Múrinn-vefrit um þjóðmál, pólitík og menningu
Múrinn-vefrit um þjóðmál, pólitík og menningu
 

Ísland og Túvalú góð saman

20.2.2004

Það var dálítið kyndug umfjöllun í Speglinum í gær í tilefni af því að Ísland hyggst nú taka upp stjórnmálasamband við næstum öll ríki heims, þar á meðal Vanúatú og Túvalú en nöfn þeirra þóttu minna mjög á Stuðmannalagið Búkalú. Ráðuneytisstjórinn í utanríkisráðuneytinu var tekinn í viðtal og stóð sig vel. Það sem er kannski furðulegt við málið er að þetta skuli þykja fréttnæmt.

Nú má gera ráð fyrir að Spegillinn fjalli ekki um mál af þessu tagi nema vegna þess að í landinu hafi farið fram umræða. Áhugavert er líka að heyra það sjónarmið (sem kannski var sett fram af talsmanni andskotans fremur en Spegilsmönnum sjálfum) að Ísland hefði lítið að gera með samband við smáríki af þessu tagi. Það kemur raunar ekki á óvart að margir hér á landi séu þannig þenkjandi. Ísland er eitt fámennasta ríki Evrópu og yfir því hafa margir minnimáttarkennd sem oft brýst út sem gorgeir gagnvart öðrum smáríkjum.

Nú má vel vera að stjórnmálasambandi við Vanúatú sé fyrst og fremst komið á vegna baráttu utanríkisráðuneytisins um að Ísland fái sæti í öryggisráðinu. Það er samt ekki að lasta. Nú verður raunar ekki séð að Ísland eigi neitt sérstakt erindi í þetta ráð því að risið hefur ekki verið hátt á íslenskri utanríkisstefnu seinustu misserin eða raunar árin. Hætt er við að meðan núverandi ríkisstjórn situr að völdum verði Ísland fremur til óþurftar en gagns í þessu ráði. En hins vegar hefur þetta brölt allt þá fyrst leitt til góðs ef við tökum þess vegna upp stjórnmálasamband við fjarlægar smáþjóðir sem við eigum kannski meira sameiginlegt en við viljum viðurkenna – sérstaklega ef um er að ræða fámenn eyríki.

Það er nefnilega löngu orðið tímabært að viðurkenna að Ísland er nákvæmlega þetta, fámennt eyríki. Þess vegna er remba sumra Íslendinga í garð annarra þjóða hallærisleg. Það merkir hins vegar ekki að Íslendingar eigi endilega að afneita sjálfstæði sínu og íslensku þjóðerni. Við getum auðvitað verið áfram stolt og sjálfstæð, ekki vegna þess að við séum merkilegri en aðrir heldur vegna þess að við erum við.

Okkur þykir vænt um Ísland, ekki vegna þess að það sé besta land í heimi, með besta bjórinn, lakkrísinn, sterkustu konurnar og fallegustu karlmennina (eða var það hinsegin?). Heldur vegna þess að það er okkar heimili og þess vegna eigum við ekki að lasta það og lítilsvirða. Um leið ættum við að venja okkur af þeim ósið að tala niður til annarra þjóða sem eiga það sameiginlegt með okkur að vera ósköp venjulegar og lítilsverðar og þó um leið stórmerkilegar og einstakar.

(Áður hefur verið skrifað um Tuvalu á þessum vettvangi. Sjá: hér & hér.)

áj


Prenta grein   Senda grein   Tilvísunar slóð



Leit   Eldra efni   Um Múrinn
Forsíða   Efst á síðu
Rss straumur