| |
Róttćkur vinstrimađur kjörinn forseti Bólivíu
19.12.2005
Evo Morales, 46 ára gamall sósíalisti af frumbyggjaćttum, var í gćr kosinn forseti Bólivíu til nćstu fimm ára. Morales fékk 51% atkvćđa og vann ţví glćstan sigur í kosningunum. Skođanakannanir fyrir kjördag höfđu bent til ađ hann fengi 41-42%, litlu meira en helsti keppinauturinn, José Quiroga. Útgönguspár, sem óheimilt var ađ birta fyrr en kjörfundi var lokiđ á öllum kjörstöđum landsins, sýndu meiri mun eđa um 10 prósentustig ţótt Morales hefđi mest 45% fylgi samkvćmt ţeim spám. Fyrirkomulag forsetakosninga í Bólivíu er ţannig ađ fái enginn hreinan meirihluta í almennri atkvćđagreiđslu skal ţing landsins kjósa forseta úr frambjóđendahópnum.
Kosningabarátta Morales og Quiroga endurspeglađi afar glöggt hinar andstćđu fylkingar í bólivískum stjórnmálum. Evo Morales er frumbyggi, eins og meirihluti landsmanna, sem lagđi ofuráherslu á ađ endurheimta yfirráđ yfir auđlindum Bólivíu og binda endi á hernađinn gegn kókarunnarćktun. Ađ undirlagi Bandaríkjastjórnar hefur rćktunin veriđ bönnuđ um árabil og eiturefnum veriđ úđađ yfir akra smábćnda međ skelfilegum afleiđingum fyrir vistkerfiđ, heilsu fólks og matvćlaframleiđslu. Međ ţađ í huga verđur ađ segjast um efnahagsađstođ Bandaríkjanna viđ Bólivíu ađ ć sér gjöf til gjalda.
José Quiroga er verkfrćđingur, menntađur í Bandaríkjunum og naut einkum stuđnings yfirstéttarfólks og kaupsýslumanna í kosningunum. Hann hafđi einmitt heitiđ ţví ađ halda kókastríđinu áfram af fullri hörku og fćra ţjóđskipulag Bólivíu lengra til hćgri samkvćmt hugmyndafrćđi nýfrjálshyggjunnar. Quiroga hefur áđur gegnt embćtti forseta, í forföllum Hugo Banzer fyrir nokkrum árum.
Í ljósi ţess hversu gjörólíkur málefnagrundvöllur helstu keppinautanna var, verđur ekki annađ sagt en ađ val kjósenda sé skýrt. Bólivíumenn eru ekki reiđubúnir ađ kaupa umtalsverđa efnahagsađstođ frá Washington ţví verđi sem hún hefur veriđ greidd á undanförnum árum. Fólk vill ađ gaslindir Bólivíu, sem eru ţćr nćstmestu í Suđur-Ameríku á eftir ţeim í Venezúela, verđi ţjóđnýttar og afrakstrinum variđ í ţágu almennings, hvort sem erlendum fyrirtćkjum og fjármagnseigendum líkar betur eđa verr.
Morales er fyrsti frumbygginn sem kjörinn er í embćtti forseta í Suđur-Ameríku. Hann ólst upp í sárri fátćkt í Andesfjöllum og ađeins tvö af sex systkinum hans komust á legg. Morales haslađi sér völl í bólivískum stjórnmálum sem leiđtogi kókabćnda og átti stóran ţátt í stofnun Sósíalistaflokksins ţar í landi.
Bólivía bćtist nú í hóp Brasilíu, Argentínu, Uruguay og Venezúela ţar sem vinstrimenn hafa náđ kjöri til forseta á síđustu árum. Einhverjir myndu einnig telja Chile eiga ţar heima ţrátt fyrir ađ litlar breytingar hafi orđiđ á hagkerfi ţess í forsetatíđ Ricardo Lagos og lítil von á slíku frá hendi nćsta forseta landsins.
Morales mun taka viđ embćtti 22. janúar nćstkomandi af Eduardo Rodriguez sem ţing landsins setti á forsetastól í sumar eftir ađ fjöldamótmćli knúđu Carlos Mesa til afsagnar. Hann verđur fjórđi forseti Bólivíu á innan viđ fjórum árum og má ţví gleggst vita hvađa afleiđingar svikin kosningaloforđ hafa í för međ sér.
sh
|
|