| |
Ástandið í Nepal fer versnandi
6.3.2006
Ein langvinnasta borgarastyrjöld í Austur-Asíu heldur áfram og stigmagnast dag frá degi ― við nánast fullkomið afskiptaleysi umheimsins.
Ástand mála í Nepal hefur síst skánað síðan konungur landsins, Gyanendra, rak forsætisráðherrann frá völdum og tók sér einræðisvald, eins og hefur verið rætt á þessum vettvangi áður.
Helstu stuðningsríki ríkisstjórnar Nepals, Bandaríkin, Bretland og Indland, hafa nú sett vopnasölubann á landið. Hefur konungi ekki gengið vel að afla sér nýrra stuðningsmanna í Rússlandi, Kína og Pakistan.
Í nóvember síðastliðnum náðist samkomulag í 12 liðum milli allra stjórnmálaflokka í landinu og skæruliðahreyfingarinnar sem kennir sig við maóisma. Þar var kallað eftir nýrri stjórnarskrá og fjölflokkakosningum. Skæruliðarnir féllust þar með í fyrsta sinn á að lýðræði og fjölflokkakerfi ætti að vera framtíðarstjórnskipun Nepals. Jafnframt lýstu þeir yfir einhliða vopnahléi í fjóra mánuði. Þetta vakti vonir meðal þeirra sem vilja binda á endi á einvaldsstjórnina, en mótmæli úr öðru horni. Þannig fordæmdi sendiherra Bandaríkjanna samkomulagið. Á hinn bóginn hvatti hann einnig konung til að hefja viðræður við stjórnarandstöðuna.
Einhliða vopnahlé af hálfu öflugustu skæruliðarhreyfingar landsins hefði átt að vera gullið tækifæri fyrir konung til að binda endi á tíu ára borgarastríð sem kostað hefur 13.000 manns lífið. Ljóst er að stjórnarher landsins hefur ekki bolmagn til að vinna hernaðarsigur á skæruliðunum og lausnin á borgarastríðinu mun ekki finnast annars staðar en við samningaborðið.
Konungurinn hafnaði hins vegar öllum málamiðlunum og í janúar hófust vopnuð átök á ný. Afstaða konungs einkennist af ósveigjanleika og fyrirheit um lýðræðisumbætur eru háð því að öll framkvæmdin verði á hans forsendum. Konungurinn hefur boðað þingkosningar á næsta ári og nú í upphafi mánaðarins voru haldnar sveitastjórnarkosningar sem mistókust. Kjörsókn reyndist afar dræm, eða innan við 20%.
Flóttamannastraumurinn frá Nepal til Indlands fer vaxandi. Á meðan heldur konungurinn áfram að grafa sína eigin gröf og engin lausn er í sjónmáli.
sj
|
|