Múrinn-vefrit um þjóðmál, pólitík og menningu
Múrinn-vefrit um þjóðmál, pólitík og menningu
 

   Einkavæðing   

Símafyrirtækin vísa öllu á Bug

2.10.2006

Nýleg könnun Póst- og fjarskiptastofnunar hefur vakið nokkra athygli en þar kemur fram að Íslendingar borga sífellt meira fyrir að hringja. Verð á farsímaþjónustu hér á landi hefur hækkað frá árinu 2002 en á sama tíma hefur það lækkað annars staðar á Norðurlöndum.

Sumir markaðsmenn kynnu að hvá yfir þessu enda hafi Síminn nýlega verið einkavæddur og einkavæðing á jú alltaf að skila betri tíð með blóm í haga samkvæmt kreddum frjálshyggjunnar. En kreddur standast sjaldnast nákvæma skoðun og svo er einnig hér.

Íslenskur símamarkaður skiptist á milli tveggja fjarskiptafyrirtækja og hefur Síminn 65% markaðshlutdeild en OgVodafone 35%. Í stað þess að lækka almennt verð á símaþjónustu hafa bæði fyrirtækin farið í svokallaðan tilboðaleik þar sem þau dulbúa verðskrá sína með því að bjóða upp á ýmsa pakka; afslætti í tiltekin númer eða afslætti ef neytandi ákveður að vera með net og síma hjá sama fyrirtæki og svo framvegis.

Talsmenn símafyrirtækjanna vilja meina að þessi tilboð skili neytendum í raun mjög góðum kjörum og ekkert sé að marka hina almennu gjaldskrá. Talsmenn Póst- og fjarskiptastofnunar andmæla þessu og telja verðið hér á landi hærra en í þeim löndum sem við gjarnan berum okkur saman við, óháð öllum tilboðum.

Staðreyndin er sú að tilboðin virka dálítið eins og frumskógur sem hefur verið plantað til að byrgja almennum notendum sýn. Samkvæmt tilboðunum, hvort sem þau heita „vinaafslættir“ eða „betri leiðir“ eða hvaðeina, er maður alltaf að græða, fær nánast borgað fyrir að nota símann. Þrátt fyrir tilboðin hafa reikningarnir hins vegar hækkað nánast óslitið og það þótt notkunin aukist ekki að sama skapi. Því hin almenna gjaldskrá hefur hækkað og afslættirnir virðast ekki duga til að vega upp á móti því.

Hinn einkavæddi Sími hefur því ekki gagnast landsmönnum betur en gamla ríkisstofnunin sem að sögn ráðamanna var bæði fúl og leiðinleg. Öðru nær, hann virðist gagnast verr. Þannig hefur einkavæddur Sími ákveðið að skipta landinu upp í misdýr gjaldsvæði fyrir netþjónustu og ætlar t.d. að láta Vestfirðinga borga meira fyrir ADSL-þjónustu en Reykvíkinga. Þetta getur hann í krafti stöðu sinnar sem einkafyrirtæki. Allar hugmyndir um jafna grunnþjónustu fyrir landið allt virðast því gleymdar og grafnar. Og hinn einkavæddi Sími virðist ekki sjá sér hag í því að neytendur borgi sambærilegt verð fyrir símaþjónustu og fólk annars staðar á Norðurlöndum. Hann vísar bara gagnrýninni á hinn alræmda Bug og segir: „Þetta er víst ódýrt, þið bara skiljið það ekki.“

Já, einkavæðingin er ein lífseigasta kredda íslenskra samtímastjórnmála þó að dæmin sýni og sanni annað. Tími er til kominn að fá nýtt fólk við stjórnvölinn sem er laust við þessa kreddu, almenningi í landinu til hagsbóta.

kj


Prenta grein   Senda grein   Tilvísunar slóð



Leit   Eldra efni   Um Múrinn
Forsíða   Efst á síðu
Rss straumur