| |
„Chicken street — shit happens“
31.10.2004
Hvaða karlmaður kannast ekki við þá spennu sem fylgdi því að fara út sem barn í byssuleik með vinum sínum? Jafnvel á eldri árum fara menn út á vígvöllinn og spila byssuleik sem kallast litbolti. En til eru karlar sem ganga enn lengra, svokallaðir friðargæsluliðar, en þeir eru það sem væri hægt að kalla íslenska hermenn — og þó. Hvorki Halldór Ásgrímsson né Davíð Oddsson myndu skilgreina þá sem íslenska hermenn, a.m.k. hér heima fyrir, enda þótt þeir fái að vera með stórar byssur sem eru gerðar til þess eins að drepa fólk — rétt eins og hermenn nota.
Fyrir skömmu var gerð sjálfsmorðsárás á íslensku hermennina okkar í Friðargæslunni, þar sem þeir voru staddir í verslunarleiðangri í Kabúl. Í heila viku hafa herkarlarnir verið í hverjum einasta fjölmiðli og virðast stoltir af öllum afrekum sínum. Íslenska þjóðin hefur samúð með þeim þar sem þeir fengu sprengjubrot í sig í þessari árás og þurftu að fara á sjúkrahús. Þeir eru nú komnir heim.
Vegna hroka íslensku friðargæsluliðanna ákváðu þeir að fara í teppabúð í einkaerindum, þrátt fyrir að þeim hafi verið ráðlagt að fara ekki þá götu sem teppabúðin stendur við. Ekki nóg með það að þeir sjálfir urðu fyrir sprengjubrotum heldur létust 23 ára gömul bandarísk kona og 11 ára gömul afgönsk telpa í árásinni.
Við heimkomuna voru friðargæsluliðarnir í bolum sem á stóð: „Chicken street — shit happens“ en gatan sem sjálfsmorðsárásin var gerð heitir Chicken street upp á amerísku. Að eigin sögn var þetta tilraun til þess að gera brandara úr þessu öllu saman, eins og sönnum Íslendingi í verslunarferð sæmir. Eða hvað?
Fannst íslensku hermönnunum virkilega fyndið og sniðugt að hafa orðið fyrir sjálfsmorðsárás þar sem 11 ára afgönsk stúlka og 23 ára bandarísk kona létust? Þeir eru vissulega kátir að sjá, á þeim myndum sem af þeim hafa verið teknar eftir árásina, með bjór í annarri og vopnaðir. En ætli upplitið á þeim hefði ekki orðið annað ef þessi stúlka sem lést hefði verið dóttir einhvers þeirra. Hefðu þeir þá gert grín að öllu saman og gengið um í bol sem á stæði „shit happens“??
Það þykir nokkuð undarlegt að íslensk stjórnvöld sendi út menn í friðargæslu sem haga sér eins og þeir Sverrir, Steinar eða Stefán gerðu þarna úti. Hegðun Stefáns Gunnarssonar kemur hins vegar ekki ýkja mikið á óvart því fyrir nokkrum árum lenti hann í slagsmálum við nokkra víkingasveitarmenn á árshátíð Hjálparsveitar skáta í Garðabæ í Nesbúð. Þá reyndu lögreglumenn að skakka leikinn þar sem nokkrir menn hentu lögreglukonum út af salerni staðarins. Stefán Gunnarsson var þá í stjórn Hjálparsveitarinnar. Skal undra að mál eins og þessi séu ekki höfð til hliðsjónar þegar menn eru ráðnir til að fara með skotvopn í kringum almenning og jafnvel beita þeim ef þurfa þykir.
Undirritaður hefur enga samúð með þessum mönnum sem fengu nokkur sprengjubrot í rassinn, þar sem þeir fóru með alvæpni um þær götur sem þeim var ráðlagt að fara ekki um, að gefnu tilefni. Samúð mín liggur svo sannarlega ekki hjá þeim hrokagikkjum, heldur hjá fjölskyldum stúlknanna sem létust í sprengjuárásinni. Þær væru kannski enn á lífi ef íslensku hermennirnir hefðu fylgt ráðum þeirra sem betur þekktu til.
dss
|
|