Múrinn-vefrit um þjóðmál, pólitík og menningu
Múrinn-vefrit um þjóðmál, pólitík og menningu
 

   Tékkland   

Pattstaða í Tékklandi

7.6.2006

Enda þótt Borgaralegi lýðræðisflokkurinn (ODS) hafi unnið sigur í þingkosningum í Tékklandi um helgina þá eru Sósíaldemókratar (CSSD) og Kommúnistar (KCM) í úrslitaaðstöðu til að setja eða fella nýja ríkisstjórn. Þessir flokkar náðu samtals 100 sætum af 200 á nýkjörnu þingi. Forseti Tékklands, íhaldsmaðurinn Vaclav Klaus, ákvað að fela flokksbróður sínum Mirek Topolanek, umboð til stjórnarmyndunar. Hvorugur vinstriflokkurinn er þó líklegur til að veita honum brautargengi við stjórnarmyndun. Formaður Sósíaldemókrataflokksins, Jiri Paroubek, er afar reiður íhaldsmönnum eftir frekar rætna kosningabaráttu þar sem hann var sakaður um að eiga tengsl við mafíuna. Samstarf Borgaralegra lýðræðisflokksins við Kommúnista er hins vegar hvorttveggja, útilokað og tilgangslaust, enda þótt margir innan þessara flokka hafi átt pólitíska samleið fyrir flauelsbyltinguna 1989.

Margt bendir til þess að Borgaralegi lýðræðisflokkurinn vilji leita allra leiða til að hanga á völdum án þess að hafa til þess raunverulegan meirihluta. Undanfarna daga hefur Klaus forseta orðið tíðrætt um mikilvægi efri deildar þingsins fyrir lagasetningu, en þar er staða flokksins traust. Valkostirnir fyrir minnihlutastjórn sem ætlar að beita efri deildinni fyrir sig eru þó takmarkaðir þar sem hún hefur einungis völd til að breyta frumvörpum sem eru samþykkt af neðri deildinni, ekki að kynna til sögu ný mál. Þá hefur heyrst að Topolanek forsætisráðherra hyggist leggja fram ráðherralista án þess að hafa tryggt sér stuðnings þingmeirihluta, til þess að láta reyna á fylgi sitt á þinginu. Það virðist þó einkennilegur samkvæmisleikur því að slík stjórn á enga möguleika á að taka til starfa.

Staða forsetans skiptir miklu máli í framhaldinu og hann hefur þegar beitt sér til að tryggja eigin flokki stjórnarmyndunarumboðið. Talið var að Klaus forseti vilji „sterka“ stjórn Borgaralega lýðræðisflokksins og Sósíaldemókrata að þýskri fyrirmynd. Gangur kosningabaráttunnar hefur gert það að verkum að slík stjórnarmyndun er afar ósennileg. Einnig er ljóst að slík stjórnarmyndun væri í miklu ósamræmi við vilja kjósenda sem töldu sig vera að kjósa á milli tveggja „blokka“.

Sósíaldemókratar virðast hins vegar ekki hafa mikinn vilja til valda heldur hafa þeir lagt til að mynduð verði ópólitísk stjórn embættismanna. Það virðist ekki vænlegur kostur og þegar Paroubek nær sér af eineltinu má vera að hann hugi að öðrum kostum, t.d. að stofna til samstarfs við Græningja (SZ) eða endurnýja samstarfið við Kristilega lýðræðisflokkinn (KDU-CSL). Það samstarf gekk raunar brösuglega og þurftu Sósíaldemókratar að koma sínum helstu baráttumálum í samstarfinu í gegn með liðsinni Kommúnistaflokksins.

Svo gæti farið að Græningjar lentu í oddaaðstöðu, ef þeir veðja á vinstrivænginn fremur en hægriflokkana til samstarfs. Hvorki Sósíaldemókratar né Kommúnistar hafa sýnt umhverfismálum mikinn skilning, en þó eru þeir að sumu leyti ekkert óárennilegri valkostur fyrir Græningja en Borgaralegi lýðræðisflokkurinn. Klaus forseti sýndi t.d. baráttu fyrir bættu umhverfi sérlega lítinn skilning þegar hann var forsætisráðherra á árunum 1992-1997. Hins vegar eru Græningjar viðkvæmir fyrir samstarfi fyrir Sósíaldemókrata sem hafa verið sakaðir um að blanda sér í innanflokksátök og reynt að stuðla að klofningi innan flokksins. Það er spurning hvort leiðtogi flokksins, Martin Bursik, geti litið fram hjá þeirri uppákomu og höggvið á hnútinn.

„Pattstaðan“ í Tékklandi orsakast þannig að langmestu leyti af brestum forystumanna sem eiga erfitt að starfa saman, en mun síður af kosningaúrslitum. „Sigur“ hægriflokkanna í Tékklandi er tálsýn þar sem í raun og veru er það Paroubek sem á næsta leik. Það er hins vegar spurning hvort hann er fær um að skáka sér úr því horni sem hann er búinn að koma sér í. Ekki er útilokað að Sósíaldemókratar nái að vinna betur úr stöðunni undir öðrum leiðtoga og líta þá flestir til Stanislav Gross, fyrrverandi forsætisráðherra, sem þurfti að segja af sér í kjölfar spillingarmála í fyrra.

sj


Prenta grein   Senda grein   Tilvísunar slóð



Leit   Eldra efni   Um Múrinn
Forsíða   Efst á síðu
Rss straumur