|
Fréttir - 4. árgangur
Vinstristjórnardraumur úti?
10.1.2003
Sem betur fer getur margt breyst á fjórum árum. Annars stefnir allt óðfluga í að fyrsta ríkisstjórn Davíðs Oddssonar verði endurtekin, með þeirri breytingu einni að Ingibjörg Sólrún taki að sér að vera Jón Baldvin.
Stórtap og fjöldauppsagnir hjá Alcoa vegna lágs álverðs
11.1.2003
Hér á landi flagga menn fyrir Alcoa. Annarstaðar í heiminum er velgengni fyrirtækisins ekki jafn mikil.
Brennt barn ...
12.1.2003
Í ljósi sögunnar sætir furðu hversu gírugir Bandaríkjamenn og Bretar eru í að gera sömu mistökin enn og aftur á Persaflóasvæðinu.
Eltum fylgið
13.1.2003
Einu sinni, langt, langt í burtu, var flokkur …
Kjarkmaður í Illinois tekur réttlætið fram yfir vinsældirnar
14.1.2003
Ríkisstjórinn í Illinois hafði þor til að breyta 167 dauðadómum í lífstíðarfangelsi og vakti þannig von um að Bandaríkjamenn muni hverfa frá hefnda- og refsingastefnu sinni sem hefur verið smánarblettur á landinu.
Pandóruboxið opnað
15.1.2003
Fyrsti hluturinn sem kom upp úr því reyndist vera Kárahnjúkavirkjun og álver.
Víggirt meginlönd
16.1.2003
Hvernig fer það saman að vilja opna stórfyrirtækjum og fjármagnseigendum allar dyr, en halda fátækri alþýðu úti? Bandaríkjastjórn og Evrópusambandið telja sig kunna lausn á því.
Eru einhver rök fyrir innrás í Írak?
17.1.2003
Mætum öll á Lækjartorg kl. 14 á morgun! - En fyrst skulum við rifja upp 10 rök stríðsæsingamanna sem notuð hafa verið til að réttlæta stríð gegn Írak.
Að vera vopnlaus þjóð
18.1.2003
Á sama tíma og þegnar mesta herveldis heims eru helstu skotmörk hryðjuverkamanna eru þrír flokkar á Íslandi sem telja að herlið frá þessu sama ríki veiti vörn gegn hryðjuverkum.
Borgarstjórn brást
19.1.2003
Atkvæðagreiðslan fræga í borgarstjórn sl. fimmtudag sýnir svo ekki verður um villst hvaða stjórnmálaflokkar eru einarðir í baráttu sinni fyrir verndun hálendisins - og hverjir eru það ekki.
Undarlegur fjandskapur
20.1.2003
Talningarmenn lögreglunnar er óskeikulir. Ó já.
Baráttan heldur áfram!
21.1.2003
Eiga umhverfissinnar og Vinstrigrænir að gefast upp núna, af því að Kárahnjúkavirkjun hefur meirihlutafylgi í könnunum? Snýst málið um vinsældir eða að breyta rétt? Eða er orustan töpuð? Er nokkuð hægt að gera? Jú, það er hægt, t.d. hafa menn kosningarétt, menn geta haldið áfram að mótmæla og umfram allt ekki trúa því sem yfirvöld og fjölmiðlar reyna að fá fólk til að trúa: Að það sé áhrifalaust og barátta sé tilgangslaus.
Ekkert stríð gegn Írak
22.1.2003
Þingmenn VG hafa lagt fram tillögu um Ísland standi utan við hvers kyns hernaðaraðgerðir gegn Írak, hvort sem Öryggisráðið blessar þær eður ei.
Bleiki pardusinn enn á ferð og flugi
23.1.2003
Það er kunnur háttur glæpamanna í kvikmyndum að segja lögreglunni frá glæpsamlegum fyrirætlunum sínum. Fátíðara er að ríkisstjórnir vari við lygum fyrirfram.
Össur og Elvis
24.1.2003
Menn hafa hingað til gagnrýnt Samfylkinguna fyrir að vera linur andstæðingur Sjálfstæðisflokksins og með allar sömu skoðanirnar. En nú er komið á daginn að Samfylkingin er beinlínis í Sjálfstæðisflokknum.
Eltum fylgið
25.1.2003
Einu sinni, langt, langt í burtu, var flokkur …
Pyntingar í Guantanamo
26.1.2003
Réttast væri að alþjóðasamfélagið sendi eftirlitsmenn til að kanna ástandið í Guantanamo-fangelsinu. Spurningin er hins vegar hvernig bandarísk stjórnvöld brygðust við slíkum „afskiptum“.
Af „sambærilegum“ mannréttindabrotum
27.1.2003
Getur skipt máli hver fremur mannréttindabrot hverju sinni? Svo virðist sem Sigurði Kára Kristjánssyni finnist það en Múrinn er ósammála.
Leiðréttingastofnun ríkisins
28.1.2003
1984-heilkenni ríkisstjórnarinnar blómstra sem aldrei fyrr. Þeir sem eru orðnir leiðir á heilaþvottinum ættu að mæta á Austurvöll klukkan 12 í dag.
Sigurstund!
29.1.2003
Á þessum degi fyrir sjö árum unnu friðarsinnar glæstan sigur í baráttunni við frönsk stjórnvöld. Sá sigur segir markt um þann styrk sem felst í samstöðu almennings.
Blekkingarnar halda áfram
30.1.2003
Í sjónvarpsfréttum í gær kom fram að Bush Bandaríkjaforseti hefði í áramótaræðu sinni „rökstutt“ þörfina fyrir stríð gegn Írak. Líklega leggja sjónvarpsfréttamenn aðra merkingu á orðið „rökstuðningur“ en fólk gerir flest, því að ef eitthvað vantaði í ræðu Bush þá voru það rökin.
Gilda alþjóðlegar skuldbindingar þá bara sunnan jökla?
31.1.2003
Úrskurður Jóns Kristjánssonar um Norðlingaölduveitu vekur upp þá spurningu hvort alþjóðlegir samningar gildi eingöngu sunnan jökla. Ekki var í það minnsta mikill vilji til að virða þá þegar rætt var um framkvæmdir vegna Kárahnjúkavirkjunar.
Reyndu að ljúga líklegar!
1.2.2003
Þann 24. janúar sl. birtist á vefritinu Deiglunni grein eftir Bjarna Ólafsson, laganema, þar sem uppi voru hafðar makalausar fullyrðingar um bandarískar friðarhreyfingar og þau samtök sem staðið hafa að fjölmennum mótmælum gegn Íraksstríði í Bandaríkjunum. Í greininni lýsti Bjarni þeirri skoðun sinni að varhugavert væri fyrir friðelskandi almenning að taka þátt í mótmælaaðgerðum af þessu tagi, enda væru samtök þau sem að þeim stæðu í raun bara leppar fyrir agnarlítinn sósíalískan harðlínuflokk, Workers World Party.
Halda rökin? — I. hluti
2.2.2003
Málflutningur þeirra sem tala fyrir árásarstríði er stundum nefndur "rökstuðningur" í fjölmiðlum. En hvers virði eru þau "rök" sem þar eru notuð?
Samúðarkveðjur til sýningarstjóra
3.2.2003
Columbia sprakk. Menn fóru strax að rannsaka... og senda samúðarkveðjur.
Þrír möguleikar á miðhægristjórn
4.2.2003
Ef janúarkönnun Gallups hefur eitthvert forspárgildi fyrir kosningarnar í vor þá eru þrír kostir og enginn góður þegar kemur að ríkisstjórnarmyndun. En kjósendur geta auðveldlega bætt fleiri kostum við.
Að vera skotinn vegna skóflu
5.2.2003
Það er alltaf vesen í Mið-Austurlöndum. Menn að vesenast með skóflur og heyrnarlausar konur að vesenast hingað og þangað.
Gangið ekki á grasinu!
6.2.2003
Mótmæli eru stórhættulegt fyrirbæri eins og allir vita. Þau fara fram utandyra, oft í leiðindaveðrum og ef þátttakendur eru ekki vel klæddir er mikil hætta á að þeir fái kvef, kíghósta eða þaðan af verra.
Hið ljúfa líf láglaunafólksins
7.2.2003
Er Pétur Blöndal að tapa sér í að reyna að snúa fólki til trúar með dæmisögum a la J. Kr. Jósefsson? Hvað þarf að gera til að lifa vel og leggja fyrir af 90 þúsund kallinum?
Hugsum til framtíðar!
8.2.2003
Á Íslandi er lenska hjá íhaldsmönnum allra flokka að skammast út í strætisvagnana. Þeir eru hins vegar hagkvæmur samgöngukostur og þeirra tími mun koma fyrr eða síðar. Þangað til á greinilega að okra á þeim sem eru svo framsýnir og vinsamlegir náttúrunni að ferðast á þann hátt sem mengar minnst.
Ljóstýra í lamandi myrkri
9.2.2003
Eftir fréttir helgarinnar stendur sú spurning hvort allir geti vitkast - líka George W. Bush.
Kosningamálin í ár: Baugur og Norðurljós?
10.2.2003
Um hvað verður kosið í vor? Heilbrigðiskerfið? Menntamál? Fátækt í samfélaginu? - Nei, ef Samfylkingin fær að ráða verður kosið til varnar stórfyrirtækjum.
Hriktir í stoðum NATO
11.2.2003
Hvers virði er varnarbandalag ef það vill ekki heyja árásarstríð? Eða hvers konar varnarbandalag er það sem kemst í uppnám ef ekki næst samstaða innan þess um að hefja árásarstríð?
NATO og stríðið gegn Írak
12.2.2003
Ótrúlegt bull er borið á borð fyrir heiminn til að „rökstyðja“ árásarstríð Bandaríkjamanna gegn Írökum. Margir þjóðarleiðtogar fylgja haukunum í Washington í blindni og fjölmiðlar éta upp bullið athugasemdalaust.
Gjafir eru yður gefnar
13.2.2003
Enn hefur íslensk þjóðtrú orðið ríkari, því nú hefur bæst í hópinn ný tegund jólasveina, svokallaðir "þorrajólasveinar". Þeir taka fyrst en skila svo.
Stórfundir gegn stríði
14.2.2003
Laugardaginn 15. febrúar verður fyrirhuguðu stríði gegn Írak mótmælt á hátt í 600 stöðum um víða veröld, þar á meðal í Reykjavík, á Ísafirði og á Akureyri.
Vinstriflokkur í uppsveiflu í Noregi
15.2.2003
Norskir kjósendur taka ekki aðeins afstöðu gegn stríði heldur sýna hana í verki með því að lýsa yfir stuðningi við þann flokk sem leitt hefur andstöðuna.
Jafnvægislist alþjóðasamfélagsins
16.2.2003
Andóf almennings gegn Íraksstríðinu og ýfingar innan Atlantshafsbandalagsins sýna að Evrópuþjóðir eru ekki reiðubúnar að láta allt vald í hendur Bandaríkjamanna.
Merk tilraun í Lundúnum
17.2.2003
Ken Livingstone, borgarstjóri í London, leggur allt undir í baráttu sinni gegn umferðaröngþveiti og loftmengun.
Sjúkleg heimsvaldastefna
18.2.2003
Núna hóta Bandaríkin Þjóðverjum að dæma þá einhliða til útlegðar úr „alþjóðasamfélaginu“ fyrir að vilja ekki taka þátt í stríðsrekstrinum gegn Írak.
Vandinn að vera bulla
19.2.2003
Stutt hugleiðing um bullur og alþjóðastjórnmál, tileinkuð vestrænum stjórnmálamönnum og fjölmiðlum.
Gleymd kosningaloforð
20.2.2003
Einhverjir sögðu einhvern tímann í kosningabaráttu að þeir vildu hafa fólk í fyrirrúmi. Ef til vill hefðu þeir hinir sömu betur tekið fram hvaða fólk átt var við því greinilega var fyrirrúmið ekki ætlað öllu fólki.
Tímamót í málefnum fátækra ríkja?
21.2.2003
Chirac forseti Frakklands lagði nýverið fram tillögu um bann við niðurgreiðslu vestrænna landbúnaðarafurða á afrískum markaði. Kannski markar þessi tillaga tímamót í þróunaraðstoð við fátæk ríki heimsins.
Demantar eða Búskmenn?
22.2.2003
Nú deila menn um hvort botnswönsk stjórnvöld hafi flutt Búskmenn nauðungarflutningum til að greiða leið fjölþjóðlegra námafyrirtækja.
Ótíðindi frá Ísrael
23.2.2003
Ariel Sharon virðist hafa tekist að kaupa hægriöfgamenn á ísraelska þinginu til liðs við sig og þar með bjargað sér frá því að verða dreginn fyrir dómstóla - í bili.
Írakinn og dollarinn
24.2.2003
Deilt hefur verið um hversu stórt hlutverk olíuhagsmunir leiki í óhagganlegum ásetningi Bandaríkjastjórnar um stríð gegn Írak. Það hlutverk er stórt þótt það sé ef til vill örlítið öðruvísi en margir hafa talið.
Forseti sem hlustar á fólkið?
25.2.2003
Hefur heimurinn þörf fyrir ráðamenn sem fylgjast með Netinu? Er það kannski valkosturinn við ríkisstjórnir sem hlusta bara á Bush með öðru eyranu og Blair með hinu?
Fjöldamorð sem mátti fyrirbyggja
26.2.2003
Fjöldamorðin í Rwanda árið 1994 eru á ný komin í sviðsljósið. Þau ættu að vera Vesturlöndum lærdómsrík, en þó ekki á þann hátt sem sumir stjórnmálaskýrendur vilja vera láta.
Sýrland næst?
27.2.2003
Bush Bandaríkjaforseti hefur lög að mæla þegar hann segir að framtíð Sameinuðu þjóðanna velti á ákvörðunum þess í Íraksmálinu. Reynast SÞ handbendi Bandaríkjanna eða sjálfstætt afl?
Top Shop
28.2.2003
Barnsleg gleði Fréttablaðsins yfir vel heppnuðum stjórnmálaskóla Samfylkingarinnar í versluninni Top Shop segir einhvern veginn allt sem segja þarf um Fréttablaðið og Samfylkinguna.
Stjórnmálaflokkur deyr
1.3.2003
Lokið er sögu Frjálslyndaflokksins í New York sem stundum lagði það litla lóð á vogarskálina sem öllu breytti.
Þar sem engin æð er til ...
2.3.2003
Minnisblað um njósnaherferð Bandaríkjastjórnar gegn sendifulltrúum sex ríkja sem eiga sæti í Öryggisráði SÞ er enn einn naglinn í líkkistu þess málstaðar sem fylgismenn árásarstríðs gegn Írak hafa reynt að verja.
Hugsunarvísitala hægrimanns
3.3.2003
Bæjarstjórinn á Akureyri telur meira hugsað í háskólabænum en gerðist og gekk í iðnaðarbænum. Hvað skyldi hann sjálfur vera að hugsa?
Er flatur skattur sáluhjálparatriði?
4.3.2003
Morgunblaðinu virðist líka meinilla við tillögur um þrepaskiptan fjármagnstekjuskatt.
Þrír kátir karlar fara á míníbarinn
5.3.2003
Gott gengi Reykjavíkurlistans í nýlegri skoðanakönnun er til marks um að fráhvarf forsætisráðherraefnis úr borgarstjórastóli hefur ekki skipt sköpum fyrir framtíð listans.
Vantaði ó- fyrir framan?
6.3.2003
Samfylkingin á erfitt uppdráttar innan þingflokks Samfylkingarinnar enda styðja aðeins tæp 12% þingmanna stefnu flokksins í stórum málum.
10 ástæður til að andæfa stríði gegn Írak
7.3.2003
Hér á Múrnum hefur oft verið fjallað um rökin fyrir stríði og þau vegin og léttvæg fundin. En ekki aðeins eru rökin fyrir stríði ekki nóg góð, það eru líka til rök gegn því að fara í stríð. Hér verða þau helstu rakin.
Alþjóðleg handtökuskipun gefin út á hendur Fujimori
8.3.2003
Í eina tíð var Alberto Fujimori eftirlæti hægrimanna um allan heim. Nú er hann eftirlýstur af Interpol fyrir margvíslega glæpi.
Ársbirgðir af Viagra, fínar háskólagráður og fúlgur fjár!
9.3.2003
Í hverri viku hellast yfir netverja tugir skeyta með gylliboðum og falsi. Er eitthvað til ráða?
Nýlenduherrarnir í Kaupmannahöfn
10.3.2003
Danska ríkisstjórnin lítur á Grænland eins og hverja aðra nýlendu sem óþarft sé að hafa í ráðum þegar kemur að því að leyfa Bandaríkjamönnum að hrinda af stað nýju vígbúnaðarkapphlaupi.
Kreppa leppanna
11.3.2003
Í fyrsta sinn í langan tíma skiptir afstaða Sameinuðu þjóðanna máli. Þvert á yfirlýsingar sumra "fréttamanna".
Kaliforníubúar minnast hörmulegra atburða
12.3.2003
Þess er nú minnst í Kaliforníu að 75 ár eru liðin frá því að hamfaraflóð varð hátt í 500 manns að bana þegar St. Francis-stíflan brast.
Tvöfalt líf Zorans
13.3.2003
Morðið á Zoran Djindjic, forsætisráðherra Serbíu, í gær er til marks um það að ennþá ríkir pólitískur óstöðugleiki á Balkanskaga þrátt fyrir afskipti Vesturlanda af svæðinu. Djindjic var hátt skrifaður á Vesturlöndum en í heimalandi sínu var hann mjög umdeildur.
Á að einkavæða mannréttindi?
14.3.2003
Önnur umræða um frumvarp til breytinga á lögum um vatnsveitur er á dagskrá þingsins í dag.
Er áhættan þess virði?
15.3.2003
Er mannskepnan á við eitt stykki loftstein?
Hvað ert þú að lesa?
16.3.2003
Bókaormar eru hættulegir.
Minna lýðræði - meiri hryðjuverk
17.3.2003
Lýðræðið er til margra hluta nytsamt, sagði einhvers staðar. Kannanir á viðhorfum almennings í nokkrum arabaríkjum benda síður en svo til þess að stríð Bandaríkjamanna í Írak muni leysa málin í þeim heimshluta.
Mótmælastaða við Stjórnarráðið
18.3.2003
Klukkan 9:30
Nú stöndum við vaktina
18.3.2003
Nú er mikilvægara en nokkru sinni fyrr að friðarsinnar og vinstrimenn standi vaktina og láti ekki bugast.
Tilefnislaust stríð
19.3.2003
Þá er Ísland komið í hóp útlagaríkjanna.
Hvenær er rétti tíminn til að stöðva stríð?
20.3.2003
Stríð Bandaríkjamanna og Breta í Írak hefði verið hægt að koma í veg fyrir líkt og öll stríð. En hvenær hefði verið rétti tíminn til þess?
Manstu...?
21.3.2003
... hvað gerðist fyrir 12 árum?
Mannúðarmál og stríð
22.3.2003
Breska ríkisstjórnin heldur því fram að innrás í Írak sé til að hjálpa fólki sem sætir ofsóknum þar í landi. En hvað gera Bretar þegar þetta fólk kemur til Bretlands?
Morgunblaðið finnur Guð
23.3.2003
Daginn eftir að Bandaríkin og Bretar réðust á Írak án þess að hafa nokkra réttlætingu sem skiljanleg er venjulegu fólki birti Morgunblaðið tvöfaldan leiðara þar sem það reyndi að rökstyðja málstað stríðssinna.
Manndráp án ábyrgðar
24.3.2003
Hinn óði D-fens var furðu lostinn þegar honum urðu ljósar afleiðingar gjörða sinna. Munu augu fyrrum formanns SUS ljúkast upp í tíma?
Bush og Rumsfeld uppgötva Genfar-sáttmálann
25.3.2003
Einu sinni vildu þeir ekkert af honum vita. Nú er hann mál málanna. Vonandi verður það svo til frambúðar.
Kratarnir og Kosovo
26.3.2003
Hvers vegna er Samfylkingin farin að verja stríð sem lauk fyrir fjórum árum í stað þess að beina spjótum sínum að stefnu ríkisstjórnarinnar í Íraksmálinu? Er einn eitt sjálfsmark jafnaðarmanna í uppsiglingu?
Sölumaður óttans
27.3.2003
Hvernig er hægt að afþakka boð um kaup á einkatryggingu vegna þess hve almannatryggingakerfið er aðþrengt?
Var ekki nóg að gert?
28.3.2003
Var ekki nóg fyrir þessa ríkisstjórn að ræna okkur ómetanlegum náttúrugæðum norðan Vatnajökuls til að fóðra verksmiðju auðhrings sem selur ál í vopnaframleiðslu? Var nauðsynlegt að ræna okkur ærunni líka?
