Múrinn-vefrit um þjóðmál, pólitík og menningu
Múrinn-vefrit um þjóðmál, pólitík og menningu
 
 

5. árgangur

Katrín og kúrekastígvélin 10.1.2004
DV pönkast á ungri þingkonu fyrir að mæta í viðtöl um hluti sem ekkert hafa með pólitík að gera. Þetta er sannkölluð hræsni.

Pólskipti í sandkassanum 11.1.2004
Ef annar segir A þá segir hinn alltaf B. Og öfugt.

Duglausir Danir stela sýndarviðburði 12.1.2004
Um helgina reyndu Danir að stela því afreki frá Íslendingum að hafa bjargað heimsbyggðinni frá gereyðingavopnabirgðum Íraka. Það virðist hafa tekist, en raunar tók hvort sem er enginn eftir þessu.

Skrifborð kemur í leitirnar 13.1.2004
Ráðamenn þjóðarinnar hafa ákveðið að fagna afmæli heimastjórnar með því að safna saman munum sem tilheyrðu fyrsta ráðherranum. En hver breytti íslensku samfélagi mest til farsældar, ráðherrann eða fólkið sem þrælaði við erfiðar aðstæður í von um betri tíð?

Konur: Hættum þessum barneignum! 14.1.2004
Með því að mismuna kynjunum eftir launum er konum gefið val, að sleppa barneignum eða sætta sig við að vera annars flokks vinnuafl.

Vinna með námi og styttri framhaldsskóli 14.1.2004
Tinna Traustadóttir birti nýlega áhugaverða grein um styttingu náms til stúdentsprófs. Í tilefni af því er ástæða að ræða betur sumar þær röksemdir sem komið hafa fram í umræðunni.

Til minningar um horfinn heimsviðburð 15.1.2004
Þegar íslenskir starfsmenn landhelgisgæslunnar, sem nú hafa fyrirvaralaust verið gerðir að hermönnum, fundu íraskar sprengikúlur um daginn forðuðust fjölmiðlar um allan heim gífuryrtar yfirlýsingar. Utanríkisráðherra Íslands ákvað að skera sig úr og stendur nú eftir sneyptur.

Pétur Blöndal og orðið vanhæfi 15.1.2004
Gæsalappir eða ekki? Það einkennir heitustu mál þessa daga að þau snúast gjarnan um form en ekki inntak. Einn af stjórnmálaflokkunum hefur alveg sérstaklega mikinn áhuga á formi en nánast engan á inntaki og sá flokkur gerir nú harða hríð að Pétri Blöndal. Er hann vanhæfur í sparisjóðsmálinu? Eða er hann það ekki en hefði samt átt að víkja?

Okkar tíkarsynir II:
Somozaættin í Nicaragua
16.1.2004
Brjóstvörn frelsisins studdi Somoza í gegnum þykkt og þunnt þar til hann fór að láta myrða þjóðþekkta, hægrisinnaða stjórnarandstæðinga.

Milljón á sekúndu 17.1.2004
Það eru alltaf til nógir peningar í stríð en öðru máli gegnir um friðarmál.

Er afnotum af Úsbekistan lokið? 18.1.2004
Bandaríkjastjórn hefur nýverið uppgötvað mannréttindabrot í Úsbekistan og hyggst skrúfa fyrir svokallaða efnahagsaðstoð til landsins.

Raunveruleikasjónvarpsvertíðin 2003-2004:
Fyrri hluti
18.1.2004
Þeir sem hafa saknað sjónvarpsrýni Múrsins geta nú báðir tekið sig gleði sína. Að þessu sinni lítur sjónvarpsrýnir yfir farinn veg og metur „veruleikaþætti“ haustmisserisins.

Þegar það gerist – ekki 19.1.2004
Þránni eftir að komast í fullorðinna manna tölu hefur ekki verið svalað, heimsatburðurinn var draumsýn og niðurlægingin er algjör.

Friðarsinni á forsetastól? 19.1.2004
Haukur Þorgeirsson bendir á að ferill Wesley Clark sé ekki beinlínis glæstur, þótt hann segist nú alltaf hafa verið á móti Íraksstríði.

Landið sem ekki kemst á kortið 20.1.2004
Það finnst hvergi á landakorti og enginn veit hversu margir búa þar en það er athyglivert fyrir margt annað.

Rýnt í brunn Ingólfs 20.1.2004
Man einhver Ingólfsbrunn? Veitingahúsarýni Múrsins er komin lengst niður í kjallara í þetta sinn.

Er hægt að eignast einkarétt á lífi? 21.1.2004
Getur Monsanto "átt" plöntur og fræ sem þær þroska ef útsæðið kom frá Monsanto?

Sjálfstæðisbarátta Færeyinga heldur áfram 22.1.2004
Sjálfstæðisbarátta Færeyinga vann óvæntan varnarsigur á þriðjudaginn og spennandi tímar eru framundan í færeyskum stjórnmálum.

Kalt land, kaldar sálir 23.1.2004
Bíórýnir Múrsins brá sér á mynd Hilmars Oddssonar, Kaldaljós, og var nokkuð ánægður þó að myndin sé nokkuð hæggeng. Ingvar fer á kostum.

Skrítna fólkið í útlöndum 23.1.2004
Baugsfeðgar myndu gera vel í því að nota eitthvað af auði sínum til að kaupa bækur á fréttastofur fjölmiðlanna sinna.

Rífum upp Hlemminn! 24.1.2004
Það vantar torg í Reykjavík. Ekkert þeirra torga sem nú er í Reykjavík stendur undir nafni.

Hver er maðurinn? 25.1.2004
Þegar íslenskir fjölmiðlamenn eru búnir að taka nokkrum sinnum viðtal við sama manninn um hersetuna á Íslandi á þeim forsendum að hér sé á ferð hlutlaus álitsgjafi, þá er kannski ástæða til að rifja upp hver hann er og hvaða hagsmuna hann á að gæta.

Framtíð bresks menntakerfis eða eins manns? 26.1.2004
Fréttir úr breskri pólitík snúast þessa dagana aðallega um pólitískt líf forsætisráðherrans en þar eru þó mun merkilegri hlutir í húfi.

Almenningur vill gott heilbrigðiskerfi 27.1.2004
Miklu er vissulega eytt til heilbrigðismála á Íslandi. En eru það endilega vond útgjöld? Og af hverju stafa þau og hver ber ábyrgðina?

Nýsköpun tungumálsins 28.1.2004
Oft sprettur upp mikil umræða um svokallaða hreintungustefnu hér á landi. Sýnist þá sitt hverjum og verður umræðan oft æði tilfinningaþrungin.

Danir, vinir þeirra og allir hinir 29.1.2004
Danir íhuga nú að setja löggjöf sem flokkar útlendinga í landinu í A og B flokk þegar kemur að því að sækja um ríkisborgararétt.

Yfirklór Huttons 30.1.2004
Tony Blair fagnar Huttonskýrslunni, sem eðlilegt er. Þeir sem unna sannleikanum hafa hins vegar enga ástæðu til þess.

Niður með handboltann – upp með bagalinn! 30.1.2004
Hvort ætli sé ótrúlegra, tap Íslands í Evrópumótinu eða sú staðreynd að þeir félagarnir Olsson og Wieslander séu enn á lífi og meiraðsegja enn að keppa í handbolta? En greinin dagsins fjallar ekki um neitt af þessu.

Hverjir hafa lítilsvirt Sameinuðu þjóðirnar? 31.1.2004
Hann átti gereyðingarvopn, hann átti ekki gereyðingarvopn, hann átti ...

Fjölskylda í fokki 1.2.2004
Leiklistargagnrýnandi Múrsins fór á Eldað með Elvis.

Dagur í lífi Jónínu 2.2.2004
Jónína Bjartmarz er með vinnusamari þingmönnum Framsóknarflokksins, jafnvel stjórnarliðsins í heild. En hún má hafa sig alla við ef hún ætlar að standa við þau orð sín að samdrátturinn á Landsspítala-Háskólasjúkrahúsi hafi „nánast engin áhrif á sjúklingana“ eins og henni fannst svo frábært að vita til á dögunum.

Í stórfiskaleik 2.2.2004
Ödipusarduld, lygar og sirkusfrík — er betri uppskrift til að ná sér í berrassaðan kall?

Um samkeppni háskóla 3.2.2004
Rektor Samvinnuskólans (sem nú kallar sig Háskólann á Bifröst) telur sig vera í samkeppni við Háskóla Íslands. En lítið ber á faglegum metnaði af hans hálfu í þeirri samkeppni.

Ammæli 4.2.2004
10 ára afmæli voru endalaus uppspretta gleði, magapínu og velktra peningaseðla. Öðru máli gegnir um 100 ára afmæli.

Spurning um forgangsröðun 5.2.2004
Í dag eru á milli 50 og 70 manns heimilislausir í Reykjavík. Forgangsröðun stjórnvalda er slík að ekki virðist vilji til að leysa þennan vanda.

Svamlað í kampavíninu 5.2.2004
Núna jafnast sundstjörnur ekkert á við Mínus þegar kemur að skandölum en sú var tíð að sundstjörnur lýstu allan himininn í Vesturheimi.

Djöfulleg drápsvél 6.2.2004
Franska heimildamyndin S 21 La machine de mort Khmer er með átakanlegri kvikmyndum enda veitir hún sjaldgæfa innsýn í einhverja átakanlegustu atburði 20. aldar.

Hermálaþjóðhverfan 7.2.2004
Hugmyndin um Evrópuherinn er að vísu ný og svo sannarlega ekki ættuð úr kalda stríðinu en þar með er ekki sagt að hún sé mjög góð eða frumleg þegar betur er gáð.

Forsetinn óþarfur? 8.2.2004
Seinustu árin hefur ágerst umræða um að leggja beri forsetaembættið niður. Fyrir utan þau mikilvægu rök að Ólafur Ragnar Grímsson sé kommúnisti og vondur maður hafa þau rök einna helst verið tínd til að embættið sé valdalaust og dýrt.

Miskunnsamir Samverjar 9.2.2004
Það er ekki nýtt að kúgarar heimsins telji sjálfum sér og öðrum trú að þeirra kerfi sé hið mannúðlegasta sem völ er á.

Kerry: „Forsetalegur“ forseti? 10.2.2004
John F. Kerry hefur réttu upphafsstafina að mati margra (JFK) og ekki spilla góð tengsl hans við Heinz-tómatsósu. En hvað hefur hann fleira fram að færa?

Gult herbergi og steingrátt Evrópusamband 10.2.2004
Þessi grein fjallar ekki um bíómyndina um fuglana heldur þvert á móti um tvær lítt áberandi franskar myndir, báðar í léttum dúr. Raunar líka pínulítið um þá list að vera á kvikmyndahátíð. Ekki að það skipti nokkru máli enda les enginn þessa fokkíng útdrætti spútdrætti.

Skyldunám er ekki lausnin 11.2.2004
Þvingað íslenskunám á kostnað innflytjenda sjálfra er versta leiðin og í reynd ávísun á vandamál.

Samkynhneigð og velferðarmál 12.2.2004
Hvar liggja sóknarfæri demókrata gagnvart George W. Bush í komandi forsetakosningum?

Líf á gúrkutíð 13.2.2004
Það er eins og íslensk stjórnmál séu í biðstöðu um þessar mundir. Áherslur Sjálfstæðisflokksins drottna í umræðunni án þess að þær séu endilega mjög vinsælar. Eiga hinir flokkarnir eitthvað svar?

Tapað - fundið 14.2.2004
Þeir sem kynnu að hafa séð fjórar Orion-P3 kafbátaleitarflugvélar eru beðnir að hafa samband við utanríkisráðuneytið. Strax.

Málfrelsið sigrar í Frakklandi 15.2.2004
Olíurisanum Exxon/Mobil, sem við þekkjum betur undir nafninu Esso, varð hált á því að lögsækja gagnrýnendur sína í Frakklandi.

Ástir eldra fólks — og yngra 16.2.2004
Allir muna myndina þegar þar sem þau Sean Connery og Catherine Zeta-Jones voru par eins og ekkert væri sjálfsagðara. Aldrei þessu vant er nú í bíóhúsum gamanmynd þar sem aldursmunurinn er á hinn veginn, þó að það kalli að sjálfsögðu á umtal.

