Múrinn-vefrit um þjóðmál, pólitík og menningu
Múrinn-vefrit um þjóðmál, pólitík og menningu
 

   Umhverfismál   

Óþægilegur sannleikur

12.9.2006

Óþægilegur sannleikur heitir kvikmynd eftir Al Gore sem er þekktastur fyrir að hafa tapað forsetakosningum gegn George Bush yngri eftir mikinn hildarleik í Flórída. Ef ekki hefði verið fyrir hann hefði Gore líklega farið með sigur af hólmi enda fékk hann fleiri atkvæði en Bush en tapaði á tæknilegum atriðum.

Kosningarnar voru árið 2000 og var Gore harkalega gagnrýndur í aðdraganda þeirra. Stóra Clinton-Lewinsky-málið var enn á allra vörum og gerði Gore sitt ítrasta til að fjarlægja sig frá Clinton með því að taka harða afstöðu í siðferðismálum sem þótti minna meir á Repúblíkanaflokkinn en demókrata. Þetta gagnaðist Gore ekki mikið. Hann var líka gagnrýndur fyrir leiðindi en eftir Clinton sem virtist fullur af fjöri á ýmsum sviðum virtist Gore litlaus og við hliðina á axlahristandi kúrekanum frá Texas virkaði hann eins og einn af spýtuköllunum hans Emils í Kattholti.

En það er líf eftir hefðbundna pólitík og það líf er ekki síður pólitískt. Gore hefur alla tíð verið áhugamaður um umhverfismál í hnattrænum skilningi þess orðs og þessi kvikmynd fjallar um stærsta umhverfisvanda vorra tíma ― hlýnun loftslags af völdum gróðurhúsaáhrifanna.

Myndin er byggð upp í kringum fyrirlestur sem Gore hefur haldið um allan heim þar sem hann ræðir loftslagsbreytingarnar og þátt manna í þeim. Hann fer yfir staðreyndir málsins á óhugnanlega skýran hátt þar sem hann bendir meðal annars á að hlýjustu ár 20. aldar voru nánast öll undir lok hennar og fyrstu ár 21. aldar eru jafnvel enn hlýrri. Hann sýnir tengsl hlýnandi loftslags við aukinn fjölda fellibylja, jafnvel á stöðum þar sem fellibyljir eru nálega óþekkt fyrirbæri. Hann sýnir svart á hvítu hvernig jöklar heimsins hopa stöðugt og hvernig íshellurnar á pólunum þynnast og rýrna með hverju ári sem líður.

Og síðast en ekki síst sýnir Al Gore okkur niðurstöður fjölda vísindamanna um það hvernig hlýnunin virðist haldast í hendur við sívaxandi magn koldíoxíðs og annarra gróðurhúsalofttegunda í andrúmsloftinu vegna athafna mannkyns. Andrúmsloftið er bara þunn skel og breytingar á því þurfa ekki endilega að taka langan tíma. Hlýnunin er að verða núna. Og ef ekki verður gripið í taumana mun hún halda áfram næstu fimmtíu ár.

Gore leggur ríka áherslu á ábyrgð Bandaríkjanna enda er hún mikil. Bandaríkin hafa ekki viljað staðfesta Kyoto-bókunina. Bandarískir bílaframleiðendur standa nánast öllum öðrum bílaframleiðendum að baki þegar kemur að framleiðslu umhverfisvænni bíla ― m.a.s. þeim kínversku. Bandaríkin eru stærsti mengunarvaldur heimsins og núverandi stjórnvöld hafa ekki sýnt neinn pólitískan vilja til að laga þá stöðu.

Óþægilegur sannleikur er sumpart uppgjör Gore við forsetakosningarnar 2000 og hún sýnir að í hann er mikið spunnið. Kvikmyndin er mun merkara pólitískt framlag en sú kosningabarátta og sýnir að pólitík er miklu meira en kosningar. Þetta er mynd sem allir ættu að sjá því að nú ríður á að takast á við vandann. Og það geta allir lagt sitt af mörkum til að leysa hann. Hver og einn getur minnkað losun á gróðurhúsalofftegundum með einföldum aðgerðum. Til þess þarf bara vilja. Og viljinn hlýtur að vakna þegar fólk hefur séð þessa mynd.

kj


Prenta grein   Senda grein   Tilvísunar slóð



Leit   Eldra efni   Um Múrinn
Forsíða   Efst á síðu
Rss straumur