Dauði Jean Jaurès
29.3.2003
Aðdáendur styrjalda hafa löngum hatað friðarsinna og það var slíkt hatur sem varð til þess að Jean Jaurès var skotinn í bakið að kvöldi 31. júlí 1914.
Eltum fylgið
30.3.2003
Einu sinni, langt, langt í burtu, var flokkur …
Það er hægt að snúa við
31.3.2003
Besta leiðin til að villa um fyrir fólki er að segja sannleikann, því honum, trúir enginn - segir í leikriti Max Frischs. Skyldi heimspeki brennuvarganna eiga við nú á tímum?
Stríðið og Quebec
1.4.2003
Þegar minna en hálfur mánuður er til fylkisþingkosninga í Quebec benda kannanir eindregið til þess að þeir stjórnmálamenn sem styðja stríðsreksturinn í Írak muni fá á baukinn 14. apríl.
Bulla á borgarstjórastóli
2.4.2003
Shintaro Ishihara er smekkmaður á ís en stendur fyrir afleitar stjórnmálaskoðanir.
Kosningamálin komin fram
3.4.2003
Um þessar mundir á að heita að stjórnmálaflokkarnir séu að útskýra stefnu sína í flestum málaflokkum. Kostir kjósenda eru því óðum að skýrast.
Kynleg samtök verða til
4.4.2003
Femínistafélag Íslands er nauðsynlegt félag með aðkallandi verkefni. Þess bíða þó ýmsar hættur.
Valinkunni flokkurinn
5.4.2003
Enn einu sinni reyna Guðmundur G. Þórarinsson, Valdimar Jóhannsson og fleiri karlar á besta aldri að stofna flokk og taka yfir landstjórnina. Eru ekki allir spenntir?
Af tvennu illu
6.4.2003
Af hverju nefna tvöfalt fleiri landsmenn George Bush en Saddam Hussein þegar spurt er um versta þjóðarleiðtogann?
Listi hinna forhertu
7.4.2003
Björn Bjarnason hefði ekki skrifað leiðara sunnudagsmoggans betur.
Óhugnanlegt mannfall í Kongó
8.4.2003
Nær fimm milljónir manna hafa látist í fimm árum í Kongó vegna borgarastyrjaldarinnar þar. Á Vesturlöndum heyrist fátt um það stríð en ekki er um að kenna að aðrar þjóðir hafi setið hjá heldur er þetta ekki síst afskiptum nágrannaþjóða að kenna.
Hvar á Ísland heima?
9.4.2003
Hver er söguleg arfleið Íslands í stjórnmálalegu tilliti? Hvort eigum við fremur samleið með gömlum nýlenduveldum og heimsvaldasinnum austan hafs og vestan, eða ungum þjóðríkjum sem öðluðust sjálfstæði sitt eftir að slaknaði á nýlendukúguninni?
Hvað myndir þú gera við peningana sem ...
10.4.2003
Er hægt að gera eitthvað vitlegra við 6.300 milljarða króna en að drepa fólk ef menn vilja tryggja frið?
Sælir eru minnislausir
11.4.2003
Er gott að hafa gullfiskaminni í pólitík?
Seint koma sumir
12.4.2003
Er veröldin orðin vitlaus? Og ef hún er það, er það þá nýskeð?
Önnur ferð út í Viðey?
14.4.2003
Ætli mörgum sem muna ríkisstjórn Davíðs og Jóns Baldvins hafi ekki orðið hverft við þegar Ingibjörg Sólrún Gísladóttir er farin að bera sérstaklega í bætifláka fyrir hana í umræðum forystumanna flokkanna? En staðreyndin er auðvitað sú að miðað við skoðanakannanir er mikil hætta á nýrri „Viðeyjarstjórn“.
Evil Strauss?
15.4.2003
Það er engin goðgá að vita ekki hvar Norður-Maríanaeyjar eru. En það sem gert var í fataiðnaðinum þar um slóðir er annað og verra mál.
Lausnin er fyrir hendi
16.4.2003
Menn, sem ekki láta fáfræði stöðva sig, beina spjótum sínum að friðarsinnum fyrir að vilja ekki leysa vandann sem illar og þungvopnaðar ríkisstjórnir skapa. En það er rangt, því að friðarhreyfingin hefur iðulega verið eini aðilinn sem hefur reynt að kæfa vandann í fæðingu.
Tómi kofinn kratanna
17.4.2003
Sá sem hefur enga pólitík að bjóða á ekki um margt að velja í kosningabaráttu.
Munu hinir minnstu bræður gleymast?
18.4.2003
Neyðin í Írak ætti að vera flestum kunnug úr fréttum upp á síðkastið. En það er víðar sem hungurvofan rjálar við dyrnar.
Vilja kratar ekki vinstristjórn?
19.4.2003
Núna er möguleiki á því að hægt verði að framkvæma "hrein stjórnarskipti" og að næsta ríkisstjórn verði mynduð af stjórnarandstöðuflokkunum. En einn þeirra tregðast við að gefa skýr svör um það.
Er kristilegt að hefna?
20.4.2003
Eru kristnir menn búnir að gleyma fyrirgefningarboðskap Jesú Krists?
Þeir sem upp munu rísa
21.4.2003
Þeir sem drepnir voru í Íraksstríðinu rísa ekki upp frá dauðum. En munu einhverjir rísa upp í framhaldi af stríðinu?
Tveir eru góðir, en þrír eru betri!
22.4.2003
Nauðsynlegt er að kveða niður „fjölflokkagrýlu“, þ.e. þá kenningu að stjórn fleiri en tveggja flokka sé eitthvað óstöðugri fyrir vikið.
Kaldastríðshugarfar í kreppu?
23.4.2003
Það eru ekki ný sannindi að besta leiðin til að viðhalda ógn og kúgun innanlands er að benda á aðsteðjandi ógn að utan. Ó nei.
Kosið um sundkort og tannlækna
24.4.2003
Vika er til þingkosninga í Wales. Kosningastefnuskrár flokkanna eru athyglisverð lesning.
Fólk sem ekki fær að stjórna sér sjálft
25.4.2003
Alls staðar í Arabaríkjum Miðausturlanda eru við völd harðstjórnir sem styðjast við minnihlutahópa. Þessar ríkisstjórnir njóta ötuls stuðnings Vesturlanda. Munu þau núna veita Írökum frelsi til að fara þá leið sem fólkið í landinu vill?
Hættum þessu undirskriftaþvargi!
27.4.2003
Til hvers er verið að safna meðmælendalistum fyrir alþingiskosningar? Núverandi kerfi hindrar alls ekki smáflokka í að bjóða fram og þá má efast um að það markmið sé æskilegt.
Fyrning – en hvað svo?
28.4.2003
Gott og vel, tveir flokkar vilja innkalla veiðiheimildirnar en hvernig vilja þeir fara með þær í framhaldinu?
Er lögreglan gengin af göflunum?
29.4.2003
"Opin hús" og afmælissýningar segja margt um sjálfskilning fólks og gildismat. Með það í huga er ástæða til að hafa verulegar áhyggjur af íslensku lögreglunni.
Spennandi kosningar framundan
1.5.2003
Er möguleiki á vinstristjórn eftir kosningar? Múrinn notar tækifærið og spáir í spilið á verkalýðsdaginn.
Hinar hættulegu öfgar
2.5.2003
Hvað brennur á fólki um þessar mundir? Ef marka má spjallrásir og heimasíður þá er stærsta samfélagsmein nútímans öfgar femínista og kúgun þeirra á körlum. Ætla femínistar virkilega að ganga svo langt að ráðast gegn fyrirtækjum og hindra frjálsa einstaklinga í að ávaxta sitt pund, fyrir það eitt að þessi fyrirtæki birta auglýsingar sem eru niðurlægjandi fyrir konur?
Rauð-grænn sigur í Skotlandi
3.5.2003
Í Skotlandi bættu bæði græningjar og sósíalistar við sig fylgi og juku þingstyrk sinn svo um munaði, hafa nú samtals tólf menn á þingi í stað tveggja áður.
Afsakið fáfræðina
5.5.2003
Fávísum verður á að spyrja um margt þegar Bandaríkjaforseti segir stríðið í Írak á enda.
Hressileg ímynd, sami Framsóknarflokkur
6.5.2003
B-deild Sjálfstæðisflokksins hefur svo sannarlega sýnt að hún kann að eyða og spenna þegar spurningin snýst um að ná völdum. Svo rausnarlegir voru menn ekki við velferðarkerfið síðastliðin átta ár.
Kella er ekkert skyld þeim...
7.5.2003
Afstaða stjórnmálaflokkanna til hersins kom glöggt í ljós á dögunum. Sumir styðja hann heilshugar, aðrir seilast langt í rökfiminni og enn aðrir ríghalda í aronskuna. Aðeins einn flokkur stendur í lappirnar.
Flokkur án heilbrigðisstefnu
8.5.2003
Í flestum nýjum könnunum er Frjálslyndiflokkurinn einn að bæta við sig verulegu fylgi en aðrir flokkar ýmist að tapa frá seinustu kosningum eða nokkurn veginn á sama stað. Það er því full ástæða að huga betur að stefnu þessa flokks.
Hvenær hefur ríkisstjórn tapað kosningum?
9.5.2003
Hvernig bæri að túlka úrslit sem hljóðuðu upp á 32-34 þingmenn hjá stjórnarflokkunum?
Framtíð vinstristefnu á Íslandi ræðst í dag
10.5.2003
Líklega kemur fáum á óvart hvaða flokk Múrinn styður í þessum kosningum en af hverju skyldi hann styðja viðkomandi flokk?
Það er aldrei gott að falla
11.5.2003
Kosningarnar eru afstaðnar og þótt flokkarnir reyni að bera sig vel, þá er einungis einn flokkur sem hefur ástæðu til að fagna.
Svikin afhjúpuð
12.5.2003
Átylla árásarstríðs Bandaríkjanna gegn Írak var að þar í landi væru gereyðingarvopn. Utanríkisráðherra Íslands varði stuðning sinn við stríðið með tilvísun í þau. En nú eru bandarískir vopnaeftirlitsmenn á heimleið og hafa ekkert fundið.
Rykmaurar í Reykjavík
13.5.2003
Fátt bar til tíðinda í alþingiskosningum sl. laugardag nema að stjórnarsamstarf Sjálfstæðisflokks og Framsóknarflokks virðist ætla að verða eitt af þeim langlífustu í sögu lýðveldisins. Fv. borgarstjóri verður varaformaður og varaþingmaður að launum fyrir að fórna R-listasamstarfinu
Hlutur kvenna í stjórnmálum
15.5.2003
Bætt staða kvenna í stjórnmálum er nauðsyn - um það eru flestir sammála. En hversu vænlegt er að bíða aðgerðalaus eftir að ástandið lagist af sjálfsdáðum?
Útför frestað
16.5.2003
Það er sama hvað þú kýst — alltaf stendur Framsóknarflokkurinn með pálmann í höndunum? Enn og aftur hafa þessi vísindi sannað sig. En verður sú raunin að eilífu?
Forsmekkur friðarins mikla
17.5.2003
Atburðir síðustu daga ættu að vekja spurningar um stríðið fræga gegn hryðjuverkum en fylgismenn þess munu þó væntanlega ýta þeim frá sér eins og endranær.
Gróðrarstía hryðjuverka
19.5.2003
Stríð gegn glæpum vinnst ekki með ólöglegum árásarstríðum eða með því að steypa ríkisstjórnum af stóli. Þvert á móti þá fá nú hryðjuverkamennirnir aðeins meira sigg á sálina og aukna hvatningu til að hefna sín á risaveldinu fyrir glæpi þess.
Ástarkveðjur til nokkurra gamaldags hægrimanna
20.5.2003
Hægrimenn á Íslandi hafa unnið stórfenglegt markaðsátak, með því að selja gamaldags hugmyndir sínar sem eitthvað "nútímalegt".
Meira dót
21.5.2003
Fyrir skemmstu var Bandaríkjastjórn mjög áfram um að eyðileggja gereyðingarvopn. Nú gildir það bara um sumar tegundir slíkra vopna og sama stjórn vill framleiða meira af öðrum tegundum.
Friður á jafnréttisgrundvelli
22.5.2003
Fjölmenn mótmæli gegn hernámsliði Bandaríkjamanna og taglhnýtinga þeirra í Írak hefur ekki vakið viðlíka athygli og fagnaðarlætin þegar landið var „frelsað“. En hvernig er staðan í Írak núna?
Heiðurssjálfstæðismaðurinn Halldór
23.5.2003
Ný ríkisstjórn tekur við í dag. Líklega er það elsta nýja ríkisstjórn í sögunni. En hver eru helsti tíðindin í þessari stjórn?
En hvað með Jónínu?
24.5.2003
Hvað eiga varamenn Framliðsins og þingmenn Framsóknarflokksins sameiginlegt? - Harla margt ef að er gáð.
Rússar, Tyrkir og Belgar stálu senunni
25.5.2003
Tatu hneyksluðu bara ekki neitt, eina hneykslið er að einhver skuli hafa ætlað að láta hneykslast. Lettar stóðu sig með prýði í að halda keppnina en fengu dónalega fá stig. Og Birgitta stóð sig vel þannig að vonandi hafa íslensk leikskólabörn ekki þurft að gráta sig í svefn í gær.
Fjöldamorðingi í forsetaframboð?
26.5.2003
Tekst José Efraín Ríos Montt að komast til æðstu metorða í Guatemala á ný eftir 20 ára hlé?
Fórnarlömb stríðsins
27.5.2003
Hvað var íslenska ríkisstjórnin raunuverulega að styðja í Írak? Hver er ábyrgð fylgismanna stríðs og hernáms? Eru þeir þess umkomnir að setja sig á háan hest og dæma aðra?
Athygliverð stefnuræða
28.5.2003
Nýr Argentínuforseti, Nestor Kirchner, fær nóg að gera við landstjórnina, enda ástandið ekki til að hrópa húrra fyrir.
TMM lagt til grafar
29.5.2003
Nákvæmlega svona mikið var á bak við hjal kapítalistanna um framtíðarmarkmið Eddu.
Meðferð valds
30.5.2003
Oft bylur hæst í tómri tunnu. Eftir umfjöllun Samfylkingarinnar um lýðræðismál virðist lítið bera á lýðræði í starfinu. Er lýðræðistunna Samfylkingarinnar kannski tóm?
Frelsi að láni?
31.5.2003
Einu sinni voru skattar leið samfélagsins til að taka frá hinum fátæku og halda hinum ríku uppi. Hin nútímalega leið til þess kallast neyslulán.
Er gott að skulda?
1.6.2003
Annar nýi ráðherrann vill helst vera herforingi eins og alkunna er. Hinn langar til að vera jólasveinn. En gjafir þessa tiltekna sveins eru af því taginu sem sjá til gjalda.
Blair í ljótri klípu
2.6.2003
Meðan Ingibjörg Sólrún kemur sér kyrfilega fyrir í Seðlabankanum er hitt átrúnaðargoð „nútímalegra jafnaðarmanna“ hér á landi í miklum andbyr í heimalandi sínu.
Er kíkirinn límdur á blinda augað?
3.6.2003
Þegar ástandið á Raufarhöfn ber á góma geta talsmenn ríkisstjórnarinnar talað um allt nema orsakir þess.
Nokkur orð um skatta og skuldir
4.6.2003
Er æskilegt, í ljósi reynslunnar, að auka vægi neyslulána í íslensku samfélagi?
Styttum skólaárið aftur
5.6.2003
Skólaárið í grunnskólunum var lengt fyrir skömmu. Ekki sérstaklega vegna þess að talin hafi verið brýn þörf á því af kennslufræðilegum ástæðum eða að kennarar hafi talið sig hafa úr of fáum dögum að spila, heldur vegna þess að það hentaði ríkisvaldinu og samtökum kennara í kjarasamningum. Það eru ekki góð rök í skólastarfi.
Fær Hjálmar purpurahjartað?
6.6.2003
Nauðsynlegt er að leiðrétta þann misskilning sem komið hefur upp varðandi álit einstakra ritstjórnarmanna M.Ú.R. á þingflokksformanni framsóknarmanna.
Við eigum að fagna
7.6.2003
Ríkisstjórn Íslands óttast breytingar í alþjóðamálum og lokun herstöðvarinnar í Keflavík. En hún á að vera fagnaðarefni öllu skynsömu og frjálshuga fólki.
Dauðabúðir á Guantanamo?
8.6.2003
Ekki ríður rangsleitni bandarískra yfirvalda við einteyming. Núna er ætlunin að stofna "dauðadeild" í Guantanamoherstöðinni þar sem fangar verða teknir af lífi eftir sýndarréttarhöld.
Tvísýnt ástand í Máretaníu
9.6.2003
Í Máretaníu berjast uppreisnarmenn gegn ógnarstjórn sem hefur á liðnum árum notið dyggilegs fjárhagsstuðnings frá ýmsum Vesturlöndum.
Sæt, sætari, sætust
10.6.2003
Víkverji hefur miklar áhyggjur af fegurðarsamkeppnum. En hvað er til ráða? Og hver er sætust?
Verslunarráð og menntakerfið
11.6.2003
Til er stjórnmálaflokkurhægra megin við Sjálfstæðisflokkin sem sendir reglulega frá sér skýrslur og ályktanir sem eru eins rammpólitískar og hugsast getur og ganga út frá því að sveigja Ísland sem mest að þröngum sérhagsmunum kaupmannastéttarinnar.
157 milljóna tap
12.6.2003
Er verjandi fyrir Reykjavíkurborg að verja miklum fjármunum í rekstur einkahlutfélags, þegar mörg brýn verkefni bíða?
Saklausu fólki fórnað – til hvers?
13.6.2003
Eyðing gereyðingavopna og koma í veg fyrir stuðning við Al Kaída. Þetta voru markmið innrásar í Írak og vegna þeirra hafa þúsundir saklausra borgara látið lífið. Ekkert finnst hins vegar sem rennir stoðum undir fullyrðingar innrásaraðilanna sem voru forsenda innrásarinnar.
Hvað er gott?
14.6.2003
Er hægt að meta öll gæði út frá forsendum framboðs og eftirspurnar? Eða snúast gæði um eitthvað allt annað?
Hin auðvelda leið
16.6.2003
Á að gera allt, einungis vegna þess að það er framkvæmanlegt? Svarið við þessari spurningu er augljóslega neitandi, því að alls konar fólskuverk eru vissulega framkvæmanleg en ekki hægt að mæla með þeim fyrir því.
Gleðilega hátíð
17.6.2003
Íslenski fáninn hefur líka þrívegis á síðustu fjórum árum blakt yfir búðum árásarherja. Er það eitthvað til að minnast á þjóðhátíðardaginn?
Varnar- hvað?
18.6.2003
Það er margt skrýtið í kýrhausnum - og kostulegt að fylgjast með umræðunni um mögulega brottför hersins undanfarna daga.
Kvennastörf?
19.6.2003
Múrinn veltir vöngum yfir stöðu konunnar, markaðsþjóðfélaginu og hinni ósýnilegu hönd í tilefni baráttudags kvenna, 19. júní.
Réttum nú úr bakinu!
20.6.2003
Munurinn á einangrun og hlutleysi vefst enn fyrir ýmsum, einkum þeim sem kjósa að ganga álútir um alla framtíð.
Leiðin til friðar
21.6.2003
Í málefnum Ísraels og Palestínu getum við verið sammála um að ofbeldi sé engin lausn og að samninga sé þörf. En hvernig er nú best að tryggja leið friðar?
Þegar tilgangurinn helgar meðalið
22.6.2003
Umræða um Kalda stríðið hefur verið dálítið einhæf í Danmörku. Nú er komið í ljóst að sumir hafa gengið full langt í henni.
Varúð – háskalegur maður með spjald!
23.6.2003
Þegar verið er að stinga fólk með hnífi í Hafnarstræti, þá eru lögreglumenn seinir til aðgerða. Öðru máli gegnir ef friðsamt fólk með mótmælaspjöld er á ferð.
Af því að pabbi vildi það
24.6.2003
Á hugtakið hermilíki við þegar samband Samfylkingarinnar við Sjálfstæðisflokkinn er skoðað? Er Davíð Oddsson hinn raunverulegi guðfaðir Samfylkingarinnar? Á Sigmund Freud svarið við því hvers vegna Samfylkingin þarf að gera allt eins og Sjálfstæðisflokkurinn?
Sumir eru jafnari en aðrir
25.6.2003
Mannréttindi eiga að vera alþjóðleg og stríðgslæpir einnig. Nema þegar Bandaríkjastjórn hentar ekki. Þá má breyta öllu.
Stæltur er skrokkurinn, djöfulsljór hugurinn
26.6.2003
Hvernig stendur á því að sú ríkisstjórn sem styður Bandaríkin í stríði gegn hryðjuverkum virðist ekki treysta Bandaríkjastjórn til að meta hættuna sem stafar af hryðjuverkum?
