í Shakespeareleikrit og 1001 nótt.

Lögleysa í þágu stórfyrirtækja 16.7.2002
Átján árum eftir slysið í Bhopal þjást tugþúsundir manna. Óheft alþjóðavæðingin stendur í vegi fyrir réttlætinu.

Alþjóðasveitir streyma til Spánar á ný 19.7.2002
Lítill áhugi hefur verið á því að rifja upp glæpi Francostjórnarinnar gegn eigin þegnum, öfugt við það sem gildir um uppgjör við fortíðina annarstaðar í Evrópu.

Kaliforníuríki gefur Bush langt nef í umhverfismálum 23.7.2002
Ríkisstjóri sem hefur hingað til verið þekktur fyrir að vera duglegur að safna fé frá þeim ríku er skyndilega orðinn brautryðjandi í umhverfismálum með löggjöf sem eykur enn á vandræði Bush forseta.

Viljum við breyta til? 26.7.2002
Eru vinstri og hægri ekki lengur til? Um hvað snúast þá átök í íslenskum stjórnmálum? Og um hvað verður barist í næstu kosningum?

Tími til að lofta út 30.7.2002
Án umræðu fær ekki þrifist raunverulegt lýðræði en íslensk umræða þroskast ekkert og fer jafnvel aftur. Gott dæmi um það var prinsessuviðtal Morgunblaðsins við Friðrik Sophusson um daginn.

Þjóðarsátt um innihaldsleysi? 2.8.2002
Hrifning almennings af núverandi stjórn virðist botnlaus ef marka má nýjustu kannanir. Fólk vill það sama enn og aftur og það mun það líka uppskera ef svo verður sem horfir.

Landverðir tjá hug sinn 6.8.2002
Leyfist starfsmönnum hins opinbera, öðrum en ráðherrum og þingmönnum, að tjá hug sinn á Íslandi? Viðbrögð ráðherra Framsóknarflokksins þegar landverðir tjáðu hug sinn með táknrænum hætti um daginn benda til þess að þeir séu eitthvað efins um þann rétt.

Schröder hefur kosningabaráttu í skugga atvinnuleysis 9.8.2002
Annar er veraldarvant glæsimenni en hinn klaufi og sveitalúði. En jafnvel hin glæsilega Doris og rokkbandið Cosmopolitan breyta ekki því að fjórar milljónir Þjóðverja eru atvinnulausar. Hvað gera þýskir kjósendur í haust?

Refsingar og hefnd 13.8.2002
Við lifum að sönnu á afturhaldstímum. Þar á meðal hefur hugmyndafræði refsingarinnar orðið æ sterkari.

The Evil Empire 16.8.2002
Ronald Reagan kallaði Sovétríkin The Evil Empire á sínum tíma og vitnaði þar til Star Wars. Ástand alþjóðamála gefur fátt annað til kynna en að Bandaríkin hafi nú teki það hlutverk að sér.

Elskarðu einhvern nógu mikið til að sprengj´ann í loft upp? 20.8.2002
George Orwell hitti beint í mark á sínum tíma. Nú er helsta orðið í „newspeak“ Breta og Bandaríkjanna „mannúðarstyrjöld“ sem snýst um ást þeirra á þeim sem þeir varpa sprengjum á.

Holl eftirdæmi? 23.8.2002
Ekki vantaði fjölmiðlaumfjöllun um hræðileg barnamorð í Soham. En var sú umfjöllun jákvæð?

Fjölmiðlar og vald 27.8.2002
Það er heimska að kvarta undan „pólitískum yfirrráðum“ yfir fjölmiðlum. Fjölmiðlar sem segja fréttir eru alltaf pólitískir. En það er svo sannarlega ekki sama hver ræður þeim eða hvernig þeim yfirráðum er beitt.

Stöðvum glæpina — ekki lýðræðið! 30.8.2002
Hvað gerir háskólastúdínan Ana þegar flokkurinn hennar er bannaður? Sættir hún sig við það eða grípur til vopna?

Dúfa á forsætisráðherrastóli? 3.9.2002
Verður Amram Mitzna næsta stjarnan í ísraelskum stjórnmálum? Það gæti haft örlagarík áhrif á stöðu mála fyrir botni Miðjarðarhafs.

Friðarvon í Súdan? 6.9.2002
Í vestrænum fréttum hafa menn litlar áhyggjur af borgarstyrjöldinni í Súdan. En ekki er hún síður illvíg fyrir það.

Ríkisstjórnir óþarfa millistig? 10.9.2002
Var til einhvers fundað í Jóhannesarborg? Hvers vegna eiga sveitarstjórnarmenn auðveldara með að ná árangri en ríkisstjórnir? Má sjá í þessu vísbendingar um framtíðarþróun alþjóðamála?

Hættu að telja, þetta er ég! 13.9.2002
Sigurvegararnir skrifa ætíð söguna og nú er komið að sigurvegurum kalda stríðsins. En hafa þeir sjálfir hreint mjöl í pokahorninu?

Misnotkun minninganna 17.9.2002
Af hverju var 11. september öðruvísi í Chile? Af hverju styðja aðeins 2% Mexíkana innrás Bandaríkjanna í Írak?

Hver er nú á móti? 20.9.2002
Eiga menn að hætta að takast á um nýjungar á þeim forsendum að enginn muni vera á móti þeim eftir hálfa öld? Hvert leiðir sú röksemdafærsla okkur?

Konur drepnar í nafni femínisma 24.9.2002
Fátt er skemmtilegra fyrir konur en þegar karlar gerast femínistar, einkum þegar kemur að málefnum fjarlægra heimshluta. Einhver man kannski ekki eftir því þegar kom í ljós að stríðið í Afganistan var kvenfrelsisstríð. Og hver veit nema að Bush reyni næst að frelsa konur í Írak?

Ræsið við Nýfundnaland 27.9.2002
Enn trúa margir því að lengi taki sjórinn við. En fuglarnir við strendur Kanada eru löngu hættir að taka við.

Matvöruverð, fákeppni og ESB 1.10.2002
Matvöruverð er hátt á Íslandi. Það er staðreynd. Sumir segja að aðild að ESB muni lækka það. Aðrir benda á fákeppni. Almenningur þarf hins vegar að sjá rökleiðsluna áður en hann getur tekið afstöðu.

Kosningamálin í vor 4.10.2002
Nú þegar bræðravígin fara að hefjast í prófkjörum um allar jarðir er ágætt að líta í hina áttina og á nokkur málefni sem búast má við að verði í brennidepli í vetur.

Usli í lettnesku stjórnmálalífi: Ný hetja kemur fram? 8.10.2002
Nú hafa um skeið verið margir flokkar og margir forsætisráðherrar í Lettlandi á meðan Íslendingar hafa búið alsælir við manninn með stálhnefana. En er ekki erfitt að þekkja þetta allt í sundur? Prófið að lesa grein dagsins.

Heimsvaldastefnan endurreist 11.10.2002
Áratugum saman setti heimsvaldastefnan upp grímu því að það þótti ekki lengur fínt að sum dýrin væru jafnari en önnur. En nú er sá tími liðinn og valdamesti maður heimsins er jafn grímulaus í nýlenduhyggju sinni og stórveldi þarseinustu aldar.

Allt fyrir ekkert 15.10.2002
Þvert á það sem ýmsir vilja halda fram þá eru Íslendingar ekki að hreppa stóra vinninginn í samningum við Alcoa heldur gefa út víxil á hendur börnum sínum og börnum þeirra.

Ríkasta land í heimi? 18.10.2002
Það er raunhæfur möguleiki á velferðarstjórn á næsta ári. En það er mikið verkefni að snúa við áróðri og illum verkum undanfarinna ára.

Straumhvörf í Ecuador? 22.10.2002
Kosningar voru í Ecuador um helgina. Þar varð efstur maður sem hefur verið líkt við Chavez, forseta Venezuela.

Umbætur án úrbóta 25.10.2002
Í hverju felast umbæturnar í Kína sem hafa verið dásamaðar um langt skeið? Í hverju fólust umbæturnar í Austur-Evrópu? Og hvert er samhengið milli þeirra og útrásar íslenskra fyrirtækja?

Frjálshyggjan og kókoshneturnar 29.10.2002
„Nú er hann orðinn kókoshnetukarl“ — Hannes Hólmsteinn telur sig vita allt um kókoshnetur – en er það raunin?

Gaman er og gott að vera til vinstri 1.11.2002
Ekki er öfundsvert að vera vinstrimaður á Íslandi. Eða hvað? Eru einhver ljós í myrkrinu fyrir íslenskra vinstrimenn?

Stjórnarskipti í Írak — 40 ára gömul dæmisaga 5.11.2002
Nú talar Bandaríkjastjórn um „stjórnarskipti“ í Írak. Þeir sem binda vonir við slíkt ættu að kynna sér sögu stjórnarskipta í Írak sem Bandaríkin hafa haft forgöngu um. Saddam Hussein kemur einmitt við þá sögu og er full ástæða að rifja hana upp nú.

Hægrisveifla í Bandaríkjunum 8.11.2002
Hin feita Hleðsla dagsins segir ykkur allt sem þið vilduð ekki vita um kosningarnar í Bandaríkjunum á þriðjudaginn. Þar er í senn rætt um prósentur, hlutfall kynjanna og hinar stærri afleiðingar allra þessara láta þarna vestra.