Allt nema hvað? 17.2.2004
Fyrirlestur Diönu Wallis um stöðu Íslands eftir stækkun ESB var eftirminnilegur.

Óvirki nemandinn 18.2.2004
Væri lífið ekki betra og ríkissjóður stöndugri ef ekki væri fyrir alla kapal-leggjandi slugsana sem hanga í Háskólanum og senda heiðvirðu fólki langt nef í skólagjaldaleysi sínu? Ööö... eða ekki.

Þegar draumar rekast á 18.2.2004
Vilt þú að húsið þitt sé selt ofan af þér fyrir skattskuldir sem þú áttir aldrei að greiða og síðan keypt af óðum írönskum ofursta frá keisaratímanum? Nei, auðvitað ekki en málið er ekki alveg svona einfalt þegar draumar rekast á.

Smádjöflarnir og Bessastaðir 19.2.2004
Tveir hafa tilkynnt framboð til embættis forseta og verður væntanlega kosið í júní. Reynsla Péturs Hoffmanns Salómonssonar af því að lýsa yfir framboði gegn sitjandi forseta árið 1956 er upprifjunar verð.

Ísland og Túvalú góð saman 20.2.2004
Spegillinn fyllti upp í dagskrána með skondinni frétt um stjórnmálasamband Íslands og Túvalú. Eins fyllir Múrinn í sína dagskrá með vangaveltum um sama mál.

Fótbolti í skugga hernáms og kúgunar 21.2.2004
Í fréttum hins virðulega ríkissjónvarps var nýlega sagt að Talibanar hefðu bannað knattspyrnu í Írak. Fréttamaðurinn hafði raunar ekkert fyrir sér í því en vissulega hafa sum knattspyrnulið í þessum heimshluta þurft að búa við kúgun, eins og hér er fjallað um.

Vilja Vesturlönd lýðræði? 22.2.2004
Miðað við hugmyndirnar sem Bandaríkjastjórn leggur fyrir sameiginlegan fund sjö stærstu iðnríkja heims og Rússlands stendur ekki til að styðja þróun í átt til lýðræðis í Mið-Austurlöndum, öfugt það sem boðað var fyrir árásina á Írak.

Hver er Indulis Emsis? 23.2.2004
Hann er orðinn forsætisráðherra Lettlands, fyrstur græningja í Evrópu og þó víðar væri leitað.

Áratugur vonar á enda á Haiti 24.2.2004
Í fyrradag hertóku uppreisnarmenn á Haiti Cap Haïtien, næststærstu borg hins fátæka ríkis á vesturhluta eyjunnar Hispaniolu. Borgarastyrjöldin sem nú geisar á Haiti hefur þegar kostað yfir 70 manns lífið en pólitísk óöld, gríðarleg útbreiðsla alnæmis og fátækt hafa einkennt þjóðlíf eyríkisins undanfarin ár.

Stríðshrakningar venjulegs fólks 24.2.2004
Fullt af sætum leikurum af báðum kynjum og ýmsum þjóðernum sem eru þó sveittir, skítugir og blóðugir. Fallegt landslag, ást og þráhyggja, sultur og þorsti, ömurlegt fólk og hjartahreint. Kaldbakur er epík af besta tagi og verðugur arftaki Intolerance og Á hverfanda hveli.

Óleiðitöm frelsishetja ögrar Bandaríkjunum 25.2.2004
Vojislav Kostunica var í miklu uppáhaldi á Vesturlöndum þegar Milosevic var sparkað út úr forsetahöllinni í Belgrad. Það kann að breytast nú þegar Kostunica er farinn að ögra sínum gömlu vinum.

Er rússneska leiðin best? 26.2.2004
Þeir Íslendingar sem fárast yfir mögulegum forsetakosningum í sumar á þeim forsendum að þær verði kostnaðarsamar, hljóta að skrifa upp á kosningasvik Pútíns í síðustu forsetakosningum og þau bellibrögð sem hann kann að beita að þessu sinni.

Týndur í landi sólar 26.2.2004
Bill Murray er jafn steinrunninn og Rushmorefjall í gamanmyndinni Týnist í þýðingunni sem á verulega góða spretti en tekst þó aldrei að verða jafn djúp og hún ætlar sér.

Spáð fyrir um óskarsverðlaun 27.2.2004
Helgin nálgast og Múrinn er á léttu nótunum í dag, enda „fisléttur föstudagur“.

Nýtt líf í gamlar tuskur? 28.2.2004
Nýlega ákváðu kanadískir hægrimenn að stofna sinn sjálfstæðisflokk aftur; nýfrjálshyggjumenn og íhaldsmenn hafa sameinast á nýjan leik þar í landi eftir langt og stormasamt tilhugalíf.

Rögnvaldur 29.2.2004
Hann er enn á lífi, þó að efast verði um að hann viti af því, langlífasti forseti Bandaríkjanna fyrr og síðar og enn fremur einn af þeim vinsælustu. Efnt hefur verið átrúnaðar á hann meðal hinna svokölluðu nýja hægrimanna. En hver var hann?

Krabbamein á þjóðarlíkamanum 1.3.2004
Á föstudaginn er hægt að minnast merkisdags, þ.e. stofnun hins íslenska bananalýðveldis, en meirihluti kjósenda lagði síðan blessun sína yfir gjörninginn í kosningum tveimur mánuðum síðar.

Peningana eða lífið? 2.3.2004
Flestir ættu að vita núorðið hvað það þýðir þegar ráðherrar Framsóknarflokksins segja að ekki standi til að vinna tiltekin náttúruspjöll. Og þegar tekið er fram að einungis sé verið að breyta lögunum um verndun Laxár og Mývatns til að hægt sé að gera mat á umhverfisáhrifum vegna hugsanlegra framkvæmda, þarf enginn að velkjast í vafa.

Nýir möguleikar í almenningssamgöngum 3.3.2004
Eru léttlestir raunhæfur valkostur i reykvískum almenningssamgöngum? Svar Múrsins er játandi.

Rokk og róttæklingar 4.3.2004
Liðsmenn Styx hafa líklega aldrei hafst við í skógum Tasmaníu enda á nafn sveitarinnar ekkert skylt við Styx-dalinn þar sem umhverfisverndarsinnar standa nú vaktina.

Sumir hugsa, aðrir hlusta 5.3.2004
Merkilegt er að sjá þingmenn Samfylkingarinnar taka lýðræðið upp á arma sína einu ári eftir að þeir felldu tillögu VG um þjóðaratkvæðagreiðslu um Kárahnjúka.

Að mega eða mega ekki 7.3.2004
Það er óneitanlega merkilegt að fylgjast með jafn ólýðræðislegri umræðu og þeirri hvort þessi eða hinn eigi að bjóða sig fram við kosningar, í ríki sem gjarnan er nefnt vagga lýðræðisins.

Hægrimenn komast til valda í Grikklandi 8.3.2004
"Turnarnir tveir" í grískum stjórnmálum tókust á um helgina en vegna kosningalaga þar í landi skiptir öllu máli fyrir stjórnmálaflokk að vera stærstur. Nýi lýðræðisflokkurinn náði nú því takmarki.

Úr öskunni í eldinn 9.3.2004
Seinustu ár hafa verið sannkölluð martröð fyrir írakskar konur. Því miður eru engar vísbendingar um að þeirri martröð sé að linna.

Ýtt á takkann 10.3.2004
Hagfræðin er gamalgróin og mikilvæg fræðigrein. Yfirleitt eru lögmál hennar þó flóknari og óskýrari en ákafamenn vilja vera láta.

Í góðri trú 11.3.2004
Íslensk stjórnvöld börðu sér á brjóst þegar þau undirrituðu Árósasamninginn. Á þau runnu hins vegar tvær grímur þegar í ljós kom að slíkum samningum fylgja skyldur.

Mannslíf á altari staðfestunnar 12.3.2004
Forsætisráðherra Spánar lofar "staðfestu" í baráttunni gegn hryðjuverkum. En hefur sú stefna borið árangur hingað til?

Sérsveitin er öfugur endi 13.3.2004
Umræða um fjölgun afbrota hér á landi undanfarin ár reynist vera goðsögn, þegar nánar er að gáð. Fá rök eru fyrir því að vopnuð sérsveit muni auka öryggi Íslendinga.

Jarðgöng eru mikilvæg samgöngubót 14.3.2004
Brennt barn forðast eldinn. Sem er líka gott. Samt er ekki þar með sagt að brennda barnið eigi að tryllast í hvert sinn sem það kemur inn í íbúð með eldavél. Fiskeldi var einu sinni flopp á Íslandi en hefur orðið stöndug atvinnugrein víða. Og þó að það sé margfalt ódýrara að taka leigubíl en að eiga bíl finnst mönnum það bruðl. Um þetta og fleira fjallar þessi grein.

Fyrsta stríðssstjórnin fellur 15.3.2004
Kosningaúrslitin á Spáni í gær reyndust söguleg. Hægrisinnaðar ríkisstjórnir munu ekki framar geta notað hryðjuverk glæpamanna sér til framdráttar.

Ný skotmörk valin 16.3.2004
Þróun er vandmeðfarið orð en sumir virðast hafa sérstaka nautn af að misnota það.

Ósigur lýðræðis? 17.3.2004
Fyrir viku var það viðtekin skoðun að ekki mætti fresta kosningum á Spáni vegna hryðjuverka. En nú hafa sumir gengið af þeirri trú vegna þess að "réttir aðilar" unnu ekki kosningarnar.

Sjálfboðaliðar óskast 18.3.2004
Langar þig til Íraks í fylgd hins íslenska Williams Wallace?

Herseta í skjóli al-qaida? 19.3.2004
Davíð Oddsson gaf nýlega út línuna um það að ekki mætti láta hryðjuverkamenn hræða sig frá ákvörðunum. Það á greinilega aðeins við um sumar ákvarðanir.

Merkur dómsúrskurður í Argentínu 20.3.2004
Enn þrengir að þeim sem færðu um 30.000 manns í fangabúðir í Argentínu á árunum 1976-1983.

Hin sæla blekking 21.3.2004
Þrátt fyrir að sífellt fleiri geri sér grein fyrir afleiðingum árásarstríðanna sem íslenska ríkisstjórnin hefur stutt svo kappsamlega á undanförnum árum eru enn til sanntrúaðir hernaðarsinnar eins og sást á Einari K. Guðfinnssyni.

Lýðræði í kreppu - I. hluti 22.3.2004
Þeir aðilar sem styðja við bakið á einveldi fjármagnseigenda hafa svo náð að halda á lofti svipuðum gildum varðandi stjórn ríkisins. Þar hefur kjörorðið verið "allt vald til ráðherranna".

Óttaslegnir ráðamenn blekktir af táningum 23.3.2004
Á sama tíma og stjórnvöld reyna að múra Ísland inni af ótta við útlendinga komast hingað 120 kínverskir táningar dulbúnir sem kaupsýslumenn. Er eitthvað bogið við útlendingastefnu stjórnvalda?

Friðarbarátta með byr í seglin 24.3.2004
Ef öllum þeim fjármunum sem sóað hefur verið í það öryggi sem fylgir vopnum og styrjöldum væri eytt til að tryggja varanlegt öryggi okkar, með því að takast á við sjálfskaparvíti mannkynsins í umhverfismálum væri skref stigið í rétta átt.

Vítahringurinn styrktur 25.3.2004
Er ekki merkilegt hvað hagsmunir bandamanna jafnt sem erkióvina geta farið vel saman?

Hver á að borga? 26.3.2004
Á að leggja skólagjöld á allt nám? Aðeins framhaldsnám? Sumar greinar en ekki aðrar? Hvernig á að fara að þessu? Á að meta launamöguleika fólks að loknu námi? Eiga þá konur að greiða lægri gjöld en karlar? Íslenskufræðingar lægri en lögfræðingar?

Davíð, Hastert og Myers bætist liðsstyrkur 27.3.2004
Það er engin furða að Garry Kasparov og fleiri séu farnir að huga að því hvernig megi koma Vladimír Pútín frá í næstu kosningum.

Írar lofta út 28.3.2004
Írar hafa nú úthýst tóbaksreyk af nær öllum vinnustöðum landsins og kannanir benda til að 4 af hverjum 5 styðji þessar nýju reglur. Vonandi verður málið fljótlega tekið til vitrænnar umræðu hér á landi.

