Múrinn-vefrit um þjóðmál, pólitík og menningu
Múrinn-vefrit um þjóðmál, pólitík og menningu
 

Enn af fánum

19.4.2002

Þær stundir koma í lífi hvers ritstjórnarfulltrúa pólitísks vefrits, að honum/henni hættir til að láta hugfallast og vilja stinga af frá öllu streðinu. Það er á slíkum stundum sem uppörvandi bréf frá lesendum eru kærkomin og fá rökkri í skímu breytt.

Á dögunum fékk sá er þetta ritar aðdáendabréf frá dyggum lesanda ritraðarinnar um fána heimsins. Bréfið, sem raunar er frá stúlku sem pistlahöfundur þekkir vel, var á þessa leið:

Sæll gæskur.
Ég gerðist svo kræf að hætta mér upp á hinn alræmda Múr einvörðungu til þess að lesa fánapistla þína. Mér til mikillar gleði og ánægju sá ég að þú fjallaðir um uppáhaldsfána minn, þ.e. fána Lýbíu sem er stórfenglegur í einfaldleik sínum. Þú virðist vita allt um fána svo ég hef ákveðið að leggja fyrir þig spurningu. Hvað stendur á fána Saudi-Arabíu (líklegt kannski að þar standi bara Saudi-Arabía en engu að síður langar mig að vita það)? Svo er annað sem ég er handviss um að þú veist sem áhugamaður um Tuvalu. Fyrir hvað standa stjörnurnar í fánanum (mér dettur í hug fjöldi eyjanna)?

Með kærri þökk fyrir einstaklega ánægjulega og fróðlega pistla.


Hér varpar bréfritari fram bráðskemmtilegum spurningum sem rétt og skylt er að svara. Byrjum á Tuvalu.

Fáni Tuvalu er um margt dæmigerður fyrir þjóðfána fyrrum nýlendna Breta í Eyjaálfu. Hann er ljósblár flötur, með breska fánann uppi í vinstra horni en hægra megin eru níu fimmstrendar, gular stjörnur. Sú tilgáta fyrirspyrjanda, að stjörnurnar níu eigi að tákna fjölda eyjanna er hárrétt og raunar er lega stjarnanna á fánanum ekki ósvipuð landfræðilegri afstöðu eyjanna.

Eflaust koma þessar upplýsingar ýmsum lesendum spánskt fyrir sjónir og spyrja væntanlega margir í forundran: "Nú eru eyjar Tuvalu níu talsins? Hvernig má það vera í ljósi þess að orðið Tuvalu merkir einmitt ÁTTA samstæðir, á tungu heimamanna?" - Hér er hins vegar um gamlan draug úr fortíðinni að ræða. Þannig er nefnilega mál með vexti, að þegar Tuvalu varð sjálfstætt ríki undir lok áttunda áratugarins voru einungis átta af eyjum þess byggðar og þegar fólk fluttist til níundu eyjarinnar þótti ekki ástæða til að breyta nafninu í samræmi við það. Þetta er raunar alþekkt í örnefnasögu heimsins. Til dæmis var nafni Nýfundalands ekki breytt eftir því sem tímar liðu og landið fjarri því að vera nýfundið lengur. Og Eskifjörður heitir ennþá Eskifjörður þótt allir eskimóarnir séu á bak og burt fyrir löngu síðan.

En víkjum aftur að fána Tuvalu. Þrátt fyrir mikla leit á skjalasöfnum og á netinu, hefur þeim er þetta ritar ekki tekist að finna á því nokkra skýringu hvers vegna stjörnurnar níu snúa mismunandi. Þrjár þeirra snúa með tvo arma beint niður og einn beint upp, en hinar sex halla á annan hvorn veginn. Gaman væri ef snjall lesandi gæti sent inn svar við þessari ráðgátu. (Og talandi um ráðgátur. Í síðasta fánahorni var spurt hvaða annar þjóðfáni en sá svissneski sé ferningslaga. Rétt svar er að sjálfsögðu fáni Vatíkansins. Þeir Kári Tulinius og Benedikt Waage sendu báðir inn rétt svar og fá hrós að launum.)

Ekki hefur fáni Tuvalu þó alla tíð litið út eins og í dag. Árið 1995 lét forsætisráðherra landsins Kamuta Lautasi breyta fánanum, þannig að breska veifan var fjarlægð úr horninu, stjörnunum var fækkað um eina og afstaða þeirra gerð landfræðilega réttari. Þá var bakgrunnurinn gerður hvítur, rauður og blár - auk þess sem skjaldarmerki var sett hægra megin fyrir miðju. - Þessi fáni, sem telja verður nokkuð snotran, varð ekki langlífur því árið 1997 lagði nýr forsætisráðherra landsins, Bikenibeu Paeniu, til að honum yrði breytt í fyrra horf. Var það samþykkt á þingi eyjaskeggja með sjö atkvæðum gegn fimm.

En hvað með Saudi-Arabíu? - Þar er því til að svara, að textinn á fánanum mun vera trúarjátning Íslams: "Enginn er guð nema Allah og Múhameð er spámaður hans". Bakgrunnurinn er vitaskuld grænn og hefur saga fánans verið rakin aftur til loka átjándu aldar. Það var þó ekki fyrr en árið 1902 og sverðinu sem nú prýðir hann var bætt neðan við helgiorðin.

Saudi-Arabar ráku sig þó fljótlega á það hvers vegna svo fáar þjóðir hafa textabrot á fánum sínum. Ástæðan er sú að þá skapast vandamálið hvað gera skuli við hina hliðina. Ekki gengur að birta texta á röngunni. Slíkt væri jafn hallærislegt og "Sjákrabíll"-áletrunin framan á Sjúkrabílum sem skrifuð er með spegilskrift til að fólk í bílnum fyrir framan geti lesið í speglinum sínum hvað stendur.

Þess í stað snúa Saudi-Arabar textanum einfaldlega við, þannig að hann má lesa báðum megin frá. Hins vegar fer tvennum sögum af því hvort sverðinu sé snúið eða hvort hjöltun vísi alltaf í átt að fánastönginni.

Jamm.

sp


Prenta grein   Senda grein   Tilvísunar slóð



Leit   Eldra efni   Um Múrinn
Forsíða   Efst á síðu
Rss straumur