Nýr forseti Evrópusambandsins
28.6.2003
Á fáum erlendum þjóðarleiðtogum hafa Davíð Oddsson og Halldór Ásgrímsson meira dálæti en forsætisráðherra Ítalíu, Silvio Berlusconi. Eftir nokkra daga tekur hann við forsæti Evrópusambandsins.
Eins og eldur í sinu...
29.6.2003
Skuggalegar fregnir berast nú af skógareyðingu í Brasilíu. Vestrænum lífsháttum er um að kenna.
Lýðræði í Írak?
30.6.2003
Frelsi og lýðræði eru orðin þjóðhverf slagorð Bandaríkjastjórnar fyrir hvaðeina sem hentar markmiðum hennar. En hvers konar lýðræði er hernámsstjórn Bandaríkjanna í Írak að koma á fót?
Leynimakk íslenskra ráðamanna
1.7.2003
Íslenskir ráðamenn verða að fara að átta sig á því að þeir eru ekki persónur í skáldsögu John le Carré.
Lula fær litla athygli
2.7.2003
Það þykir sjálfsagt má að skattleggja tóbak og áfengi til að berjast gegn þeim vágesti sem vímuefnin eru. En hvað þá með enn meiri vágest, sem eru vopnin?
Einangrun og útþensla
3.7.2003
Vill Bandaríkjastjórn breyta heiminum öllum í eina stóra Mið-Ameríku? Hvaða afleiðingar hefur það fyrir stöðu heimsmála?
Kauðaleg afsökun - kjörið tækifæri
4.7.2003
Ríkisstjórnarflokkarnir eru þegar farnir að svíkja kosningaloforðin en sum loforð er betra að svíkja ef með því er hægt að afstýra skelfilegum mistökum.
Stærsta mafía í heimi?
5.7.2003
Gangsteraaðferðir Bandaríkjast eru farnar að vekja óhug meðal æ stærri hóps. Nú seinast er það fjárkúgun sem er helsta "diplómatíska" meðalið.
Þegar sumir verða jafnari en aðrir
6.7.2003
Ástin fer ekki í manngreinarálit, en það gera stjórnvöld. Bæði í Danmörku og á Íslandi.
Rétturinn til að vera handtekinn
7.7.2003
Í ljósi framgöngu íslensku lögreglunnar í ýmsum málum síðustu misserin vaknar sú spurning hvort ekki þurfi að tryggja betur tiltekin réttindi borgaranna gagnvart lögreglunni – réttinn til að láta handtaka sig?
Að ráðast á garðinn þar sem hann er lægstur
8.7.2003
Hvers vegna þegja fjölmiðlar um hina skelfilegu ógn sem vofir yfir Kiribati? Eyjan er augljóst skotmark hryðjuverkamanna, samkvæmt rökleiðslu sem farin er að heyrast æ oftar.
Halldór og herdómstólar
9.7.2003
Er Davíð Oddsson orðinn seinasta vígi skynsams fólks í þessum ruglaða heimi?
Sement til sölu – kostar eina tölu
10.7.2003
Ríkisstjórnin hefur gengið frá samningum um sölu Sementsverksmiðjunnar á Akranesi. Verðið nemur u.þ.b. tveimur einbýlishúsum á Arnarnesi í stærri kantinum.
Ísraelsstjórn og BBC
11.7.2003
Ríkisstjórn Ísraels virðist óbundin af alþjóðlegum samningum og hikar ekki við að reyna að þagga niður allar gagnrýnisraddir.
Vantar slagsíðu í fjölmiðlun
12.7.2003
Er ástæða til að auglýsa eftir slagsíðu í fjölmiðlun? Það er það kannski, ef slagsíðu af ákveðnu tagi skortir til að vega uppi á móti hinni.
Hafnirnar sem verndarinn vanrækti
13.7.2003
Íslensk stjórnvöld hafa meiri áhyggjur af hryðjuverkamönnum en smyglurum þegar þau auka eftirlit með vöruhöfnum landsins. Enda hefur baráttan gegn eiturlyfjasmygli hingað til ekki þótt jafn mikilvæg og að flóttafólki sé skilvíslega vísað úr landi.
Er þjóðernisstefnan dauð?
14.7.2003
Er þjóðernisstefnan jaðarfyrirbæri sem einungis nýtur hylli öfgamanna? Eða er hún þvert á móti svo útbreidd að hún er hin duldi grundvöllur allrar umræðu í landinu?
Fríið hjá MacDonalds
15.7.2003
MacDonalds vill gefa mömmum þessa heims frí frá matseld. En hvað með pabbana?
Þeir lugu – en það er engin afsökun!
16.7.2003
Þeir Bush og Blair hafa verið staðnir að lygum um stórt og smátt í aðdraganda Íraksstríðsins. En afsakaðar það gerðir og afstöðu þeirra sem kusu að trúa lygunum?
Stöðvum niðurrifsstarfsemina!
17.7.2003
Reykjavíkurlistinn finnur enga aðra leið til að þétta byggð en að rífa Austurbæjarbíó. En það er einstaklega slæm leið.
Hver er Ron Paul?
18.7.2003
Vitið þið það ekki? Haukur Þorgeirsson leiðir ykkur í allan sannleik um það.
Siðapostulinn Guðmundur Árni
19.7.2003
Það er illa gert af samflokksmönnum Guðmundar Árna Stefánssonar að senda hann í viðtöl vegna herstöðvarmálsins.
Eftirlitsmaður deyr
20.7.2003
Margt er enn á huldu varðandi fráfall Davids Kellys, sérfræðings bresku ríkisstjórnarinnar í gereyðingarvopnum. Ljóst er að hann er fórnarlamb aðstæðna sem skapaðar voru af yfirmönnum hans.
Aumingja Blair
21.7.2003
Pólitík Tony Blair gengur út á það eitt að ríghalda í völdin, hvað sem það kostar. Nútímalegir og framsæknir jafnaðarmannaleiðtogar láta sér það vel líka.
Ástríðufullur Moggi
22.7.2003
Reykjavíkurbréf Morgunblaðsins eru skringileg lesning. Stundum gefa höfundar þeirra tilfinningunum lausan tauminn.
Eigum við að halda lífi ... eða ekki?
23.7.2003
Bandarísk stjórnvöld vilja rifta sáttmála um takmörkun á notkun ósoneyðandi efna. Hann stendur nefnilega í vegi fyrir því að hægt sé að nota skordýraeitrið meþýlbrómíð við umsjá golfvalla þar í landi.
Má reka illt út með illu?
24.7.2003
Hatur virðist vera eðlilegur tilhvati þegar utanríkisstefna er mótuð. A.m.k. telur Bandaríkjaforseti það og lætur 200 manna herlið grilla fjóra írakska einstaklinga en það getur varla verið til marks um annað en að hatrið sé mikið.
Lýðræðið í hættu
25.7.2003
Stríðið gegn hryðjuverkum er nefnilega himnasending fyrir þá sem aðhyllast hernaðarhyggju og persónunjósnir. Í dögun er ný stjórnskipan, sem byggir á auknu frelsi fyrirtækja en auknu ófrelsi einstaklinga.
Töff og kúl leikskólar
26.7.2003
Það er langt til Borgarness. Svo langt að ýmsar hugsjónir um trúverðugleika og meðferð valds vilja gleymast á leiðinni.
Fyrsta skrefið
27.7.2003
Nýkjörinn forset Argentínu virðist ætla að rísa undir þeim væntingum sem til hans hafa verið gerðar. Núna ræðst hann til atlögu við þá sem stóðu á bak við "skítuga stríðið" 1976-1983.
Davíð kaupir snúru og rekur burt hyski
28.7.2003
Davíð Oddsson var nýlega í viðtali við DV þar sem hann ræðir rök sín fyrir innrásinni í Írak og einkarekstri. Múrinn hefur ýmislegt við þau rök að athuga.
Rangt haft eftir Amnesty International
29.7.2003
Íslandsdeild Amnesty International hefur sent frá sér yfirlýsingu vegna fréttar Ríkissjónvarpsins sl. laugardag.
Þýlyndi til þrautar?
31.7.2003
Breski Verkamannaflokkurinn virðist vera að endurlifa söguna. Enn einu sinni er hann klofinn vegna þýlyndi forystumanna hans við bandarísk stjórnvöld.
Að hafa kíkinn fyrir blinda auganu
1.8.2003
Ariel Sharon hefur náð öllu sína framgengt í samskiptum við Bandaríkjastjórn og gerir nú miklar kröfur til Palestínumanna án þess að nokkuð eigi að koma á móti nema óljós fyrirheit um áframhaldandi viðræður.
Svaðaleg samkeppni
3.8.2003
Ítök Sovétmanna í íslensku viðskiptalífi leynast víða og virðast ætla að lifa sjálfstæðu lífi um langa framtíð.
„Kannski er enn meira uppi í Kjós ...“
4.8.2003
Manstu eftir gullfundinum mikla í Írak í maímánuði?
Byrði hvíta mannsins
5.8.2003
Eftir að borgarastríðinu í Bosníu var tekið upp stjórnarform í landinu sem minnir hættulega á einveldi. Og einvaldurinn er upplýstur og frjálslyndur vestrænn landstjóri.
Mannréttindum fórnað fyrir meint öryggi
6.8.2003
Enn berast fregnir af því að stjórnvöld í Bandaríkjunum fótumtroða mannréttindi þegna sinna í móðursýkislegum viðbrögðum við hryðjuverkaárásunum fyrir hartnær tveimur árum.
Hver er ávinningurinn?
7.8.2003
Er nauðsynlegt að skjóta þá?
Gengur morðingi laus?
8.8.2003
Bandaríkjastjórn hefur miklar áhyggjur af hryðjuverkamönnum. Sumum hryðjuverkamönnum.
Ábyrgð Trumans
9.8.2003
Fyrir 58 árum tók Harry S. Truman Bandaríkjaforseti örlagaríka ákvörðun sem kostaði á þriðja hundrað þúsunda manna lífið. Meirihluti þeirra var saklaust fólk sem bar enga ábyrgð á stríðsrekstri. Voru bandamenn Síðari heimsstyrjaldarinnar of fljótir að læra af Hitler?
Þankar um hvalamál
10.8.2003
Munu grænir friðarspillar nú enn og aftur gera að okkur hríð? Munu hvalveiðar Íslendinga leiða af sér merkar uppgötvanir í vísindum? Eiga smáríki að virða alþjóðalög? Hvar stendur skutullinn í hvalnum?
Hvernig stafarðu það?
12.8.2003
Napalm er ekki sama og nýtt napalm. Menn skyldu gá að því.
Meira fyrir minna
13.8.2003
Framsóknarmenn eru mjög markaðssinnaðir þessi misserin. Sérstaklega er gaman að fylgjast með þeim reka fyrirtæki almennings.
Hlífið okkur við bullinu!
14.8.2003
Er nútímalegt að reka Sinfóníuhljómsveit? Er kannski miklu nútímalegra að sleppa því? Í það minnsta er það geysinútímalegt að tala í frösum og klisjum.
Frumkvæðis er þörf í öryggismálum
15.8.2003
Varnarmál eru vissulega mikilvægur málaflokkur. Í þeim efnum skortir ríkisstjórn Íslands allt frumkvæði.
Erfðagreining afturgengin?
16.8.2003
Það er ekki hátt risið á forsvarsmönnum Íslenskrar erfðagreiningar þessa daga, en það dregur ekki úr bjartsýni kollega þeirra í Skotlandi.
Lofsvert framtak
18.8.2003
Ástæða er til að mæla með róttæka margmiðlunartjaldinu á Tjarnarbakkanum næstu tvær vikurnar.
Hvalirnir og fullveldið
19.8.2003
Í umræðu um hvalveiðar eru mörg mikilvæg rök. Tal um sjálfstæði Íslendinga á hins vegar ekki við.
Ég ætlað´að skjót´ann pabba þinn
20.8.2003
Skálmöld ríkir í Írak. Sú staða hefði í raun ekki átt að koma nokkrum manni á óvart, allra síst þeim bandarísku stjórnmálamönnum sem sendu óharnaða unglinga með alvæpni á svæðið.
Hvar eru þeir nú? – fautar og fúlmenni um víða veröld!
21.8.2003
Idi Amin var alræmdur á sínum tíma fyrir morð og mannát. Þó drap hann ekkert fleiri en ýmsir aðrir leiðtogar Úganda sem höfðu þó ekki sama smekk fyrir að leika fífl og gefa frá sér yfirlýsingar í anda Guðna Ágústssonar. En Idi Amin er ekki eini harðstjórinn sem hefur átt náðuga daga erlendis eftir fall sitt þó að nánast hver einasti þeirra ímyndi sér að útlegðin sé stórkostlegt mannréttindabrot og heimamenn bíði í ofvæni eftir að fá þá aftur heim.
Mýtan um miðsæknina
22.8.2003
Ísköld hægristefna skilar George W. Bush vinsældum í Bandaríkjunum á sama tíma og miðsæknin er í tísku í Evrópu. Hvað á Demókrataflokkurinn til bragðs að taka?
Af hverju mátti ekki mynda?
23.8.2003
Því miður rekur hvað sig á annað horn í umræðu um hvalveiðar „í vísindaskyni“.
Svo skal böl bæta
24.8.2003
Í vikunni urðu tvær stóruppákomur, hvor í sínu landi, mjög ólíkar og langt frá því að vera jafn alvarlegar. Samt spannst atburðarásin nákvæmlega eins á báðum stöðum.
Blessað kalda stríðið …
25.8.2003
Það er ekki aðeins Björn Bjarnason sem saknar kalda stríðsins. Eftirsjá eftir því er algeng enda heimsmynd þess einföld, fyrir þá sem tóku sér bólstað í öðrum hvorum herbúðunum.
Hvers vegna er mér illa við Tony Blair?
26.8.2003
Flosi Eiríksson virðist halda að andúð róttækra vinstrimanna á Tony Blair byggist á því að honum gangi illa í skoðanakönnunum. Fátt er fjær sanni.
Frelsi eða helsi í íslenskum fjölmiðlum
27.8.2003
Þótt hvítasunnumaðurinn og löggan Geir Jón hafi brætt hjörtu þjóðarinnar með því að berja Árna Snævarr, þá er óþarfi að Sigurður G. pönkist á honum líka.
Eru umhverfissinnar ekki með á nótunum?
28.8.2003
Ef trúa ætti þjóðrembingslegum fréttaflutningi af baráttu erlendra umhverfisverndarsamtaka gegn Íslandi og íslenskum hagsmunum, eru slík samtök nær eingöngu skipuð flónum úr stórborginni sem elska krúttleg dýr með mjúkan feld, halda að kjöt vaxi í súpermörkuðum og geri sér ekki grein fyrir því að leðurveskið á öxlinni var einu sinni utan um mjóhrygginn á nautgrip. En er það rétt?
Lygar frjálslyndra manna …
29.8.2003
Ann Coulter heitir kona sem Björn Bjarnason dómsmálaráðherra telur mjög til fyrirmyndar. Full ástæða er að velta fyrir sér málflutningi manneskju sem hefur svo mikil óbein áhrif á íslensk stjórnmál.
Sinfónían og Reykjavík
31.8.2003
Nokkur umræða hefur verið um afstöðu borgaryfirvalda til Sinfoníuhljómsveitar Íslands. Gestapenni dagsins er forseti borgarstjórnar og rekur stuttlega þær breytingar sem orðið hafa á rekstri hljómsveitarinnar seinustu ár og ástæður þess að Reykjavíkurborg vill ná nýju samkomulagi við ríkisvaldið um reksturinn.
Ekki fyrr en ég fæ seðil
2.9.2003
Er Ríkislögreglustjórinn sjálfstæður verktaki á spena hins opinbera eða stofnun sem lýtur stjórn hins opinbera?
Hvar viljum við frelsi?
3.9.2003
Sjálfstæðismenn væla mikið um frelsi en vilja samt helst halda sjálfir um stjórntaumana sem víðast, t.d. í skólamálum.
Spænsku borgarastyrjöldinni loksins lokið
4.9.2003
Um daginn lést Ramon Serrano Súñer, nær 102 ára. Hver er sá maður og af hverju er hans minnst á Múrnum? Jú, Serrano Súñer er seinasti utanríkisráðherra Evrópu á stríðsárunum sem hverfur á braut og minnir okkar á hve skammt er síðan Spánn var fasistaríki.
Jarðvegur fyrir hryðjuverkamenn
5.9.2003
Lítill jarðvegur var fyrir hryðjuverkamenn í Írak áður en „hinar staðföstu þjóðir“ hófu „frelsun“ landsins. Núna er landið óðum að verða gósenland þeirra.
Flestir bílar í Reykjavík
6.9.2003
Að flestu leyti standa höfuðborgir hinna Norðurlandanna Reykjavík mun framar. Í einu eiga þó Reykvíkingar met og það er í fjölda bíla.
Stríðið við óttann
7.9.2003
Í áraraðir hafa Bandaríkjamenn staðið í hernaði í Suður-Ameríku undir yfirskyni stríðs gegn fíkniefnum. Sú barátta hefur engu skilað enda aðferðin meingölluð.
Rex og pex í Mexíkó?
8.9.2003
Á bak við væntanlegar viðræður um "frjálsa verslun" í Cancun býr veruleiki sem hástemmdar ræður stjórnenda ríkja og fyrirtækja lýsa ekki.
Kaldhæðni Kínastjórnar
9.9.2003
Er ferð Luo Gan til Íslands námsferð, til að læra af íslenskum stjórnvöldum hvernig eigi að taka á Falun Gong og komast upp með það?
Gereyðingarvopn til sölu
10.9.2003
Þessa dagana reyna Bretland og önnur Natóríki að sölsa undir sig enn stærri skerf af vopnasölu í heiminum. En til hvers eru þessi vopn?
Í minningu Allendes
11.9.2003
Í dag er sögufrægur dagur. 30 ár eru liðin frá valdaráni hersins í Chile. Múrinn minnist þessa atburðar.
Skipta sumir dagar meiru en aðrir?
12.9.2003
Manst þú hvað gerðist 7. október? En 20. mars?
Frjálshyggjuvæðing, ekki hnattvæðing
13.9.2003
Fundur Alþjóða viðskiptastofnunarinnar í Cancun minnir okkur á að það sem sumir kalla hnattvæðingu er í raun ekkert annað en frjálshyggjuvæðing.
Að losna við Arafat
14.9.2003
Hryðjuverkastjórnin í Ísrael ráðgerir nú mannrán eða pólitískt morð, vitandi að stuðningi Bandaríkjastjórnar muni aldrei linna. En ófriðurinn í Palestínu snýst ekki um Yassir Arafat.
Ánægjulegt frumkvæði Reykjavíkurlistans
15.9.2003
Árni Þór Sigurðsson og samgöngunefnd Reykjavíkur vilja nú kanna möguleika notkun á léttlestum í Reykjavík. Það væri þörf nýjung.
Stundum er betra að halda sér saman …
16.9.2003
Gunnar Örlygsson hefði ekki átt að fara í viðtal við Fréttablaðið. Eða nokkurn annan fjölmiðil.
Land sem heimurinn gleymdi
17.9.2003
Stjórnvöldum í Gíneu Bissau hefur verið steypt af stóli en mun hörmulegt ástand þar batna?
Fáfræði Halldórs stendur umræðu fyrir þrifum
18.9.2003
Teygir maður sig langt í samningaviðræðum ef maður býður 30% tollalækkun gegn 80%. Utanríkisráðherra virðist halda það.
Sænska þjóðin sigrar flokkana
19.9.2003
Fyrir Evrukosningarnar voru vinstrimenn í Svíþjóð sagðir einangraðir — frá öðrum flokkum — í afstöðu sinni til Evrunnar. Í ljós kom að það eru leiðtogar mið- og hægriflokkanna sem eru einangraðir — frá kjósendum.
Saga lyganna – fyrri hluti
20.9.2003
Fjöldamorð Búa í norðanverðum Lundúnum og prestar notaðir sem klukkukólfar? Hljómar eins og lygasaga - enda er það lygasaga...
Saga lyganna - seinni hluti
21.9.2003
Hitakössum sjúkrahúsa stolið í Kuwait, árás á bandarísk skip á Tonkin-flóa og auðvitað vænn skammtur af mannáti. Allt eins og það á að vera...
Morð á háskólamanni skekur Kenýa
22.9.2003
Hver myrti Odhiambo Mbai? Í Afríku geta pólitísk morð dregið dilk á eftir sér og ljóst er að vonir margra um betri tíð í Kenýa geta brugðist.
Breyttir tímar í samgöngum
23.9.2003
Bíllausi dagurinn tókst vonum framar í Reykjavík. Framtíð almenningssamgangna er spurning um vilja.