Af bjálkum og þyrnum 12.11.2002
Þessi hleðsla er ekki jafn feit að rúmmáli og sú seinasta en feit samt. Hér er nefnilega talað um Dan Plesch og hugmyndir hans. Vitið þið ekki hver Dan Plesch er? Nú, lesið þá greinina!

Nokkrar staðreyndir um risafyrirtæki 15.11.2002
Menn gera yfirleitt ólíkar kröfur til ríkisstjórna og risafyrirtækja. Valdajafnvægið á milli þeirra gefur tilefni til að endurskoða viðhorfin í þeim efnum.

Félagshyggja í vörn? 19.11.2002
Á 85 ára afmæli rússnesku byltingarinnar hafa margir sósíalistar sem bæði fylgdu henni eða voru andvígir hafnað öllum sósíalisma. En var sósíalismi Stalíns virkilega eini hugsanlegi sósíalisminn?

Stríðsglæpamaðurinn Churchill 22.11.2002
Winston Churchill er ein mesta hetja 20. aldar. En hvers konar hetja var hann? Hvað gerðu bandamenn í seinni heimsstyrjöldinni og hvers vegna hefur verið þagnarmúr í kringum illvirki þeirra?

Klúbbur Davíðs 26.11.2002
Hverjir hafa setið lengst að völdum í heiminum? Í Evrópu er Davíð efstur á eftir sex (öðrum) kóngum og drottningum. Á heimsvísu á hann eftir að ná Malietoa Tanumafili kóngi Vestur-Samóa, hinum þéttvaxna konungi Tonga, svo að ekki sé minnst á félagana Castro, Gaddafí og Múgabe.

Þegar Bandaríkin réðust á Spán 29.11.2002
Bandaríkjamenn hafa ráðist inn í ófá lönd sem flest eiga fátt sameiginlegt annað en að vera smá og fátæk. Þeir hafa hins vegar aldrei ráðist inn í Granada, þó að eitt sinn hafi verið sagt frá því í fréttum.

Konur og kosningar 3.12.2002
Mikil umræða hefur farið fram um stöðu kynjanna á þingi eftir næstu kosningar. Útlitið er því miður ekki gott en áberandi munur er á flokkunum hvað það varðar.

Hvað ungur nemur 6.12.2002
Í „forysturíki hins frjálsa heims“ hefur herinn nú fengið aðgang að trúnaðarupplýsingum um 16-17 ára skólakrakka. Nei, hér er ekki verið að tala um Írak heldur hina gömlu aðdáendur og hollvini Saddams Husseins sem nú vilja fyrir allan mun steypa honum.

Friðarverðlaun Nóbels rúmlega aldar gömul 10.12.2002
Hvað eiga Kissinger, Arafat og móðir Teresa sameiginlegt? Í tilefni friðarverðlauna Jimmy Carters eru hér rifjaðir upp ýmsir fyrri handhafar verðlaunanna.

Hættan er raunveruleg 13.12.2002
Eigum við að láta eins og kjarnorkuvopn séu ekki til, bara vegna þess að ráðandi öfl í heiminum nenni ekki að tala lengur um ógnina? Hvenær misstum við jarðsambandið við ógnina?

Er umhverfisvernd hobbí ríka fólksins? 17.12.2002
Það kemur aldrei neinn í miðbæ Reykjavíkur, sögðu Sjálfstæðismenn fyrir seinustu bæjarstjórnarkosningar. Af hverju í f.......um ættu þá lesendur Múrsins að hafa áhuga á miðborgum Garoua og Ngaoundéré? En með því að ferðast til Kamerún má afhjúpa þá goðsögn að umhverfisverndarmenn séu bara pelsklæddar listakonur í ríku löndunum sem eru bara að dútla sér við umhverfisvernd og skilji ekki náttúruna og undirstöðuatvinnuvegina.

Vinstrimaður vann í Suður-Kóreu 20.12.2002
Einu sinni hét forseti Suður-Kóreu Roh. Svo kom Kim. Síðan annar Kim. Og nú loksins annar Roh. Spennandi? En öllu mikilvægara er að stefnu Kim Dae-jung í utanríkismálum verður haldið áfram.

Forkastanleg fífldirfska 24.12.2002
Hvað annað á að segja um fyrirtæki eins og Prodigene sem reyndi að smygla erfðabreyttu korni með tilraunabóluefni fyrir svín inn á almennan markað í Bandaríkjunum?

Zambía og endalok sögunnar 27.12.2002
Gulldrengur Vesturlanda, fyrrverandi forseti Zambíu og spillingarkóngur er kominn á sakamannabekk. Og hvað með það?

Gamlársdagurinn gerir upp árið 31.12.2002
Atburðir gamlársdagsins, hvort sem það er í Pakistan, Suður-Kyrrahafi eða á Íslandi ramma árið betur inn en nokkur annáll gæti gert.

Styttist í nýtt teboð? 3.1.2003
Viðskiptagúrú Bush-stjórnarinnar skrifar lærða grein í The Economist en er ekki mjög sleipur í sagnfræðinni.

Óður flugkappi skellti hvíthærðum Ameríkana í Litáen 7.1.2003
Hverjum er ekki sama um hver er forseti í Litáen? Ja, góð spurning sem verður þó ekki svarað í hleðslu dagsins. Þar munu menn hins vegar fá að vita allt sem þeir kærðu sig ekki um að vita um þá Valdas Adamkus og Rolandas Paksas.


Glerhús - 3. árgangur

Flett ofan af stórskáldi 11.1.2002
Egill Helgason er stórtækur í uppgjöri sínu við Halldór Laxness og íslensku þjóðina. En eru rök Egils góð og gild? Er uppgjörið kannski við Egil sjálfan og æsku hans? Er Egill hinn eini sanni fúll á móti?

Hvað er „inni“ og hvað er „úti“ um þessar mundir 15.1.2002
Nóg er að gerast í heimsmálunum og hér á Íslandi eru komnir verðbólgutímar. En um það er ekki fjallað í glerhúsi dagsins sem er dæmigert uppfyllingarefni.

Fjármálaráðhera stuðlar að ójöfnuði 18.1.2002
Mörgum þótti illt að hlunnindi séu skattlögð enda hafa fyrirhugaðar ráðagerðir um það verið dregnar til baka. En hvaða réttlæti er í því að sumir fái hlunnindi sem séu þar að auki skattfrjáls?

Hvað getur smáflokkur gert? 22.1.2002
Hlutskipti smáflokka á Íslandi hefur löngum verið erfitt. Ólafur F. Magnússon klífur nú þann bratta og í tilefni af því er rifjuð upp saga ýmissa annarra smærri flokka.

Leitin að sjöunda manninum 25.1.2002
Nú er Reykjavíkurlisti ársins að smella saman en enn á eftir að finna aðaltrompið, hinn þverpólitíska fulltrúa sem gerir framboðið hæfilega víðfeðmt, ópólitískt og aðlaðandi.

Að vera eða vera ekki 29.1.2002
Fyrsta skoðanakönnun eftir að ljóst varð að Björn Bjarnason yrði borgarstjóraefni Sjálfstæðisflokksins veitir þeim lítinn byr í segl. Ætli það tengist því hversu mikið hann virðist hafa fram að færa í þeim kosningaslag?

Samfylkingin fellur á prófinu ... einu sinni einu sinni enn 1.2.2002
Áhugi Samfylkingarinnar á þjóðaratkvæðagreiðslum reynist þegar til kemur vera fremur í orði en á borði og jafnast ekki á við áhuga hennar á að vera alltaf sammála ríkisstjórninni.

Víti til varnaðar? 5.2.2002
Íslenska lögreglan vann glæsilegt landvarnarafrek þegar hún sneri við dönskum vítisenglum.

Það var rétt að víta Ögmund! 8.2.2002
Ögmundur Jónasson fékk vítur frá Halldóri Blöndal á dögunum. Það var gott á´ann.

Afbrigðilegt kynlíf unglinga 12.2.2002
Fréttastofa Sjónvarpsins birti á dögunum frétt um að unglingsstúlkur væru undir „þrýstingi“ um að taka þátt í „afbrigðilegu kynlífi“. Vandinn við fréttina var að áhorfendur fengu hvorki að vita í hverju þrýstingurinn né kynlífið fólst.

Háttvísi Halldórs Blöndals 15.2.2002
Í Alþingistíðindum má lesa hvernig vítaskyttan og háyfirdómarinn Halldór Blöndal tjáði forseta þingsins virðingu sína sem þingmaður í stjórnarandstöðu í eina tíð.

Blaðamaður eða nöldrari? 19.2.2002
Hárfín lína getur verið á milli beinskeyttrar samfélagsrýni og hreins og beins nöldurs. Egill Helgason heldur sig yfirleitt réttu megin við þá línu, þó undanfarið hafi hann dvalið fulllengi nöldursmegin hennar.

Klámhöggið 22.2.2002
Ýmsir sjálfstæðismenn hafa skælt mikið yfir því að minnst sé á þann möguleika að ráðherra úr flokknum axli ábyrgð og segi af sér.

Spyrjum áður en skotið er 26.2.2002
Fréttir af því að George W. Bush ætli í félagi við Tony Blair að taka til hendinni í Írak eru fréttir af áætlunum um alþjóðlega stigamennsku og enn eitt dæmi þess að ef hroðvirkir menn eru duglegir gera þeir margt - illa.

Sniglaveisla Sjálfstæðisflokksins 1.3.2002
Leikritið Sniglaveislan kolféll í Lundúnum. Hvernig verður með veisluna sem Ragnar Þórsson lýsir hér?

