Múrinn-vefrit um þjóðmál, pólitík og menningu
Múrinn-vefrit um þjóðmál, pólitík og menningu
 

   Efnahagsmál   

Aðhaldsaðgerðir sem ekki virka

30.6.2006

Í sjálfu sér er virðingarvert að stjórnmálamenn grípi til aðgerða til að stemma stigu við verðbólgu. Ekki síst þegar þenslan hefur meira eða minna verið framkölluð með athöfnum stjórnvalda. Þar má fyrst nefna kosningavíxla ríkisstjórnarflokkanna, Kárahnjúkavirkjun og 90% húsnæðislán, sem hafa haft fyrirsjáanlegar afleiðingar. Einnig mætti nefna hágengisstefnu síðasta árs sem hafði einkum þau áhrif að hvetja til ótímabærrar einkaneyslu. Landsmenn hafa varið fé sínu í húsnæði á toppprís, lúxusbifreiðar og annan varning sem í rauninni var ekki innistæða fyrir.

Nú er komið að skuldadögunum og þeir koma harðast niður á fjölskyldum með lágar eða meðaltekjur sem hafa fjármagnað neysluna með lánum. Stórstreymi lánsfjármagns hefur nefnilega verið helsta leið stjórnmálamanna og atvinnurekenda til að fela aukna misskiptingu tekna á landinu. Önnur orsök þenslunnar er hefðbundin vinsældapólitík stjórnmálamanna sem hafa lofað fámennum byggðarlögum patentlausnum sem eiga að leysa allan atvinnuvanda næstu áratuga.

Það er samt ekki endilega víst að þeir sem gengu harðast fram í þenslufylleríinu verði látnir borga brúsann. Þvert á móti mun skyndileg lækkun á hámarkslánum Íbúðalánasjóðs einkum verða til þess að lækka íbúðaverð og koma hart niður á fólki sem hefur skuldsett sig til íbúðakaupa – dyggilega hvatt áfram af Framsóknarflokknum og bönkunum.

Frestun opinberra framkvæmda virðist einnig góð hugmynd fyrst í stað, en þegar nánar er að gáð mun hún koma harðast niður á landshlutum þar sem engin sérstök þensla hefur ríkt að undanförnu. Enginn getur haldið því fram að brúargerð í Mjóafirði eða vegalagning í Arnkötludal séu ógurlegir þensluvaldar í sjálfu sér, en þessum framkvæmdum hefur nú verið frestað gegn háværum mótmælum Vegagerðarinnar á Ísafirði. Í leiðinni fýkur „Símavíxillinn“ góði sem ríkisstjórnin lofaði landsmönnum til þess að sætta þá við sölu Landssímans. Þeim framkvæmdum verður væntanlega meira eða minna frestað. Þetta mun trúlega koma verst niður á þeim byggðarlögum sem ekki hafa fengið álverstékka frá stjórnvöldum.

Hvað ætlar ríkisstjórnin svo að gera annað en að lækka íbúðaverð og fresta uppbyggingu vegakerfisins? Af viðbrögðum ráðamanna að dæma virðist svarið vera: Ekki nokkurn skapaðan hlut!

sj


Prenta grein   Senda grein   Tilvísunar slóð



Leit   Eldra efni   Um Múrinn
Forsíða   Efst á síðu
Rss straumur