Sölumenn dauðans
24.9.2003
Nú er svo komið að íslensk fyrirtæki stæra sig af því að taka þátt í framleiðslu vopna fyrir erlendar ríkisstjórnir. Þetta „viðskiptaafrek“ þarf hins vegar að skoða í samhengi.
Fé án hirðis
25.9.2003
Hvaðan kemur Pétri Blöndal réttur til að ata auri allt það fólk sem starfaði í ríkisbönkunum í áratugi?
Málsvarar Saddams ná undirtökum í CIA
26.9.2003
Ætla Íslendingar áfram að láta klappa sér á kollinn þegar ríkisstjórnir og ráðherrar erlendis riða til falls vegna lyganna í aðdraganda árásarstríðsins gegn Írak?
Hvað er í gangi á Maldíveyjum?
27.9.2003
Hvað er í gangi á Maldíveyjum? Það er von að fólk spyrji enda brenna málefni eyjanna á mörgum Íslendingum. Og nú er tekið að hitna í kolunum á þessum bæ.
Engin leyndarmál
28.9.2003
Handritasafn Laxness er ekki opið hverjum sem er. Er það sniðugt? Alls ekki. Ó, nei.
Kjarni málsins
29.9.2003
Benedikt Jóhannesson reiknar sín dæmi til enda.
Gengisfelling stúdentsprófs
30.9.2003
Ekki hefur enn komið fram hvort fagleg rök séu fyrir styttingu náms í framhaldsskóla, eða hvort verið sé að gengisfella stúdentsprófið og velta grunnundirbúningi yfir á háskólastigið. Gengisfelling stúdentsprófsins breytir hins vegar ekki því að brottfall úr framhaldsskóla er mikið á Íslandi.
Göfgar vinnan ekki manninn?
1.10.2003
Áhugi norskra hægrimanna á að siðvæða markaðshagkerfið er athyglisverður. Enn sem komið er sjást engin ummerki slíks áhuga á Íslandi.
Físlenska leiðin
2.10.2003
Það bað enginn um hana, hún bætir ekki menntakerfið en hún sparar peninga og þá er málið útrætt.
Kapítalismi andskotans
3.10.2003
Sumir halda því fram að auðhringarnir muni færa fátæku ríkjunum velsæld, réttlæti og lýðræði þótt þeir borgi litla skatta, þrælki verkafólk og mengi umhverfið. Hver er reynslan frá Mexíkó?
Hvenær má læra af harmleiknum?
5.10.2003
Ætla ráðamenn að læra af því sem gerðist í Svíþjóð eða bara tala um að læra af því?
Ærumorð og ástríðuglæpir
6.10.2003
Það er ágætt að setja glæpi í þjóðfélagslegt samhengi. Það er hins vegar áberandi hversu oft það er gert þegar í hlut eiga þjóðarbrot, kynþættir eða trúflokkar sem við teljum okkur hafin yfir.
Nýjustu fréttir af frjálsum konum
7.10.2003
Ekki bara misstu Vesturlönd af Osama og Ómari múlla þegar þau réðust inn í Afganistan. Þau hafa heldur ekki gert nokkurn skapaðan hlut til að bæta réttindi kvenna sem þó var eitt af óteljandi markmiðum þessa tilgangslausa stríðs.
Eftir ballið
8.10.2003
"Hinar staðföstu þjóðir“ lofuðu skjótri lausn á ófriðnum fyrir botni Miðjarðarhafs, ef þær bara fengju sitt Íraksstríð. Vanefndirnar koma engum hugsandi manni á óvart.
Hefta verður vopnasölu með alþjóðasamningi
9.10.2003
Amnesty International og Oxfam hófu nýlega stórátak gegn vopnasölu og ekki að þarflausu. Hver verður afstaða íslenskra stjórnvalda?
Skipulögð hætta í sýndarheimi
10.10.2003
Einar Már Guðmundsson ræddi um daginn um samgöngur í Morgunblaðinu. Meðal annars um hversu breyttur sá veruleiki er sem nútímabörn þekkja frá þeim sem fullorðið fólk á hans aldri þekkti.
Pólitísk vígaferli eyðileggja kosningabaráttuna í Guatemala
11.10.2003
Hin mikla umfjöllun sem varð um morð á stjórnmálamanni í Svíþjóð er til marks um að slíkt sem betur fer sjaldgæft á Norðurlöndum. Íbúar Guatemala eru ekki jafn lánsamir.
Kúguninni verður að linna
13.10.2003
Það er aðeins til ein möguleg lausn á borgarastyrjöldinni fyrir botni Miðjarðarhafs. Og hún er að kúgun Ísraels á Palestínumönnum linni.
Baráttukonan Shirin Ebadi
14.10.2003
Írönsk kona skákaði páfanum og tekur við friðarverðlaunum Nóbels í ár. Hún er háskólakennari en vill ekki kasta blæjunni.
Af máli og merkingu
15.10.2003
Eru íslenskir fjölmiðlamenn að nota orðtök án þess að skilja merkingu þeirra? Eða eru þeir að reka grímulausan áróður í fréttatímum? Er til of mikils ætlast af fólki, að það hugsi áður en það talar.
Monsanto lætur í minni pokann
16.10.2003
Eru erfðabreytt matvæli á undanhaldi í Evrópu? Margt bendir til að svo sé, m.a. undanhald Monsanto-fyrirtækisins.
Þolir útvarpsstjóri aðeins eina skoðun?
17.10.2003
Slagsíður eru mál málanna á göngum Ríkisútvarpsins þessa dagana og því rétt að minna útvarpsstjóra á nokkrar slíkar sem ekki voru nefndar í tölvupóstinum fræga.
Morgunblaðið og bólivískir Indverjar
18.10.2003
Þótt netmogginn myndi kannski þýða AP-fréttaskeytin betur ef Styrmir vaknaði snemma á laugardögum þá myndi samúðin með mönnum á borð við Gonzalo Sanchez de Lozada líklega ekki minnka fyrir vikið.
Munu jöklarnir hverfa?
19.10.2003
Líklega er tími til kominn að góðir menn skjóti saman í ferð handa Birni Lomborg og fulltrúa Fiskifélagsins til Patagóníu - og aftur til baka.
Ertu með arabafælni?
20.10.2003
Fælni nefnist órökstuddur ótti, sem nær langt út fyrir mörk skynseminnar. Er utanríkisstefna sumra vestrænna ríkja byggð á fælni?
Stjórnmálamaðurinn sem kom niður úr trjánum
21.10.2003
Hugo Charlton hefur ekki verið mikið í umræðunni hér á landinu. Hann er þó einn litríkasti stjórnmálamaður Breta um þessar mundir.
Þetta er ekki flókið mál…
22.10.2003
Þvert á það sem ætla mætti eru deilurnar um afsögn varaborgarfulltrúa R-listans ekki flóknar. Málið er ákaflega einfalt.
Læra Frakkar minna en nokkru sinni fyrr?
23.10.2003
Það er vinsælt að vísa til þess sem er að gerast í nágrannalöndunum til að rökstyðja eitt og annað en þá er líka ágætt að kynna sér hvað þar er um að vera.
Bandaríkjaþing stígur upp úr skotgröfunum
24.10.2003
Skerðing ferðafrelsis í pólitískum tilgangi hefur verið eitt af vopnum Bandaríkjastjórnar til að grafa undan stjórnvöldum á Kúbu. En núna hefur Bandaríkjaþing tekið aðra stefnu.
Sung Mei-ling látin
25.10.2003
Margir héldu kannski að hún væri löngu dauð en eiginkona Chiang Kai-sheks dó núna á fimmtudaginn, líklega eina eftirlifandi manneskjan í heiminum sem sat leiðtogafundi með Roosevelt og Churchill.
Allir velkomnir — sem geta borgað
26.10.2003
Öðru hvoru kemur upp ný hugmynd um Háskólann. Hún er alltaf sú sama: Látum nú stúdentana blæða meira.
Vinstrisigur í Bogotá
27.10.2003
Vinstrimenn í Kólumbíu unnu sinn stærsta kosningasigur til þessa í gær þegar Luis Eduardo Garzon fór með sigur af hólmi í kjöri borgarstjóra í höfuðborg landsins.
Völd þeirra sem enginn hefur kosið
28.10.2003
Andóf gegn hnattvæðingu snýst ekki um hvort við leyfum Guineumönnum að selja okkur kakó eða fellum niður tolla á banana frá Hondúras. Hér eru hins vegar veitt nokkur dæmi um það sem hún snýst um.
Heittelskaður formaður vor
29.10.2003
Hin hefðbundna skoðanakönnun um hver eigi geðsjúkasta aðdáendahópinn eða um það hvaða málsmetandi fólk sárvanti hlutverk ákafast er aldrei þessu vant áhugaverð. Í ljós kemur að ungt Samfylkingarfólk hatar Össur Skarphéðinsson jafnvel enn meira en áður var talað.
15.000 á mánuði?
30.10.2003
Rannsókn bandarískrar rannsóknarstofnunar í hermálum telur að milli 11.000 og 15.000 manns hafi látist á fyrsta mánuði Íraksstríðsins, sem enn er ekki lokið.
Þá skiptir mestu máli að maður græði á því
31.10.2003
Rannsókn á drifkröftum borgarastríðsins í Lýðræðislega lýðveldinu Kongó bendir sterklega til þess að verslun með demanta og dýra málma leiki þar umtalsvert hlutverk.
Litli kapítalistinn
1.11.2003
Setningarræða formanns á landsfundi Samfylkingarinnar er fagnaðarefni fyrir þá sem vilja skýrar línur í pólitík.
Um hvaða vændi er verið að tala?
2.11.2003
Hvaða vændi er það sem Ásta Möller og félagar vilja ekki að verði að neðanjarðarstarfsemi?
Ókey Össur, ræðum málið!
3.11.2003
Það er sjálfsagt að ræða hreinskilnislega um hugmyndir formanns Samfylkingarinnar um markaðslausnir í heilbrigðiskerfinu. En þá verður hann líka að vera hreinskilinn og hvíla klisjurnar.
Borgin þorir, ríkið ekki
4.11.2003
Afstaða íslensku ríkisstjórnarinnar til fullveldisbaráttu Færeyinga er ömurleg en það má finna ráðamenn sem eru sjálfum sér samkvæmir.
Mannskætt skógarhögg
5.11.2003
Þeir sem mynda sér skoðanir á skógarhöggi með því að telja tré þurfa að endurskoða sína aðferðafræði.
DV hverfur á braut
6.11.2003
Var DV gott blað? Tja. Er þörf á slíku blaði? Já, trúlega. Hver mun nú sinna jafn nauðsynlegri fréttamiðlun eins og að segja okkur frá kakkalakkafárinu í Hafnarfirði?
Flokkur á tímamótum
7.11.2003
Þriðji landsfundur Vinstrihreyfingarinnar — græns framboðs er trúlega sá mikilvægasti í sögu flokksins. Á þessum fundi liggur fyrir flokksmönnum að móta stefnu til langs tíma og ákveða með hvað hætti áhrif vinstrimanna á Íslandi verði aukin og efld.
Lofsvert fræðsluátak um alþjóðamál
8.11.2003
Gagnauga og Fróði, félag sagnfræðinema, eru í uppáhaldi hjá Múrnum þetta misserið.
Lýðræði, miðstýring og markaður
10.11.2003
Þetta hefur oft verið sagt en þarf að segja það enn og aftur: Lýðræði er ekki bara að meirihlutinn ráði!
Stríð – stríðsins vegna
11.11.2003
Stríðin við Afghanistan og Írak hafa síður en svo gert heimsbyggðina öruggari, ekki fremur en fyrri heimsstyrjöldin á sínum tíma. Enda voru þessi stríð ekki háð til að koma á friði. Þau voru markmið í sjálfu sér.
Hverjir eru að vinna friðinn?
12.11.2003
Á sínum tíma var oft sagt að vinstrimenn í El Salvador hefðu unnið með því að tapa borgarastríðinu þar í landi. Nú má segja að þeir séu að vinna friðinn.
Hnattvæðum hugarfarið
13.11.2003
Ekki kostar mikið að framleiða skó í Indónesíu, þótt þeir kosti mikið á Íslandi. Mismunurinn er greiddur fyrir þau forréttindi að ganga í tilteknu "merki".
Hver er maðurinn?
14.11.2003
Getraun dagsins er harla auðveld. En þótt fólk hafi svarið ætti það ekki að hætta að spyrja sig.
Formannsskipti hjá Frjálslyndum í Kanada
15.11.2003
Íslendingar vita af biturri reynslu að Chrétien hefur ekki setið lengst allra leiðtoga á Vesturlöndum. En það að 10 ára valdatíð hans sé senn á enda gefur samt tilefni til að velta vöngum um framhaldið.
Stríðshrjáð árum saman
16.11.2003
Má finna einhver líkindi með Kabúl nú og fyrir tuttugu árum? Ýmsir vestrænir blaðamenn telja að svo sé.
Lærdómur sögunnar
17.11.2003
Hægrisinnuðum fréttaskýrendum er tamt að benda á "lærdóm sögunnar" til að réttlæta stríð af sérhverju tagi. En hvað lærdóminn af seinustu stríðunum sem þessir stríðsæsingamenn studdu?
Nýr og skelfilegur bissness
18.11.2003
Bandaríkjastjórn hefur ítrekað reynt að fylgja Patriot-lögunum svokölluðu eftir með njósnakerfi sem myndi gera persónueftirlit Stasi að barnaleik.
Frásögn af ótímabærri banalegu
19.11.2003
Hvað gildi hefur sjónvarpsþátturinn Nýgræðingar fyrir skilning á stjórnmálum í Kamerún?
Er allt sjálfhverfum sæmandi?
20.11.2003
Klöguskjóðurnar þola aldrei gagnrýni, allra síst í pólitík.
Línan frá Bretlandi komin í hús
21.11.2003
Það er sitthvað einkavæðing eða einkarekstur, var mat Hafnarfjarðaríhaldsins í fyrra. Núna hafa kratar tekið undir þessa skringilegu orðanotkun. Samfylkingin vill raunar ennþá ekki tilraunir á börnum — bara á sjúklingum.
Þegar maður er sammála Bush
22.11.2003
Það gerist ekki oft og vekur jafnan fleiri spurningar en það svarar.
Frjálshyggjan étur foreldrana
23.11.2003
Kannski éta allar byltingar börnin sín en þær eru ekki margar sem hesthúsa foreldrana fyrst.
Starfsmaður mánaðarins
24.11.2003
Andri Snær Magnason er á Múrnum í dag og skrifar um ótta.
Flauelsbylting eða friðsamleg yfirtaka?
25.11.2003
„Flauelsbyltingin“ í Georgíu er rangnefni enda hefur réttkjörnum forseta verið steypt vegna þrýstings frá utanaðkomandi stórveldum sem vilja forseta sem ver hagsmuni þeirra betur.
David Dacko látinn
26.11.2003
Frétt dagsins er ætluð öllum áhugamönnum um ástandið í Bangui.
Fortress Iceland
27.11.2003
Þú þarft ekki að vera ólæs á fréttir af ástandinu í fjarlægum löndum til að fá vinnu hjá Útlendingastofnun ríkisins - en það hjálpar.
Frelsið er yndislegt
28.11.2003
Nýlegar hræringar innan Ríkisútvarpsins og tilraun stjórnvalda til að koma þar á aukinni miðstýringu skýtur skökku við í ljósi þess frelsisgalanda sem ríkisstjórnin hefur haft í frammi á undanförnum árum.
Línur skýrast á Norður-Írlandi
29.11.2003
Öfgasinnaðir sambandssinnar voru stórsigurvegarar í kosningunum á Norður-Írlandi og þar virðist lítil ástúð ríkja milli deiluaðila.
Hvað viljum við muna?
1.12.2003
Sagan er jafnan í þjónustu hins ósögulega, sagði Friedrich Nietzsche á sínum tíma. Og jafnvel þegar tekið er að rifja upp nýliðna sögu er það gjarnan í ljósi andstæðna sem menn hafa sjálfir ákveðið að kljúfa heiminn í.
Löggild slagsmál?
2.12.2003
Vitaskuld er ekki um "slys" að ræða þegar menn eru barðir í höfuðið í íþróttaskyni. En slíkar barsmíðar eru núna styrktar af hinu opinbera.
Al-Qaeda er ekki til
3.12.2003
Stríðið sem um þessar mundir er háð gegn hryðjuverkum er byggt á forsendu sem ekki er fyrir hendi. Hún er sú að til séu hryðjuverkasamtök að nafni al-Qaeda sem teygi anga sína um víða veröld.
Viltu Jörðina eða Jaris?
4.12.2003
Olían á jörðinni er brátt á þrotum og mjög dýrt verður að breyta um orkugjafa. Er það mögulegt eða er lífsstílsbreytinga þörf?
Verða Kanadamenn vopnlaus þjóð árið 2020?
5.12.2003
Costa Rica sló sinn her af 1948. Verður Kanada næst?
Gúmmíöndin í ráðuneytinu
6.12.2003
Fugl dagsins er sjálfskipuð gúmmíönd. Hún er einnig dapurlegasti fugl landsins.
Jólin koma
7.12.2003
Er búið að sulta kjötmaukið á þínu heimili?
Kristsgervingurinn
8.12.2003
Kannski er það bara aðventan en kannski eru fornsögurnar og ættjarðarkvæðin líka fullmjólkuð í bili.
Sextíuogsex-prósent-reglan
9.12.2003
Hvort sem um er að ræða trúarbrögð eða pólitíska greiningu, þá eru túlkanir þingmanna Framsóknarflokksins alltaf jafn frumlegar. Nýjasta kenningin kemur frá Jónínu Bjartmarz og samkvæmt henni væri það harla gott ef göngin milli Reyðarfjarðar og Fáskrúðsfjarðar kæmust tvo þriðju hluta af leiðinni.
Forneskjuleg valdbeiting breska Verkamannaflokksins
10.12.2003
Margir gætu haldið að forneskja og forréttindi væru eitur í beinum nútímalegra jafnaðarmanna í Bretlandi en veruleikinn er annar.
Dylgjurnar, Friðrik og föðurlandsástin mikla
11.12.2003
Ísland er greinilega hvergi nærri nógu lítið í augum umheimsins að mati ríkisstjórnarinnar.
Herinn heim áður en verra hlýst af
12.12.2003
Barnadráp Bandaríkjahers í Afganistan sýna best hversu fráleitt allt hjal um "mannúðarstríð" hlýtur að vera í eyrum siðaðra manna.
„Sósíalíski folinn“ kemur Græningjum á kortið í San Francisco
13.12.2003
Sigur Græningja er óhjákvæmilegur. Þetta hefur Múrinn alltaf vitað en nýtur samt baráttunnar erfiðu og hvössu sem er undanfari lokasigursins. Sama gildir um „sósíalíska folann“ sem tókst næstum að ná kjöri sem borgarstjóri San Francisco á dögunum.
Handtaka Saddams breytir engu
14.12.2003
Stríðið var sama stríðið og hinir föllnu eru jafn dauðir. Hins vegar skiptir framhaldið töluverðu máli.
Heimsmynd einfeldninganna
15.12.2003
Hver sem ekki er með mér, hann er á móti mér; hver sem ekki með mér saman safnar, hann sundur dreifir. - Lúk. 11,23.
Hrossaprang eða mannleg reisn?
16.12.2003
Handtöku Saddams Husseins er fagnað um víða veröld, ekki er þó allt jafn gleðilegt við aðfarirnar.
Á ekki örugglega að flagga?
17.12.2003
"Mamma, veistu hvaða dagur er? Veistu hvað klukkan er?" - spurði strákurinn í bankakortsauglýsingunni í gamla daga. En vita Varðbergsmenn hvaða dagur er?
Hættulegasti maður heims
18.12.2003
Hann var ekki handtekinn um síðustu helgi ef litið er á nokkrar staðreyndir.
I do - bara fyrir gagnkynhneigða
19.12.2003
Stjórnarskrárbreytingar eru ekkert hégómamál. Í Bandaríkjunum á nú að endurskoða stjórnarskrána og setja inn ákvæði um mismunun gagnvart samkynhneigðum.
Undarleg jafnréttishugsun
22.12.2003
Fréttir af fyrirætlunum frönsku hægristjórnarinnar um bann við „áberandi trúartáknum“ í skólum landsins vekja nokkra furðu svo ekki sé meira sagt.
Saga af tveimur ríkjum
23.12.2003
Oft tekur það fólk mörg ár að átta sig á þverstæðu þeirra nauðhyggjukenninga sem boða óumflýjanlegar styrjaldir. Sjaldan hefur blekkingarvefurinn þó trosnað jafn hratt upp og nú.
Gulrót eða svínslæri?