Frakkar hafna uppskurði á velferðarkerfinu 29.3.2004
Hægribylgjan sem Morgunblaðið sagði farna af stað í Evrópu fyrir nokkru hitti ekki á Spán um daginn. Ekki gekk henni betur að heimsækja Frakkland um helgina.

Símasölublús 30.3.2004
Eftir heiftarlegt klúður, harða gagnrýni og söltun er sala Landssímans aftur komin á dagskrá.

Halldór hermarskálkur 31.3.2004
Íslendingar eiga nú orðið her og þótt hann hafi ekki enn tekið upp þann sið almennilegra herja að hyggja á landvinninga þá verður þess varla langt að bíða.

Er herra Firestone fagur? 1.4.2004
Bachelor, breiðir kjálkar, kraftajötnar og hvað annað sem máli skiptir ... eða ekki. Í nútíð og fortíð, bréfum og bókmenntum.

Gunni litli og limlestingarnar 2.4.2004
Þótt ekki skorti illskuna í heiminum er samfélagið ginnkeypt fyrir sögum sem hrella og fanga ímyndunaraflið. Við erum reiðubúin að trúa mergjuðustu frásögnum um illsku sem liggi í felum, voðaverk sem framin séu fjarri augsýn okkar á hverjum degi.

Manstu gamla daga? 3.4.2004
Það er ekki svo langt síðan Schengen-samningurinn átti að gera vegabréf eftirlit óþarft milli aðildarríkjanna.

Kumaratunga hrósar sigri á Sri Lanka 4.4.2004
Flokkur Chandriku Kumaratunga vann stórsigur í þingkosingunum og Bandaranaike væri eflaust að rifna af stolti ef hann væri enn á vettvangi.

Klofin afstaða til áfengis 5.4.2004
Áfengisneysla Íslendinga hefur verið hluti af bókmenntahefð þjóðarinnar allt frá Egils sögu Skallagrímssonar til Heimsljóss eftir Halldór Laxness. En hvers vegna er afstaða okkar til þessa vímugjafa svona tvíbent?

Lýðræði í kreppu - II. hluti 6.4.2004
Margar leiðir eru færar til að auka valddreifingu innan hins opinbera geira en þær verða ekki farnar svo lengi sem valdasýki ráðherra ræður för.

Rauð ljós eru bara fyrir almenning 7.4.2004
Moldríkir greifar í kappakstri við hin fjögur fræknu. Björn Bjarnason og hæstiréttur. Algjörlega ótengt? Óekki.

Árar helvítis? 8.4.2004
Ekkert lát er á heimsósómanum. En það vissu nú flestir. Þess vegna er gott að eiga prestana að.

Afneitun og helgimyndir 9.4.2004
Á föstudaginn langa er við hæfi að fjalla um samsæri, blóðsúthellingar og ýmiss konar píslarsögur í tímans rás - í langri grein að sjálfsögðu.

Rökleysur utanríkisráðherra 10.4.2004
Stundum verður að efast um að utanríkisráðherra geti trúað sínum eigin orðum, svo ótrúlegar eru yfirlýsingarnar á köflum. Yfirlitsræða ráðherra sl. þriðjudag var óvenjugott dæmi - eða slæmt.

Villimannleg kvikmyndagagnrýni 11.4.2004
Þegar rætt er um innrás villimannanna 11. september Les invasions barbares er um leið spurt hverjir séu villimenn og hvort slík innrás sé löngu hafin - innan frá.

Til hamingju með árangurinn 12.4.2004
Öllu því sem gerst hefur í Írak - og reyndar Afghanistan - var spáð af þeim sem til þekktu og reyndar mörgum fleiri. Utanríkisráðherra Íslands er ánægður með það sem hann kallar árangur.

Frelsi til að deila og drottna 13.4.2004
Frumvarp nokkurra þingmanna Sjálfstæðisflokksins um að banna birtingar á skattskýrslum er brýnt hagsmunamál ... fyrir atvinnurekendur sem vilja mismuna starfsmönnum sínum

Plagsiðir fortíðarinnar 14.4.2004
Dýrka Davíð og Björn alla Hafsteina fortíðarinnar? Flestir héldu að sú dýrkun einskorðaðist við Hannes Hafstein en ný gögn benda til að hún nái einnig yfir Jóhann.

Skeytingarleysið er andlegur velmegunarsjúkdómur 15.4.2004
Mikil umskipti til hins verra urðu í málefnum útlendinga þegar Sólveig Pétursdóttir tók við dóms- og kirkjumálaráðuneytinu af Þorsteini Pálssyni en Sjálfstæðisflokkurinn reyndist eiga tromp í ermi til að gera sumar af verstu martröðum alþjóðasinna að veruleika: Björn Bjarnason.

Af hverju jafnréttislög? 16.4.2004
Það á að hlíta lögum — nema þeim sem eru "barn síns tíma". Óhætt er að segja að málflutningur dómsmálaráðherra í fjölmiðlum þessa dagana er alveg makalaus.

Kæri Björn – opið bréf til Björns Bjarnasonar 17.4.2004
Þorleifur Örn Arnarson leggur hér nokkrar spurningar fyrir dóms- og kirkjumálaráðherra að gefnu tilefni.

Hvað segja trottar um hrotta? 18.4.2004
Barátta fyrir tilteknum málstað með hryðjuverkastarfsemi er jafn vonlaus og fráleit og hið svokallaða stríð gegn hryðjuverkum. Á þetta var reyndar bent fyrir nærri heilli öld síðan.

Útvörður hins vestræna heims 19.4.2004
Enn og aftur sést greinilega að fyrir tilstilli Bandaríkjanna getur Ísraelsstjórn hagað sér eins og hún sé hafin yfir alþjóðalög. En stuðningurinn við framferði hennar er víðar í reynd.

Twix eða tómatur? 20.4.2004
Á kapítalískum tímum blómstrar hin tvístraða sjálfsmynd sem aldrei fyrr og til hefur orðið ný atvinnugrein sem hefur verið markaðssett á aðdáunarverðan hátt miðað við árangur.

Hvernig á fjórða valdið að vera? 21.4.2004
Al-Djazira hefur frá upphafi verið fleinn í holdi allra einræðisstjórna í Mið-Austurlöndum sökum óhefts fréttaflutnings og óvæginnar gagnrýni en það eru fleiri sem hafa horn í síðu stöðvarinnar af sömu ástæðum.

Hættulegasti maður Ísraels? 22.4.2004
Þótt Mordechai Vanunu sé laus úr fangelsi verður hann hreint ekki frjáls ferða sinna.

Svar við opnu bréfi um hjúskap og útlendingalögin 23.4.2004
Björn Bjarnason svarar hér opnu bréfi Þorleifs Arnar Arnarssonar en það birtist á Múrnum sl. föstudag.

Hvar er hin hamingjusama hóra? 24.4.2004
Leitin stendur enn og þótt sænska leiðin sé ekki töfralausn er tími til kominn að grípa til aðgerða.

Þær eru allar eins 25.4.2004
Eru fegurðarsamkeppnir bara dulbúnar sýningar á hálfberu kvenfólki? Og fá sætustu stelpurnar að taka þátt? Og er hárliturinn það sem greinir keppendur að á endasprettinum? Múrinn spáir í málið.

Hvaða máli skiptir eignarhald á fjölmiðlum? 26.4.2004
Markaðsráðandi fyrirtæki hafa haft 90 ár til að sölsa undir sig dagblaðamarkaðinn og forsætisráðherra hefur ekki haft miklar áhyggjur af því hingað til. En umræðan má heldur ekki lenda í skotgrafir þar sem barist er með og á móti einstaklingum.

Getur einhver jarðtengt Morgunblaðið? 27.4.2004
Ritstjórn Morgunblaðsins er hneyksluð á málflutningi formanns VG um framgöngu ríkisstjórnarinnar varðandi herstöðina á Miðnesheiði. Huginn Freyr Þorsteinsson veltir ástæðunni fyrir sér í gestapistli.

Fjölmiðlalög og mannréttindayfirlýsing Evrópu 28.4.2004
Í umræðu um nýtt fjölmiðlafrumvarp ríkisstjórnarinnar hefur heyrst það sjónarmið að sérstök löggjöf um eignarhald á fjölmiðlum sé óþörf heldur dugi samkeppnislög til þess að koma í veg fyrir fákeppni. Þetta viðhorf er nokkuð á skjön við þá umræðu sem nú er efst á baugi í hinum vestræna heimi.

Friðurinn ári eftir stríðslok 29.4.2004
Rétt tæpu ári eftir að leiðtogi hinna staðföstu lýsti yfir stríðslokum í Írak eru gerðar ógnarárásir á þéttbýli, íbúðahverfi jafnt sem aðra byggð, með herflugvélum, þyrlum og stórskotaliði.

Þungavigtarmaður í alþjóðamálum 30.4.2004
Ef Ólafur Ragnar Grímsson væri hundrað kílóum þyngri – myndu útgefendur heimsmetabókar Guinness þá sérstaklega útnefna hann feitasta þjóðhöfðingja heims? Af hverju er verið að níðast á konungi Tonga?

Verk að vinna 1.5.2004
Á þessum alþjóðlega baráttudegi hljóta alþjóðasinnar á Íslandi vera dálítið hugsi yfir því hvert stefni.

Á skólinn að redda öllu? 2.5.2004
Fólk kvartar mikið yfir sívaxandi sjónvarpsglápi barna og minni lestri. En hver gefur börnunum sjónvarp? Er enginn ábyrgur í þessum efnum?

Bandarísku hetjurnar 3.5.2004
Réttsýnu hetjurnar í Three Kings eru fjarri góðu gamni í Írak þessa dagana en Einar K. Guðfinnsson er eigi að síður hæstánægður með sína menn þar í landi.

Okkar tíkarsynir III: Joseph Mobutu 4.5.2004
Hann varð einráður í Kongó 1965 og frá árinu 1972 kallaði hann sig "hinn almáttuga vígamann sem vegna þols og ósveigjanleika mun sigra, æ ofan í æ, en skilja eftir eld í slóð sinni".

Virkni 5.5.2004
Hvað þýðir það þegar dómsmálaráðherra segir að úrskurður umboðsmanns Alþingis sé ekki afturvirkur?

Hvað þarf til? 6.5.2004
Skyldu pyntingamyndirnar úr gúlögum hins frjálsa Íraks duga til að íslenska ríkisstjórnin hugsi sinn gang?

Beckham og bomburnar 7.5.2004
Það er kannski ekki til marks um góða jarðtengingu að láta sig dreyma um gamla daga þegar Beckham var á hægri vængnum og Giggs gat splundrað hvaða vörn sem var hvenær sem honum sýndist. En er það glæpur?

Áfram Sjónvarp allra landsmanna! 8.5.2004
Sjónvarp allra landsmanna er ríkisrekið og því í eigu okkar allra. En þarf dagskrárgerð Sjónvarpsins ekki að höfða til okkar allra? Eða a.m.k. fleiri?

Hvers vegna heldur kreppan í Kosovo áfram? 10.5.2004
Aðfarir bandarísku og bresku hernámsliðanna í Írak eru skelfilegar, en því miður er ekki heldur góð reynsla af "alþjóðlegu friðargæsluliði" í Kosovo eða annars staðar í Júgóslavíu.

Enginn veit hvað átt hefur 11.5.2004
Lengi hafa fjölmiðlar látið eins og að Íslendingar hafi búið í svarthvítum sjónvarpsþætti fram að 1991.

Offors og valdagræðgi stjórnarherra 12.5.2004
Nú á vordögum hafði ríkisstjórnin alla möguleika á að ná víðtækri samstöðu um ný lög um eignarhald fjölmiðla, gagnsæi þess, sjálfstæði ritstjórna og fleiri mikilvæg mál sem varða opin og lýðræðisleg skoðanaskipti í fjölmiðlum. Hún hins vegar ekki hafa minnsta áhuga á því.

Gull eða silfur 2004? 13.5.2004
Að lesa Vogue er eflaust fremur sjaldgæf leið til að sjá misskiptinguna á Íslandi. En hún er samt fær.

Töfraþulan 14.5.2004
Undanfarið hefur nokkuð verið rætt um útflutning á heilbrigðisþjónustu. Þar gæti utanríkisráðherra lagt sitt af mörkum.

