Múrinn-vefrit um þjóðmál, pólitík og menningu
Múrinn-vefrit um þjóðmál, pólitík og menningu
 

   Múrinn kynnir, í samstarfi við Tryggingafélagið og Bankann:   

Glæsiferðir Dóra & Völu

10.3.2006

Við bjóðum nú upp á hinar margrómuðu pakkaferðir til eyjarinnar í Norður-Atlantshafi hver er einhver eftirsóknarverðasti ferðamannastaður alheimsins vegna þess mikla krafts sem býr bæði í landi og þjóð.

Fararstjórn er í höndum hins afar efnilega Birkis Jóns okkar en hann bætir einstaklega litla reynslu upp með því að vera í beinlínusambandi við Dóra allan sólarhringinn.

Gisting...
...er ekki af verri endanum en aðeins verður gist á fínustu stöðum enda eru Íslendingar frægir fyrir að sjá betur um vel borgandi ferðamenn en sín eigin gamalmenni því þeir skilja betur en aðrir að þau eru almennt til ama nema á 17. júní . Það er ekki að ástæðulausu að þau er stundum kölluð pótemkínar á íslensku.

Maturinn...
...er svo sannarlega öðruvísi á Íslandi.Við mælum með íslenska fiskinum en best er ef þú kemur að utan að kaupa hann í þínu landi þar sem annað en afgangsfiskur er afar dýr á Íslandi. Ef þú ert grænmetisæta skaltu búast við því að verð reglulega boðið upp á fisk enda halda Íslendingar að fiskur sé grænmeti þótt vísindarannsóknir bendi til annars. Íslendingar bæta annars allan mat upp með íslensku brennivíni, með því bragðast allt ákaflega vel, hvort sem það er ammóníakslagaður hákarl eða pungar lagaðir í mysu.

Ekki missa af...
...hvölunum. Hvalirnir við strendur Íslands eru einstakir, líkt og Íslendingar, fullir af kjark og þori. Fátt er skemmtilegra og meira spennandi en að slátra eigin hval í trássi við alþjóðasamninga og samfélag þjóðanna. Komdu til Íslands, vertu fullvalda og dreptu hval. Einstök upplifun sem allir eiga skilið.

...náttúrunni.Vertu síðastur til að sjá heimsklassa fallvötn, jökla og óþurftarsanda áður en við látum flæða yfir þá en það er að sjálfsögðu nauðsynlegt til að smíða flugvélarnar sem þú flaugst með hingað. Það er ekki seinna vænna, vertu með þeim síðustu.

...SUF-mönnunum. Mannfræðingar fundu fyrir skemmstu einstæðan þjóðflokk í Skagafirði, norðarlega á Íslandi. Enn hefur ekki tekist að ráða í tungumál þeirra en annaðhvert orð virðist vera hljóma eins og „umhverfishryðjuverkamaður“ og „álver.“ Þessa menn sérðu hvergi annars staðar!

Farkosturinn..
...er hver sem þú vilt. Nefndu það og við eigum það. Við bjóðum upp á alla fínustu bílana og við eigum fleiri en við getum ekið. Hafðu ekki áhyggjur af bensíneyðslu eða útblæstri, við sækjum bara um auka mengunarkvóta.

Draumaviku í dós á Íslandi lýkur svo með galadansleik þar sem forseti Íslands stýrir útrásardansleik þar sem þor og kjarkur íslensku þjóðarinnar fær sín best notið. Við erum víkingar samtímans!

Aðeins örfá sæti til boða. Allir velkomnir, nema Falun Gong-liðar.

gs


Prenta grein   Senda grein   Tilvísunar slóð



Leit   Eldra efni   Um Múrinn
Forsíða   Efst á síðu
Rss straumur