Einkaframboð á vegum R-listans 5.3.2002
Sjálfstæðismenn eru miklir áhugamenn um einkaframkvæmd. Einn frambjóðandi R-listans hyggst slá þeim við með einkaskoðunum og einkastefnuskrá í komandi kosningum.

Che og Davíð 8.3.2002
Sjónvarpið jók víðsýni manna á Kúbudögum en sumum reyndist þó ekki við bjargandi.

Mun Halldórinn slá við Guðnanum? 12.3.2002
Þó að rökfimimeistarinn Guðmundur Árni sé ekki hrifinn af því að aðrir noti efnahagsleg rök vill Múrinn vera málefnalegur og hér er því sett fram tillaga um tvær nýjar mælieiningar sem geta verið gagnlegar almenningi til að reikna út kostnaðinn af stjórnarsetu Framsóknarflokksins.

Hættu að telja, þetta er ég! 15.3.2002
Er Reykjavíkurlistinn "listi fólksins" eða er það Sjálfstæðisflokkurinn? Eða er umræða af þessu tagi kannski á villustigum fremur en gagnvegum?

Hvað er þá til ráða? 19.3.2002
Eflaust kemur það þeim sem trúað hafa í blindni á virkjunaráform stjórnvalda fyrir austan það nokkuð á óvart hversu endaslepp loforðin um stórframkvæmdir ætla að reynast. Það er ekkert gamanmál, enda átti álverið að leysa allan atvinnuvanda í Austfirðingafjórðungi. Nú er að sjá til hvaða patentlausna stjórnvöld grípa næst.

Ef uggvænt þykir 22.3.2002
Allir sem veltust um fullir í Bart Simpson-búningi í próflokafagnaði um árið verða senn forngripir. Terroristabaninn Solla sterka líður engum að ganga um í dulbúningi, öðrum en víkingasveit lögreglunnar.

Sækjum um ... og sjáum svo til 26.3.2002
Hið nútímalega viðhorf er að biðja um eitthvað en ekki endilega til að fá það, heldur til að kanna valkostina, sjá hvað standi til boða, hvaða samningum sé hægt að ná. Séríslenska viðhorfið er að vera til skiptist ríkasta og flottasta þjóð í heimi og fátækt, vesælt og aumt þróunarland með betlistafinn einan að vopni.

Geirska ævintýrið 29.3.2002
Stjórnarformaður Reyðaráls lýsti því yfir nýlega að hann hafi logið um stöðu viðræðna við Norsk Hydro um álbræðslu í Reyðarfirði. Þeir sem segja fréttir af þessum málum hljóta að gera allan fyrirvara um yfirlýsingar hans í framtíðinni.

Fréttatilkynning  2.4.2002
Fréttaritari Múrsins á Austurlandi sendi okkur tilkynningu um spennandi uppfærslu Leikfélags Fjarðabyggðar á nútímaverkinu Beðið eftir Hydro eftir Eyvind Reiten.

Samhugur í verki 5.4.2002
Vel heppnað ljóðakvöld í húsakynnum Borgarbókasafnsins sýnir að Íslendingar hafa samhug með palestínsku þjóðinni og blöskrar atgangur Ísraelsmanna. En meira þarf að gera.

Á verksviði ríkisins 9.4.2002
Enginn sem vill kallast „nútímalegur“ stjórnmálamaður er hlynntur ríkisafskiptum. Af verkum núverandi ríkisstjórnar má hins vegar glöggt sjá hvað teljast góð ríkisafskipti og verðug verkefni hins opinbera.

Brandarakarl eða brandari? 12.4.2002
Í 15 mínútna-þjóðfélaginu þurfa stjórnmálamenn að vera „fyndnir“ til að komast í fréttirnar. En væri ekki betra ef þeir tækju ákvarðanir sínar alvarlega? Eða flikkuðu amk aðeins upp á húmorinn?

Kosningabarátta dauðans 16.4.2002
Þó að leikfléttur Sjálfstæðismanna í Reykjavík séu á góðri leið með að tryggja Reykjavíkurlistanum sigur er kosningabaráttan leiðinlegri en orð fá lýst.

Af því bara 19.4.2002
Baráttuaðferð Sjálfstæðisflokksins í þessum borgarstjórnarkosningum er einföld: Lofa öllu fögru en halda því leyndu hvað herlegheitin kosta.

Af hverju erum við á móti Le Pen? 23.4.2002
Hver étur nú hugsunarlaust eftir öðrum að Le Pen sé „öfgamaður“ og þaraf leiðandi stórhættulegur. En þörf er á að hver skilgreini nánar fyrir sig hvað er hættulegt við Le Pen.

Sjaldan veldur einn ... 26.4.2002
Orðskviðir koma gjarnan í stað hugsunar og stundum eru þeir góð fjarvistarsönnun fyrir þá sem þora ekki að breyta rétt af undirgefni við Sám frænda.

Gull og grænir … 30.4.2002
Á dögunum barst Reykvíkingum glæsilegur „samningur“. Steingrímur Ólafsson ákvað að reikna dæmið áður en hann skrifaði undir.

Lækkum lakkrís! 3.5.2002
Lakkrís lækki, lýsið hækki, var krafa Páls Vilhjálmssonar á 1. maí fyrir aldarfjórðungi. Kröfur verkalýðshreyfingarinnar nú eru enn snautlegri, þar á bæ eru menn bara þakklátir fyrir að ekki sé hent í þá fúleggjum lengur á þessum degi.

Ferskur andblær? 7.5.2002
Þegar hugmyndirnar skortir gerast menn orðljótir. Þetta á við um kosningabaráttuna í Reykjavík sem er þegar orðin andstyggileg, leiðinleg og laus við alla snerpu.

Það gerist á Geldinganesinu 10.5.2002
Sjálfstæðisflokkurinn í Reykjavík ætlar að láta fólk hafa forgang. Í ellefu ár hefur hann stjórnað landinu og sýnt hvernig fólk hefur forgang undir hans stjórn.

Stríðshaukar spjalla 14.5.2002
Fréttastofa Sjónvarpsins er gagnrýnislaus með öllu á hernaðarhyggju Bushstjórnarinnar og taglhnýtinga hennar. Þó kastaði tólfunum á sunnudaginn þegar Ólafur Sigurðsson og Ásgeir Sverrisson hneyksluðust saman á því hversu litlu er eytt í vígbúnað í heiminum.

Sjö leiðir til sigurs 17.5.2002
Hvað eiga menn að gera ef menn vilja vinna kosningar án þess að láta skjóta sig tíu dögum fyrr? Stjórnmálaspekingar Múrsins hafa nokkur góð ráð á hraðbergi.

Ísland – Svíþjóð 21.5.2002
Ísland komst í heimsfréttirnar með útgöngu af ársfundi Alþjóðahvalveiðiráðsins. Gremja íslensku sendinefndarinnar er skiljanleg en öllu verra að utanríkisráðherra skuli hóta Svíum fyrir að beygja alþjóðalög þó að hann hafi sjálfur verið tilbúinn að gera það sama oftar en einu sinni.

Er mikils misst fyrir Húmanista? 24.5.2002
Húmanistar kvarta sáran yfir að vera hunsaðir af fjölmiðlum. En þegar framboðsöflin komast loksins í Sjónvarpið er varla hægt að segja að það sé þeim til framdráttar.

Er hægt að skila þessari þjóð? 28.5.2002
Afstaða íslenskra yfirvalda til flóttamanna var býsna skýr í máli rúmensku sígaunanna sem hingað komu um daginn.

Framfylkingin að verða til? 31.5.2002
Miðflokkarnir sem hafa í þrjú ár grenjað undan því að "(g)ræningjar oss vilja ráðast á" eru nú að rifja upp gamla slagara í vonum sínum um að geta myndað ríkisstjórn að ári.

Þorsteinn Már og sjómannadagurinn á Akureyri 4.6.2002
Það er sem betur fer ekki lengur þannig á Íslandi að ríkisstjórnin ráðskist með fyrirtæki þessa lands og gefi þeim pólitísk fyrirmæli. Öllu verra er að nú er það öfugt.

Evrópustefna í andstöðu við eigin fylgismenn 7.6.2002
Afar ólíklegt virðist að ESB-aðild verði kosningamál á næsta ári, í ljósi þess að nýleg könnun sýnir að málið er með öllu þverpólitískt. Í ljósi þess að Davíð og Halldór deila hart um málið í fjölmiðlum er fremur einkennilegt að fleiri Framsóknarmenn eru sammála Davíð í málinu en fleiri Sjálfstæðismenn Halldóri.

Sálarstríð ungliðanna 11.6.2002
Það er gaman að hafa prinsipp. Ungliðahreyfingar sumra íslenskra stjórnmálaflokka hafa mjög skýr prinsipp þegar mannréttindabrot Kínverja eiga í hlut en gleyma þeim þegar kemur að sams konar glæpum annarra.

Kjánalegir fletir á Kínamáli 14.6.2002
Umræðan um heimsókn Jiang Zemin hefur verið mjög fróðleg. Þar er tekist á við um grundvallarmál en eins og gjarnan taka sumir afar kjánalegan pól í hæðina og ekki hefur skort kjánalega fleti í umræðunni.

Aðdáunarvert afstöðuleysi? 18.6.2002
Það er orðið alsiða í stjórnmálum núorðið að halda því fram að mistök séu árangur og það sem illa tekst til sé í rauninni gott. Þetta kallast á erlendum málum “spin” og núna er Framsóknarflokkurinn að innleiða þetta í íslenska pólitík af fullum krafti.