24.12.2003
Múrinn heldur áfram að vera samviska þjóðarinnar, góð eða ill eftir atvikum.
Fjölskylduhátíðin mikla
25.12.2003
Jólin eru tími gleði fyrir þá sem eru sáttir við lífið. En þau eru mörgum erfið og verst fyrir þá sem eru einstæðir.
Fáein ráð við innlendri fréttaþurrð
26.12.2003
Hvað á maður að gera þegar ekkert er að ske, spurði Valgeir. Og skyldi engan undra.
Ekki benda á mig
27.12.2003
Er eitthvað lélegra til en dómnefnd sem ekki treystir sér til að verja eigin tilnefningar? Dómnefnd um bækur almenns eðlis til Íslensku bókmenntaverðlaunanna 2003 hefur sýnt ótrúlegan skort á staðfestu með undanfærslum og væli um tímaskort.
Árið sem ekkert gerðist
28.12.2003
Það stefndi í áhugavert stjórnmálaár fyrir ári. En árið 2003 reyndist verða árið sem ekkert gerðist í íslenskum stjórnmálum.
Ár stríðsátaka
29.12.2003
Ársins 2003 verður lengi minnst sem ársins sem bandaríska hernaðarvélin fór í tilefnislaust árásarstríð við Írak en líka vegna fjöldans sem streymdi á göturnar til að andmæla stríðsrekstrinum.
Sigur lýðræðis í Guatemala
30.12.2003
Standi Oscar Berger við fyrirheit sín í forsetaembættinu og fái til þess frið fyrir hernum gæti stjórnartíð hans breytt pólitíkinni í landinu til langframa.
Nýjasta tíska beint frá Kína - íslensk hönnun!
31.12.2003
Athyglivert er að fylgjast með hrósyrðum vestrænna hægrimanna og kapítalista til handa kínverskum stjórnvöldum þrátt fyrir óbreytt stjórnarfar.
Breytast mennirnir með?
1.1.2004
Stórveldum fer ekkert fram í hagsmunagæslu sinni og framkomu við fólk. Hugmyndin um Íraksstríðið 2003 er 30 ára gömul.
Árið 2003 á hundavaði
2.1.2004
Múrinn er lagstur í upprifjanir þessa dagana einsog allir aðrir. Er að vísu ekki jafn smellinn og Björn Bjarnason en það má samt lesa þetta.
Útvarp allra kristinna landsmanna?
3.1.2004
Við Íslendingar eigum þeirri gæfu að fagna að eiga saman Ríkisútvarp. En því miður njóta sumir trúflokkar meiri þjónustu frá útvarpi allra landsmanna en aðrir.
Nýjasta tækni og leiðindi
4.1.2004
Morgundagurinn markar upphaf nýrra leiðinda í ferðalögum milli Bandaríkjanna og Brasilíu. Og reyndar ferðalögum fólks frá meira en 170 löndum til Bandaríkjanna.
Georgískir þjóðernissinnar og olíuátök
5.1.2004
Mikhail Saakasvíli hefur svo sannarlega tekið Georgíu í arf frá Sjevardnadze en það er nær lagi að tala um valdaskipti fremur en þróun í átt til lýðræðis. Smávegis um baksviðið hér.
Hert öryggisgæsla
6.1.2004
Oft er vitnað til lögmáls Parkinsons þegar varað er við þenslu í opinberum rekstri. Þá vill gleymast að Parkinson varaði ekki síst við þenslu á sviði her- og öryggismála.
Danskir blaðamenn fá verðlaun fyrir afhjúpanir
7.1.2004
Dönsku blaðamennirnir sem afhjúpuðu lygar þarlendra stjórnvalda vegna Íraksstríðsins hafa nú fengið verðlaun fyrir skrifin. Verðlaunin hljóta að vera blaðamönnum allan heim hvatning til að sinna skyldu sinni.
Gróðurhúsaáhrifin meiri en talið var
8.1.2004
Það er allt í pönki í loftinu
Er tjaldið fallið?
9.1.2004
Vopnaleitarmenn í Írak fyllast vonleysi. Halldór Ásgrímsson ætti að hughreysta þá og ráða heilt.
Hleðslur - 4. árgangur
Fagra nýja veröld
11.1.2003
Sjálfsagt hefði Aldous Huxley brosað út í annað ef hann væri á lífi enn og hefði frétt af því að sumir Austfirðingar í þróunarlandinu Íslandi hefðu flaggað fyrir álrisanum Alcoa, einum stærsta auðhring heimsins.
Við getum breytt heiminum!
14.1.2003
Það er óþarfi að leggja árar í bát þó að bölið sé margt í heiminum. Það þarf hvorki að leiða hjá sér vandann eins og Lomborg eða formæla honum án þess að hafa lausnir á takteinum. Reynslan sýnir að margan vanda má leysa með samhentu átaki, eins og dæmin sanna.
Kosningabaráttan í Skotlandi hafin
17.1.2003
Þeir sem ekki geta beðið eftir hasarnum heima á Íslandi ættu að bregða sér til Skotlands, jafnvel bara í huganum ef þeir hafa hugtakið "upplifunarsamfélag" á valdi sínu.
„Hernaðarráðgjöf“ Bandaríkjamanna
21.1.2003
Núna hafa Bandaríkjamenn sent „hernaðarráðgjafa“ til Kólumbíu. Þátttaka þeirra í Víetnamstríðinu hófst einmitt með slíkum „ráðgjöfum“. Og Bandaríkjamenn hafa svo sannarlega skipt sér af Kólumbíu áður. Ójá. Eins og lesa má um hér.
Hverjir eru barnanna bestir?
24.1.2003
Í umræðu um hryðjuverk og illvirki í heiminum er oft dregin upp svarthvít mynd þar sem menn eru annars vegar skeytingarlausir morðingjar, hins vegar frjálslyndir lýðræðissinnar. Gott ef satt væri en því miður kennir sagan okkur annað, ef leitað er fanga nógu víða.
Að tryggja hjá sjálfum sér
28.1.2003
Landsvirkjun færir stöðugt úr kvíarnar. Núna gerist þetta öfluga fyrirtæki brautryðjandi í tryggingarsögunni með því að stofna eigið tryggingafélag. Og helsti viðskiptavinurinn er eigandinn sjálfur!
Slæm tíðindi frá Ísrael
31.1.2003
Ísraelsmenn eru greinilega á leiðinni í stríð og kusu herskáasta herforingjann til að leiða sig í þeim ófrið. Stefna hans hefur ekki verið jákvæð fyrir neinn nema palestínska hryðjuverkamenn sem hafa fitnað eins og púkinn á fjósbitanum á meðan allir sem vilja frið eiga æ erfiðara uppdráttar.
Tvenns konar umskipti í Austur-Evrópu
5.2.2003
Júgóslavía hin seinni er horfin og fáir sakna hennar. Hið sama gildir eiginlega um Vaclav Havel sem naut mikils álits lengst af en sat þó of lengi.
Innrás í Afríku
7.2.2003
Maðurinn er skaðræðisskepna sem finnur sér ýmsar afsakanir til innrása og vígaferla. En hann er ekki eina illfyglið í heiminum og ekki heldur einn um að ryðjast inn í fjarlæg lönd og valda usla. Hér er fjallað um vatnahýasintuna, Louisana-vatnakrabbann (ha, er Louisiana í Afríku?) og rauða vatnaburknann sem gefur rauðu Akurliljunni ekkert eftir.
Var Framsókn þá alltaf málið?
11.2.2003
Einu sinni átti að sameina vinstrimenn. Svo kom í ljós að hugtökin hægri og vinstri eru ekki til. En það eru engin ný sannindi sem Samfylkingarmenn bjóða kjósendum í þessum kosningum, bara endurvinnsla á gömlum tuggum ýmissa stjórnmálaflokka seinustu áratuga.
Brasilíudrengir á hverju strái
14.2.2003
Bíddu nú við - lýgur þá fréttablaðið af gömlum sið eða til hugsunaruppeldis?
Sögulegar forsetakosningar á Kýpur
18.2.2003
Tassos Papadopoulos, 69 ára leiðtogi þjóðernisflokks Kýpur, hefur verið valinn arftaki þeirra Makariosar, Kyprianou, Vasilou og Klerides, öllum að óvörum. En stefnir kjör hans frið á eyjunni í voða?
Siðferðilegt gjaldþrot
21.2.2003
Stefna Bandaríkjanna í málefnum Íraks ber siðferði þeirra ekki gott vitni. Eina stórveldi heimsins sýnir af sér hroka og yfirgang.
Elsku Arnaldur!
25.2.2003
Hvað getur gerst í vor ef verstu spár ganga ekki eftir? Nýr gestapenni Múrsins, Grímur Atlason, hefur bréfasögu sína í dag!
Af hvorum stafar meiri hætta, Saddam Hussein eða George W. Bush?
28.2.2003
spyr nýr gestapenni Múrsins, Steinar Matthíasson. Hann svarar hér grein í Lesbók Morgunblaðsins þar sem því var haldið fram að innrás í Írak hafi þann tilgang að bjarga írösku þjóðinni frá Saddam Hussein. En slík rökfærsla leiðir margt hjá sér.
Flokkur Savisaars ennþá stærstur
4.3.2003
Engin sérstök tíðindi urðu í þingkosningum í Eistlandi um helgina. Það merkir þó ekki að Múrinn muni ekki fjalla um þær. Onei. Þar er m.a. í framboði borgarstjóri höfuðborgarinnar sem er alls ekki á jafn háu plani og Ingibjörg Sólrún heldur hefur hann þvert á móti verið tekinn fyrir símahleranir.
Minni Stalíns
7.3.2003
Hann varð fljótt ærulaus eftir að hann lést, en er nú vinsæll á ný. En hvernig var stjórn hans, hvernig var orðræðan og hvernig var hugarfarið? Er hægt að læra af sögu Stalíns?
Leysir „sænska leiðin“ vandann?
11.3.2003
Vændi er skilgetið afkvæmi misréttar og ójöfnuðar. En eru lagasetningar rétta baráttutækið gegn þessum vágesti? Væri ekki nær að beita félagslegum úrræðum?
Ábyrgðarleysi leysir ekkert
14.3.2003
Múrinn lendir í ritdeilu við sjálfan sig! Að þessu sinni um það hvort kaup á vændi eigi að teljast ólögleg.
Líkur aukast á vinstristjórn
18.3.2003
Þeir sem hafa haldið að mikið fylgi Samfylkingar væri forsenda fyrir vinstristjórn gætu nú farið að örvænta því að fylgi hennar er farið að síga hægt en örugglega niður. En sem betur fer dregur ekkert úr líkum á vinstrasamstarfi við það.
Kona forsætisráðherra í Finnlandi?
21.3.2003
Afar sjaldgæft hefur verið að konur hafi í senn verið þjóðhöfðingjar og forsætisráðherrar í sama ríki. Nú gæti sú staða orðið uppi á teningnum í Finnlandi.
Lærdómur sögunnar
25.3.2003
Ætti Morgunblaðið að skrifa leiðara sem heitir "kommúnistinn hafði rétt fyrir sér"? Er betra að selja harðstjórum vopn og ráðast síðan á þá en að selja þeim ekki vopn og heyja varnarstríð fremur en árásarstríð? Hvers vegna er saga þorskastríðsins rök fyrir því að Íslendingar eigi að fylgja Frökkum og Norðmönnum en ekki Bretum og Bandaríkjamönnum? Eigum við kannski að sætta okkur við það að sagan endurtekur sig ekki nema sem farsi?
Kvarnast úr bandalaginu
28.3.2003
Forsætisráðherra telur sig vita að sumar ríkisstjórnir styðji Bandaríkin á bak við tjöldin en ekki opinberlega. Hann nefndi það hins vegar ekki að í hópi "hinna staðföstu" eru ríki sem styðja heimsveldið ekki á bak við tjöldin, þótt þau hafi komist á hinn opinbera lista.
Smátt er fagurt
1.4.2003
Sumir gætu haldið að eina tegund kosninganörda sé þessi sem vill daglega skoðanakönnun til að geta úthlutað þingsætum í gríð og erg. Það leiðréttist hér með.
Eru „hinir“ réttdræpir?
4.4.2003
Nýjustu hugmyndir fræðimanna um heimsvaldastefnu 19. og 20. aldar skýra orðanotkun Halldórs og Davíðs og annarra blaðafulltrúa George Bush á Íslandi. Hér er fjallað um Íraksstríðið út frá hugmyndum hins búlgarska Tzvetans Todorovs.
Afganistan árið 2
8.4.2003
Blóðfórnirnar sem staðið hafa yfir í Afganistan frá því í október 2001 áttu að hafa þann tilgang að "frelsa þjóð". En hvernig hefur frelsunin tekist til?
Jenin: Ári síðar
11.4.2003
Fáar ríkisstjórnir hafa reynt jafn ákaflega að leysa vanda með hernaði og Ísraelsstjórn. Fáar ríkisstjórnir hafa leitt jafn purkunarlaust hjá sér vilja alþjóðasamfélagsins, ályktanir Sameinuðu þjóðanna og gerða friðarsamninga. En sú stjórn er þóknanleg þeim sem nú ráðskast með allan heiminn.
Herinn burt — úr Írak!
15.4.2003
Hér heldur áfram umræðan um afstöðu til stríðsins í Írak, um friðarstefnu og „réttlát stríð“.
Blessað stríðið
22.4.2003
Orðræða stríðsins, stríð og efnahagsmál, gereyðingarvopnin sem hurfu og upphaf herferðarinnar gegn Sýrlandi. Í dag birtir Múrinn hugleiðingar Edward Huijbens um stríðið í Írak (með tenglum og öllu!) þar sem allt þetta og meira til er til umræðu.
Er okkur alvara með vetni?
25.4.2003
Fyrir kosningar gerast jafnvel harðsvíruðustu stóriðjuframsóknarmenn umhverfisvænir og kalla áfyllingarstöð fyrir vetnisbíla heimssögulega viðburði. En ekki er sopið kálið þó að í ausuna sé komið. Mörg ljón geta verið á vegi almennrar vetnisbílanotkunar og er þar nóg að minna á hvernig fór með rafmagnsbíladrauminn.
Íslenskar forsætisráðherrakosningar — sögulegt yfirlit
29.4.2003
Hætt er við að þeir sem hyggjast kjósa nýjan forsætisráðherra 10. maí muni vakna upp við vondan draum. Frá stríðslokum hefur það einungis þrisvar farið saman að flokkur bæti verulega við sig fylgi og að leiðtogi hans myndi stjórn.
Á krafan um hlutleysi rétt á sér?
6.5.2003
Umræða um hlutdrægni álitsgjafa og fréttamanna sprettur gjarnan upp fyrir kosningar en nær sjaldan að þroskast og dafna. En það er full ástæða til að ræða þetta mál án þess að það fari í farveg ásakana og málsvarnar.
Lýðveldisumræðan aftur komin á flug
9.5.2003
Kosningastjóri Vinstrigrænna í Reykjavík hefur ekki látið margháttaðar annir hindra sig í að kynna sér hneykslismál tengd Hollingworth landstjóra Ástralíu sem hefur gefið umræðunni um að landið verði lýðveldi byr undir báða vængi.
Nýja þingið — nokkrir fróðleiksmolar
13.5.2003
Sumum finnst tölfræði leiðinleg. Ekki Múrnum. Hér koma nokkrir fróðleiksmolar um hið nýja þing sem greinarhöfundur hefur ekki rekist á annarstaðar í fjölmiðlum. Kona á þingi hefur þannig sett nýtt met. Það eru ekki aðeins ungir þingmenn sem eru fleiri nú en síðast. Og það er fullkomin meinloka að til séu þingmenn sem hafa setið lengi á þingi án þess að láta mikið á sér bera.
Græningjar tapa í Belgíu en stjórnin heldur velli
20.5.2003
Einu sinni var sagt að í Belgíu gerðist ekki neitt. Það er að vísu rétt en pennar Múrsins eru meira en til í að skrifa greinar um ekki neitt.
Hræðslusamfélagið
27.5.2003
Á fyrri öldum voru menn myrtir þar sem þeir sáust í nánd við brunna og voru grunaðir um að míga í þá til að breiða út kóleru. En hvernig er ástandið nú?
Afríka situr enn eftir með sárt ennið eftir róstusaman fund í Genf
3.6.2003
Fátt hefur staðið eftir seinustu fundi leiðtoga átta helstu iðnríkja heimsins nema óeirðir almennings og skortur á vilja ráðamannanna til breytinga.
Á að hafa lokað á hvítasunnu?
11.6.2003
... þarna liggur efinn...
Áfram eldsneytisgeymsla?
18.6.2003
Eru lönd sem ekki hafa her ekki til? Áhugaverðar tilvistarspurningar koma fram þegar fjölmiðlamenn fjalla um yfirvofandi brottför hersins.
Erfitt að vera kona í stjórnmálum?
25.6.2003
Elisabeth Kopp, Ritt Bjerregaard, Mona Sahlin og Anneli Jääteenmäki. Eiga þessar stjórnmálakonur eitthvað sameiginlegt? Jú, allar voru þær brautryðjendur eða stefndu á toppinn og allar þurftu þær nauðugar að víkja úr embætti.
Þykjustu lýðræði eða alvöru?
4.7.2003
Verður lýðræði og frelsi að vestrænum sið komið á með ofbeldi og valdbeitingu? Hvað kennir saga Bandaríkja Norður-Ameríku okkur um það?
Ómarktæk réttarhöld í Guantanamo
8.7.2003
"Réttarhöld" Bandaríkjastjórnar yfir stríðsföngum sem haldið er ólöglega í Guantanamoherstöðinni hafa eins lítið með réttlæti að gera og mögulegt er.
Tilraunin í Lundúnum fær fyrstu einkunn
15.7.2003
Borgaryfirvöld Lundúna eru áhugasöm um að minnka bílaumferð í miðborginni. Óskandi væri að hið sama ætti við um yfirvöld í Reykjavík. Svo er að sjálfsögðu ekki. Ó nei.
Roger Waters og refaveiðarnar
24.7.2003
Rokkgoðið Waters fyrirlítur Bush Bandaríkjaforseta en kýs breska Íhaldsflokkinn. Hvernig stendur á því?
Framsækni eða miðsækni
31.7.2003
Er hægt að sækja til miðju og fram á við um leið? Múrinn heldur ekki enda bæði málfræðileg og pólitísk vandkvæði þar á.
Upp kemst um strákinn Tuma...
6.8.2003
Tap Demókrata í kosningunum 2000 var þeim sjálfum að kenna, engum öðrum. Varaforsetaefnið Lieberman er nú að rekast illilega á það.
Er vandi Líberíu bara Charles Taylor að kenna?
12.8.2003
Charles Taylor er horfinn úr forsetastól í Líberíu. Um hann hafa hörð orð verið látin falla, m.a. í Morgunblaðinu enda Bandaríkjamenn andsnúnir honum. Taylor er vissulega hið versta illmenni en það er þó einföldun að kenna honum einum um ástandið í Líberíu.
Samspil höfuðborgar og landsbyggðar
15.8.2003
Múrinn gerir víðreist og ræðir um byggðastefnu, dreifbýli og strjálbýli. Leynast sóknarfæri víðar en maður hyggur?
Þegar markaðurinn kveikir ekki á perunni…
19.8.2003
Rafmagnsleysi í Bandaríkjunum, ríkisstjórakjör í Kaliforníu, dólgafrjálshyggja í hagfræði, vond eðlisfræði og raforkulög á Íslandi. Öll eru þessi fyrirbæri nátengd.
Stríðið sem lauk ekki
22.8.2003
Íraksstríðið hefur reynst æði mannskætt eftir að því lauk og er farið að minna á hryllinginn í Víetnam.
Forsetakosningar í skugga þjóðarmorðs
26.8.2003
Hvernig stendur á að þjóð flykkist á kjörstað og kýs yfir sig þurrpumpulegan herforingja sem greinilega er meinilla við mótframboð? Jú, ef valkosturinn er nógu hræðilegur. Og því trúa menn í Rwanda.
Kverkatak á orkumálum borgarinnar?
29.8.2003
Af hverju eruð þið alltaf að drulla yfir R-listann? spyr kannski bleikfeitur Framsóknardrengur eða sultarlegur krati. Nú lestu grein dagsins, fíflið þitt! Þar er nóg af ástæðum að finna.
Eignaupptaka í þágu auðmanna
2.9.2003
Árás Bandaríkjamanna á Írak hefur ekki leitt til meira frelsis eða öryggis fyrir íröksku þjóðina og svo sannarlega er þar lítil velsæld um þessar mundir. Er þá enginn sem hefur hagnast? Ójú. Það eru margir sem nú græða. Hverjir ætli það séu?