Óvænt tíðindi á Indlandi: Ítalskur forsætisráðherra? 15.5.2004
Úrslit indversku þingkosninganna sýna að vinstriöflin eru í sókn og að Nehru-fjölskyldan verður vafalítið áberandi í stjórnmálalífi landsins lengi enn.

Forsætisráðherrann er gunga og drusla 16.5.2004
Það er auðvitað ekkert partí án Ólafs Ragnars en Davíð Oddsson hefur ýmislegt annað um að hugsa þessa dagana en að útskýra fjarveru forsetans fyrir dönsku brúðhjónunum.

Námsmenn sveltir í hel 17.5.2004
Lánasjóður íslenskra námsmanna virðist ófær um að lána námsmönnum nægar fjárhæðir til að þeir geti framfleytt sér. Hvernig ætlar sjóðurinn að lána líka fyrir skólagjöldum, spyr Múrinn.

Nú er nóg komið 18.5.2004
Rauði krossinn í Danmörku sakar dönsk stjórnvöld og danska þingið um brot á Genfarsáttmálanum. Íslensk stjórnvöld eru þar fyllilega samsek.

Lýðræði fyrir hverja? 19.5.2004
Hvað felst í raunverulegu lýðræði og hverju er helst ábótavant í þeim ríkjum sem kenna sig við þetta stjórnarform?

Ábyrgð þín 20.5.2004
Grimmdarverkum ísraelskra stjórnvalda í Palestínu virðist ekki ætla að linna. Hvað getum við gert?

Frjálsar þjóðir 21.5.2004
Davíð Oddsson telur að "frjálsar þjóðir" hafi haft rétt til að heyja ólögmætt árásarstríð gegn Írak og steypa ríkisstjórn landsins af stóli. En hversu frjálst er fólk í raun í "staðföstu ríkjunum" Afganistan, Úsbekistan og Kuwait?

Áhyggjulaust ævikvöld 23.5.2004
Menn virðast geta framið hvaða glæp sem er og komist upp með það ef bæði gerandinn og þolandinn eru af "heppilegu" þjóðerni.

Minnisstætt brúðkaup 24.5.2004
Bandaríkjamenn halda áfram að spilla brúðkaupsveislum á hrottafenginn hátt. Og umheimurinn þegir.

Hugsjónalausir flokkar 25.5.2004
Bæði Sjálfstæðisflokkur og Samfylking virðast geta umpólast til hægri eða vinstri eftir hentugleikum. Er hætta á ríkisstjórn þessara hentistefnuflokka?

Davíðsland? 27.5.2004
Á Ísland að skipta um land og kallast Davíðsland? Enginn leið er að meta hverju forsætisráðherra mun vilja ráða næst.

Hvenær á að grípa inn í? 28.5.2004
Afskipti af kúgun í öðrum löndum hvíla á mismunandi hvötum og hugmyndafræði. Hugmyndafræði þeirra sem kalla sig „frjálslynda íhlutunarsinna“ (liberal interventionists) á hins vegar meira skylt við útópíska forræðishyggju en frjálshyggju.

Hvar liggur ógnin? 30.5.2004
Um allan heim eru mannréttindi fótum troðin í nafni stríðs gegn hryðjuverkum undir forystu Bandaríkjanna og Íslendingar leggja að sjálfsögðu sitt af mörkum.

Mynd segir meira en þúsund orð 31.5.2004
Innrásarstríð hinna staðföstu þjóða í Írak hefur nú staðið í meira en ár og þrátt fyrir ítrekaðar yfirlýsingar hersetuliðsins um að stríðinu sé lokið logar landið ennþá í blóðugum átökum og tala fallinna og særðra stígur hratt og örugglega.

Menntunin skilin eftir 1.6.2004
Bandaríska menntunarátakið No Child Left Behind hefur til þessa ekki haft í för með sér aðrar afleiðingar en aukna skriffinnsku og ógnarástand í almennum skólum sem óttast lokun.

Í haldi Bandaríkjahers 2.6.2004
Hér á eftir fer lýsing fanga á því hvernig er að vera í haldi herveldis sem á bækistöðvar á Miðnesheiði og er í hernaðarbandalagi við Íslendinga. Ekki fyrir viðkvæmar sálir.

Mælirinn er fullur 3.6.2004
Forseti Íslands hefur ákveðið að skjóta lögum um fjölmiðla til þjóðarinnar. En þau eru aðeins kornið sem fyllir mælinn enda núverandi ríkisstjórn búin að þvinga hver ólögin á fætur öðrum í gegn í skugga meirihlutavalds.

Í átt að auknu lýðræði! 4.6.2004
Batnandi mönnum er best að lifa. Nú hefur ungi miðjumaðurinn Jón Einarsson uppgötvað að til sé vilji almennings, sex mánuðum eftir að hann afneitaði almannaviljanum opinberlega.

Flugvallarstjórinn í Kabúl 5.6.2004
Utanríkisráðherra hefur bætt Íslandi í hóp hernámsríkjanna í Afganistan og kórónað smán landsmanna með því að láta eins og það sé eitthvað til fyllast stolti yfir.

Víglínur skýrast 7.6.2004
Með því að stilla saman strengi hafa stjórnarandstöðuflokkarnir náð góðum árangri í að veikja stjórnina að undanförnu og hefur hún aldrei staðið eins veikt. Nú er lag að láta kné fylgja kviði.

Til varnar þingræðinu 8.6.2004
Halldór Ásgrímsson lýsir sér sem "þingræðissinna". Ákvörðun þeirra Davíðs um að styðja Íraksstríðið sýnir hins vegar raunverulegan hug hans til þingræðisins.

Hvað tekur við af varnarsamningnum? 9.6.2004
Öll teikn er á lofti um það að herstöðin á Miðnesheiði verði fljótlega úreld. En hvað tekur við? Hugsa þarf málin upp á nýtt og hætta að berja höfðinu við steininn.

Valdið liggur hjá þjóðinni 10.6.2004
Ekkert ætti að vera jafnt skýrt og auðvelt eins og að framkvæma þjóðaratkvæðagreiðslu, þ.e. ef vilji manna stendur til að framkvæma hana með heiðarlegum hætti. Engu að síður lætur núverandi ríkisstjórn sér vaxa framkvæmdina í augum og hefur kallað saman lögfræðingastóð til ráðabruggs.

Okkar tíkarsynir IV: Efraín Ríos Montt 11.6.2004
Hér stendur ekki til að skrifa sérstaka minningargrein um Ronald Reagan en það er ágætt að rifja upp feril eins af hans kærustu vinum.

Helgar tilgangurinn meðalið? 12.6.2004
Í stríði er því oft haldið fram að tilgangurinn helgi meðalið og menn reyna að koma sínu fram með öllum tiltækum ráðum. Ofbeldisverk Rauðu Khmeranna í Kambódíu á áttunda áratugnum voru gott dæmi um það. Er sagan að endurtaka sig í stríðinu gegn hryðjuverkum.

Lítill áhugi á Evrópusambandinu 14.6.2004
Lítil þátttaka í kosningum til Evrópuþingsins hlýtur að vera áfall fyrir þá sem trúa á að Evrópusambandið muni þróast yfir í lýðræðislegt sambandsríki.

Staða vinstrigrænna í Evrópu 15.6.2004
Hver er staða vinstrigrænna flokka í Evrópu eftir niðurstöður kosninga til Evrópuþingsins? Múrinn heldur áfram að fjalla um kosningarnar og skoðar gengi einstakra vinstrigrænna flokka.

Málefnafátækir borgarfulltrúar 16.6.2004
Ummæli Helga Hjörvars um stöðu Reykjavíkurlistans hafa vakið athygli. Þar er þó merkilegast að Helgi getur ekki nefnt neitt það málefni sem honum finnst að bandalag vinstrimanna í Reykjavík eigi að setja á oddinn.

Þjóðhátíð í leigubíl 17.6.2004
Lýðveldið Ísland er 60 ára í dag. Hæhó jibbijei og jibbi jei.

Vonbrigði fyrir Halldór, Davíð og Bush 18.6.2004
Óháð bandarísk nefnd kemst að þeirri niðurstöðu að ekki hafi verið nein tengsl milli Saddams Husseins og al-qaida. Þessi niðurstaða kemur fáum óvart en hvað með þá sem notuðu þessi rök sem átyllu fyrir stríði?

Nokkur atriði í stefnuumræðu fyrir íslenska byltingarsinna - I. hluti 20.6.2004
Þórarinn Hjartarson sendi Múrnum langt lesendabréf. Hér birtist 1. hluti.

Neysla á nýjum nótum 21.6.2004
Fötin sem við Vesturlandabúar kaupum dýrum dómum og merkt eru tilteknum frægum vörumerkjum eru yfirleitt framleidd í þróunarlöndum og mörg þessara stórfyrirtækja hafa orðið uppvís að því að láta börn framleiða fötin fyrir skít á priki og beita þau harðræði. Vesturlandabúar geta lagt sitt af mörkum í baráttunni gegn barnaþrælkun með því að velja fremur siðlegar vörur; vörur merktar „Fair Trade“-merkinu.

Hvað ber að forðast á næsta þingi? 22.6.2004
Í tilefni af því að Alþingi kemur saman eftir rúmlega tvær vikur hefur Múrinn tekið saman hápunkta nýliðins þings. Það er vonandi að sumarþingið veki viðlíka gleði

Guantánamo er ekkert einsdæmi 23.6.2004
Eitt sinn var til fangabúðakerfi sem náði frá Bosporus til Beringsunds. Stærsti fangabúðaeyjaklasi nútímans spannar alla veröldina.

Viljum við láta bjarga okkur? 24.6.2004
Vilja karlmenn bjarga konum og vilja konur láta bjarga sér? Byggist launamisréttið á okkar innri sálarflækjum eða er það innbyggt í kerfið? Hvernig verður þessu öllu bjargað?

Þess vegna mun ég skila auðu 25.6.2004
Kostnaður við embætti forseta Íslands nemur um 128 milljónum á ári. Starf forsetans felst fyrst og fremst í snúðaáti og veisluskaki. Á meðan sveltur heilbrigðis- og menntakerfið.

Þess vegna kýs ég í dag 26.6.2004
Múrinn lendir í ritdeilu við sjálfan og um embætti forseta Íslands. Ha?

Kosningar og lýðræði 26.6.2004
Múrinn hefur mikinn áhuga á forsetakosningum sem fara fram í dag. En hvað þýðir að skila auðu? Og er þörf á þjóðarátaki til að efla lýðræði í landinu? Svörin má finna í pistli dagsins.

Skömmum Alþingi, ekki biskupinn 28.6.2004
Samkvæmt lögum um trúfélög og hjónavígslur, geta prestar og forsvarsmenn trúfélaga einvörðungu gefið saman karla annars vegar og konur hins vegar. Hér er ekki við biskupinn að sakast, prestastefnu eða leikmannaráð Þjóðkirkjunnar - sökin er alfarið Alþingis.

Sýndarfullveldi 29.6.2004
„Fullveldisframsalið“ í gær hefur jafn mikinn lagalegan rétt og þegar mannræningjar veita gíslum frelsi, vissulega þakkarvert framtak en gerir þó ekki mannránið lögmætt.

Grænir aufúsugestir 30.6.2004
Samtök á borð við Greenpeace eru veröld okkar lífsnauðsynleg. Sjálfstæð félagasamtök eru vettvangur hins almenna borgara til að hafa áhrif á stefnu mála.

Voldemort og Thatcher 1.7.2004
Harry Potter-bækurnar, sem skrifaðar eru af breska höfundinum J.K. Rowling, hafa notið gríðarlegra vinsælda undanfarin ár en að sama skapi verið umdeildar. Meðal annars hefur verið fjallað um líkindi samfélagsins í sögunum við breskt samfélag í samtímanum.

Enn um auðu atkvæðin 2.7.2004
Að skila auðu er pólitísk afstaða. Illu heilli er það pólitísk afstaða sem sjaldnast reynist hafa meira en táknrænt gildi. Engu að síður er það mikilvægur réttur kjósenda að geta skilað auðu og að fjölda auðra atkvæða sé skilmerkilega haldið til haga.

Múrstiklur 2004 3.7.2004
Í dag er sumarlegt, a.m.k. á Suðvesturhorninu. Þess vegna er ekki seinna vænna að hefja hinn fasta sumardálk Múrsins, hinar alþekktu og víðfrægu Múrstiklur.

