Múrinn-vefrit um þjóðmál, pólitík og menningu
Múrinn-vefrit um þjóðmál, pólitík og menningu
 

Kona forseti í Finnlandi?

Tarja Halonen, frambjóðandi Jafnaðarmanna, vann óvæntan sigur í fyrri umferð forsetakosninganna í Finnlandi um helgina. Líkur hafa nú aukist á að hún verði kosin forseti Finnlands, fyrst kvenna. Halonen yrði nítjánda konan í heiminum á forsetastól en sú áttunda sem kosin yrði forseti af þjóð sinni. Áður hafa íbúar Íslands, Filippseyja, Nicaragua, Sri Lanka og Panama kosið konu forseta og Írar tvisvar. Vigdís Finnbogadóttir hefur setið lengst allra kvenna á forsetastóli.

Tarja Halonen er að mörgu leyti afar þekkilegur frambjóðandi. Hún er sósíalisti og andvíg aðild Finna að NATO. Þá hefur hún verið einstæð móðir, er nú í óvígðri sambúð, er ekki í þjóðkirkjunni og hefur barist mjög fyrir réttindum samkynhneigðra. Í stuttu máli: ágæt vinstrikona.

Halonen hefur nú verið utanríkisráðherra um nokkra hríð. Finnar hafa einnig gert konu að landvarnaráðherra, fyrstir þjóða í heiminum. Í Svíþjóð hafa konur verið utanríkis- og fjármálaráðherra og Norðmenn hafa einir Norðurlandaþjóða haft konu á forsætisráðherrastóli. Danir reka jafnréttislestina, engin kona hefur orðið forsætis-, utanríkis- eða fjármálaráðherra þar í landi þó að formaður annars stjórnarflokksins sé raunar kona.

Íslendingar hoppuðu langt á undan heiminum og sjálfum sér árið 1980 þegar þeir kusu konu forseta. Er það skýr vísbending um það að þjóðin vill jafnræði kynjanna. Stjórnmálaflokkarnir hafa hins vegar verið ótrúlega seinir að taka við sér og það er fyrst nú að fjöldi kvenna í ríkisstjórn nálgast það sem gerist á Norðurlöndunum. Enn hefur engri konu verið treyst fyrir forsætis-, utanríkis- eða fjármálaráðuneytinu. Vonandi er þess þó ekki langt að bíða og þar verða vinstriflokkarnir að ganga á undan með góðu fordæmi.

áj


Prenta grein   Senda grein   Tilvísunar slóð



Leit   Eldra efni   Um Múrinn
Forsíða   Efst á síðu
Rss straumur