Berlusconi kemur daglega á óvart
5.9.2003
Sem kunnugt er á Davíð Oddsson sér einn perluvin meðal evrópskra þjóðarleiðtoga. Það er Silvio Berlusconi, forsætisráðherra Ítalíu. Stundum er sagt: Segðu mér hverjir vinir þínir eru og ég skal segja þér hver þú ert. Allir Íslendingar hljóta því að vera áfram um að heyra nýjustu tíðindi af þessum vini Davíðs.
Leikhús óttans
10.9.2003
Ellefta september breyttist allt! Nákvæmlega hvað átti að gera vissi þó enginn en eitt af því sem hefur fylgt í kjölfarið eru dýrar „hryðjuverkaæfingar“ sérsveitarmanna sem hafa þann tilgang helstan að æra fólk af ótta og sannfæra það um mikilvægi vígtóla og heræfinga.
Sigur sósíalista í Noregi
16.9.2003
Systurflokkur VG í Noregi vann góðan sigur í kosningum til fylkisþinga og sveitastjórna í gær.
Tilfinningaklám
19.9.2003
Nýlega hafa margir grátið opinberlega vegna fráfalls Önnu Lind utanríkisráðherra Svíþjóðar. Viðbrögðin eru svo óheft að það er farið að minna á sefjunina sem greip um sig í fyrra þegar tvær litlar stúlkur voru myrtar í Bretlandi eða dauða Díönu prinsessu um árið.
Vinnuþjarkurinn Beta
24.9.2003
Enginn mokaði jafn miklu af kolum og Stakhanov. En Bretar eiga konu sem getur verið þjóðhöfðingi í mörgum tugum ríkja.
Vestlendingar afskiptir í vegaframkvæmdum
26.9.2003
Ef það eru ekki pólitískar hræringar í Afríku þá er það malbikunareip eins ritnefndarmanna Múrsins sem að þessu sinni er nýkominn af Vesturlandi og rýndi að sjálfsögðu í vegina.
Frakkar fagna sigri Eyadema
30.9.2003
Ef marka má kosningaúrslit í Togo eru landsmenn ekki komnir með leið á forseta sínum til 36 ára. En er eitthvað að marka kosningaúrslit í Togo?
Óskiljanleg reiði?
3.10.2003
Maður að nafni Fouad Ajami skrifaði nýlega grein í Foreign Policy og furðaði sig á andúð í garð Bandaríkjanna meðal fólks í Saudi-Arabíu og Jórdaníu. Saga landanna gæti hjálpað Ajami og fleirum að skilja málið.
Einn sjötti mannkyns býr í fátækrahverfum
7.10.2003
Er það ekki dæmigert fyrir þessar sínöldrandi og lömuðu Sameinuðu þjóðir að fara að tuða um fátækt á þessum síðustu og verstu tímum? En hafa þær eitthvað til síns máls?
Læsi laxa og landbúnaðarráðherra
10.10.2003
Kunna laxar að lesa? Hvað gerðist í höfninni í Neskaupstað? Hvað gerist ef eldislax og villtur lax finnast á förnum vegi? Hvaða máli skiptir villti laxastofninn? Af hverju er talað um umhverfisslys þegar lax sleppur úr kví? Nýráðinn laxablaðamaður Múrsins veit allt um málið!
Að skapa atvinnutekjur
14.10.2003
Er það sem er gott fyrir hina ríku alltaf gott fyrir hagvöxt? Er verið að refsa fólki fyrir að "vinna meira" í skattkerfinu? Er það verkefni stjórnmálamanna að auka tekjur landsmanna?
Er Deiglan lélegasta vefritið?
17.10.2003
Í einni af Íslendingasögunum segir eitthvað á þá leið að heimskra manna ráð dugi verr eftir því sem þau koma fleiri saman en hver verður útkoman þegar meira en 40 manns hjálpast að við að semja nafnlausar fréttir?
Ósigur miðjustefnu
21.10.2003
Sigur hægrimanna í þingkosningunum í Sviss um helgina er hluti af 12 ára þróun og það voru miðjuöflin sem misstu fylgi til hægri.
Heimdellska = Heimsk della
24.10.2003
Á hverju ári láta fjölmiðlar mikið með það að ungir sjálfstæðismenn afhenda „fjárlagatillögur sínar“. En hvers virði eru þessar tillögur þegar betur er gáð?
Að vera sjálfum sér samkvæmur
28.10.2003
Er hægt að taka þá alvarlega sem segjast vilja þétta byggð en ekki sætta sig við háhýsi? Og vera sjálfum sér samkvæmur án þess að vera fullkominn?
Stjórnmálavéfrétt kauphallarinnar
31.10.2003
Það er alltaf gaman að spá og spekúlera. Eða að lesa langlokur um ekki neitt. Þeir sem hafa gaman af hvorutveggja eru markhópur þessarar greinar.
Snakk, gos og g-streng, takk!
4.11.2003
Það er jú allt sem hugurinn girnist, ekki satt?
Hin gleymdu fórnarlömb Sharons
7.11.2003
Er það hatur á þjóð að telja framferði einnar ríkisstjórnar mikla ógnun við heimsfriðinn?
Einokunin sem aldrei var til
14.11.2003
Orð eru gjarnan misnotuð á Íslandi. Íslenska orðið „einokun“ hefur þannig orðið hluti af samsetta orðinu „ríkiseinokun“ sem er merkingarlaust og byggist á hugsanavillu.
Tómhyggjan í öndvegi
18.11.2003
Þegar hinir nútímalegu jafnaðarmenn boða „markaðslausnir“ á sem víðtækustu sviði mannlífsins, þá er það án nokkurar skírskotunar í borgaralegar dyggðir sem standa íhaldsmönnum fyrir þrifum. Hin vélrænu lögmál geta þá virkilega notið sín, án þess að nokkurt siðferði trufli gangvirkið.
Tíðindalaust á Vesturbakkanum – eða hvað?
21.11.2003
Hleðslur eiga samkvæmt skilgreiningu annað hvort að vera heimspekilegar vangaveltur um t.d. eðli tómhyggjunnar eða frásagnir af spennandi forsetakosningum í Ecuador. En Múrinn kemur stöðugt á óvart. Í þetta sinn höldum við nefnilega á slóðir læknanemanna dönsku og fjöllum um skort Ariels Sharons á bilgirni.
Kári veit hvað hann syngur
25.11.2003
Enn á ný kemur norski hægrimaðurinn Kåre Willoch á óvart. Íslenskir vopnabræður mættu margt af honum læra.
Blekkingar danskra ráðamanna?
28.11.2003
Í Danmörku þurfa ráðamenn sem blekkja þingið að segja af sér. Um þessar mundir bendir margt til að það hafi núverandi ríkisstjórn gert í Íraksstríðinu.
Stjórnlaus mannfjölgun?
2.12.2003
Fólksfjöldaspár Sameinuðu þjóðanna gefa tilefni til að huga alvarlega að matvælaframleiðslu, skiptingu auðs og samskiptum þjóða í nánustu framtíð.
Fjöldamorð í Kongó?
5.12.2003
Oft eru settar fram varasamar fullyrðingar um mannfall í átökum til þess að ná fram tilteknum áhrifum. Í hleðslugrein dagsins er hins vegar farið rækilega yfir þessa hluti miðað við heimildir og helstu viðmiðanir. Grein fyrir alla talnaspekinga!
Pútín ræður nú öllu í Rússlandi
9.12.2003
Hvað varð um Konur Rússlands? Það er enginn hægðarleikur að fylgjast með rússneskum stjórnmálum en hér er þó gerð örlítil tilraun til þess. Um leið eru menn varaðir við að láta ekki blekkjast af þurrpumpulegum KGB-sjarma Pútíns. Það er bara í bókmenntunum að tilfinningalausa vélmennið reynist vera mesta krútt undir niðri. Annars er greinin alls ekki um það. Jæja, lesið hana bara.
Loki selur vopn
12.12.2003
Vopn, sem ekki kallast gereyðingarvopn, eru notuð til að binda endi á líf 1300 manna á degi hverjum.
Sameining Kýpur í uppnámi?
16.12.2003
Nú er það ekki „sósíalíski folinn“ sem er til umræðu heldur „Ian Paisley Kýpur“ sem er ekki alveg jafn aðlaðandi viðurnefni. Það var semsagt kosið á norðanverðu Kýpur og úrslitin hefðu getað markað tímamót. Í staðinn er þrátefli.
Allt eða ekkert
19.12.2003
Sumir greinarhöfundar Múrsins hafa undarlega mikinn áhuga á lygum, einkum tilefnislausum lygum. Hér er fjallað um nokkrar helstu lygar í stjórnmálum og í daglega lífinu.
Köldu svæðunum fækkar enn
23.12.2003
Nú nálgast jólin og þá erum við þakklát fyrir hitann. Í tilefni jólanna fáum við glænýjan skammt af lagnafréttum Múrsins.
Trúðurinn orðinn stærstur
30.12.2003
Fjórum árum eftir Kosovostríðið er stríðinu vissulega lokið en vandamálin flest óleyst, stjórnmálin í uppnámi og ofbeldissinnaði trúðurinn Seselj er hetja dagsins eftir þingkosningarnar í Serbíu um helgina.
Heimurinn anno 2004
3.1.2004
Útlitið er ekki bjart í ársbyrjun 2004. Þó er ekki öll von úti enn. Hér er rætt um þrjú helstu vandamál sem blasa við mannkyninu og þær horfur sem eru á að þau verði leyst.
Eldhugar heiðraðir
6.1.2004
Hverjir fengu hinsegin Nóbelsverðlaun í ár og fyrir hvað?
Okkar tíkarsynir I: Fernando Marcos
9.1.2004
Hann breytti lýðræðisríki í einræðisríki. Á fimm árum lét hann handtaka 60 þúsund manns og fjölmarga hverfa. Síðan stal hann öllu steini léttara áður en hann hvarf úr landi. Allan tímann fögnuðu bandarísk stjórnvöld honum innilega. Utanríkisráðherra taldi stjórn hans hafa einkennst af „virðingu og styrk“.
Glerhús - 4. árgangur
Bara til í fjölmiðlum?
11.1.2003
Fréttaskýringar Fréttablaðs Samfylkingarinnar eru alltaf jafn sniðugar, einkum þær sem telja að dónarifrildið í Kryddsíldinni hafi markað þáttaskil í íslenskum stjórnmálum.
VG fyrst með lista í Reykjavík
14.1.2003
Þó að fjölmiðlar hafi verið uppteknir af öðrum flokkum þá urðu Vinstrigrænir fyrstir til að birta framboðslista sína í Reykjavík. Þeir eiga líka yngsta frambjóðandann sem er efstur á lista fyrir þessar kosningar, a.m.k. enn sem komið er.
Bjössi Fjölnis
17.1.2003
Landsins mesti aðdáandi Die Hard-myndanna og Crimson Tide hefur svo fjörugt ímyndunarafl að hann heldur sig vera í liði með Fjölnismönnum í deilunum um mestu náttúruspjöll Íslandssögunnar.
Made in USA
21.1.2003
Eiga ellefu sprengjuoddar í Írak að verða átylla nýs stríðs? Og hvernig geta Bandaríkjamenn talað svona fjálglega um vopnabúr Saddams þó að það sé að hluta komið frá þeim sjálfum? Nýr gestapenni Múrsins veltir vöngum yfir þessu.
Homo economicus leggur ekki flísar
24.1.2003
Þegar hagfræðingarnir fara að tengja fræði sín við hversdagslíf venjulegs fólks, þá fyrst koma takmarkanir fræðigreinarinnar í ljós.
Til ritstjóra Deiglunnar
28.1.2003
Þann 24. þessa mánaðar birtist á vefritinu Deiglunni pistill sem einn ritnefndarmanna Múrsins sá sig knúinn til að andæfa. Hér er birt bréfið sem sent var Deiglunni í gær.
Regnbogabarnið Smári
31.1.2003
Það er erfitt að vera virkjanasinni á Íslandi. Hundasúruætur frá Reykjavík flykkjast upp á fjöll bara til að eyðileggja atvinnumöguleika þína. Og svo eru menn knúnir að mæta í viðtöl um allt eineltið sem þeir verða fyrir.
Halda rökin? — II. Hluti
5.2.2003
Á hverjum degi dynja á okkur rök þeirra sem umfram allt vilja stríð við Írak. En hversu góð eru þau?
Að brjóta odd af oflæti sínu
7.2.2003
Fréttamaður Ríkisútvarpsins kallar það „oflæti“ hjá Frökkum að vilja ekki ráðast gegn Írak. Hann ætti nú kannski að íhuga notkun sína á þessu orði aðeins betur.
Milosevic á Íslandi
11.2.2003
Deilt er um það hvort undirbúningur árásarstríðs gegn Írak geti verið skilgreindur sem „efling varna Tyrklands“. En Kastljós Sjónvarpsins hefur aðeins hug á að kynna landsmönnum aðra hlið á þessu máli. Þar þarf ráðherrann ekki að standa fyrir máli sínu.
Sofið á verðinum
14.2.2003
Hafa stjórnvöld áhuga á því að efla vísindin? Þið fáið svarið hér. Ómengað.
Hvað má ræða?
18.2.2003
Fjölmiðlamenn eru fullir af skoðunum um hver séu mál málanna og ekki nema gott um það að segja. Verra er þegar þeir vilja sópa öðrum af borðinu af því að það hentar þeirri pólitíski sannfæringu.
Nýr, ómengaður Framsóknarflokkur
21.2.2003
Um þessar mundir hefur Framsóknarflokkurinn gengið í endurnýjun lífdaga með nýjum loforðum. Hann á nú ekkert skylt við þann flokk sem verið hefur í stjórn í átta ár.
Gefum skít í turnana tvo!
25.2.2003
Fjölmiðlamenn hafa gripið á lofti nýjustu klisjuna, um „turnana tvo“ í íslenskum stjórnmálum. En þegar líkingin er skoðuð í kjölinn kemur í ljós að hún merkir allt annað en þeir halda sem nota hana. Og margir eru orðnir hundleiðir á þessum „turnum“, hvort sem þeir eru úr fílabeini eða ekki.
Harðjaxlinn
28.2.2003
Sumir menn eru fæddir harðjaxlar. Þeir þora að setja hnefann í borðið og hika ekki við að beita ofbeldi þegar nauðsyn krefur. Að launum hljóta þeir virðingu og hylli fjöldans. Slíkur maður er forsætisráðherra Bretlands, Tony Blair.
300 milljónir
4.3.2003
Múrinn á jafn erfitt og Davíð Oddsson með að muna nafnið Jón Gerald Sullenberger. Og þó að ritnefndarmenn Múrsins séu að vísu ekki jafn viðkvæm stofublóm og hann og missi svefn yfir gamansemi Hreins Loftssonar þá viljum við leggja okkar til umræðunnar og velta fyrir okkur þessum millum sem Davíð er ekki falur fyrir.
Hvers vegna vill Fred Flintstone réttlæti?
7.3.2003
Geir Haarde finnst skattkerfið sitt harla gott. Þeir sem eru á móti því eru steinaldarmenn að hans mati. En ef litið er fram hjá uppnefnunum og horft á rökin, af hverju ættu steinaldarmennirnir að vera hrifnir af skattkerfi Geirs Haarde?
Elsku drengurinn minn!
11.3.2003
Grímur Atlason heldur áfram bréfasögu sinni. Frá árinu 2023.
Í besta falli hálfsannleikur...
14.3.2003
Þær eru ófáar tuggurnar sem stjórnmálamennirnir éta upp. Ein sú hvimleiðari er kenning Sjálfstæðismanna um örlög vinstristjórna.
Stöð 2 og „málgleðin“
18.3.2003
Talar fólk á þingi af því að það hefur gaman að tala? Eða hefur það jafnvel eitthvað fram að færa? Þeir sem horfa á fréttir Stöðvar 2 eru litlu nær því að fréttaflutningur hennar af ræðutíma þingmanna er ekki í samhengi við eitt né neitt.
Casus belli
21.3.2003
Þegar Rómverjar fundu upp þetta hugtak var til siðs að ástæða þyrfti að vera fyrir stríði. Ríkisstjórn George Bush og leppar hennar eru nú búin að afnema þann sið.
Áminning til Íslendinga
25.3.2003
Múrinn birtir þarfa áminningu Bergljótar Kristjánsdóttur til landsmanna um það hvernig rökfimi er beitt í Stjórnarráðinu þessa daga.
Rambó á sunnudaginn?
28.3.2003
Lista- og skemmtideild Ríkisútvarpsins er gengin í lið með landsfeðrunum og hefur tekið að sér að koma þjóðinni í rétt skap til að fylgjast með nýjasta stríði Bandaríkjastjórnar.
Munurinn á Belgrad og Bagdad
1.4.2003
Myndi það ekki þykja lélegt aprílgabb að Sunnlendingar hefðu ráðist inn í Bláskógabyggð?
Kjörorðin í Íraksstríðinu
4.4.2003
Þórarinn Hjartarson skrifar Múrnum og skorar á ritstjórn í rökræðu um stríð og frið, réttlæti og ranglæti.
Góð ráð til frambjóðenda
8.4.2003
Það er kunnara en frá þurfi að segja að fá störf njóta minni virðingar á Íslandi en að vera alþingismaður. Samt sem áður fæst hópur fólks til að bjóða sig fram til þessa óvinsæla starfs. Það hugrakka fólk á allt gott skilið og Múrinn hyggst styðja við bak þeirra með því að birta hér reglulega góð ráð til frambjóðenda, allt fram að kosningum. Það getur sparað frambjóðendum ófá sporin að lesa þessa grein!
Olíutekjur hafa ekki farið til Íraksstjórnar
11.4.2003
Ekki fást allar rangfærslur sem birtast í "blaði allra landsmanna" leiðréttar. Þórdís B. Sigurþórsdóttir gerði tilraun til að senda Mogganum lesendabréf, sem birtist nú á Múrnum, tveimur vikum síðar.
Niðurskurður eða þjónustugjöld? Þitt er valið
15.4.2003
Í aðdraganda þingkosninga stígur nú hver stjórnmálaflokkurinn á stokk og lofar lægri sköttum. Lífið er greinilega orðið lotterí og allir fá stóra vinninginn, ef marka má málflutning þeirra. En hvað munu loforðin kosta?
Hvað á að gera þegar fylgið dvínar?
22.4.2003
Það verður gjarnan handagangur í öskjunni þegar kemur að kosningum og fylgi flokkanna mælist stundum minna en þeir helst vildu. En hvað á að gera í slíkum kringumstæðum? Auglýsa hina til fjandans, kalla þá kommúnista eða leita í smiðju Kim Il Sung? Múrinn er enn með fingurinn á púlsinum.
Að kjósa forsætisráðherra
25.4.2003
Fallandi gengi heitir kunn saga Remarque og má mæla með henni fyrir hina fjölmörgu vonarpeninga Samfylkingarinnar sem hafa verið sýndir sem þingmenn í blöðum seinustu mánuði. Svo kann að fara að tímamótin hans Svans bíði áfram. En af hverju? Er það vegna þess að fólk vill ekki konu sem forsætisráðherra? Eða kynni að vera svo að kjósendur viti ósköp vel að þeir geta ekkert kosið forsætisráðherra þann 10. maí?
Snerist stríðið þá um klámspólurnar hans Uday?
29.4.2003
Enginn nennti að semja grein úr glerhúsinu í dag þannig að í staðinn er birt ávarp frá mótmælafundi gegn stríðinu í Írak seinasta laugardag.
Riddarar fáránleikans
6.5.2003
Eftir mikla bið gafst Gunnar Jónsson skógarbóndi og eftirlaunamaður upp á frjálsum og óháðum dagblöðum og sendi Múrnum pistil um tvo menn sem þessa dagana sækjast eftir atkvæðum landsmanna.
Það þarf nýja utanríkisstefnu
9.5.2003
Fréttaskýrendur og áróðursmenn sem ýja að því að Vinstrigrænir muni fara í ríkisstjórn og láta tvö helstu ráðherraembættin (forsætis- og utanríkisráðuneytið) afskiptalaus vaða reyk. Utanríkismálin eru grundvallarmál í stefnu flokksins.
Hvað ef...
13.5.2003
Ekki munaði mörgum atkvæðum á að meirihluti ríkisstjórnarinnar yrði mjög naumur og Halldór missti öflugasta tromp sitt í viðræðum við Davíð. En þá hefði alþingi orðið að úrskurða um lögmæti kosninganna og þar með um skipan sjálfs síns.
Grátbroslegar uppákomur úr seinustu kosningabaráttu
20.5.2003
Alltaf er nóg af uppákomum á lokaspretti kosningabaráttu þegar allir hafa tryllst og yfirleitt kasta menn ekki hamnum fyrr en nokkrum dögum eftir kosningar.
