| |
Meiriháttar kosningaklúður í Ecuador
17.10.2006
Ecuadorbúar gengu að kjörborðinu á sunnudag til að kjósa sér nýjan forseta í stað Alfredo Palacio sem senn lýkur sínu kjörtímabili. Hann hefur reyndar ekki setið lengi í embætti en má samt sem áður una sæmilega við sitt. Þrír forverar hans voru knúðir til afsagnar með fjöldamótmælum, þeirra síðastur Lucio Gutierrez sem hrökklaðist frá völdum í fyrra.
Enn er allt á huldu um það hver frambjóðendanna 13 fær næst að spreyta sig á þessu erfiða starfi og raunar er ekki heldur ljóst hverjir munu keppa um hylli kjósenda í síðari umferð ef til hennar kemur. Til að sigra í fyrri umferð þarf að lágmarki 40% atkvæða og 10 prósentustiga forskot á þann frambjóðanda sem næstflest atkvæði hlýtur.
Ástæðan fyrir því að úrslit liggja enn ekki fyrir er sú að einkafyrirtækið E-Vote var ráðið til að annast talninguna en það gefur sig út fyrir að vinna slík verk sérstaklega hratt og vel. Tölvukerfi fyrirtækisins réð greinilega ekki við þann hraða sem því var ætlað að þola og þegar búið var að telja 72% atkvæða með harmkvælum, var E-Vote leyst frá verkinu. Hvernig talningunni verður háttað héðan af, er ekki gott að segja en samkvæmt lögum hefur yfirkjörstjórn landsins 10 daga frest frá kjördegi til að birta kosningaúrslit.
Flest bendir til að það verði Alvaro Noboa og Rafael Correa sem berjast um forsetastólinn í síðari umferð, sem fram fer í nóvember. Þrátt fyrir að lokatölur liggi ekki fyrir, hafa þeir báðir haldið sinni kosningabaráttu áfram en flestir aðrir frambjóðendur þegar dregið sig í hlé.
Einvígi Noboa og Correa verður afskaplega táknrænt fyrir þau öfl sem takast á um völdin í Ecuador – og raunar víðast hvar í Rómönsku Ameríku. Alvaro Noboa er ríkasti maður Ecuador, sem byggir auð sinn á bananaframleiðslu og nýtur stuðnings hinna efnameiri íbúa enda er höfuðvígi hans í Guayaquil, miðstöð fjármálalífs í landinu. Rafael Correa er vinstrisinnaður, fyrrverandi ráðherra í fráfarandi ríkisstjórn og sækir þorra sinna atkvæða til fátækra kjósenda, einkum í höfuðborginni Quito og nágrenni hennar. Þessir menn eru fulltrúar algerlega andstæðra hagsmuna í heimsálfu sem enn hýsir meiri misskiptingu auðs en nokkur önnur.
Framan af hafði Correa nokkurt forskot á Noboa en líkt og í frægri talningu í Mexíkó 1994, snerist dæmið við þegar tölvukerfið hrundi og hrökk svo í gang á nýjan leik. Þá hafði Noboa fengið rúm 26% en Correa tæp 24% og aðrir mun minna. Correa hefur þegar lýst yfir sigri og sakað yfirvöld um kosningasvik.
Reiðir kjósendur hafa safnast saman við aðsetur kosningayfirvalda til að mótmæla hinni farsakenndu framkvæmd talningarinnar. Þótt áhangendur Correa séu þar fjölmennastir, ber einnig töluvert á kjósendum annarra frambjóðenda að Noboa undanskildum. Fróðlegt verður að sjá hvort almenningur í Ecuador leyfir nýjum forseta yfirhöfuð að sverja embættiseiðinn áður en hann verður að segja af sér.
sh
|
|