Höggvið í sama knérunn 21.6.2002
Hvorki forsætis- né utanríkisráðherra komu á óvart á þjóðhátíðardaginn en báðir reyndu af kappi að eigna sér þjóðhetjuna Jón Sigurðsson.

Upplýst umræða 25.6.2002
Nýjasta fjöðurin í hatt Halldórs Ásgrímssonar á að vera að hann standi fyrir “upplýstri umræðu” um Evrópusambandið. En nákvæmlega hvað er formaður Framsóknarflokksins að upplýsa kjósendur um? Og hvað ræðir hann ekki?

Alþingi varamannanna 28.6.2002
Fáir halda því á lofti að vera varaþingmenn. En hvernig er varaþing Íslands skipað?

Evrópuumræðan hefst af alvöru 2.7.2002
Hjá snillingunum á Pressunni birtast reglulega góðar greinar. Ein þeirra er eftir Auðunn Arnórsson.

Íslensk stjórnmálamet falla eins og flugur 5.7.2002
Er ráðherraflótti Framsóknarmanna einstakur? Hversu mörgum dagblöðum hefur Gunnar Smári slátrað? Hver er fremsti Geirdalinn? Sumum þessara spurninga er svarað í gleri dagsins. Confused? You won’t be …

Aðskilnaður í átt til friðar? 9.7.2002
Er veggur ekki múr? Á enginn í Ísrael palestínska vini? Greining Deiglupenna á vandanum fyrir botni Miðjarðarhafs er ekki beinlínis þarft innlegg í umræðuna.

Ertu uppgjafarvinstrimaður? 12.7.2002
Persónuleikapróf ríða húsum á netinu. Hér er eitt slíkt, sérstaklega ætlað þeim sem einu sinni voru vinstrimenn en eru nú á flótta undan hægriflóðbylgjunni, á harðahlaupum sem gefa hlaupinu undan hrauninu í Volcano ekkert eftir.

Vígreifir Kremlverjar 16.7.2002
Gísli Gunnarsson vill sameina alla marxista í Samfylkingunni en Magnús Árna Magnússon langar í herinn. Eru þeir afleitir vopnabræður?

Framsókn – ekki fransós 19.7.2002
Einn helsti vonarpeningur Framsóknarflokksins er ánægður með flest við slagorð flokksins, nema helst innihaldið.

Óbærilegur léttleiki um marxisma 23.7.2002
Hver er hræddur við Karl Marx? Hvað er að vera marxisti? Er Gísli Gunnarsson marxisti? Svörin við þessum æsispennandi spurningum fást í þessari grein.

Alveg harðbannað? 26.7.2002
Grein á Tíkinni, vefriti ungra sjálfstæðiskvenna, er áhugaverð heimild um málflutning íslenskra hægrimanna anno 2002. Þar má t.d. sjá hvaða forsendur sjálfstæðismenn hafa til að styðja ekki Vinstrigræna.

Hrafnar Óðins 30.7.2002
Hverjir verða þingmenn suðurkjördæmisins? Greinarhöfundur hefur ekki hugmynd um
það og fréttastofa sjónvarps ekki heldur.

Einelti á Íslandi? 2.8.2002
Það var Marteinn skógarmús sem reyndi að éta mig sagði Mikki refur. Því trúði enginn í Hálsaskógi. Nú vill Vilhjálmur Egilsson hins vegar fá Íslendinga til að trúa því að Davíð Oddsson og vinir hans séu ofsóttur og hrakinn minnihlutahópur á Íslandi.

Að loknu æði helgarinnar 6.8.2002
Verslunarmannahelgin, þessi árlegi hvíldardagur verslunarmanna, er orðinn að æði sem allir taka þátt í — nema verslunarmenn.

Í hvaða íslenskum flokki á Gerald Ford heima? 9.8.2002
Nú þurfa allir þjóðhollir menn að láta hendur standa fram úr ermum og taka þátt í landkynningu ríkisstjórnarinnar vestra. Múrinn leggur sitt af mörkum með áhugaverðri samanburðarrannsókn á bandarískum og íslenskum stjórnmálum.

Ímynd æðri hugsjón? 13.8.2002
Nú ætlar Jafnaðarmannaflokkurinn danski að kasta rauðum fánum og verkalýðssöngvum og verða „nútímalegur“ flokkur, eins og fleiri. En það er ekki nóg að vera í nútímanum til að slá í gegn.

Með slíka vini ... 16.8.2002
Fúlir fyrrverandi formenn eru alþekkt fyrirbæri um heim allan. En er að koma upp nýtt afbrigði í íslensku stjórnmálalífi?

Tíu leiðir til að tapa kosningum 20.8.2002
Eftir tilkomu skoðanakannanna er nánast ógjörningur að tapa kosningum, menn geta ýmist unnið þær eða staðið sig betur en í könnunum. En samt er hægt að tapa. Matreiðslubók stjórnmálanna birtir tíu uppskriftir að ósigri.

Við segjum fréttir … af Samfylkingunni 23.8.2002
Fréttablaðið er afar upptekið af einum íslenskum stjórnmálaflokki sem raunar er einnig talsvert upptekinn af sjálfum sér. En ætli þessi flokkur sé til í alvörunni eða bara skemmtiefni á síðum blaða?

Sjö athyglisverðustu þingmálin 27.8.2002
Ýmsir kynnu að halda að frumvarp Vilhjálms Egilssonar um tímatal setti frumleikamet á alþingi en svo er alls ekki. Mörg þingmál hafa verið flutt seinni ár sem vert er að rifja upp.

Hver verður næstur? 30.8.2002
Samfylkinguna vantar greinilega ennþá „nýtt blóð“ af sömu áfergju og Drakúla greifa forðum.

Íslandssaga fyrir byrjendur 3.9.2002
Enn ein tilraun ritnefndarmanna á Kreml til að grafa undan Össuri kemst í blöðin. En bröltið sendir ekki aðeins Össuri nöturleg skilaboð heldur líka Halldóri Ásgrímssyni sem er eftir alltsaman aðeins ætlað aukahlutverk í draumastjórn hægrikratanna.

Umbúðir án innihalds? 6.9.2002
Einu sinni snerust stjórnmál aðeins um hvaða klíka héldi um valdataumana. Svo fóru þau að snúast um grundvallarhugsjónir um stjórn samfélagsins. Erum við komin í hring?

Hvað er hann Hannes að hugsa?? 10.9.2002
Full ástæða er til að halda þjóðinni upplýstri um hugmyndir Hannesar H. Gissurarsonar með reglulegum þáttum í Sjónvarpinu.

Persónudýrkun: Það sem koma skal? 13.9.2002
Persónudýrkun hefur hingað til ekki einkennt íslensk stjórnmál. Þessu vilja margir hins vegar breyta. En er sú breyting til góðs?

Af ávöxtunum skuluð þið þekkja þá 17.9.2002
Vímuefni eru sérstakt hugðarefni ungra Sjálfstæðismanna og stundum er eins og þeir hafi ekki áhuga á neinu öðru.

Næsta ríkisstjórn? 20.9.2002
Hinn skemmtilegi samkvæmisleikur að mynda hvaðef-ríkisstjórn hefur löngum þótt skemmtilegasta afþreying. Múrinn lætur ekki sitt eftir liggja.

Heilræði ungliðans – I. hluti 24.9.2002
Ekki jafn grísk og heilræði Hesíódósar! Ekki jafn klámfengin og heilræðavísur Stanleys! Ekki jafn mikið af dýralíkingum og í dæmisögum Esóps! Missið ekki af I. hlutanum í æsispennandi greinaflokki.

Af ávöxtunum skuluð þér... 27.9.2002
"Hinn raunverulegi dragbítur fyrir framgangi jafnaðarstefnunnar á Íslandi í dag er Samfylkingin, sem reynir að villa fólki sýn með fögrum orðum, en litlum efndum," segir Steingrímur Ólafsson í gestapistli í glerhúsinu.

Að lifa í raunveruleikanum 1.10.2002
Ungliðum Heimdallar er uppsigað við VG og stefnu flokksins. Þó ekki svo mjög að þeir grípi til þess ráðs að styðjast við rök eða staðreyndir.

Lok, lok og læs - og allt í stáli... 4.10.2002
Nýleg grein á Deiglunni sannar enn og aftur að andúð íslenskra hægrimanna á ríkisvaldi og opinberum afskiptum ristir grunnt þegar efnahagslegum þáttum sleppir.

Hörkubissness við sundin blá 8.10.2002
Að lækna alka er góður bisness fyrir samfélagið að mati hagfræðings. En er það þess vegna sem við stöndum í því?

Hver er munurinn á Samherja og Zimbabwe? 11.10.2002
Margir þykjast vera prinsippmenn í stjórnmálum en prinsippin reynast hins vegar stundum furðu bundin stað og stund. Skýrt dæmi um þetta er afstaða Ungra jafnaðarmanna annars vegar til kvótakerfisins en hins vegar til uppskiptingar jarðnæðis í Zimbabwe.

Veiturnar og samkeppnin 15.10.2002
Reykjavíkurborg rekur nú þrjú stór veitufyrirtæki. Yrði upplýsingaveita svo ólíkt fyrirbæri?