Nokkur atriði í stefnuumræðu fyrir íslenska byltingarsinna - II. hluti 4.7.2004
Þórarinn Hjartarson spyr: Til hvers börðust Íslendingar fyrir innlendu stjórnarráði ef færa á ákvörðunarvaldið út aftur?

Forseti Íslands skipi útvarpsráð 5.7.2004
Stjórnarandstaðan hefur spilað þéttan varnarleik í stóra fjölmiðlamálinu en nú er kominn tími á sókn. Ný tilhögun á skipan útvarpsráðs gæti verið góður leikur.

Vitleysa og uppistand forsætisráðherra 6.7.2004
Forsætisráðherra lætur sem honum sé annt um að mál endi ekki í „uppistandi og vitleysu“. Jafnframt tekur hann þó skref til að tryggja að vitleysan haldi áfram.

Nýir lampar fyrir gamla 7.7.2004
Á Alþingi að taka það í mál að ræða „nýtt“ fjölmiðlafrumvarp þegar það var kallað saman til að ræða fyrirhugaða þjóðaratkvæðagreiðslu um „gömlu“ lögin. Múrinn reifar málið.

Vörður á leið til frelsis? 8.7.2004
Börn og unglingar fá að dúsa í hinu illræmda Abu Grahib-fangelsi og nýja leppstjórnin í Írak fær einræðisherravöld. Allt er þetta liður í að koma á frelsi og lýðræði í Miðausturlöndum.

Staksteinum kastað úr glerhúsi 9.7.2004
Höfundar Staksteina draga oft og tíðum einkennilegar ályktanir af atburðum líðandi stundar. Lifa þeir kannski í öðrum heimi en við hin?

Eip-kapítal 10.7.2004
Forsætisráðherra er duglegur að eipa þessa daga. En hvað þýðir að eipa? Og er til eitthvað sem heitir eip-kapital? Múrinn skoðar málið og já, eipar.

Pyntingar réttlætanlegar 11.7.2004
Bandaríkjastjórn telur réttlætanlegt að notast við pyntingar ef að sá sem pyntaður er gæti búið yfir upplýsingum sem varða öryggishagsmuni Bandaríkjanna.

Réttar upplýsingar 12.7.2004
Morgunblaðinu er annt um kalda stríðið og telur sig hafa ávallt leitt sannleikann í ljós í því stríði. Enginn sem las Morgunblaðið á þessum árum kannast við þá ást á sannleikanum. Nær væri að tala um pólitíska trúmennsku.

Stíl- og rökfræðiverðlaun júlímánaðar 13.7.2004
Stíl- og rökfræðiverðlaun Múrsins eru veitt í fyrsta skipti í dag. Kemur það á óvart að ungur framsóknarmaður hlýtur þau? Ekki ef menn hafa fylgst með málatilbúnaði Framsóknarflokksins síðustu daga og vikur.

Heimur Halldórs 14.7.2004
Framsóknarmenn eru oft ekki sterkir á hinu rökfræðilega svelli en nú virðist veruleikafirringin orðin allsráðandi.

Fyrirmyndarhreinsanir 15.7.2004
Leyniþjónustur fá bágt fyrir upplýsingaöflun sína í aðdraganda stríðsins í Írak. En þurfa stjórnmálamennirnir ekki að sæta ábyrgð?

Nokkur atriði í stefnuumræðu fyrir íslenska byltingarsinna - III. hluti 16.7.2004
Síðasti hluti lesendabréfs Þórarins Hjartarsonar er birt. Hann veltir fyrir sér hagsmunum alþýðunnar og landslagið í íslenskum stjórnmálum.

Hvað geta smáríki gert? 17.7.2004
Eyríki í Karíbahafinu státar af einu lægsta hlutfalli eyðnismitaðra í heiminum og hefur nú boðist til að aðstoða grannríkin í baráttunni við þennan mikla vágest.

Matadorkynslóðin 18.7.2004
Er lífið bara eitt risavaxið Matadorspil? Eru Austurstræti og Bankastræti (helst með hóteli) það sem máli skiptir í lífinu? Og hvað ræður; heppni, dugnaður eða eitthvað annað?

Heimdallarskólinn í meðferð tilvitnana 19.7.2004
Hafsteinn Þór Hauksson kallar eftir greiningu Múrsins á lýðræðishugmyndum Hjörleifs Guttormssonar. Þær reynast fá nokkuð góða einkunn en heimildavinna Heimdellinga fær hins vegar falleinkunn.

Frumvarpið sem hvarf 20.7.2004
Endalok fjölmiðlafrumvarps ríkisstjórnarinnar eru án fordæmis. Aldrei áður í sögu lýðveldisins hefur það gerst að ríkisstjórn dragi tilbaka frumvarp sem hún hafði áður keyrt í gegn með naumum þingmeirihluta. Óttinn við þjóðaratkvæðagreiðslu varð að lokum til þess að ríkisstjórnin fór öfug út úr málinu.

Fjölmiðlamálið í hnotskurn – nokkur ummæli stjórnarþingmanna 21.7.2004
Ríkisstjórnin hefur beðið ósigur í fjölmiðlamálinu. Múrinn rifjar upp gullmola ýmissa stjórnarþingmanna í umræðum um málið. Vart þarf að hafa mörg orð snilli þessara gáfuðu manna.

Hátt hreykir heimzkur zér 22.7.2004
Morgunblaðinu virðist ekki annt um rök í umfjöllun sinni um utanríkismál. Þar leggja menn meira upp úr því að hneykslast á hugmyndum annarra og skrifa með kaldastríðs-zetu.

Örverpið 23.7.2004
Ef marka má eina af vonarstjörnum alþingis er það einungis við stjórnarandstöðuna að sakast ef sátt næst ekki um mál. En er það rétt?

Umferðaröryggi að aukast 24.7.2004
Reiknað með því að um 70 km af bundnu slitlagi verði lagðir á Vestfjörðum í ár. Jafnframt er einbreiðum brúm að fækka austur á fjörðum.

Sagan um svörtu hermennina 25.7.2004
Að sögn dómsmálaráðherra eru það bara marxistar og kommúnistar sem eru á móti því að stjórnmálasaga Íslands á 20. öld sé rifjuð upp. Þessi grein mun því væntanlega kæta hann sérstaklega.

Dómskerfi á villihraðbrautum? 26.7.2004
Guðmundur Kristjánsson sendi Múrnum bréf og finnst dómskerfi Íslands ekki á réttri leið.

Borgverjar vorra daga 27.7.2004
Eru frjálshyggjumenn með einn og sama huga, rétt eins og hinir skelfilegu Borgverjar? A.m.k. telur Múrinn að þeir tali allir einum rómi.

Helgi ofbeldisglæpa framundan? 28.7.2004
Skemmtanir verslunarmannahelgarinnar eiga sér skuggahliðar. Fáar eru þó verri en nauðganirnar sem virðast fylgifiskur útihátíða.

Refsidýrkun 29.7.2004
Rúmlega tvær milljónir manna sitja bak við lás og slá í Bandaríkjunum. Íslenska réttarkerfið er alger andstæða hins bandaríska; hagkvæmt og skilar meiri árangri.

Framfarir eða frjáls verslun? 30.7.2004
Á blómaskeiði iðnbyltingar í Bretlandi voru innflutningstollar 40%. Þegar Bandaríkin iðnvæddust voru verndartollar allt að 57%. En núna vilja ríkisstjórnir iðnríkja losna við tolla á eigin útflutningsvörur.

Tabú og tölfræði 31.7.2004
Að hefja umræðu um óþægileg samfélagsvandamál er ekki til vinsælda fallið. Þeir sem reyna að eyða slíku tali með tölfræðiæfingum ættu þó oftast að hugsa sig um tvisvar.

Er hægt að bera saman e-töflur og áfengi? 1.8.2004
Í nýlegri grein Guðmundar Kristjánssonar um einkennilega dóma var sett fram fullyrðing um skaðsemi áfengis og e-taflna. Einn ritstjórnarmanna hefur sitthvað við hana að athuga.

Ég sagði kíló af sykri! 2.8.2004
Líklega þvælist kurteisin sjaldan fyrir Íslendingum. En það kemur reyndar aðeins fyrir.

Byltingar og endurbætur: Reynsla sögunnar 3.8.2004
Er bylting endilega rétta leiðin til að ná fram jöfnuði? Múrinn telur að sagan sýni annað og leggur áherslu á að jöfnuður náist með lýðræðislegum endurbótum.

Hórkarlar og hreinar meyjar 4.8.2004
Meðal karlmanna þykir ekki tiltökumál að vera hórkarl. Konur eiga hins vegar að skammast sín fyrir að vera "druslur".

Um réttlátar og hæfilegar refsingar 5.8.2004
Innrás Bandaríkjastjórnar í Írak hefur kostað tugi þúsunda mannslífa, að ótöldum þeim sem hafa örkumlast eða særst með öðrum hætti. Enginn vafi er á því hverjir bera ábyrgðina og þar fer George Bush Bandaríkjaforseti að sjálfsögðu fremstur í flokki.

Sprengjuhótanir og fölsuð neyðarköll 6.8.2004
Illt er að senda fölsk neyðarköll en eru þau ástæða til að stofna sérsveit lögreglu á einu landshorni? Og hver hafa nú verið stærstu falsköllin að undanförnu?

Ólympíuleikar nútímans 7.8.2004
Frá því er sagt í ævintýrum að tröll reyndi eitt sinn að stela jólunum en hafði ekki erindi sem erfiði. En er hægt að stela Ólympíuleikunum?

Firring stríðsins og Fahrenheit 9/11 8.8.2004
Fahrenheit 9/11 eftir Michael Moore er umdeild en Múrinn telur óumdeilt að sjaldan hafi firring stríðsrekstrarins í Írak verið sýnd á jafn afgerandi hátt.

Blair á síðasta snúningi 9.8.2004
Ekki einu sinni breskir hægrikratar trúa lengur á Tony Blair. Í nýjasta hefti tímaritsins Renewal er gert upp við þá stefnu sem jafnaðarmenn á Íslandi hafa boðað sem ákafast.

Leyndarmál knattvæðingarinnar afhjúpuð 10.8.2004
Hnattvæðing eða knattvæðing? Er kannski sama fyrirbærið á ferð?

Hafa Þeir sigrað? 11.8.2004
Hverjir eru Þeir? Hvers vegna hafa Þeir sigrað? Erum við óhullt? Lesið umfjöllun Múrsins um Stóra geitungamálið!

Um afskiptasemi 12.8.2004
Leiðarahöfundur Morgunblaðsins lét afskiptasemi norrænna krata fara í sínar fínustu um síðustu helgi. En skyldi Mogginn nokkuð vera að kasta grjóti úr glerhúsi?

Tekjuójöfnun: Hið helga markmið Sjálfstæðismanna 13.8.2004
Á mánudaginn sl. ræddi Pétur Blöndal um skattamál og skýra stefnu Sjálfstæðisflokksins í þeim efnum í Kastljósi. Pétur telur þjóðinni af fáu standa eins mikil ógn og svokallaðri „tekjujöfnun“. MInni skattheimta ku skila sér í auknum skatttekjum og hagvöxtur eykst í takt við ójöfnuð. En stenst þetta?

Úr afrekaskrá Bechtel:
Vatnið í Bólivíu
14.8.2004
Þegar fjármagnsöfl brjóta sér leið inn í almannaþjónustu getur ýmislegt gerst eins og dæmin sanna.

Kosið um framtíð Chávez 15.8.2004
Andstæðingar Hugo Chávez, hins róttæka forseta Venezúela, reyna í dag í þriðja sinn á jafnmörgum árum að koma honum frá völdum og að þessu sinni er veðjað á kosningaleiðina.

Það er ekki sama hvaðan gott kemur 16.8.2004
Fyrir rúmum 100 árum þóttust heimsvaldasinnar vera að berjast gegn þrælahaldi. Málflutningur þeirra hefur ekki breyst ýkja mikið.

Líttu þér nær 17.8.2004
Sjálfsskoðun nokkurra bandarískra dagblaða í kjölfar Íraksstríðsins og sú niðurstaða þeirra að þau hafi gert í sig var umfjöllunarefni ritstjórnargreinar í Morgunblaðinu sl. laugardag. Sumum gæti þótt gagnrýni Morgunblaðsins koma úr hörðustu átt.

