|
| |
Er Tuvalu að sökkva?
21.7.2001
Ríkið Tuvalu í Kyrrahafinu er ekki eitt þeirra stærstu í heiminum. Þar búa um 11.000 manns á níu kóralrifum, sem eru 20 ferkílómetrar alls. Meginatvinnugreinar eru að landbúnaður, fiskveiðar og að selja sjónvarpsfyrirtækjum aðgang að rótarléni eyríkisins (.tv). Svo gæti hins vegar verið að þetta ríki eigi eftir að komast á spjöld sögunnar, og ekki af góðu. Tuvalu á nú á hættu að sökkva í sæ, vegna gróðurhúsaáhrifa og verða þannig fyrsta fórnarlamb ofhitnunar vegna iðnmengunar í heiminum. Samkvæmt sumum lofthitaspám gæti það gerst innan 50 ára. Önnur eyríki sem eru í svipaðri hættu eru Kiribati og Marshalleyjar.
Kóralrifin sem mynda Tuvalu eru nefnilega mjög láglend, einungis örfáa metra yfir sjávarmáli, og allar breytingar á yfirborði sjávar ógna þeim. Eyjarskeggjar hafa þegar kynnst afleiðingum gróðurhúsaáhrifa. Flóð eru að aukast, strendurnar að hverfa og selta í stöðuvötnum fer vaxandi.
Utanríkisráðherra Tuvalu hefur sent ríkisstjórnum Nýja-Sjálands og Ástralíu neyðarkall og beiðni um að löndin taki við íbúum eyríkisins, þegar og ef það muni hverfa í sæ. Hefur beiðnin fengið jákvæð viðbrögð frá Nýja-Sjálandi, en ríkisstjórn Ástralíu hefur hins vegar brugðist ókvæða við. Ráðherra innflytjendamála í Ástralíu hefur sagt að Tuvalubúar geti ekki búist við því að fá sérmeðferð ef til þessara náttúruhamfara kemur, heldur verði tekið á móti þeim eins og hverjum öðrum innflytjendum.
Dæmi Tuvalu sýnir hversu brýnt það er að þær þjóðir sem skapað hafa þennan vanda fari að takast á við hann og hætti að jarma um einhverja sérstöðu. Hvar er alþjóðavæðingin þegar kemur að ábyrgð manna hvers á öðrum?
sj
|
|
| |