Þoka yfir sundinu, meginlandið einangrað 18.10.2002
Um allan heim magnast nú andstaðan við hernaðaráform Bush Bandaríkjaforseta og hans manna. En hann á sér enn aðdáendur á Íslandi sem apa upp glæsilegan stíl hans.

Klisjulegir karlar við tíðahvörf 22.10.2002
Miðaldra karlmenn eru einir um að hafa orðið á Íslandi. En kannski finnst ekki öllum jafn gaman að hlusta á þá og þeim sjálfum.

Teppasápuóperan mikla 25.10.2002
Nýjasta hneykslið á Íslandi er samtal forsætisráðherrans við rithöfund sem Sjálfstæðisflokkurinn hafði hampað mikið og lengi fyrir að hrauna yfir Laxness. En er það virkilegasta mesta alvörumálið í íslenskum stjórnmálum?

Formsatriðunum fullnægt? 29.10.2002
Morgunblaðið birti miðopnugrein Dags Eggertssonar um daginn þar sem hann lýsir efasemdum um stríðið í Írak — Ekki á þeirri forsendu að stríð séu ekki af hinu góða heldur er aðalmálið að standa rétt að formsatriðunum.

Utan þjónustusvæðis 1.11.2002
Síminn er enn að mestu leyti í eigu landsmenn en nú hefur hann verið hf-aður og þá þurfa forkólfar hans ekki lengur að upplýsa eigendur hans, fólkið í landinu, um neitt sem tengist fyrirtækinu. Stjórnviska íslenskra miðju- og hægrimanna í hnotskurn.

Drepum gírafana! 5.11.2002
Íslenskir útvegsmenn eru dauðhræddir við Grænfriðunga og er fyrirmunað að sjá þá fyrir sér nema sem andstæðinga. Þó að þeir tali um skynsamlega nýtingu fiskistofna virðast þeir telja það skyldu sína að vera ævinlega andvígir umhverfissinnum.

Virkjanaþjóðgarðurinn 8.11.2002
Virkjanaþjóðgarðsflokkurinn er nýjung í íslenskum stjórnmálum, flokkurinn sem vildi gera allt fyrir alla en gerir í raun ekkert fyrir neinn.

Sveppa á þing? 12.11.2002
Prófkjör og uppstillingar stjórnmálaflokkanna sjá íslenskum fjölmiðlum fyrir mörgum vikum af boðuðum stórtíðindum sem ekki verða, brigslum um svik og pretti og jafnvel má þar sjá glænýjar prettufléttur þegar skapandi listamenn á borð við menningarsendiherrann okkar í Lundúnum blanda sér í málið.

Vinstrimennirnir voðalegu 15.11.2002
Túlkanir hægrimanna á prófkjöri Samfylkingarinnar vekja spurningar um hvort skýrslugerðarhefðin sé að bresta á þeim bæjum.

Söngvar Saddams og bullið í Birni 19.11.2002
Ofstopi Björns Bjarnasonar í utanríkismálum keyrir um þverbak þegar hann sakar stjórnarandstæðinga um að vera málsvara Saddams Hussein fyrir það eitt að efast um réttmæti árásarstríðs. Gerhard Schröder, fjölmargir aðrir þjóðarleiðtogar og almenningur á Vesturlöndum eru allt stuðningsmenn Husseins í heimi Björns.

Blöndælsk sjálfshjálp 22.11.2002
Pétur Blöndal er besti vinur láglaunafólksins þó að það taki stundum ekki eftir því. Hann veit t.d. að sá sem fær 70 þúsund kall á mánuði í laun verður ríkur af því að borga sömu krónutölu í skatt og milljónamæringar. Vandi láglaunamanna sé nefnilega aðeins sá að hafa ekki farið fram á nógu há laun.

Vitleysan leynist víða ... 26.11.2002
Edda miðlun og útgáfa ætti að skipta um nafn og kalla sig Steinaldarmennina. A.m.k. ef marka má furðulegt „persónuleikapróf“ á vef Eddunnar.

Karlaframboðið 29.11.2002
Það er ekki spurt um kyn í Sjálfstæðisflokknum heldur hæfa einstaklinga. Þegar hinn almenni Sjálfstæðismaður mætir í prófkjör og kýs 7-8 hæfa einstaklinga af karlkyni í 10 sæti og 2-3 hæfa einstaklinga af kvenkyni þá merkir það auðvitað ekki að konur eigi erfitt uppdráttar innan Sjálfstæðisflokksins. Það voru allir viðmælendur sammála um, sagði fréttaskýrandi Morgunblaðsins með alvöruþunga í fréttaskýringu sinni.

Blásum kosningarnar af! 3.12.2002
Kosningarnar í vor eru varla nema til málamynda. Fréttastofa Stöðvar tvö veit úrslitin fyrir og er þegar farin að úthluta þingmönnum, raunar fleirum en eru í boði.

Lýðræðið aukaatriði? 6.12.2002
Vefritið Deiglan hefur aðra sýn á hin látnu lögregluríki í Austur-Evrópu en margir aðrir. Kosningar og það dót sem margir töldu slæmt var í raun og veru ekkert miðað við skort á kóki og Levísgallabuxum.

Landsvirkjunarlýðræðið 10.12.2002
Stjórnarformaður Landsvirkjunar hefur ekki látið sitt eftir liggja í umræðu um brýnustu viðfangsefni þjóðfélagsins undanfarna daga. Á innan við viku hefur hann sett fram tvær ákaflega athyglisverðar kenningar sem verðskulda ríkulega umfjöllun.

Húsið sem enginn vildi eiga? 13.12.2002
Austurbæjarbíó bíður nú dómsdags og borgaryfirvöld tala eins og einhver annar en þau þurfi að koma til bjargar.

Um Hafstein og Hussein 17.12.2002
Þrátt fyrir að ekkert hafi gengið eftir sem lofað var þegar ráðist var á Afganistan eru nú litblindir Frelsispennar að ræða kosti og galla innrásar í Írak, eins og mannslífið sé bara tala á blaði. En rökin eru jafn léttvæg og krafan um „algjöra auðmýkt“ harðstjórans í Bagdad er hlægileg.

Fleiri kosninganætur án kosninga 22.12.2002
Það er gaman að skoðanakönnunum. Líka að úthluta þingsætum. En þá er betra að fara varlega.

Valdaránið voðalega 24.12.2002
Fréttamaður Stöðvar 2 sagði áhorfendum nýlega að Sandínistar hefðu rænt völdum í Nicaragua. Af því tilefni er ágætt að rifja upp stjórnarskiptin 1979.

Sökkvum varðskipunum 27.12.2002
Þar kom að því. Loksins er þessi ríkisstjórn að gera eitthvað af viti.

Áramótaannáll Múrsins: Gerðist eitthvað árið 2002? 31.12.2002
Árið sem Björn brosti, Össur sendi tölvupóst, Ingibjörg Sólrún fór ekki í þingframboð, Halldór hélt pótintátafund, Ástþór var jólasveinn, Sverrir Hermanns fann upp 18 ný fornyrði, VG vann stórsigur í bæjarstjórnarkosningum í Hafnarfirði, R-listinn varð talfrjáls og Davíð eignaðist nýjan bestavin í stað Tanna. Rifjum það upp!

Íslensk dónastjórnmál árið 2003 3.1.2003
Samfylkingarmenn á íslenskum fjölmiðlum reyna nú af kappi að sviðsetja æsispennandi baráttu Sjálfstæðisflokks og Samfylkingar um hver eigi að stjórna landinu þó að nánast enginn munur sé á stefnu flokkanna. Og um hvað á baráttan spennandi að snúast? Við fengum forsmekkinn í Kryddsíldinni.

Í fréttum er þetta ekki helst ... 7.1.2003
Öskukarlar njóta þeirra fríðinda að geta verið skemur í vinnunni þegar ruslið er minna. Sama gildir ekki um fréttamenn. Fylla þarf fréttatímann hvort sem eitthvað hefur gerst eða ekki. Sem betur fer er Múrinn ódeigur við að gefa fréttamönnum góð ráð um ekkifréttir.


Menning - 3. árgangur

Sögubrot af Tyrkja II: Kemani Haydar Tatiliyay 11.1.2002
Hinir fjölmörgu unnendur tyrkneskrar tónlistar eru á einu máli um að þar var Tatiliyay brautryðjandi. Hér er ferill hans rakinn í stuttu máli.

Ástin og fjölmenningarsamfélagið 15.1.2002
Sænska kvikmyndin Jalla, Jalla var tilnefnd til óskarsverðlauna en ekki Tillsammans. Hún er ekki ólíklegri til þess að fá verðlaunin en Mávahlátur.

Skáldið sem vildi ekki þagna 18.1.2002
Camillo José Cela er látinn og þótti þá vert að rekja feril þessa kunna höfundar í stuttu máli enda Múrinn ekkert að frama sig á því að skamma Nóbelsskáld.

Sögubrot af Tyrkjum XI: Ríki Ósmana leggur undir sig Balkanskaga 22.1.2002
Hver var Milos Obelic? Hvert var hið leiftrandi viðurnefni Bayezid I? Hver var siðvenja Tyrkjasoldána fram til ársins 1595? Var Philadelphia alltaf í Pennsylvaníu? Hvern studdi Candali Qara Calil til valda? Hvar var græna moskan? Þessum og ýmsum öðrum knýjandi spurningum lesenda Múrsins verður svarað í þessari grein.

Sögubrot af Tyrkja III: Kanuni Ahmet Yatman 25.1.2002
Fáir kanunleikarar hafa náð þvílíkri snilld og sígauninn Yatman enda heill skóli í tyrkneskri tónlist við hann kenndur.