Gjaldþrot frjálshyggjunnar 18.8.2004
Nú hafa kreddufrjálshyggjumenn misst ítök í sínu traustasta vígi, Heimdalli. Frjálshyggjuboðskapurinn virðist nefnilega ekki lengur höfða til eins margra og áður.

Hvað getur Cherie Blair sagt okkur? 19.8.2004
Hvaða eiga Rannsóknarstofa í kvenna- og kynjafræðum við Háskóla Íslands og Silvio Berlusconi sameiginlegt? Fleira en maður heldur, virðist vera.

Þrælahald í Evrópu 20.8.2004
Sjálfstæðisflokkurinn hefur ávallt staðið í vegi fyrir því að svokallað vændisfrumvarp fari í gegnum þingið. Afstaða flokksins er illskiljanleg.

... og guðirnir skópu metal 21.8.2004
Í upphafi var þögnin. Í svörtu tóminu næddu kaldir vindar um jörðina og í milljónir ára ríkti myrkur eitt. Veröldin var litlaus, þögul og dauð uns guðunum var einn daginn nóg boðið. Og guðirnir skópu metal.
Múrinn kynnti sér málið.

Með flísatöngina á lofti 22.8.2004
Nýlega var því velt upp hvort Bandaríkjamenn njósnuðu um Íslendinga. Kannski það og kannski hafa þeir gert það áratugum saman en skyldu Íslendingar nokkuð njósna um Íslendinga?

Maðurinn er óléttur! 23.8.2004
Getur „maður“ verið óléttur? Er „ráðherraherra“ til? Finnst konu ásættanlegt að vera „líka maður“? Drífa Snædal bendir á nokkrar gildrur kynbundinnar orðanotkunnar.

Hinn listhneigði heimsvaldur 24.8.2004
Nú hefur komið í ljós að Davíð Oddsson er ekki eini þjóðarleiðtogi sögunnar sem er áhugasamur um trúmál og heimspeki. Prófessor í kínverskum háskóla veit meira um málið.

Við erum langlanglanglangbest 25.8.2004
Frægt fólk frá stórveldi kom til Íslands og finnst við frábær. Enda er þjóðin og þó einkum framámenn hennar einstaklega afslöppuð og einlæg.

Okkar tíkarsynir V: Íranskeisari 26.8.2004
Maður dagsins er Íranskeisari.

Frelsi til að sæta pyntingum 27.8.2004
Nú auglýsir George W. Bush að tvær „frjálsar þjóðir“ taki þátt í Ólympíuleikunum í Aþenu. En fyrir marga Íraka og Afgana eru pyntingar hinna nýju ráðamanna helsta birtingarmynd „frelsisins“

Er Íran næst? 29.8.2004
Umræðu um hættu af kjarnorkuáætlun Írans er stjórnað frá Washingtion og kemur frá ríki sem ræður yfir fleiri gereyðingavopnum en nokkurt annað. Er nýtt árásarstríð Bandaríkjanna í uppsiglingu?

Kiknað í ásýnd valdsins 30.8.2004
Enda þótt því sé ekki lokið þá eru fjölmiðlamenn komnir með leið á Íraksstríðinu. Þeir láta eins og ekkert hafi í skorist og halda áfram að tilbiðja sínar vestrænu stórstjörnur.

Hver misskilur jafnréttishugtakið? 31.8.2004
Ef það er alltaf hæfasti einstaklingurinn sem er valinn í mikilvægar stöður, hvernig stendur á því að það er nánast undantekningalaust hvítur karl? Það er hrein fjarstæða að halda því fram að á Íslandi séu engar hæfar konur og ef kyn greiðir einhverjum leið að stöðu eða völdum þá er það svo sannarlega ekki kvenkynið.

Stríð sem ekki er hægt að vinna 1.9.2004
Rússland hefur verið tryggur bandamaður Vesturlanda í stríðinu gegn hryðjuverkum. Samt eru hryðjuverk þar orðin daglegt brauð. Ættum við að reyna að draga einhverjar ályktanir af því?

Rýrt flokksþing 2.9.2004
Fólki sem leiðist blöðrur, innihaldslausir frasar og efast um að George W. sé raunverulega hinn smurði kann að spyrja; hvað með málefni og pólitík á flokksþingi bandaríska repúblíkanaflokksins?

Það sem höfðingjarnir hafast að ... 3.9.2004
Stríðsglæpadómstóllinn í Haag hefur úrskurðað að „stuðningur við þjóðernishreinsanir“ sé stórglæpur. Þetta virðist þó einungis gilda um sumar þjóðernishreinsanir.

Um samskipti kynjanna 4.9.2004
Eru konur flóknar? Eru karlar tregir? Hvaða band er þetta sem allir eru að tala um?

Kveinstafirnir kvótasettir 5.9.2004
Það er alltaf dálítið efamál hversu lengi á að bíða eftir að vissir ráðherrar taki sjálfum sér fram í athugasemdum um tiltekin efni í þjóðmálaumræðunni. Ýmsir hjuggu eftir því þegar Valgerður Sverrisdóttir furðaði sig á því að flokkssystkini hennar skyldu taka svona nærri sér það ráðslag að Siv Friðleifsdóttir yrði sett af ráðherrastóli um miðjan september.

Byltingar og endurbætur. Svar. 6.9.2004
Þórarinn Hjartarson heldur áfram umræðu um hætturnar af endurbótastefnu og nauðsyn byltingar.

Ríkisrekin alþjóðavæðing 7.9.2004
Forskotið sem alþjóðavæðingin hefur fært fjármagnseigendum á kostnað vinnandi fólks stafar að óverulegu leyti af tækniframförum eða ferli af því tagi. Meginástæðan er sú að alþjóðavæðingin endurspeglar hið mikla ójafnvægi og misrétti sem ríkir innan alþjóðasamfélagsins.

Og hvað verður þá um það? 8.9.2004
Hvað bíður þess fólks sem borið er út úr félagslegu leiguhúsnæði? Hvaða úrræði standa því til boða af hálfu yfirvalda?

DV-molar Múrsins 9.9.2004
Loksins snúa þeir aftur eftir langa fjarveru en auðvitað jafn sannir og fyrr.

Ég er bílfíkill 10.9.2004
Öllum finnst sjálfsagt að samfélagið eyði milljörðum í að byggja umfangsmikil umferðarmannvirki til að við getum komist leiðar okkar. Fyrir því eru ekki rökréttar ástæður heldur hrein fíkn.

Í dag munu 24.000 manns deyja úr hungri 11.9.2004
Á þessu ári má búast við því 8-9 milljónir manns deyi úr hungri en af þeim verða tveir þriðju hlutar börn undir fimm ára aldri.

Úr afrekaskrá Bechtel II: Heppileg valdarán 12.9.2004
Talsmaður Bechtel á Íslandi tók til varna fyrir sína menn í Morgunblaðsgrein í sumar og sagði allt sem á þá var borið einfaldlega byggt á misskilningi. Það skyldi nú vera.

Misréttið gagnast fáum 13.9.2004
Atvinnurekendum í smáum rekstri finnst þeir eflaust hafa fengið glaðning með skattalækkunum Íhaldsins. En velferð byggð á gjaldtöku en ekki sköttum kemur verst niður á öllum þeim sem berjast í bökkum.

Tíu misheppnuðustu hugmyndir samtímans 14.9.2004
Pólitísk nýmæli undanfarinna ára og áratuga hafa reynst misvel og margt sem eitt sinn virtist góð hugmynd hefur ekki tekist jafn vel í framkvæmd. Sjaldan njóta menn þess sem vel gengur en hitt er óumdeilt að oft hefur ekki tekist til sem skyldi. Múrinn tilnefnir tíu hugmyndir sem ekki hafa tekist eins og til var ætlast.

Um hvað geta Bandaríkjamenn kosið árið 2020? 16.9.2004
Verður þá gerð krafa til frambjóðenda um að þeir hafi skotið eldflaugum á óbreytta borgara í Júgóslavíu, Afghanistan eða Írak?

Vítahringur kjarabaráttu kennara 17.9.2004
Af einhverjum ástæðum fer kjarabarátta kennara í taugarnar á sumu fólki. En hvers vegna eru kennarar óánægðir?

Stöðuhækkun Halldórs 18.9.2004
Ljóst er að nýr forsætisráðherra Íslands hefur annan skilning á utanríkismálum en aðalritari Sameinuðu þjóðanna. Geta síendurtekin afglöp manna skilað þeim stöðuhækkun á Íslandi?

Að þakka fyrir sig 19.9.2004
Samkvæmt Morgunblaðinu er sjálfstæði Ísland ekki Jóni Sigurðssyni að þakka heldur Bandaríkjamönnum. Og við eigum að greiða þakkarskuldina – með lífi saklauss fólks í Írak.

Austfirðingum fækkar 20.9.2004
„Stærsta framkvæmd Íslandssögunnar“ átti jafnframt að vera stærsta byggðaaðgerðin. Niðurstaðan blasir nú við.

Einkavæðingin eftir mannúðarstríðið 21.9.2004
Frá upphafi var einkavæðing ríkisfyrirtækja eitt af helstu markmiðunum með loftárásum NATO á óbreytta borgara í Júgóslavíu 1999.

Andvaka og lystarlausir Íslendingar 22.9.2004
Liggur landinn andvaka og lystarlaus yfir ástandinu í heiminum? Munu áhyggjur okkar af öðrum ríða okkur að fullu? Hvað getum við gert?

Hvernig viljum við hafa Hæstarétt? 23.9.2004
Sumir halda að á Íslandi ríki þrískipting ríkisvalds. Þeir sem segja að skipunarvaldið sé hjá ráðherra eru augljóslega ekki sammála því.

Það er stundum þess virði að borga meira 24.9.2004
Er kennaradeilan komin í óleysanlegan hnút? Ekki ef við breytum um forgangsröðun og sættum okkur við að það er þess virði að borga fyrir gott menntakerfi.

Nútíma þrælahald í Bandaríkjunum 25.9.2004
Í gær var birt skýrsla sem fjallar um þrælahald í Bandaríkjunum á árunum 1998-2003 og á vonandi eftir að opna augu Vesturlandabúa fyrir nútíma þrælahaldi.

Líkræður um lifandi menn 26.9.2004
Núna virðist vera orðið til siðs að skrifa minningargreinar um lifandi menn og er hvergi dregið úr lofinu. Þessi siður virðist upprunninn meðal Sjálfstæðismanna.

Fréttafalsanir 27.9.2004
Dómsmálaráðherra hefur áhyggjur af kerfisbundinni viðleitni fjölmiðla við að flytja rangar fréttir. En þess konar vinnubrögð eru ekki ný af nálinni og komu skýrt fram í aðdraganda Íraksstríðsins.

Af hernaði og veiðiskap 28.9.2004
Umgengni sumra gæsaveiðimanna um íslenska náttúru er með slíkum endemum að þar hlýtur að stefna í harkalegar aðgerðir að óbreyttu.

Örríki veraldar – I hluti 29.9.2004
Það er illskiljanlegt hvers vegna Halldór Ásgrímsson rembist nú við að fá Ísland “hækkað upp um flokk” – með því að sverja af sér örríkisstimpilinn en slást í hóp smáríkja. Færa má rök fyrir því að örríki séu miklu áhugaverðara fyrirbæri en fjöldi smáríkja.

Á að semja við hryðjuverkamenn? 30.9.2004
Viðbrögð við hryðjuverkum og öðrum glæpum eiga að snúast um fórnarlömbin - að þau verði sem fæst.

Metnaðarlausir kennarar í tímaskekktu verkfalli? 1.10.2004
Eins og svo oft áður leggur frjálshyggjuliðið til meiri kapítalisma sem tæki í kjarabaráttu í stað verkfalla. Sú leið gafst ákaflega illa á 19. öldinni og jafnvel verr á þeirri 20. en sumir eru „staðfastir“ í fleiru en utanríkismálum.

Hin íslenska stöðuveiting 2.10.2004
Í nýjasta stöðuveitingafarsa Íslands hafa ýmis rök komið fram. Múrinn kynnti sér þau.

Er borgarastyrjöldin í Kólumbíu að breiðast út? 3.10.2004
Árum saman hafa þeir sem til þekkja varað við því að herför Kólumbíustjórnar og Bandaríkjahers gegn skæruliðahreyfingunum FARC og ELN myndi hafa nákvæmlega þessar afleiðingar.

