| |
Samkvæmisfréttir ríkisins
9.1.2006
Ólafur Sigurðsson lét af störfum hjá Fréttastofu Ríkisútvarpsins núna um áramótin. Eitt af einkennum hans sem fréttamanns var að hann lauk oft fréttum sínum á einhvers konar ályktun þar sem hann dró þá saman hvaða lærdóm mætti draga af þessari frétt. Ályktanir Ólafs voru oft umdeildar en þær höfðu þó einn stóran kost. Ef maður skildi hvorki haus né sporð á fréttinni og skildi alls ekki af hverju þetta teldist fréttnæmt komst maður að því þegar kom að ályktuninni.
Ég saknaði dálítið slíkrar ályktunar þegar ég horfði á kvöldfréttir Sjónvarpsins í kvöld. Þar var löng frétt sem meira að segja þótti meðal helstu fregna kvöldsins um að íslenskur maður hefði haldið rosalega dýrt og fínt boð fyrir alla fínu vini sína. Sumir gestirnir voru nefndir á nafn og virtust allir nýríkir Íslendingar hafa mætt í boðið. Boðið var haldið í Lundúnum og tekið var fram að sérstök flugvél hefði verið fengin til að fljúga með alla Íslendingana í boðið. Hápunktur kvöldsins var svo þegar frægur erlendur söngvari mætti og söng fyrir gestina — enginn annar en Tom Jones. Og tekið var fram að hann hefði nú kostað sitt.
Sauðsvartur almúgi hlýtur auðvitað að velta því fyrir sér hver sé tilgangurinn með þessari frétt. Er ætlunin að minna á að á Íslandi er orðin til ný nýrík stétt auðmanna sem borðar hamborgara í sjoppum, siglir um á skútum og fer svo í partý til útlanda ef þeir vilja og nenna? Og hvaða lærdóm eiga áhorfendur að draga af því?
Íslenskar fréttastofur hafa verið óþreytandi við að segja fréttir af „útrás“ íslenskra fyrirtækja og hvernig íslenskir auðmenn verja skildingum sínum erlendis. Í því samhengi er þessi frétt ein af mörgum. Hins vegar er munurinn sá að hér er um einkaneyslu að ræða en ekki fjárfestingu í fyrirtækjum eða húsnæði. Því hlýtur maður að velta fyrir sér tilgangi fréttarinnar. Er fréttinni ætlað að vera gagnrýni á tilgangslausa eyðslu hinna ríku og bilið milli ríkra og fátækra? Eða er þetta enn ein fréttin af því hvað (sumir) Íslendingar eru orðnir ríkir og flottir? Eða er það ný stefna að segja fréttir af spennandi samkvæmum?
Ég hélt mjög skemmtilegt boð í október hitteðfyrra. Þar kom merkur áhugaleikhópur og lék morðleikrit og margt frægt fólk kom í boðið. Ég gaf öllum að drekka og borða og það kostaði sko ógeðslega mikið. Hlutfallslega örugglega ekki minna en þetta boð ef miða á við tekjur boðshaldara. Enginn fjölmiðill sagði frá þessu og greinilegt að ég hef einhverju klúðrað við boðshaldið. En ég hef tök á að bæta mig. Ef RÚV ætlar almennt að fara að segja frá skemmtilegum samkvæmum í fréttum sínum þá greinist hér með frá því að á næstunni verð ég þrítug og þá held ég magnað samkvæmi. Þar verða skemmtiatriði, frægt fólk og veitingar í mínu boði. Og kannski býð ég upp reiðhjólaferðir í boðið (það tekur því ekki alveg að leigja þotu til að fara í Vesturbæinn).
Ef ég kemst ekki í fréttirnar get ég útilokað möguleikann á að RÚV ætli að segja frá öllum skemmtilegum samkvæmum í fréttum sínum. Enda kannski ekki ástæða til. Eftir standa tveir aðrir möguleikar.
kj
|
|