Ástralar ráðast inn í Montmartre 29.1.2002
Það sem fær verðlaun er sjaldnast það sem er frumlegt og djarft. Leikstjóri Rauðu myllunnar hefur gert bæði frumlegar og djarfar myndir en í Rauðu myllunni er dirfskan í umbúðunum fremur en inntakinu.

Ártíð merkismanna XXXI: Kjörkuð kona í kúgunarsamfélagi 1.2.2002
Hattie McDaniel fékk kannski aldrei að njóta sín sem skyldi en henni tókst býsna vel að fóta sig innan þess ramma sem henni var settur og sýndi þannig fram á hvað í henni bjó.

Stríð og dulmálslyklar 5.2.2002
Aðdáendur stríðsmynda og Kate Winslet geta unað glaðir við kvikmyndina Enigma sem sýnir fram á mikilvægi stærðfræðinga í stríðsrekstri.

Sjónvarp á þorra 8.2.2002
Enn einu sinni tekur sjónvarpsrýnir Múrsins til og segir álit sitt á sjónvarpsdagskránni um þessar mundir, öllum til ama.

Sjónvarp á þorra 2: Forfallakennarinn 2 12.2.2002
Kennsluaðferðir í bandarískum menntaskólum eru afar fróðlegar fyrir hvern þann sem áhuga hefur á menntamálum. Um leið má í Forfallakennaranum 2 fræðast um gildi jójós sem vopns.

Sönn saga Svarta hauksins 15.2.2002
Kvikmyndagerðarmenn í Hollywood eru farnir að hlýða kalli Bandaríkjaforseta um að framleiða stríðsáróðursmyndir fyrir fjöldann. Ein slík er nú á leiðinni til Íslands.

Ártíðir merkismanna XXXII: Löglærður húmanisti 19.2.2002
Víða um heim er þess minnst nú um stundir að tvöhundruð og sjötíu ár eru liðin frá því að Charles Caroll af Carollton lést. Hann setti sitt mark á sjálfstæðisbaráttu nýlenda Breta í Ameríku.

Hver er flottasti múmínálfurinn? 22.2.2002
Bækur Tove Janson eru langflottastar og ættu skilið að vera prentaðar í stærri upplögum en símaskráin. En hvaða persóna skyldi vera skemmtilegust?

Kalið hjarta 26.2.2002
Kvikmyndarýnir Morgunblaðsins vill ekki horfa á myndir um "vont fólk“. Ef það er viðmiðið, þá er kvikmyndin Píanókennarinn ekki fyrir alla.

Altman á sveitasetrinu 1.3.2002
Gosford Park er ein af þessum örfáu myndum sem má ekki missa af. Hún afsannar það rækilega að ekki sé hægt að gera kvikmyndir með skýrum þjóðfélagsboðskap þó að öðrum þræði snúist hún líka um formið sjálft.

Ártíðir merkismanna XXXIII: Maðurinn sem var Hvergi 5.3.2002
Hann vildi vera málari, tónskáld eða náttúrufræðingur en hafði enga hæfileika til þess. Hins vegar er hans minnst sem eins helsta uppreisnarmanns Viktoríutímans.

Sögubrot af Tyrkjum XII: Múhammeð sigurvegari 8.3.2002
Maðurinn sem lagði af miðaldir á einum degi, horfði á ríkisráðsfundi bak við rimla og var að lokum byrlað eitur af syni sínum er ævinlega nefndur fatih. Hvers vegna?

Hinn hýri Tinky Winky 12.3.2002
Enginn getur verið óáreittur fyrir bleiku hættunni, að mati handhafa hinna siðlegu meirihlutaskoðana. Hér er sagt frá miklum deilum um hina sakleysislegu Stubba.

Veitingahúsarýni 1: Þrír stórir 15.3.2002
Í ritstjórn Múrsins hefur nú bæst reyndur veitingahúsarýnir. Þessi veitingahúsarýnir er hagsýnn og fer ekki út að borða nema hafa safnað fyrir því í þrjá mánuði. Því mun veitingahúsarýnin ekki síst beinast að veitingahúsum sem voru sótt heim í fyrra.

Ártíðir merkismanna XXXIV: Langur ferill Vinstrileiðtoga 19.3.2002
Hver var Klaus Berntsen? Hvenær var hann uppi? Hvað gerði hann markvert? Nú, úr því að hann gerði ekkert markvert, hvers vegna í ósköpunum er verið að skrifa um hann á Múrinn? Fylgist með æsispennandi grein í langlífustu ritröð Múrsins.

Veitingahúsarýni Múrsins 2: Alexander og Barbarella 22.3.2002
Seinasta menning var helguð lífseigustu ritröð Múrsins. Nú er hins vegar haldið áfram með þá yngstu og í þetta sinn er sjónum beint að fordrykkjum. Hvernig á að virðast eldri en tvævetur á veigingahúsum? Hvernig verður maður eins og söguhetjur Beðmála í borginni? Er kynlíf á ströndinni fyndið? Allt þetta kemur í ljós í menningu dagsins!

Ártíðir merkismanna XXXV: Gleymdur stiftamtmaður 26.3.2002
Efnilegur embættismaður sem þótti gamaldags var að sjálfsögðu sendur til Íslands. En Rosenørn komst aftur af útskerinu og varð innanríkisráðherra í Danmörku þar sem hann beitti sér fyrir hinum merku járningarlögum. Enn síðar varð hann kommisarius fyrir jósku járnbrautirnar en varð þó frægari fyrir að afþakka embætti.

Úr þýðingarsögu íslenskra barnabókmennta I 29.3.2002
Hafa búrmískir bófar áhuga á Bornholm? Hvernig hafa menningarhlutverk Frakka og Ástrala snúist við? Hvers vegna var móðgandi að vera kallaður Finnur áður en Finnur Ingólfsson varð frægur? Af hverju voru Danir betri en Bretar á 19. öld? Hver er höfundur orðsins „lundleiður“? Öllum þessum spurningum er svarað í æsispennandi nýjum dálki.

Af fánum 2.4.2002
Reynir Pétur þekkir þjóðfána ýmissa ríkja. Þar gerir greinarhöfundur líka.

Meira af fánum 5.4.2002
Svissneski fáninn hefur gagnast vel til limlestinga og manndrápa. En hver er saga hans?

Sáldur úr sögu vesturferða IV: Teiknimynda-Kalli 9.4.2002
Hver vill vera frændi Ronald Reagan? Öðru máli gegnir um mann sem raunverulega var af íslenskum ættum, föður sjálfs Bugs Bunny.

Meistaraverk Truffauts endurskoðað 12.4.2002
Bíórýnir Múrsins heldur áfram ástarævintýri sínu við 8. áratuginn og fór nýlega á frönsku barnamyndina Vasapeninga. Einstaka menn verðskulda orðstír sinn og það á við um François Truffaut. Allir á Vasapeninga!

Úr örnefnasögu heimsins III: Borgir á Indlandi 16.4.2002
Spútnik-greinaflokkur Múrsins um örnefni heldur áfram og nú er röðin komin að indverskum borgum, sanskrít, persnesku og hindí.

Enn af fánum 19.4.2002
Fánar rokka feitt. Ójá.

Alzheimer á hvíta tjaldinu 23.4.2002
Múrinn í dag er að mestu helgaður Le Pen en hann telst þó engan veginn nógu menningarlegur til að fjalla um hann í þessum dálki. Sem betur fer fór bíórýnir Múrsins í kvikmyndahús um daginn.

Enn ein helv. fánagreinin 26.4.2002
Sandra Kim var sennilega ekkert svo sæt í bleika jakkanum sínum. En belgíski fáninn á sér samt merkilega sögu.

Veitingahúsarýnir snýr aftur 30.4.2002
Er hægt að borða við bílastæðahús? Hvenær eru vín lífræn? Hversu mikið kólesteról þola smávaxnir kentuckyfarar? Veitingahúsarýni dagsins er mjög í vinstrigrænum anda.

Sögubrot af Tyrkjum XIII: Lönd Suður-Slava falla eitt af öðru 3.5.2002
Hvað gerðist eftir orustuna við Mohacs? Hverjir voru Armatoloi? Hvenær og undir hvaða kringumstæðum urðu Bosníumenn islamstrúar? Var Valakía tyrkneskt skattland á 16. öld? Hvað í helvítinu er Valakía? Næstum því öllum þessum spurningum er svarað í menningargrein dagsins.

Robert Redford á Versölum 7.5.2002
Brandon Teena gengur ekki nógu vel upp sem franskt glæfrakvendi. Þó að Hálsmenismálið sé sjálfsagt ekkert kjánalegri en veruleikinn á Versölum fyrir byltingu er myndin fremur misheppnað melódrama sem gengur best upp þegar hún er að stæla The Sting.

Ártíðir merkismanna XXXVI: Þjáningarmeistarinn 10.5.2002
Hingað til hefur dálkurinn Ártíðir merkismanna verið helgaður fólki sem fæstir vissu að væru til og greinar hafa aldrei birst á raunverulegri ártíð umrædds merkismanns. Í þetta sinn er hins vegar sagt frá frægri leikkonu sem lést þennan dag fyrir aldarfjórðungi. Hún var það sem innfæddir kalla „flapper“, giftist stjórnarformanni Pepsi og stal bera manninum af Bette Davis.