Kambodíumenn gera upp söguna 4.10.2004
Á fréttavef Ríkisútvarpsins í dag var ekkert sérlega greinargóð lýsing á ógnarstjórn Rauðu khmeranna í Kambodíu 1975-1979. Þáttar Íslands í þeirri merku sögu var t.d. að engu getið.

Bandaríska leiðin: Víti til að varast 5.10.2004
Offita og misskipting auðsins hafa gert það að verkum að Bandaríkin eru eina iðnvædda landið þar sem meðalævilengd fólks er hætt að aukast og horfur á að hún minnki verulega á næstunni.

Lagagildi Kyoto-bókunarinnar vekur vonir 6.10.2004
Loksins gerði Rússlandsstjórn eitthvað rétt.

Síðasta klappstýran 7.10.2004
Davíð Oddsson segist stoltur af þátttökunni í Íraksstríðinu, þar sé yfirleitt friðsamlegt og innrásarliðið hafi fært konum í landinu alveg sérstaklega bjartar framtíðarvonir.

Afrísk baráttukona hlýtur friðarverðlaun Nóbels 8.10.2004
Tilkynnt hefur verið að umhverfisverndarsinninn Wangari Maathai frá Kenía hljóti friðarverðlaun Nóbels í ár. Múrinn kynnti sér líf og störf þessarar kenísku baráttukonu.

Aðgangur bannaður 9.10.2004
Sólbaksdeilan markar að því leyti tímamót í verkalýðssögu landsmanna að þar var reynt að afnema lög með afli fjármagnseigenda á sama hátt og gert er t.d. hjá undirverktökum NIKE í Indónesíu, Samsung í Mexíkó og GAP í Kína. Og Impregilo við Kárahnjúka.

Er Kerry málið? 10.10.2004
Það er ekki víst.

Örríki veraldar - II hluti 11.10.2004
Af orðum meints forsætisráðherra Íslands má skilja að hlutskipti örríkisins sé ömurð og einangrun, en að útleitin og alþjóðlega meðvituð smáríki séu það svalasta sem fram hefur komið frá því að Right Said Fred sungu "Deeply Dippy". En er það raunin? Eru örríki ómerkilegir útnárar sem ekkert hafa til heimsmenningarinnar að leggja?

Hvaða íslenskukomplex er þetta? 12.10.2004
Ekki er laust við að sá sem vaknar skyndilega upp við að verða orðinn hálfgerður nýnasisti vegna langskólanáms í íslensku hlýtur að óska sér öðru hvoru að hann hefði lært á tölvur í staðinn. Af einhverjum ástæðum er nefnilega litið öðrum augum á það. Sá sem er góður á tölvur er bara góður á tölvur. Í versta falli er hann grunaður um að eiga margar hawaiskyrtur og ganga með matseðil vikunnar framan á sér. En það er ekki talið til marks um hroka, yfirstéttarmóral, þjóðernishyggju og heimsku.

Magnaður Héri Hérason 13.10.2004
Leikhúsárið er hafið og Múrinn brá sér í leikhús um helgina á Héra Hérason í Borgarleikhúsinu.

Takmörkun gereyðingarvopna – áróðursbrella eða raunhæft markmið? 14.10.2004
Sáttmálinn um takmörkun kjarnorkuvopna (NPT) leggur kvaðir á kjarnorkuveldin, ekkert síður en þau ríki sem ekki hafa enn komið sér upp kjarnorkuvopnum. Það vill oft gleymast.

Er vinna dyggð? 15.10.2004
Í nútímasamfélögum er vinna nefnilega dyggð númer eitt. Það er ekki dyggð að vera skemmtilegur, glaður eða slakur. Það er hins vegar dyggð að vera duglegur og fyrir það fær maður klapp á kollinn.

Umhverfismál eru mikilvægari en Rússagrýla 16.10.2004
Heræfingar við Ísland er aldrei ásættanlegar, sérstaklega ekki þegar kjarnorkuknúin skip eiga í hlut.

Sunnudagshugleiðingar 17.10.2004
Er það eðlilegt að telja það truflun að vita af tilveru annars fólks í kringum sig?

Veiklulegur málflutningur 18.10.2004
Ef svo mörg rök eru fyrir sameiningu sveitarfélaga sem ýmsir vilja vera láta, hvers vegna gengur þá svona illa að benda á dæmi um það sem áunnist hefur og myndi vinnast með frekari sameiningu?

Frelsi til að anda að sér hreinu lofti 19.10.2004
Kannast lesendur við að hafa orðið fyrir óbeinni majónesneyslu?

Nýkónar I 20.10.2004
Hverjir eru þeir og til hvers konar hugmynda er vísað með þessu hugtaki?

Dánarfregn 21.10.2004
Hægt að koma orðum heljar með ofnotkun. Orðið „ómálefnalegur“ er hér með fallið frá.

Gamlar fréttir af framtíðinni 22.10.2004
Framtíðarnefnd Samfylkingarinnar boðar undarlegt afturhvarf í menntamálum. Og minnst tvær stefnur, auðvitað.

Gengisfelling stúdentsprófs – Af hverju ekki? 23.10.2004
Engin rök hafa verið færð fyrir því hvers vegna draga á úr gildi stúdentsprófsins með því að stytta nám í
framhaldsskólum úr fjórum árum í þrjú. Ekki nema gömul tugga frá Verslunarráði um að þá komist fólk fyrr
út á vinnumarkaðinn. Þau rök standa hins vegar ekki undir nafni.

Fleira er matur en feitt rusl 24.10.2004
Hvert er samhengið milli offitu og vannæringar? Þurfa kannski einmitt þeir "feitustu" að borða meira, öfugt við það sem íslenskir nýfrjálshyggjupennar halda fram?

Þjóðarsjónvarp eða Kanasjónvarp? 25.10.2004
Valið sem Íslendingar standa frammi fyrir í sjónvarpsmálum er að mörgu leyti það sama og var fyrir 40 árum: Ríkissjónvarp eða Kanasjónvarp.

Nýkónar II 26.10.2004
Utanríkisstefna nýkónanna bandarísku hefur ekkert breyst frá því á dögum kalda stríðsins.

Skyggnst undir yfirborð dollaramálsins 27.10.2004
Trúir einhver því að Kúbustjórn geti "hefnt sín" á Bush með því að bola dollaranum út úr viðskiptum á eynni?

Súkkulaði og skítur 28.10.2004
Er raunveruleg þörf á að drekka hreinsivökva til halda heilsunni? Eða kannski frekar á því að drekka ekki svoleiðis lagað?

Til hvers að slaka á kröfum? 29.10.2004
Leið sú sem menntamálaráðherra boðar, að skera niður nám í framhaldsskólum, felur það í sér að minni kröfur verða gerðar til stúdenta framtíðar en fólks sem nú er í framhaldsskólum og fólk sem fer í háskólanám mun mæta verr undirbúið til þess leiks.

Heillaóskir til ríkisstjórnarinnar 30.10.2004
Smæstu fylgihnettirnir verða eðlilega síðastir til að víkja af sporbaug sínum vegna þess hve létt er í þeim pundið samanborið við þungamiðju stórstjarnanna.

„Chicken street — shit happens“ 31.10.2004
„Friðargæsluliðarnir“ sem komnir eru heim frá Kabúl taka víst nýjustu skakkaföllum sínum með „húmor“. En ófarir þeirra hafa haft afdrifaríkar afleiðingar fyrir aðra.

Borgin verður að sækja sinn rétt 1.11.2004
Nú þegar niðurstaða Samkeppnisráðs liggur fyrir er ljóst að Reykjavíkurborg á bótakröfu á hendur olíufélögunum. Pólitískir hagsmunir einstakra embættismanna mega ekki koma í veg fyrir að hún sæki þann rétt.

Arfleifð Holleriths 2.11.2004
Kjósendur í Flórída og víðar ættu að minnast verkfræðingsins Hermans Hollerith í dag og reyna svo að fá stjórnvöld til að innleiða nothæf kjörgögn.

Þórólfur nýtur ekki trausts 3.11.2004
Enginn vafi er á því að borgarstjóri ber siðferðilega ábyrgð, hvað svo sem refsiábyrgð líður. Hann hefur brugðist trausti Reykvíkinga. Honum ber að axla ábyrgð og víkja úr starfi.

Alabamaskólinn sigrar 4.11.2004
Næstu landvinningar væru að banna þróunarkenninguna, kóraninn og vísindamenn sem telja umhverfisvandamál raunverulega ógn. Fjögur ár eru til stefnu.

Má lemja konur? 5.11.2004
Dómur á borð við þann sem kveðinn var upp í Héraðsdómi Reykjaness á dögunum ætti ekki að líta dagsins ljós á okkar tímum.

Kanadamenn hafna stjörnustríðsáætlun Bush 6.11.2004
Minnihlutastjórn Paul Martins er vandi á höndum í ljósi þess að meirihluti kanadískra kjósenda er andvígur þátttöku landsins í gagneldflaugakerfi Bandaríkjastjórnar.

Bush ógnar öryggi Íslendinga 7.11.2004
Eiga Íslendingar ganga í hóp þeirra villidýra í alþjóðamálum sem ógna öðrum þjóðum og hafa þegar valdið dauða hundruða þúsunda á örfáum misserum, fyrir fjórar orustuþotur?

Alveg eins og Nylon? 8.11.2004
Hulda Sigrún Haraldsdóttir hefur áhyggjur af skemmdarstarfsemi Femínistafélagsins gagnvart virðulegu karlablaði. Múrinn hefur meiri áhyggjur af slæmri sjálfsmynd sem skapaðar eru af fjölmiðlum.

Okkar Ameríka — þeirra Ameríka 9.11.2004
Þau Bandaríki sem við þekkjum úr kvikmyndum og sjónvarpi eru búin til af kjósendum Johns Kerry.

Litadýrðin hjá Benetton 10.11.2004
Hvað gerir maður með 900 þúsund hektara lands í Argentínu?

Arafat 11.11.2004
Hann hét upphaflega Múhameð Abd ar-Rahman ar-Rauf al-Qudwah al-Húseini og kvaðst fæddur í Jerúsalem.

Spenna og sósíalismi 12.11.2004
Ein af þeim bókum sem eru snemma á ferðinni í ár er Kleifarvatn eftir Arnald Indriðason.

Kennarar og ríkið 13.11.2004
Ríkisstjórnin stærir sig af digrum sjóðum og boðar skattalækkanir en þverneitar að koma sveitarfélögunum til aðstoðar með auknum tekjustofnum til að standa straum af nauðsynlegri grunnþjónustu.

Ráðherra gerður afturreka á Alþingi 14.11.2004
Ráðherrar sem ekki vilja láta strauja yfir sig á Alþingi ættu að forðast það að bulla í fjölmiðlum.

Fallúdja 15.11.2004
Nýjasta skrefið á vegferð Íraks til friðar og lýðræðis afhjúpar endanlega sjálfhverfu ráðamanna á Vesturlöndum sem virðast telja sig guðs útvalda þjóna til að leiða villuráfandi Austurlandabúa á rétta braut.

Hinn guðlegi réttur 16.11.2004
Særðu fólki blæddi út á meðan framverðir siðmenningarinnar héldu hjálparstarfsfólki og sjúkrabílum utan við borgina með vopnavaldi.

Hve lengi er hægt að hafa höfuðið í kafi? 17.11.2004
Hvað segir það okkur að í Bandaríkjunum sé búið að sýna fram á bein tengsl milli loftmengunar og fjölda ótímabærra dauðsfalla?

Í stríði og friði 18.11.2004
Velþekktur rokkari sagði í viðtali um daginn að ef hann gæti breytt einhverju í heiminum í dag þá væri það að stöðva hryðjuverk. Sigríður Geirsdóttir leggur út af þessum ummælum í gestapistli.

Hvað þýðir nei? 19.11.2004
Eru það eðlileg skilaboð dómstóla að ef karl vill sofa hjá konu en hún ekki hjá honum þá eigi hún bara alls ekki að liggja í sama rúmi og hann?

Fullveldið fleyga 21.11.2004
Samkvæmt nýjustu kenningum er það ríki fullvalda sem hefur fullt forræði yfir dómsvaldi, framkvæmdavaldi og löggjafarvaldi - og að lágmarki fjórar herþotur.

