|
| |
Tapað - fundið
14.2.2004
Utanríkisráðherra er svo grátt leikinn af vinum sínum í vestrinu þessa dagana að hann sá sér þann kost vænstan að lýsa eftir fjórum bandarískum kafbátarleitarvélum af gerðinni Orion í fjölmiðlum. Þær eru sumsé horfnar af landi brott ásamt 150 hermönnum sem þeim fylgdu.
Það er vægast sagt grátbroslegt að horfa upp á ráðamenn gráta minnkandi vígvæðingu í Keflavík. Vonandi koma þessar herflugvélar aldrei aftur og ekki þessir 150 menn í herklæðunum heldur. Vonandi yfirgefa ekki færri en 150 hermenn Ísland ár hvert næstu 10 árin. Gaman væri ef þeir gætu hugsað sér að koma hingað einhvern tíma aftur sem ferðamenn til að skoða aðra landshluta.
Utanríkisráðherra hefur beðið Bandaríkjamenn að útskýra fyrir sér af hverju þessar herflugvélar séu ekki lengur á Íslandi. Hann er þar með ekki bara sá eini í 30 ríkisstjórna bandalaginu sem trúir því að allt úi og grúi af gereyðingarvopnum í Írak. Hann er líka sá eini sem trúir því í alvöru að austrænir illvirkjar bíði spenntir eftir að geta hremmt Ísland. Bandaríkjaher kom til Íslands óboðinn og hann yfirgefur Ísland án þess að biðja um leyfi ef stjórnendum hans býður svo við að horfa.
Herinn er nefnilega ekki sérstök tegund af góðgerðarfélagi. Hann mun ekki aumka sig yfir mann sem vill ljúka ferli sínum sem utanríkisráðherra með því að redda málinu. Ekki heldur mann sem tekur við því embætti og vill leysa verk sitt af hendi með stæl, hver sem það verður.
Málið á vafalaust eftir að verða enn grátbroslegra þegar nær dregur haustinu þar sem staðan í viðræðunum við Bandaríkjastjórn mun ráða því hvernig Sjálfstæðisflokkurinn stillir upp. Ef verndarinn virðist reiðubúinn til að lengja í tindátaleiknum mun Davíð Oddsson trúlega taka við af Halldóri Ásgrímssyni og leika bjargvættinn mikla. Ef svo virðist sem brugðið geti til beggja vona reynir Davíð kannski að koma Birni Bjarnasyni í stólinn enda ólíklegt að hann sýni nokkra linkind í ESB-málinu. En haldi yfirmenn hersins fast við að hann eigi að fara verður spilaður Svarti-Pétur upp á hver fái að glíma við málið nema þeim mun betur takist að kenna Framsókn um vandann.
sh
|
|
| |