Vopnaskak eða Frúin í Hamborg? 14.5.2002
Já, auðvitað er þetta endurvinnsla en þeir sem ekki lásu DV í september 1997 geta samt haft gaman af þessari grein um Ástríksbækurnar og hvernig þær eru uppreisnargjörn ádeila á margan hátt.

Fánarnir geta ekki þagnað ... 17.5.2002
Fánanörd Múrsins er á karabískum slóðum um þessar mundir.

Svarthöfði nálgast 21.5.2002
Svarthöfði var, er og verður langflottastur og önnur myndin í seinni (fyrri?) Stjörnustríðsröðinni gefur The Empire Strikes Back lítið eftir.

Hundalíf í Mexíkó 24.5.2002
Kvikmyndir frá Mexíkó eru teknar að rata í íslensk bíóhús og ein þeirra sérstæðustu og skemmtilegustu er Amores perros sem er þó ekki fyrir hundavini.

Kannast einhver við þetta leikrit? 28.5.2002
Íslensk sjónvarpsleikrit eru mörg hver ótrúleg snilld. Nokkur eru hér rifjuð upp og vegleg verðlaun í boði fyrir þá sem geta rétt upp á nöfnum þeirra allra.

Stuð, frumleiki og sýndarþokki 31.5.2002
Það var tvímælalaust styrkur Eurovisjón í ár að Ísland sat hjá. En margt má enn betur fara.

Fánar eru fánum líkir 4.6.2002
Hvernig tengjast rúmfræði, Andorra og Þorbjörn Atli Sveinsson knattspyrnukappi? Klikkið ekki á nýjasta fánahorninu!

Saga bösksins 7.6.2002
Nú er komið að því sem allir hafa beðið eftir! Fyrir viku fór bíórýnir Múrsins á frumsýningu á nýrri íslenskri mynd og rifjar nú upp hversu honum þótti myndin.

Karlmenn eru fávitar og konur eru frábærar... eða hvað? 11.6.2002
Nú er HM í fótbolta í gaman. Það er gaman fyrir okkur fótboltanördana, nema við séum jafnréttissinnar líka því að HM fylgir endalaust órökstutt blaður um mun á kynjunum.

Gott partý 14.6.2002
Hvað getur verið betra en að fá að borða með Hilmi Snæ í ham og taka þátt í leiksýningu um leið. Súkkulaðimúsin er raunar nokkuð þurr, betra er að staupa sig ekki fyrir sýningu eða eipa og fara að kalla nöfn leikaranna en þetta er skemmtilegt og vel leikið verk.

Woody á nóg eftir 18.6.2002
Það er til lítils að lesa bíórýni um mynd Woody Allen. Allir þekkja Woody og myndir hans. En þeir sem hafa nákvæmlega ekkert að gera við líf sitt geta sosum lesið menningu dagsins. Sama er okkur.

Knattspyrnan og Kóreurnar tvær 21.6.2002
Sigur Suður-Kóreumanna á Ítölum er sögulegur fyrir margra hluta sakir. Örlög Norður- og Suður-Kóreu hafa nú tengst saman með óvæntum hætti.

Af þjóðsöngvum 25.6.2002
Þjóðsöngvar rokka ekki, enda flestir samdir löngu fyrir tíma rokksins. Þeir eru samt margir hverjir skemmtilegir.

Um Vírland, Kvenland og önnur horfin lönd 28.6.2002
Nú þarf ekki að velta lengur fyrir sér Kúrum og Kænum, Kirjölum og Refölum, eða öðrum þjóðum sem nefndar eru í íslenskum fornritum. Deili á þeim verða sögð hér.

Eilífðarunglingur finnur fólk 2.7.2002
Hugh Grant er svei mér skemmtilegur náungi. Kannski er kvikmyndin About a boy það einnig... hver veit? Jú, það veit bíórýnir Múrsins.

Strákaklúbburinn Hollywood 5.7.2002
Hvar eru allir kvenleikstjórarnir og handritshöfundarnir í Hollywood? Það er svo sannarlega góð spurning.

Syngjum, leikum, hlæjum dátt I 9.7.2002
Árið 1983 litlu dagsins ljós glaðlyndar verur sem lifa á sykri sem þeir nota jafnframt sem byggingarefni.

Ó mig auma ... 12.7.2002
Öðru hverju fer Múrinn að skorta efni. Þá er kominn tími á sjónvarpsrýni.

Múrar mannkynssögunnar X: Múrurinn í Kirkjubæ 16.7.2002
Var Erlendur byskup drepinn á kirkjuveggnum? Hvað voru dýrgripirnir geymdir? Munu húsaverndunarsjónarmið reynast túrismanum yfirsterkari?

Ártíðir merkismanna XXXVII: Höfundur Lolitu 19.7.2002
Var hann perri eða einn mesti ritsnillingur í Bandaríkjunum á ofanverðri 20. öldinni. Hér er fjallað um manninn á bak við Humbert Humbert, um Daufa eldinn, Vörnina, Gjöfina og Boð til afhöfðunar.

Ofurkonur og fullkomin morð 23.7.2002
Það er alltaf gaman að fara í Kringlubíó en Sandra Bullock er ekki Jeremy Irons. Og þrátt fyrir að margt sé efnilegt við myndina Murder by Numbers þá … ja, lesið bara sjálf.

Útlendingavandamál 26.7.2002
Men in Black II er vissulega ekki róttæk ádeila. En hún er samt áhugaverð heimild um það hvernig viðhorf í bandarískum kvikmyndum eru fullkomlega á skjön við heimsmynd Bushstjórnarinnar.

Merkir Svíar I: Vergoofin der flicke stoobin mit der børk-børk yubetcha! 30.7.2002
Ef greinaflokkur á að geta lifað árum og áratugum saman verður þemað að vera efnismikið og gefa ýmis færi. Ekki verður annað sagt um flokkinn sem hefur göngu sína í dag.

Merkir Svíar II: Ástarbarnið ABBA 2.8.2002
Af miklu er að taka þegar merkir Svíar eiga í hlut. Hér verður hafist handa við einn undirflokkinn: forríkir Svíar. Þar eru framarlega í flokki þau Agneta, Björn, Benny og Annifrid. Ekki lifa þó hjónaböndin lengur góðu lífi og kannski var það fleira sem Fridu fannst leiðinlegt við Agnethu en blóðþrýstingspillurnar sem hún hámaði forðum.

Skemmtileg kúríosítet úr orkusögunni 6.8.2002
Viltu vera flottur á mannamótum? Þá er nú vænlegra að búa yfir skemmtilegum sögum en að þegja eins og þumbi.

Merkir Svíar III: Frú Pettersson 9.8.2002
Dálkurinn Merkir Svíar tekur óvænta stefnu í dag.

Merkir Svíar IV – I must break you!!! 13.8.2002
Íslendingar eru upp til hópa labbakútar og ættu ekki séns í fræga Svía dagsins, hvorki í karate né leiklist.

Tilraun með Eddukvæði 16.8.2002
Eddukvæðin eru endalaus uppspretta nýrrar sköpunar og túlkunar. En ekki hittir allt jafn vel í mark.

Rappað, kveðið og klappað 20.8.2002
Rímur og rapp eru besta blanda, einkum þegar lögreglan er svívirt, reykvélin er sett í pásu og lúðraþeytarar fá að halda einkennisbúningum. En er Guðmundur Andri gott hráefni í slíka blöndu?

Merkir Svíar V: Svíinn í sviginu 23.8.2002
Býr í Monaco. Tvískilinn. Fæddur í Tärnaby. Þjálfaður af Nogler. Þetta segir okkur kannski ekki mikið. En allir muna eftir manninum með rásnúmer 13.

Könnun á „tíkarmyndum“ 27.8.2002
Enginn fær skilið íslenska bíómenningu nema hann fari öðru hvoru á myndir sem ætlaðar eru unglingum og það gerði bíórýnir um daginn.

Merkir Svíar VI: Músin sem læðist 30.8.2002
Hann var ekki enskur. En hann var feiminn. Hann var ekki heldur tvíburi en hann skrifaði um þá. Og hann var ekki mús en hér á landi er hann frægur fyrir músina Pipp.

Ártíðir merkismanna XXXVIII: Sigursæll kroppinbakur 3.9.2002
Hann var Hollendingur með kryppu og astma en varð þó konungur Englands. Þó að brúðurin gréti við tilhugsunina um að giftast honum varð hjónabandið farsælt og þó var hún katólsk en hann ekki. Og þrátt fyrir kryppuna skaut hann Loðvík 14. ref fyrir rass oftar en einu sinni og varð að lokum sjálfur Billi réttlætisins (Bill of Rights).

Merkir Svíar VII: Snoddasæðið mikla 6.9.2002
Það er kannski ekkert gaman að vera kenndur við gúmmiverjur en ekki háði það Gösta Nordgren, bandíhetjunni miklu, syni Gummi-Kalle frá Röste sem síðar varð miðpúnkturinn hjá Giffarna og að lokum mætti hann til Lennart Hyland í Karusellen og söng Hadderian Haddera.

Spenna í undirdjúpunum 10.9.2002
Vostrikov eða Polenin? Getur Han Solo talað með rússneskum hreim? Náði búningahönnuðurinn hinni nauðsynlegu þykkt sovéttískunnar? K-19 er ekki alls varnað þó að hún sé kannski ekki alveg eins róttæk og stundum er látið.

Saga Manchesterpoppsins 13.9.2002
Joy Division, New Order, Happy Mondays og heilinn á bak við allt - Tony Wilson. 24 Hour Party People svínvirkar.