Ný bandarísk herstöð í Kólumbíu 22.11.2004
Þarf virkilega herflugvöll, skriðdreka, stórskotaliðsbyssur, njósnaflugvélar, fjölmennt kólumbískt herlið og hóp bandarískra landgönguliða til að hindra skemmdarverk á olíuleiðslunni frá Caño Limón?

Afvopnun fyrir alla 23.11.2004
Yfirmaður Alþjóðakjarnorkumálastofnunarinnar berst fyrir alþjóðlegu, samræmdu eftirliti með smíði kjarnorkuvopna og mætir þar andstöðu kjarnorkuveldanna sem vilja auka vígbúnað sinn án afskipta annarra en efla eftirlit með öðrum.

Eipkóngurinn 24.11.2004
Í stuttri tíð sinni í forsætisráðherraembættinu hefur Halldór Ásgrímsson hvað eftir annað gert sig sekan um skammsýni og ábyrgðarlaust hjal sem benda til þess að hann þjáist af verulega alvarlegri bjálkaveiki.

Höfnum valdastjórnmálum 25.11.2004
Af hverju kennir Michael Howard, leiðtogi breska Íhaldsflokksins, sjálfum Tony Blair (ekki hljómsveitinni!) um vandræði sín og síns flokks?

Fleiri dýrategundir í útrýmingarhættu 26.11.2004
Ný útgáfa af Rauða listanum svokallaða yfir dýrategundir í útrýmingarhættu bendir til alvarlegrar hnignunar síðastliðin tvö ár.

Mýtur um stjórnmálamenn I 27.11.2004
Náttúrulega konan, menningarlega konan, MH-stelpan, pólókraginn og pönkarinn.

Lögleiðing fíkniefna — I. hluti 28.11.2004
Nýjasta patentlausn frjálshyggjumanna við samfélagsvanda er lögleiðing fíkniefna. En leysir hún vandann eða eykur hann?

Okrað á matvöru innan Norðurlandaráðs 29.11.2004
Hin merka bók How to lie with statistics ætti að vera skyldulesning fyrir nemendur í fjölmiðlafræði - og reyndar miklu fleiri ef út í það er farið.

Aftur til „gömlu góðu daganna“ 30.11.2004
Sú mynd sem hefur verið dregin upp mynd af innanlandsátökum í Úkraínu er í augljósu ósamræmi við veruleikann.

Fréttablaðinu finnst stjórnarandstaðan slöpp 1.12.2004
Fréttablaðinu finnst ríkisstjórnin standa nokkuð sterk en stjórnarandstaðan frekar slöpp og ná litlum árangri. Skoðanakannanir sýna hins vegar að þjóðin er á annarri skoðun.

Mannréttindi mega ekki vera háð dyntum 2.12.2004
Hefnigirni tveggja ráðherra hefur nú fært Alþingi Íslendinga ákúrur frá Wallenberg-stofnuninni og aukið enn á hróður ríkisstjórnarinnar.

Þetta hlýtur að vera samsæri 3.12.2004
Ríkisstjórninni gremst að þjóðin skuli ekki vera full þakklætis fyrir skattalækkanir á kostnað velferðar. En vondar hugmyndir verða ekki góðar þótt fólki sé skipað að vera þakklátt fyrir þær.

Örríki veraldar – III. hluti 4.12.2004
Það er gagnlegt fyrir Íslendinga að fræðast um agnarsmá samfélög sem ekki skipta jafn miklu máli og við.

Ólíkar leiðir 5.12.2004
Ríkisstjórnir Thailands og Pakistan beita ólíkum aðferðum til að binda enda á ófrið í löndunum tveimur. Hvorir skyldu ná meiri árangri?

Óskabörn þjóðarinnar 6.12.2004
Ljóst er að mörgum þykir árshátíðarlag Skólafélags Menntaskólans í Reykjavík heldur ósiðlegt og niðrandi fyrir kvenfólk.

Seðlabankinn gengur í lið með kennaramafíunni 7.12.2004
Það er ekki einleikið hvernig hvert þjóðfélagsaflið af öðru leggst á varaformann fjárlaganefndar til að pína hann og kvelja í svartasta skammdeginu.

Forsætisráðherra festist í eigin vef 8.12.2004
Klassískt vandamál lygarans er að hann þarf að muna allt sem hann hefur sagt ósatt og það sem er satt. Og minni manna reynist stundum valt.

Fær Najibullah uppreisn æru? 9.12.2004
Nú er Hamid Karzai lýst sem „fyrsta lýðræðislega kjörna forseta Afganistans“. En kosningar af því tagi sem komu honum til embættis eru vel kunnar úr sögu landsins.

Hægar framfarir hjá Útlendingastofnun 10.12.2004
Ef fólk sem flýr pólitískar og trúarlegar ofsóknir í Afghanistan og Úsbekistan uppfyllir ekki skilyrði Útlendingastofnunar fyrir því að fá hæli hér á landi, þá er eitthvað mikið að.

Íslendingar styðja ekki Íraksstríðið 12.12.2004
Á Alþingi í fyrradag sagði forsætisráðherra að fjallað hefði verið um málið á ríkisstjórnarfundi 18. mars. Í Kastljósinu fáum dögum áður sagði hann að engin formleg samþykkt hefði verið gerð af ríkisstjórninni um málið.

Hverjum er ekki sama? 13.12.2004
Fátækt er eitt alvarlegasta vandamál heimsbyggðarinnar og þrátt fyrir sívaxandi auð ríkustu ríkja heims virðist vandinn aðeins aukast.

Land ótta og ofsókna 14.12.2004
Hið pólitíska frelsi, sem í orði kveðnu átti að færa Írökum með innrásinni 20. mars í fyrra, er nú jafn fjarlægt og það var í stjórnartíð Saddams Hussein.

Gleymt stríð í fátæku landi 15.12.2004
Borgarastyrjöldin í Kongó og sinnuleysi umheimsins gagnvart voðaverkum sem þar eru drýgð á hverjum degi eru því hluti af einu og sama ferlinu. Afríka er orðin jaðarsvæði í alþjóðamálum sem skiptir stjórnmálamenn jafn litlu máli og fátæklingarnir heima fyrir.

Frelsi hinna fáu 16.12.2004
Úkraínumaðurinn sem ríkisstjórn Íslands lét handtaka, reka úr landi og útiloka frá því að ferðast til fjölmargra landa hefur svo sannarlega fengið að kynnast hinu íslenska afbrigði af frjálshyggju.

Eingöngu yfirburðamenn, takk 17.12.2004
Sannleikurinn er sá að þau vandamál sem steðja að Íslendingum eru mun fremur fjandsamlegt viðhorf okkar til útlendinga ef marka má útlendingalögin og viðbrögð okkar við pólitískum flóttamönnum.

Mogginn gefst ekki upp 18.12.2004
Tuttugu og níu árum eftir að Bandaríkjaher hrökklaðist frá Víetnam, heldur Morgunblaðið áfram að berjast á litlu eyjunni sinni.

„Frelsin fjögur“ eru takmörkunum háð 20.12.2004
Útlit er fyrir að Tyrkir fái ekki aðild að Evrópusambandinu nema með sérstökum skilyrðum og að ferðafrelsi þeirra verði ekki jafnt því sem gildir um aðra íbúa sambandsríkisins. Mun framtíðarhugmyndafræði Evrópusambandsins e.t.v. snúast um lögbundinn mannamun?

Jólaeipið 21.12.2004
Snúast jólin bara um stress fyrir fjölda fólks? Múrinn er með puttann á púlsinum í þessu máli sem öðrum.

Morgunblaðið heggur í sama knérunn 22.12.2004
Þögn Morgunblaðsins um efnavopnahernað Bandaríkjanna í Víetnam er rofin — með nýrri moggalygi. Í stað þess að leita í erlendar fréttir vísar Mogginn á ljósmyndara blaðsins varðandi sannleikann um Víetnamstríðið.

Útrás í boði láglaunafólks 23.12.2004
Útrás íslenskra fjármagnseigenda er hvorki góð né slæm fyrir allan þorra Íslendinga. Hún skiptir okkur einkum máli vegna þess að ríkidæmið sem hún endurspeglar er að mörgu leyti búið til af stjórnvöldum á kostnað láglaunafólks.

Hin ósigrandi sól 24.12.2004
Vetrarsólstöðuhátíð Íslendinga á sér langa sögu sem m.a. tengist persneskum sólguð og hinum rómverska Frey.

Hernámsaðstoð eða þróunarhjálp? 25.12.2004
Hvað er á bak við tölur fjármálaráðherra um ört vaxandi framlög til þróunarmála?

Vestrænt lýðræði í framkvæmd? 26.12.2004
Víða eru hnökrar á framkvæmd lýðræðisins. „Flauelsbyltingar“ leiðrétta ekki slíka hnökra.
Þær tryggja hins vegar Vesturlöndum „rétta“ niðurstöðu.

Opinberun Framsóknar 27.12.2004
Ekki er úr vegi um jólahátíðirnar að rifja upp guðspjall Framsóknarflokksins.

Í það minnsta kert’ og spil 28.12.2004
Hamfarirnar við Indlandshaf kalla á að allir sem aflögufærir eru, leggi sitt af mörkum.

Kópt í kristalinn 29.12.2004
Meðlimir Múrsins verða ekki oft fyrir dulrænni reynslu en kunningi eins þeirra lenti í einu slíku atviki um daginn. Sannleikurinn er þarna úti...

Hræsnari ársins? 30.12.2004
Hulunni hefur verið svipt af athygliverðri starfsemi í Lucas Heights í Sydney þar sem eini kjarnakljúfurinn í Ástralíu er staðsettur. Þar hafa verið gerðar leynilegar tilraunir með auðgun úrans í 30 ár. Þetta er athyglisvert vegna þess að ríkisstjórn Ástralíu hefur í orði þungar áhyggjur af útbreiðslu kjarnorkuvopna.

Árið 2004 í endurliti – hverjir sköruðu fram úr 31.12.2004
Er ekki hægt annað en að gleðjast í samfélögum þar sem mönnum sem beita konur ofbeldi er fært til málsbóta ef þær hafa „reitt hann til reiði“. Múrinn gerir upp árið.

Við áramót 1.1.2005
Múrinn fagnar ekki útrás íslenskra fjárfesta á meðan sá hluti landsmanna sem lifir á vonarvöl fer stöðugt vaxandi.

Mölvuspá ársins 2005 2.1.2005
Múrinn er spámannlega vaxinn en sleppir því að benda á sjálfsagða hluti eins og að deyfð verði yfir Halldóri Ásgrímssyni á árinu.

Almenningur verður að hefjast handa 3.1.2005
Hnattvæðingu fjármagnsins verður að svara með alþjóðlegum aðgerðum og samstarfi í auknum mæli.

Þumalputtaregla um stríðsæsingamenn 4.1.2005
Þessa dagana reyna stríðsæsingamenn að sannfæra okkur um að ástæður Íraksstríðsins tilheyri fortíðinni og nú eigi að beina augunum að „uppbyggingarstarfi“ í landinu.

Fjölskyldupólitík er þreytt plata 5.1.2005
Fyrir utan hip hop-hneigðina voru það trúlega fjölskylduhugleiðingar forsætisráðherra sem vöktu mesta athygli á gamlárskvöld.

Árið 2004 – hverjir græddu og hverjir töpuðu 6.1.2005
Í dag er þrettándinn, síðasti dagur jóla og síðustu forvöð að gera upp sigra og ósigra liðna ársins.

Þjóðréttarvitringurinn 7.1.2005
Hinir fjölmörgu Íslendingar sem gátu ekki sofið af ótta við að aðild að listanum fæli í sér þjóðréttarlega skuldbindingu geta nú andað léttar.

Glæpsamlegt skeytingarleysi 8.1.2005
Starfsmenn NOOA hringdu þegar í stað í flotastöð Bandaríkjahers í Diego Garcia til að gera sínum mönnum viðvart um hættuna af hugsanlegri flóðbylgu á annan í jólum en hvað gerðu þeir fyrir aðra á svæðinu?

Listinn 9.1.2005
Öllu frumlegri en ritstjórar Morgunblaðsins er Davíð Oddsson sem virðist aðhyllast svokallað „skapandi þrugl“ og kemur því með nýja fleti á málinu í stað þess að endurtaka gamla leiðara.


Leit   Eldra efni   Um Múrinn
Forsíða   Efst á síðu
Rss straumur