Múrinn-vefrit um þjóðmál, pólitík og menningu
Múrinn-vefrit um þjóðmál, pólitík og menningu
 

Kosið um framtíð Chávez

15.8.2004

Andstæðingar Hugo Chávez, hins róttæka forseta Venezúela, reyna í dag í þriðja sinn á jafnmörgum árum að koma honum frá völdum. Að þessu sinni er kosningaleiðin farin en í apríl árið 2002 gerðu þeir tilraun til að ræna völdum með aðstoð bandarísku leyniþjónustunnar CIA og í desember sama ár freistaði stjórnarandstaðan þess að knýja Chávez til að segja af sér með vinnustöðvunum í olíuiðnaði landsins. Segja má að í Venezúela hafi hlutirnir gerst í öfugri röð við það sem var í Chile á áttunda áratugnum því þar reyndu CIA og andbyltingaröflin fyrst að koma höggi á Salvador Allende með verkfalli flutningabílstjóra en gripu síðan til valdaráns þar sem forsetinn var drepinn og Augusto Pinochet var settur á veldisstól.

Stjórnarandstaðan í Venezúela kveðst hafa safnað undirskriftum nálega hálfrar þriðju milljónar kjósenda. Í það minnsta úrskurðuðu dómstólar landsins að fram skyldi fara þjóðaratkvæðagreiðsla um hvort Chávez skuli settur af eða ljúki kjörtímabili sínu sem rennur út árið 2006.

Búist er við stórsigri Chávez í þjóðaratkvæðagreiðslunni en þess má geta að þar ræður einfaldur meirihluti þeirra sem nýta atkvæðisrétt sinn. Stjórnmálaskýrendur gera ráð fyrir um 85% kjörsókn enda hefur þátttaka almennings í því að móta eigið samfélag vaxið ótrúlega hröðum skrefum á undanförnum árum. Ný stjórnarskrá var t.d. samþykkt af 70% atkvæðisbærra manna í Venezúela.

Frá því að Chávez var kjörinn forseti árið 1998 hefur hann búið við harða stjórnarandstöðu svo að segja allra fjölmiðla í landinu en þeir eru flestir í eigu yfirstéttarinnar sem hrýs hugur við þeim breytingum sem forsetinn stendur fyrir. Óhætt er að segja að fjölmiðlarnir hafi afhjúpað sig fullkomlega hina spennuþrungnu sólarhringa vorið 2002 þegar herinn setti Pedro Carmona, formann samtaka atvinnurekenda, í embætti forseta en valdatíð hans stóð reyndar aðeins í tvo daga.

Svo virðist sem Chávez hafi styrkt sig mjög í sessi með því að efla lýðræði í landinu og virkja fólk í verkalýðsstétt til þátttöku í stjórnmálalífi Venezúela. Vinsældir hans stafa ekki síður af því að hann hefur staðið við mörg af kosningaloforðum sínum. Margs kyns átaksverkefni á sviði menntunar, heilsugæslu og fátækrahjálpar þykja minna mjög á fyrstu ár byltingarinnar á Kúbu. Ekki veitir af þar sem nærri fjórir af hverjum fimm íbúum Venezúela teljast fátækir þrátt fyrir að landið hafi lengi verið í hópi fimm mestu olíuútflytjenda í heiminum.

Það er vissulega olíuiðnaðurinn sem hefur gert Chávez kleift að hrinda í framkvæmd jafn víðtækum umbótum og raun ber vitni. Trúlega mun það einnig koma forsetanum til góða að heimsmarkaðsverð á olíu hefur verið hátt að undanförnum og ágóðanum verið veitt til að efla félagslega þjónustu í Venezúela. Búist er við tölum úr kosningunum síðdegis á mánudag.

Vegna tæknilegra örðugleika seinkaði sunnudagsútgáfu Múrsins úr hófi fram og eru lesendur beðnir velvirðingar á því.

sh


Prenta grein   Senda grein   Tilvísunar slóð



Leit   Eldra efni   Um Múrinn
Forsíða   Efst á síðu
Rss straumur