Rökrétt framhald
27.5.2003
Hvað??? Segir Múrinn Valgerði Sverrisdóttur hafa á réttu að standa? Ojá greinin hefst þannig. Lesið hana til enda og sjáið hvernig stendur á þessari fáheyrðu fullyrðingu.
Hvað á maður að gera ef maður er flokksleiðtogi utan þings og flokksforystu?
3.6.2003
Enn ein leiðtogakreppan stendur nú hátt í Samfylkingunni. Seinast vildi enginn leiða flokkinn en nú á hann leiðtoga sem hefur samt ekkert formlegt hlutverk annað en að vera efni. Hvað er hægt að gera í slíkri stöðu?
Björn týndur í frumskóginum
11.6.2003
Björn Bjarnason er týndur í frumskógi. Í Reykjavík. Aleinn. Og týndur.
Man fólkið ekki neitt?
18.6.2003
Stundum er sagt að við lifum á dögum minnisleysisins. En jafnvel á þeim tímum reynir einn íslenskur stjórnmálaflokkur við heimsmetið í að muna ekki eigin orð og gerðir og treysta á að aðrir gera það líka.
Ríkisstjórnarhátíðin í Reykjavík
25.6.2003
Lögreglan í Reykjavík vill enga pólitík á þjóðhátíðardaginn. En Sjálfstæðisflokkurinn og stefnumál hans eru auðvitað ekki skilgreind sem pólitík á þeim bæ.
Breskir hermenn ákærðir fyrir hópnauðganir
4.7.2003
Hilmar Hilmarsson er ekki par ánægður með framgöngu breska hersins í Kenýa. Það er vel skiljanlegt.
Farið í friði
8.7.2003
Aðeins VG þorir að senda bandarískum stjórnvöldum þau skilaboð sem nú eiga við: Geriði svo vel, takið herinn ykkar og farið í friði!
Orðabók Orwells – nýjustu fréttir
15.7.2003
Á þessum síðustu og verstu tímum veitir ekki af að fylgjast með þróun tungumálsins. Sérstaklega ef menn vilja vera nútímalegir. Og hver vill það ekki?
Saddam og kötturinn í örbylgjuofninum
24.7.2003
Adolf Hitler var sagður hafa eitt eista og ristruflanir. En hvers vegna eru illmennin orðin svona klisjukennd í seinni tíð?
...og enginn þorir að kalla þetta samsæri!
31.7.2003
Samsærin leynast víða, einkum þó í opinbera geiranum. Eða hvað er hægt að kalla það annað en samsæri þegar enginn segir manni að loka ísskápnum eða skipta um gír? Ekkert annað, að mati Múrsins og forsætisráðherra.
Rannsóknir undir handleiðslu valdhafa
6.8.2003
Viljirðu rökstyðja mál þitt kallarðu á álit sérfræðings og björninn er unninn. En er reyndin sú að álit sérfræðinga sé óháð? Eru þeir jafnvel á launum við að rökstyðja skoðanir þóknanlegar valdhöfum?
Í Fréttablaðinu má alltaf finna lausn
12.8.2003
Í íslenskum fréttum túlkar hver með sínu höfði og ekkert liggur fyrir, nema það að Mogginn styður Sjálfstæðismenn og Fréttablaðið Samfylkinguna.
Þjóðin andar léttar!
15.8.2003
Það er svo sannarlega sitthvað, hinn víði pólitíski sannleikur og hið þrönga tæknilega sjónarhorn. Það veit Múrinn og herra Doddsson og yfir því getum við andað léttar.
Sendiherra eða varaformaður?
19.8.2003
Múrinn þykist vita að brátt verði skipt um formann í Samfylkingunni. En hvað er best að gera við gamla formenn? Hvernig verða þeir endurunnir á umhverfisvænan hátt?
Skákað með páfann
22.8.2003
Ungir jafnaðarmenn eru ekkert blávatn og vita af því.
Ábyrgð einvaldsins
26.8.2003
Hreinsanir Stalíns og fréttaflutningur Spegilsins eru Birni Bjarnasyni efst í huga þegar hann kýs að ræða eigin embættisveitingar á netinu.
Hvernig á að slá í gegn í Sjónvarpi?
29.8.2003
Hvað á maður að gera við allan tímann sem nútímamenn nýta einna helst til þess að hanga í vinnunni? Fyrir þá sem ekki nenna að funda þindarlaust í sjö tíma er hér mælt með nýja þakklátu hlutverki sem getur jafnvel þýtt heimsfrægð á Íslandi í tíu mínútur og öruggt sæti í „Hvað varð um þau“-dálkum framtíðarinnar.
Hófsami heittrúarmaðurinn
2.9.2003
Einkavæðing í menntakerfinu hefur aldrei verið vinsæl á Íslandi. Af þeim sökum hafa hægrimenn reynt að láta sem þeir séu hófsemin sjálf og vilji ekkert heitar en að þúsund blóm blómstri. Þegar þeir tjá sig um málið glyttir hins vegar alltaf í bókstafstrúna undir niðri.
Dagskráin er á þessa drepleið
5.9.2003
Í kvöld má reikna með því að í Kastljósinu verði „fisléttur föstudagur“. Í sjónvarpinu eru alltaf annað hvort „fisléttir föstudagar“ eða „laufléttir laugardagar“.
Breyskir þingmenn og umræðuþöggun
10.9.2003
Er fréttaflutningur um þingmann sem ók ölvaður pólitískar ofsóknir? Vill Fréttablaðið kæfa málfrelsi á Íslandi? Svona klisjur vaða uppi í umræðunni þessa dagana en eins og stundum vill verða er hér á ferð flókið mál sem snýst um samviskuspurningar og kallar fremur á íhugun en upphrópanir.
Hví er togarableik brugðið?
16.9.2003
Formaður Landssambands íslenskra útvegsmanna er nú orðinn andvígur sértækum aðgerðum. Hann var það þó ekki á árum áður.
Hvað skiptir máli?
19.9.2003
Til er leiðindafólk í heiminum sem heldur að það sé huglægt mat fréttamanna hvað sé frétt. Það er ekki rétt. Um það gilda skýrar reglur sem hér eru raktar. Lesið þessa grein til að skilja hvað er mikilvægt í heiminum!
Maðurinn sem hataði strætó
24.9.2003
Hann var að flestu leyti venjulegur maður. Aðeins eitt gerði hann sérstakan: Óslökkvandi hatur á almenningssamgöngum.
Jón Steinar, Samfylkingin og fótboltinn
26.9.2003
Er Jón Steinar Gunnlaugsson "nútímalegur jafnaðarmaður"? Á að sameina öll félögin í Austurbænum? Hvenær eignast Fram nýjan Pétur Ormslev? Og hvað í andsk … er grein um innanhúsátök í Fram að gera á þessu vefriti?
Þjóðaratkvæði um stríð?
30.9.2003
Birgir Hermannsson heldur því fram að umræða um utanríkismál á Íslandi sé stöðnuð. Erfitt er að mótmæla því. En hvaða lausn býður Birgir upp á til að höggva á hnútinn?
Pólitísk tippisstækkun
3.10.2003
Einhver tilgangur hlýtur að vera með gegndarlausum tilboðum um tippis- og brjóstastækkanir í tölvupósti. Og nú er íslenskur stjórnmálaflokkur búinn að gera þetta að sínu helsta baráttumáli.
Lyf handa lömuðu ráði
7.10.2003
Það er eins gott að við Íslendingar ætlum að fá sæti í Öryggisráði SÞ. Það hættir kannski að vera svona „lamað“ þegar Davíð Oddsson tekur við stjórnartaumunum. Vei, vei!
Er al-Kaída til?
10.10.2003
Nánast daglega berast fréttir af einhverju sem okkur á Vesturlöndum er sagt að heiti „hryðjuverkasamtökin al-Kaída“. En það fyrirbæri er ekki til. Ha? Enn ein samsæriskenningin? Nei, aldeilis ekki. Lesið bara!
Trúfélög og pólitík
14.10.2003
Ásatrúarmenn mótmæla eyðingu hálendisins, en á meðan finnur biskup Íslands sér verðugri andstæðinga: Fyrst álfinn Staupastein og nú safnamenn á Stokkseyri.
Morgunblaðið hefur áhyggjur
17.10.2003
Hvenær lýstu vinstrimenn yfir eignarhaldi á íslenskri menningu? Eru listamenn á Íslandi upp til hópa fangar?
Snerist þetta þá alltaf um Halldór?
21.10.2003
Hvert var í reynd forsætisráðherraefni umræðuflokksins í síðustu kosningum?
Og aftur byrjar sami söngurinn …
24.10.2003
Enn einu sinni er fréttaflutningur af væntanlegum forsetakosningum árið 2004 undir þeim formerkjum að þær séu dýrar og vatn á myllu þeirra sem eru á móti embættinu.
Hinn afstæði sjálfsákvörðunarréttur þjóða
28.10.2003
Þessi grein er skrifuð á íslensku þótt einhverjum þyki það líklega dónaskapur.
Leiðtogi settur af
31.10.2003
Stundum er betra að setja af ómögulegan leiðtoga og taka sjensinn á átökum í kjölfarið. Íhaldsflokkurinn breski hefur núna tekið þessa áhættu. En er það nóg til að koma flokknum aftur í samband við raunveruleikann?
Jómfrúin opinberar fordómana
4.11.2003
Skoðanir Einars Karls Haraldssonar á trúfrelsi og islam eru athyglisverðar. Alþjóð fékk að kynnast þeim í þingsölum nú um daginn.
Görótt heimspeki Guðna
7.11.2003
Landbúnaðarráðherra ætti að láta dæmisöguaðferðina eiga sig.
Alþýðuflokkurinn lifir
14.11.2003
Sá lifir lengst sem … Neinei. Alþýðuflokkurinn sálugi átti sér aðdáendur. Og þeir voru báðir mjög dyggir. En pistlahöfundur Múrsins var aldrei í þeim hópi og hann er ekki heldur hrifinn af vofu Alþýðuflokksins sem nú stefnir ólm í faðm íhaldsins.
Kúgaðar konur og betra kynlíf
18.11.2003
Jólabókaflóðið er spegill tíðarandans. Hana nú! Jafnvel Björgvin gæti ekki gert betur í nykruðu líkingamáli. Allt ber að sama brunni: Bókaflóðsrýnir Múrsins var á krossgötum að framkvæma þá nauðsynlegu aðgerð að skoða flóðið í ár.
Löggildingastofa andófsmanna?
21.11.2003
Þau tóku upp nafn gamals dagblaðs og eru stolt yfir að standa gegn öllu sem Þjóðviljinn sálugi stóð fyrir. En nú var hann einmitt innihaldsríkur og skemmtilegur fjölmiðill með vönduðustu íþróttafréttirnar og skemmtilegustu teiknimyndasögurnar. Þessi grein fjallar raunar um hvorugt heldur um afstöðu þessa „sjálfskipaða“ (svo notað sé eftirlætisorð nýja þjóðviljans) málsvara einstaklingsfrelsisins til ýmissa athafna einstaklinga.
Veröld í steik
25.11.2003
"Síminn er eins og hakkið. Hakkið fer allt í steik" - sagði atómskáldið í Andrésblaðinu. Steiktur inngangur að grein um Lúðvík Bergvinsson, Jón Steinar og skrítinn Kastljósþátt? Heldur betur!
Afþreying er ekki aðeins fyrir Suðvesturhornið
28.11.2003
Til eru þeir sem sjá ofsjónum yfir því að fólk í dreifbýli skuli eiga þess kost að sjá Ali G, Sópranófjölskylduna og Nýgræðinga í sjónvarpi. Ekki greinarhöfundur Múrsins.
Af lestri og skilningi
2.12.2003
Það er eins gott að Flosi Eiríksson vinnur ekki í sjoppu - hann myndi bara afgreiða bingó-kúlur ef hann væri beðinn um bland í poka.
Skólamaður segir fátt í mörgum orðum
5.12.2003
Morgunblaðið helgaði miðopnu sína á dögunum langri grein um styttingu framhaldsskólans. Miðað við þá uppsetningu mætti ætla að í þessari grein kæmu fram ný grundvallarsjónarmið sem hefðu veruleg áhrif á umræðuna. En þegar hún er lesin verður ekki vart við neinar nýjar röksemdir í málinu. Grein fyrir alla áhugamenn um framhaldsskóla!
Línudansinn
9.12.2003
Talandi um orðaleik dauðans! Já, hér er fjallað um línuívilnun sem virðist ætla að vefjast mjög fyrir sjávarútvegsráðherranum sem sveiflast út og austur í málinu og allt stefnir í þingfarsa ársins.
Maddaman leyst af hólmi
12.12.2003
Eldhúsáhöldin frá George Foreman munu leysa heilbrigðisvandann. Að mestu. Kannski ekki kynsjúkdómana sem ungir framsóknarmenn hafa reynt að álykta út úr heiminum.
Skammdegisumræðan fer á flug
16.12.2003
Keisarans skegg er mjög umdeilt í skammdeginu og í ár hefur ekki skort hin bitastæðustu „skammdegismál“.
Skrifaðu sjálfan þig!
19.12.2003
Hvað gera greinarhöfundar á Múrnum þegar þeir eru hættir að fylgjast með stjórnmálum en eyða öllum sínum tíma í að perrast í bókabúðum? Nú, skrifa auðvitað um jólabókaflóðið og kalla það grein úr glerhúsinu.
Skiptir máli hver drepur hvern?
23.12.2003
Nokkrir þjóðarleiðtogar heimta nú dauðarefsingu yfir hinum fallna einræðisherra Írak. Hræsnin er þar algjör því að þetta eru í sumum tilvikum menn sem eru jafntrúaðir á ofbeldið og Saddam sjálfur.
Áramótaannáll Múrsins: Gerðist eitthvað árið 2003?
30.12.2003
Nei, eiginlega ekki. En samt gerðist smá og hér er það rifjað upp, hvort sem menn vilja eða ekki.
Hafa skal það sem hentar best
3.1.2004
Það mun vera heillavænlegt fyrir blöð að velja sér stefnu í samræmi við það sem sé "best" fyrir lesendur þeirra. Hver heldur fram slíkri forræðishyggju? Jú, einn af forvígismönnum hinnar íslensku "frjálshyggju" anno 2004.
Viljum við auðhyggjuna eða ekki?
6.1.2004
Væri ekki bara betra ef allir hefðu sömu kjör? Þá þyrftu menn ekki alltaf hreint að vera óskapast yfir launum annarra og þá tækjumst við líka á við grundvallarspurningar en ekki hið einstaka.
Lítið eitt um „handtöku“ Saddams Hússeins
9.1.2004
Skyndilega er það orðinn mikill sigur fyrir mesta hernaðarveldi heims að hafa náð einum hundeltum leiðtoga þriðjaheimsríkis. Vésteinn Valgarðsson skrifar um málið.
Menning - 4. árgangur
Úr frumskógi mannanafna – I. hluti
11.1.2003
Hvað þýða nöfn eins og Muhammad, Kurusawa, Fukuyama, Zedong, Úsama, Mohandas og Hussein? Þetta þurfa menn að vita.
Merkir Svíar XII: Hamar Þórs
14.1.2003
Hnefaleikar eru kannski ekki uppáhaldsíþrótt Múrsins en ei ber hinu að leyna að Ingemar Johansson hinn mikli þungavigtarboxari var bæði merkur og Svíi. Hann var kallaður Hamarinn og vann 26 af 28 viðureignum á atvinnumannsferlinum. Ekki er það lítið.
Um fagra menn
17.1.2003
Eflaust missir einhver kratinn úr slag við lestur þessarar greinar. Þakka skyldi.
Kraftmikið Kvetch
21.1.2003
Í Kvetch talar fólk hugsanir sínar. Það er fyndið. Annars er hér á ferð stutt sýning þar sem fetað er einstigið milli hláturs og gráts, sterk sýning, vel samið leikrit, Steinn Ármann og Edda Heiðrún í stuði. Semsagt gott.
Nokkrar lítt þekktar persónur úr norrænni goðafræði I: Frá Alfarni til Eldis
24.1.2003
Allir hafa gaman af því að heyra um Óðin og Þór. En enginn um Angeyju, Bölþorn og Delling. Eða hvað? Í menningu dagsins eru hinar gleymdu persónur úr norrænni goðafræði hafnar til vegs og virðingar.
Frægir Líbanir
28.1.2003
Hinn góðkunni leikari Keanu Reeves er fæddur í Líbanon en er samt ekki nefndur í þessari grein. Það eru þær hins vegar báðar, Shakira og Salma Hayek sem vill þó ekki vera Líbani. Og greinarhöfundur virðist haldinn pervers áhuga á stjörnu sem logaði skært en stutt árið 1987.
Herra Greipaldin og geldir menn
31.1.2003
Margt frægt fólk hefur látið undan þeirri löngun sem býr í hverjum manni að feta í fótspor Agötu Christie. Með afar mismiklum árangri. Þar á meðal eru höfundur Paddingtonbókanna, höfundur Bangsímons, og gallharður búlgarskur femínisti.
Eins og gull af eir...
5.2.2003
Fjallar þessi grein um fána? Um gull? Kopar? Helstu gildi í nútímarekstri? Höfund sjálfan? Vefritið Múrinn? Það má Guð vita, en lesið hana og reynið að komast að því.
Um fagra menn II
7.2.2003
Er strax komið að Jens Stoltenberg? Nei, ekki alveg, en greinarhöfundur boðar hann næst. Hinir mörgu aðdáendur Keanu Reeves geta hins vegar glaðst því að hér er fjallað um hann Svala, hawaískt ætterni hans, líbanska fæðingu, uppvöxt í Toronto og nokkra af fjölmörgum leiksigrum hans.
Leonardo svindlari
11.2.2003
Hinir mörgu aðdáendur bíórýni Múrsins geta tekið gleði sína. Tom Hanks og Leonardo Di Caprio sýna hvað þeir geta í skemmtilegri svindlaramynd sem ristir ekkert sérdeilis djúpt en er vel heppnuð sem slík. Er Leonardo kallinn að sækja í sig veðrið? Eldist Hanks jafn vel og gott rauðvín? Er bíórýnir Múrsins loksins farinn að treysta sér í bíó aftur, þó að allar aðrir myndir séu hversdagslegar hjá Turnunum tveimur?
Nokkrar lítt þekktar persónur úr norrænni goðafræði II
14.2.2003
Hver var Ennilangur? En Ganglöt? Og þessi Himinglæva ... hver var það? Og var einhver þessara íðilskapa? Eða jafnvel kynbótagimbur?
Schmidt fer í ferðalag
18.2.2003
Jack Nicholson enn einu sinni orðaður við Óskarinn? Ja, hann hefur oft verið verr að honum kominn.
Af (fögrum) stjórnmálamönnum
21.2.2003
Eru ungir stjórnmálamenn öðrum fegurri? Á Múrinn fegursta stjórnmálamanninn? Er fegurðamat nútímans of staðlað? Þessum og mörgum öðrum spurningum er svarað í menningu dagsins, eða ekki.
Líkið andar svo sannarlega
25.2.2003
Söngvamyndirnar? Dóu þær ekki með Judy Garland, Gene Kelly og Fred Astaire? Ja, kannski en eins og kötturinn eiga þær níu líf og virðast núna vinsælli en aldrei fyrr.
Frida á tjaldið
28.2.2003
Salma Hayek er ekki bara beib heldur hafði hún brennandi áhuga á kommúnistamálaranum Fridu Kahlo sem lét sitt seinasta verk fyrir dauðann vera að andmæla ódæðisverkum CIA í Guatemala en malar nú eftir lát sitt gull fyrir Miramax.
Ártíðir merkismanna XXXIX: Hinn tékkneski Stalín
4.3.2003
Mútur og milljónir eru efst á Baugi í íslenskri pólitík þessa dagana. Aldrei var Klement Gottwald sakaður um hvorki mútugjafir né mútuþægni en arfleifð hans er þó óskemmtileg. Þessi bóndasonur og smiður tók að sér að vera hinn tékkneski Stalín, og þó mun ennþá vera kennd við hann gata í Berlín. Og þvílíkur aðdáandi Stalíns var hann að hann dó rúmri viku á eftir harðstjórnarkennaranum sínum.
Dýrlingar og djöflar
7.3.2003
Allir umhverfissinnar skilja mikilvægi grasrótarinnar. EGG-leikhúsið er eitt helsta tilraunaleikhús landsins og setur nú upp innihaldsríkt leikrit í frumlegri uppsetningu, og leikhúsrýnir Múrsins lét sig að sjálfsögðu ekki vanta.
Norræn sérviska
11.3.2003
Nói albínói er góð kvikmynd að mati bíórýnis Múrsins. Hún er að þess utan dálítið finnsk. Sem er gott.
Safnrýni
14.3.2003
Vestur á Melum er stórmerkilegt safn um símatækni og fjarskipti, þótt vitaskuld megi alltaf bæta ýmislegt.
