| |
Óleiðitöm frelsishetja ögrar Bandaríkjunum
25.2.2004
Nú hefur Vojislav Kostunica, leiðtoga Serbneska lýðræðisflokksins (DSS), verið falið að mynda ríkisstjórn í Serbíu, eftir langa stjórnarkeppu sem ekki þarf að koma á óvart eftir kosningarnar seinustu jól (sjá hér).
Kostunica er sérlundaður og erfitt annað en að bera virðingu fyrir honum. Hann er sá maður sem mestu skipti þegar Serbar losuðu sig við Milosevic. Síðan var honum meira og minna ýtt til hliðar en bandamaður hans, Zoran Djindjic, varð mestu ráðandi í Serbíu, uns hann var skotinn í fyrra. Djindjic var dáður á Vesturlöndum fyrir fylgispekt sína við Bandaríkin en í skjóli hans þreifst mikil spilling. Bandalag þeirra Kostunica snerist fljótt í ramma fæð enda mennirnir ólíkir. Það þarf því ekki að koma á óvart að Lýðræðisflokkur Djindjic (DS) er ekki með í nýju stjórninni.
Þegar Dragan Marsicanin þingforseti og settur forseti Serbíu (handhafi forsetavalds!) fól Kostunica að mynda stjórn kom hins vegar mörgum á Vesturlöndum á óvart að Sósíalistaflokkur Milosevic mun verja hana falli. Að stjórninni standa Serbneski lýðræðisflokkurinn, G-17 sem er bandalag hægri- og miðflokka og Endurreisnarhreyfing Serbíu sem Vuk Draskovic, fyrrum höfuðandstæðingur og síðar bandamaður Milosevic, leiðir. Sósíalistaflokkurinn verður ekki með en mun verja stjórnina falli.
Kostunica lýsti því yfir að Sósíalistaflokkurinn væri löglegur flokkur og jafn tækur í stjórnir og hver annar flokkur. Í Serbíu væru engir annarsflokksflokkar. En á bak við þetta nýja bandalag er auðvitað gagnkvæm óbeit Kostunica og arftaka Djindjic. Þeir hafa deilt um ýmis mál, þar á meðal stríðsglæpadómstólinn í Haag. Kostunica var upphaflega andvígur honum og taldi Serba best til þess fallna að rétta yfir Milosevic. Bandaríkjamönnum og bandamönnum þeirra hentuðu ekki slík réttarhöld þó að þau muni henta þeim núna, þegar kemur að Saddam Hussein.
Kostunica lét svo um mælt degi eftir að hann var tilnefndur að Serbar hefðu mikilvægari málum að sinna en að vera "kjötmarkaður fyrir Haag". Einkum þyrfti að takast á við félagslega spennu vegna vaxandi misréttis og efnahag í rústum sem Djindjic og félögum mistókst alveg að rétta við. Kostunica varaði við "svarthvítri" heimsmynd alþjóðadómstólsins í Haag sem hann telur andsnúinn öllum Serbum, ekki aðeins Milosevic og félögum. Ljóst er að slík ummæli eru ekki til þess fallin að afla Kostunica vinsælda hjá Bandaríkjamönnum og taglhnýtingum þeirra.
Enda er dómstóllinn ennþá nánast ómerkur þar sem Ratko Mladic og Radovan Karadzic sem eru taldir aðalstríðsglæpamennirnir eru enn ófundnir. Kostunica er auðvitað enginn vinur þeirra en hefur varað við því að leit að þessum mönnum gæti verið vatn á myllu hins þjóðernissinnaða Róttæka flokks Seselj sem var ótvíræður sigurvegari jólakosninganna. Hann er líka andvígur því að framselja fjóra serbneska hershöfðingja sem dómstóllinn hefur ákært. Ákærur gegn þeim eru raunar fremur lausar í reipunum og fráfarandi stjórn hafði ekki heldur viljað framselja þá.
Það er því útlit fyrir áframhaldandi spennu í samskiptum Serbíu við umheiminn. Kostunica er hins vegar ólíkt geðþekkari maður en skálkurinn Milosevic og verður því erfiðara að gera hann að allsherjar blóraböggli fyrir allt sem fer úrskeiðis í þessum heimshluta.
áj
|
|