Kvikmyndaskóli og Kastilíudrottning 17.9.2002
Aðdáendur Fabios komast í feitt á spænsku kvikmyndahátíðinni þó að vonandi séu gerðar meiri kröfur til spænskra kvikmyndaprófessora en þar er lýst.

Öndin sem sat í súpunni 20.9.2002
Getur dvergur í tuskudruslum bjargað veröldinni? Hvernig tókst George Lucas að lifa af Howard the Duck?

Merkir Svíar VIII: Britney er víst sænsk! 24.9.2002
Ooops, I did it Again! hljómar kannski ekki eins og sænska. Samt er tónlist Britneyjar Spears sannkallað Volvópopp.

Merkir Svíar IX: Skyr.se 27.9.2002
Hvað varð um mjólkina hennar Huppu á 19. öld?

Þyrnirós að spænskum sið 1.10.2002
Það er a.m.k. eitt ógleymanlegt atriði í nýjustu mynd Almodovars sem ber sterk höfundareinkenni. Það þarf ekki að segja aðdáendum hans Pedros að mæta en það er samt gert: Farið endilega á þessa líka.

Þemakvöld Múrsins 4.10.2002
Að horfa á myndband er góð skemmtun. En til eru leiðir til að gera glápið að frábærri skemmtun.

Merkir Svíar X: Abba hvað? 8.10.2002
ABBA voru kannski ekki slæm en gátu þau hoppað eins og Herreysbræður? Hafa Benny og Agneta orðið byskupar? Komst Annifrid í Fame? Herreysbræður urðu kannski aldrei heimsfrægir en saga þeirra er ekki með öllu óforvitnileg. Jú, kannski. En hér er hún samt.

Hamlet, svartfugl og silungur 11.10.2002
Ungæðislegur Amlóði og silungur í haframjöli er meðal þess sem Norðlendingar bjóða upp á um þessar mundir. Múrinn rýnir í málið.

Svefngengill í vetrarlandi 15.10.2002
Insomnia er óvenjulega innihaldsrík hasarmynd með hörkugóðum leikurum sem feta einstigi bíórýnis með mikilli prýði; þeir ofleika ekki, slefa ekki og Robin Williams reynir ekki að vera fyndinn.

Stressuð í sellófani 18.10.2002
Nýr einleikur í Hafnarfjarðarleikhúsinu vekur máls á ýmsum misjákvæðum hliðum íslensks samfélags.

David Beckham og stelpurnar 22.10.2002
Eru bara lessur í kvennaboltanum? Hugsa Indverjar um eitthvað annað en brúðkaup? Nota indverskar ömmur farsíma? Allt þetta kemur fram í óvenjulegri en raunsærri og nokkuð djúpri kvikmynd indversks kvenleikstjóra sem að vísu grípur til ævintýrisins í lokin.

Brokkgengar beyglur 25.10.2002
Fjórar ungar leikkonur eru með nokkurs konar uppistand í Iðnó og það er ekki leiðinlegt þegar best tekst til.

Rauðir drekar og hættulegir 29.10.2002
Ný mynd um fortíð Hannibals Lecters minnir óþyrmilega á fortíð Tony Hopkins, þegar hann var góður leikari. En þó að hann sé núna orðinn sir en hvorki fugl né fiskur er Rauði drekinn samt fyrirtaksspennumynd, þökk sé þeim Edda og Reifa.

Grettir fyrir 21. öldina 1.11.2002
Um hvað fjallar leikritið "Grettis saga — Saga Grettis. Leikrit um Grettissögu“? Svarið við því fæst hér!

Fáránleiki þess að keppa í fegurð 5.11.2002
Umdeild og bönnuð heimildamynd er nú komin á tjaldið. Hvað fannst Múrnum?

Óvenjuleg mafíumynd 8.11.2002
Paul Newman leikur Bogesen úr Sölku Völku, Jude Law reynir að vera ljótur og Tom Hanks er … já, auðvitað sami trémaðurinn og venjulega. Drullugóð mynd samt.

Edda smedda 12.11.2002
Ókei, þetta er eiginlega glerhús en, póstmódernískt nokk, þá er þetta menning dagsins. Og ef Edduverðlaunin eru ekki menning, þá er ég froskur, var langamma vön að segja.

Um netið, gagnrýnendur og höfunda 15.11.2002
Ritdeilur höfunda og gagnrýnenda eru eitthvert menningarlegasta menningarefni sem hægt er að hugsa sér.

Tilraun um manninn 19.11.2002
Tilraunin er þýsk kvikmynd sem byggð er á bandarískri sögu. Æsispennandi kvikmynd sem skilur heilmikið eftir sig og ekki verri fyrir að vera á þýsku.

Íbúð Soju 22.11.2002
Stúdentaleikhúsið hefur iðulega komið á óvart undanfarin ár og útsendari Múrsins mætti því á staðinn að kanna hvernig þeir færu með leikrit stórskáldsins Búlgakovs. Er ástæða til að mæta? Lesið það hér!

Afþreyingardrottning aftur á tjaldið 26.11.2002
Múrinn er ungur í anda og var að sjálfsögðu mættur á Harry Potter fyrstu sýningarhelgina. Er Dumbledore skólastjóri dauður eða lifandi? Hvers vegna hatar bíórýnir Múrsins Malfoyfeðga? Hvað varð um eðlubúningana úr Júragarðinum? Er jafnauðvelt að finna dýpt bókaflokksins og nýja heimsálfu? Lesið allt um það hér!

Hvað ef … 29.11.2002
Du gamla, du fria! Hvað hefði gerst ef Íslendingar hefðu lent undir sænskri stjórn árið 1814. Væru allir Íslendingar með Volvoregnhlíf uppspennta á rigningardögum eða fullir í Nyhavn allar helgar að leita ódýrs brennivíns? Hefði Astrid Lindgren látið Emil heita Egil? Er þetta kannski fyrsta greinin í nýjum flokki?

Oscar Wilde er ekkert hættur að vera fyndinn 3.12.2002
Bestu leikrit Oscars Wilde eru hlaðin gullkornum og það er varla hægt að kvikmynda þau þannig að manni stökkvi ekki bros. Ný útgáfa á The Importance of Being Earnest er mjög skemmtileg en samt vantar eitthvað.

Lýðræðið sigrar 6.12.2002
Útsendari Múrsins mætti á staðinn þegar tilkynnt var um tilnefningar til Íslensku bókmenntaverðlaunanna og er sáttur við flest en einkum þó að síðari blómaskeiði einveldisins sé lokið.

Flottur Bondari 10.12.2002
Pierce Brosnan er ekki bara feitasti fangi sögunnar heldur ennþá býsna svalur Bond, Halle Berry er þrátt fyrir einstakt hæfileikaleysi til að bjarga sér úr íshúsi skutla mikil og hasarinn er sem aldrei fyrr. Já, auðvitað fer maður á Bondinn!

Lengi von á einum — enn ein fánagreinin 13.12.2002
Fánarýnir Múrsins rekur sögu Álandseyja og svarar grundvallarspurningum um póstmódernisma og Karl Th. Birgisson.

Flóðin ekki bara í Tékklandi 17.12.2002
Hélduð þið kannski að formaður UVG myndi ekki þora að vera á móti jólabókaflóðinu líka? Onei. Það eru nefnilega margar skuggahliðar á því, ekki síst stórmarkaðasalan á örfáum metsölubókum sem eru ginntar inn á fólk en venjulegar bókabúðir berjast í bökkum, fara kannski á hausinn og hvert eiga þeir þá að leita sem hafa annan smekk en fjöldinn?

Veitingahúsarýnir fer á stjá 20.12.2002
Hinir fjölmörgu aðdáendur veitingahúsarýni Múrsins geta nú tekið gleði sína, þar sem rýnir komst loksins á veitingahús um daginn.

Sáldur úr sögu vesturferða V: Íslendingur í Peg - Winnipeg 24.12.2002
Auðvitað er svalasti njósnari allra tíma landi okkar í raun, jafnvel þó hann sé skáldsagnapersóna.

Merkir Svíar XI: Augun mín og augun þín 27.12.2002
Hann er ættaður úr dölum sem ekki þekkjast í Svíþjóð og heitir nafni sem er líka ókunnugt þar í landi en var samt með stór augu.

Það messar enginn við Sauron 31.12.2002
Íslendingar tárast af stolti þegar Emilíana syngur, Entaorðið burarum kemur sterkt inn, Legolas gerist „skater boy“, rödd Sarúmans dáleiðir ennþá og Peter Jackson reynir að myrða dvergakastsbrandarann frá í fyrra. Í heildina litið býsna gott, bókin betri en hvern erum við að reyna blekkja? Auðvitað fer maður strax aftur!

Sjónvarpsrýni Múrsins enn á lífi, þó varla 3.1.2003
Kannanir sýna að margir lesendur Múrsins lesa alls ekki menningardálkinn. Í trausti þess verður ekkert áhugavert í dag, bara fúl sjónvarpsrýni sem útilokað er að nokkur geti haft gaman af.

Jólamenning 7.1.2003
Nú eru jólin búin og þá loksins ætlar Múrinn að fjalla um þau. Allir aðrir halda jól fyrir jólin en Rússar og Múrarar eru í jólaskapi enda faðir Frosti kominn til byggða.


Leit   Eldra efni   Um Múrinn
Forsíða   Efst á síðu
Rss straumur