Þungbærar stundir
18.3.2003
Virginia Woolf var mikill snillingur og er sómi sýndur með nýrri bíómynd þar sem ástralska skutlan Nicole Kidman leikur hana, tvíefld eftir að hafa losnað við dverginn. The Hours er efnismikil kvikmynd og mun lifa lengi með áhorfendum.
Af fögrum geimköppum
21.3.2003
Einhverjum kynni að finnast það hlálegt að fordæma stríðstefnu Bandaríkjastjórnar í einu orði en skrifa svo um bandarískar kvikmyndir í öðru. En Múrinn á ekkert sökótt við bandaríska kvikmyndaleikara sem ætla margir hverjir að stunda hópskróp á Óskarsverðlaunahátíð dauðans í næstu viku. Þeir munu þá öðlast innri fegurð, en pistill dagsins er sem fyrr tileinkaður hinu ytra.
New York verður til
25.3.2003
Gangs of New York er kvikmynd sem kemur mjög á óvart, alveg fram að lokum. Þó hún sé langdregin er mikilvægt að sofna ekki. Þessi bíórýni er ekki fyrir þá sem vilja láta koma sér á óvart!
Læti á árshátíð glysheimsins
28.3.2003
Gael Garcia Bernal komst að kjarna málsins við Óskarsverðlaunaafhendingu bandarísku kvikmyndaakademíunnar - þótt Fréttablaðið hafi ekki hrósað honum fyrir hugrekki.
Skáld mánaðarins: Einar Bragi
1.4.2003
Einar Bragi á bráðlega afmæli og ekki úr vegi að líta sem snöggvast yfir feril hans.
Sungið á setrinu
4.4.2003
Geta sextugar konur verið kynbombur? Hvað ef Hercule Poirot og ungfrú Marple færu að syngja í miðri rannsókn? Er eyðni gott efni í söngleik? Eða eru Frakkar að ærast? Þrír ritnefndarmanna Múrsins hafa séð myndina Átta konur og leggja saman í bíórýni.
Finnar eru langflottastir
8.4.2003
Til er fólk sem mun ekki skilja húmorinn í Manni án fortíðar, nýjustu mynd Aki Kaurismäki. Megi það fólk hvergi þrífast því Kaurismäki er snilli og það sem meira er: hann er finnskur snilli. So there!
Póstmódernískt bíó
11.4.2003
Bíórýni dagsins er viðbjóðslega huglæg og póstmódernísk, eins og raunar myndin sem hún fjallar um. Þar að auki fer hún út um víðan völl. En það er kannski viðeigandi þegar verið er að fjalla um þá Spike Jonze og Charlie Kauffman.
Ofbeldi og glæpir
15.4.2003
Nú er hafin kvikmyndahátíð í skreppfæri frá bíórýni Múrsins og hann hefur ekki látið sig vanta. Tvær fyrstu myndirnar eiga það sameiginlegt að fjalla um eðli ofbeldis og glæpa, á gjörólíkan hátt þó. Lesendur Múrsins og aðrir róttæklingar ættu því að kappkosta að sjá þær báðar.
25 bestu lögin
22.4.2003
Ritstjórnarmeðlimur Múrsins er hvorki Árni Matt né Jens Guð, en samt velur hann 25 bestu lög allra tíma.
Góð stelpa, vondir smitberar
25.4.2003
Nú dámar mér ekki! Bíórýnir Múrsins er skyndilega farinn að sækja sexsýningar. Tvær myndir eru dæmdar. Annars vegar þarf þreytt eiginkona að velja milli ævintýra og leiðinda. Hin er um fólk sem á val um fátt annað en að reyna að breytast ekki í skrýmsli.
Vinsældalistagerð er vitleysa
29.4.2003
Í menningu Múrsins í dag er drullað yfir allt og alla og þó fallið í allar sömu gryfjur og varað er við.
Sjónvarp á vordögum
6.5.2003
Menningarþyrstir lesendur Múrsins munu grípa í tómt í dag. Hér birtist nú hin árstíðavissa sjónvarpsrýni Múrsins, jafn flatneskjuleg og venjulega. En allir aðrir fjölmiðlar eru með sjónvarpsrýni, jafnvel daglega og ennþá heimskulegri en sjónvarpsrýni Múrsins. Hvers vegna ekki við?
Merkir Svíar XIII: Ekki bara salerni
9.5.2003
Efsti maður Vinstrigrænna á Suðurlandi tók snöggt frí frá erfiðri kosningabaráttu til að kynna sér salernissögu Evrópu. Áttuðu menn sig á tengslum eins helsta baðkaraframleiðenda samtímans við Gustav 2 Adolf Svíakonung? Og hvernig koma Villeroy og Boch inn í þessa sögu? Eða bjölluframleiðandinn Friedland? Einhver svör fást í menningargrein dagsins.
Sögubrot af Tyrkjum XIV: Þrautaganga Hikmets
13.5.2003
Á dauða sínum áttu menn kannski von en ekki að þessi greinaflokkur risi úr öskustó. En Sögubrot af Tyrkjum eru nú snúin aftur. Samt er engu líkara en að Sögubrotin séu runnin saman við annan ónefndan greinaflokk því að hér er aðeins einn Tyrki í öndvegi. Muna þetta eflaust valda miklum deilum í ritnefnd Múrsins.
Stuð hjá þeim stökkbreyttu
20.5.2003
Bíórýnir Múrsins er ekki almennur hasarmyndaaðdáandi en skellti sér samt á X2 um daginn og skemmti sér vel. Niðurtalningin að Matrixferð hans er líka að hefjast! Í X2 mætast Star Trek, James Bond, Hannibal Lecter og Lord of the Rings í skemmtilegri blöndu sem er hvorki trúverðug né innihaldsrík, hins vegar mikið stuð.
Meira Matrix
27.5.2003
Sumir hafa kallað fléttu Matrix Reloaded þá næfurþynnstu frá því að nælon leysti lopasokka af hólmi. En hvað segja bíórýnar Múrsins? Er Matrix bara umbúðir? Er hér djúp heimspeki á ferð? Eða bara gelgjuleg ást bíórýna Múrsins á Keanu Reeves? Og hvað er grísk Persefóna að flækjast með frönskum Meróvíkingi? Ekki ímynda ykkur að svörin sé að finna í þessari grein.
Safnrýni – nýlist og sjóminjar
3.6.2003
Það getur fylgt því ábyrgð og útgjöld að þiggja gjafir. Það á jafnt við um málverk sem steðja og veiðarfæri.
Skapa afrekin fegurðina?
11.6.2003
Og það sem meira máli skiptir: Er nauðsynlegt að skjóta þá?
Af Herjólfi og Grímunni
18.6.2003
Allir helstu fyrirmenn þjóðarinnar, þar á meðal forseti Íslands, fv. forseti Íslands og einn af varaþingmönnum Samfylkingarinnar, mættu og afhentu íslensk leiklistarverðlaun á mánudaginn. Leiklistarrýnir Múrsins horfði að sjálfsögðu á skrautsýninguna en fór líka á annars konar sýningu, á nýju íslensku verki eftir nýtt íslenskt leikskáld.
Hvað er hugarfarssaga?
25.6.2003
Menningin í dag er harðsoðin, en veitir ákveðna innsýn í vinnubrögð og hugmyndir þeirra sem skrifa í þetta vefrit.
Þematískar endursýningar, takk!
4.7.2003
Haldið ykkur fast kratar allra landa. Múrinn ætlar í dag að hafa skoðun á sjónvarpsdagskránni... og ekki í fyrsta sinn! Ó mæ god!
Rápað um austfirsk söfn – I hluti
8.7.2003
Á Austfjörðum er margt merkilegt. Í dag fjallar Múrinn um söfn á Höfn. Höfn er þó ekki á Austfjörðum.
Rápað um austfirsk söfn – II hluti
15.7.2003
Ein Múreggin heldur nú áfram umfjöllun sinni um austfirsk söfn. Í þetta sinn er meira að segja fjallað um söfn sem sannanlega eru á Austfjörðum.
Rápað um austfirsk söfn – III hluti
24.7.2003
Eskfirðingar átu kannski kartöfluútsæðið og brenndu girðingarstaurana, en þeir kunna svo sannarlega að setja upp skemmtilegar sýningar.
Múrinn leggur land undir fót
31.7.2003
Kitsch-kirkjugluggar, Ibiza-helvíti, gott og vont kaffi og þynnka á listasöfnum er meðal þess sem Múrinn kynntist í stuttri ferð sinni til Akureyrar. Spennandi?
Frá skáldsögu til flugvélar til popplags
6.8.2003
Uppruni nafna, eða nafns öllu heldur, er menningarrýni Múrsins hugleikinn nú um mundir. Fá nöfn eiga jafn ólíka og viðburðarríka sögu og umfjöllunarefni dagsins.
Hasta la vista, baby
12.8.2003
Á meðan beðið er eftir nýjustu Múrstiklunum og safnarýninni er hér beint sjónum að manni frá Austurríki sem þurfti að fara til útlanda til að slá í gegn. Þar stóð hann fyrir miklum fjöldamorðum. Hitler? Nei, Arnold, og fjöldamorðin eru sem betur fer bara í plati. En framboð Arnolds? Er það í plati?
Sérstaða Íslands
15.8.2003
Við Íslendingar erum menningarlegasta þjóð í heimi. Svo menningarleg að við þurfum varla neina menningu. En hvernig fer það saman?
Tveir á toppnum
19.8.2003
Þurfa góðir bíórýnar að fara í bíó? Og er hægt að ímynda sér að hinn geðþekki Harrison Ford sé kominn á sjötugsaldur? Þessu og fleiru svarað í margslunginni bíórýni Múrsins.
Múrstiklur snúa aftur
22.8.2003
Loksins, loksins. Að þessu sinni eru Strandir og Barðaströnd teknar fyrir.
Johnny Depp í sjóræningjabúningi
26.8.2003
Depp mætir sterkur á hinsegin daga, Geoffrey Rush kreistir þrívídd úr klisjukenndasta bandíttahlutverki og Keira Knightley er stuðboltastelpa í rókókókjól. Enginn með viti lætur sig vanta þegar sjóræningjar eru á hvíta tjaldinu.
Hugdjarfir og hraustir — Enn eitt fróðleikskornið um fagra menn (hver er að telja þau?)
29.8.2003
Fegurðarrýnir Múrsins hefur horft slefandi á heimsmeistaramótið í frjálsum. Og þó að Jón Arnar hafi gefist upp á þriðju grein var nóg eftir að tékkneskum landsbyggðarpoppurum, tattóveruðum kasakstönum og svo honum Roman sjálfum — manninum sem að mati fegurðarrýnis sameinar allt það besta í fari eins karlmanns.
Múrstiklur í sumarlok
2.9.2003
Það er við hæfi að ljúka sumrinu með hinum sívinsælu Múrstiklum. Að þessu sinni verður fjallað um tvær gönguleiðir í nágrenni Reykjavíkur sem þó eru bæði erfiðar og hættulegar. Er mælt með að viðkvæmar sálir lesi ekki þessa grein.
Merkir Svíar XIV: Þí þarta láda sonna!
5.9.2003
Sumir lesendur Múrsins eru kannski svo háaldraðir að muna þegar lagið Movie Star með Harpo var eitt vinsælasta dægurlagið um alla Evrópu. En færri vissu kannski — og þó vissu það kannski allir — að hér er á ferð enn einn merki Svíinn!
Merkir Svíar XV: Svíar hertaka Hollywood!
10.9.2003
Þetta er alveg eins og Indriði sagði: Sænska mafían er alstaðar. Og því fagna auðvitað allir góðir menn.
Allt um Evópukeppnina…
16.9.2003
Hvað gerist þann ellefta október næstkomandi? Mun Norðmönnum duga sigur á heimavelli gegn Lúxemborgurum? Nægir Lettum jafntefli ef Pólland vinnur Ungverjaland? Ná Englendingar jafntefli í Istanbúl? Hvernig mun Króötum vegna í Búlgaríu? Já, lokaumferðin í forkeppni Evrópumótsins er á næsta leiti.
Karlar í konuleit
19.9.2003
Leikhúsrýnir Múrsins hefur sem kunnugt er mikinn áhuga á sjálfstæðum leikhópum og fór nýlega í Tjarnarbíó að kynna sér leikrit frá Keflavík sem stendur vel fyrir sínu þó að það sé ekki sérdeilis frumlegt.
Óður til 19. aldar
24.9.2003
Bíórýnir Múrsins hefur nú hafið störf af fullum krafti þó að bíóhúsin hætti stundum að sýna myndir um leið og hann sést hjá þeim. Í þetta skipti fjallar hann um kvikmynd sem snýst öll um textavensl.
Fertugi maðurinn í vanda
26.9.2003
Nú eru næstum 120 ár síðan Gestur Pálsson leiddi þrítugu konuna inn í íslenskar bókmenntir eftir að Balzac fann hana upp. Þá er kominn tími til að fertugi maðurinn sé leiddur inn í íslenskar leikbókmenntir. Leikritið Pabbastrákur er merkileg tilraun til þess.
Hvað er vandræðalegt?
30.9.2003
Það er svo margt. Of margt.
Mambó nr. 2
3.10.2003
Það er ekki sama hver rýnir í gömul söfn. Hvað þá bréfasöfn. En á það sama við um myndir? Ha? Hvað segiði þá um það?
Frumleikinn ræður í Hafnarfirði
7.10.2003
Í Hafnarfirðinum búa stórvaxin kona og dvergur. Þar má líka finna fólk sem bara borðar banana og ber brúðarkjóla. Og hvað eru mörg b í því?
Venjulegir unglingar og fjöldamorð
10.10.2003
Gus Van Sant hefur leikstýrt mörgum úrvalsmyndum og öðrum margverðlaunuðum. Fíll er þó ein sú allrasterkasta hingað til.
Bjarta og svarta Ameríka
14.10.2003
Ef marka má tvær seinustu myndir sem kvikmyndarýnir Múrsins hefur augum litið, þá er erfitt að alhæfa um bandaríska kvikmyndagerð.
Afríski boltinn
17.10.2003
Þjóðviljinn var með bestu íþróttafréttirnar í tíð Víðis Sigurðssonar á blaðinu. Og-þó-grein föstudagsins yljar þeim sem muna þá daga og hugsanlega fleirum.
Afríski boltinn – sitthvað um Chad
21.10.2003
Fyrir þá sem ekki fengu nóg fyrir helgi ...
Mikki refur í góðu stuði
24.10.2003
Ekki eru heimildir um að leikhúsrýnir Múrsins hafi verið gripin með gervifléttur, í ljósum samfestingi og með sleikjó að reyna að komast inn á Dýrin í Hálsaskógi sem börn. Í þetta sinn var hins vegar fengið barn lánað. En hvað fannst leikhúsrýni Múrsins um Lilla klifurmús anno 2003? Þessi spurning er á hvers manns vörum og verður svarað í þessari grein.
Afríski boltinn – litið yfir söguna
28.10.2003
Fyrst kom almenna yfirlitsgreinin. Svo var Chad tekið fyrir. Nú er kafað í sögu forkeppna HM.
Afríski boltinn og Ólympíuleikarnir
31.10.2003
Össur Skarphéðinsson, fv. forsætisráðherraefni Samfylkingarinnar, er nefndur í þessari grein. Hún er þó ekki um hann heldur er hér á ferð enn ein (suk!) greinin um afríska boltann. Er þetta ekki nördisminn frá helvíti?
Ástarsaga úr Flokksstarfinu
4.11.2003
Stjórnmálaflokkar geta verið vettvangur hryllings eða hamingju. Og stundum hvors tveggja í senn.
Maður er að horfa á bikararkvöld
7.11.2003
Nú fá menn daskið. Alveg. Er dask annars góð íslenska?
Þríleikur brotlendir
14.11.2003
Matrix Revolutions hefur ekki fengið góða dóma alls staðar. En hvað segir formaður aðdáendaklúbbs Keanu Reeves á Íslandi sem fór nýlega á myndina ásamt óbreyttum meðlimi klúbbsins?
Eipað á stóra sviðinu
18.11.2003
Menningarvitar Múrsins (stundum kallaðir Statler og Waldorf) virðast ofurseldir ógæfu þessa dagana. Í síðustu viku horfðu þeir á þríleikinn um Matrix brotlenda og nú um helgina skelltu þeir sér í Þjóðleikhúsið á sjálfan Ríkharð þriðja sem var vægast sagt óvenjuleg reynsla.
Leðurfésið gengur aftur!
21.11.2003
Mun litli og fallegi svarthærði strákurinn sem les Njálu og meiraðsegja Bubbi Morthens er skotinn í vinna Ídol-keppnina? Þessari grundvallarspurningu verður ekki svarað í menningargrein dagsins því að hún fjallar um aðra og skuggalegri hlið afþreyingarmenningarinnar, þar sem Íslendingar hafa raunar líka orðið stórstjörnur, að vísu með grímu. Bjarni Tryggva hvað?
Afríski boltinn – spennan magnast
25.11.2003
Abdelmalek Cherrad reyndist karl í krapinu, en Sang Ndong snáðinn í snjónum. Fótboltaspekúlant Múrsins er ekkert að grínast með þennan greinaflokk svo það er alveg eins gott að byrja að lesa...
Óvissan heldur manni við efnið
28.11.2003
Bíórýnir Múrsins hefur lengi verið aðdáandi Dennis Lehane og ekki síður Clint Eatwood. Mystic River gerir ekkert annað en að efla hann í því.
Sáldur úr sögu vesturferða VI: Íslenskir kúrekar
2.12.2003
Þeir gauluðu ekki inn á plötur, seldu ekki hamborgara og franskar, héldu ekki útihátíðir en hver veit hvað þeir hefðu gert ef útvarpið hefði komið fyrr til sögunnar?
Fegurstu menn fornsagnanna
5.12.2003
Umsjónarmaður Fróðleikshorns um fagra menn er ekki sífellt með hugann við Keanu Reeves. Nei, í fornsögunum er líka margt fagurra manna. Grein fyrir alla aðdáendur eipgreina!
Stuð í breska flotanum
9.12.2003
Moby Dick án hvals? Gladiator á úthöfunum? Hobbitar í flotanum? Jájá, Master and Commander er þetta allt; þar er meiraðsegja Bráðavaktin í miðju kafi og auðvitað hýðingar og sjávarháski, í stuttu máli allt sem dregur mann í bíó.
Meira af fögrum fornsagnaköppum
12.12.2003
Kynbótahrútar, Keanu Reeves (óvænt?), Skarphéðinn, Gunnar, Hasselhoff og allir hinir. Eipið í þessum dálki ríður ekki við einteyming nú fremur en endranær.
Það gerist í Afríku — dregið í riðla fyrir HM
16.12.2003
Hver er frægasti stuðningsmaður Búrkína Fasó á Íslandi? Fræðist um það í þessari fáránlega ítarlegu grein um afríska boltann.
Miðaldir snúa aftur
19.12.2003
Að þessu sinni er eina pólitíska greinin á Múrnum úr flokknum sem ekki er helgaður pólitík. Eru Múrverjar orðnir snælduvitlausir? Gátu þeir orðið steiktari? Ja, eins og þorpsfíflið sagði: sá hlær best sem hlær, en ég hlær ekki.
Útrás fyrir ástsjúka
23.12.2003
Gamli Blackadder-gaurinn er greinilega að semja eins konar „þríleik“ um ástina með Hugh Grant í broddi fylkingar. Í þetta sinn gengur þetta bara ágætlega, þó að Ástin raunar jafnist ekki á við Fjögur brúðkaup.
Ævintýrið hverfur inn í móðurlífið
30.12.2003
Vinsælasta kvikmyndabálki allra tíma er nú lokið. Múrinn var að sjálfsögðu á staðnum og hefur skoðun á öllu, allt frá múmökum til Viggós Mortensen, írskum vikapiltum og kvenskapatáknandi dyrum.
... og þó ársins 2003
3.1.2004
Við áramót er tími til margs, þ. á m. sjálfsupphafningar. Hér verður velt fyrir sér því besta í greinaflokkum Múrsins á árinu.
Enn um Afríkuforkeppni HM – annar hluti
6.1.2004
Þriðji og fjórði riðill Afríkuhluta forkeppni HM í knattspyrnu eru til umfjöllunar hér en þar eru ófá merkileg lið. Fræðist um íkornana frá Benín og nýja 19 ára stjörnu í liði Gabon!
Merkir Slóvakar: Marilyn, Magnum, Madagaskar og M
9.1.2004
Þaðan komu bæði Káta ekkjan og Næturdrottningin. Þaðan komu barnamorðinginn illræmdi, fyrsti konungur allrar Madagaskar, maðurinn sem færði okkur Draugabana og sá sem fann upp fallhlífina. Jú, og vorið í Prag kom líka þaðan.
|