| |
Í krossferð gegn kjaftæði
18.10.2006
Bandaríska kapalstöðin Showtime hefur frá árinu 2003 sent út þætti sem bera hið fróma nafn Bullshit! og hafa notið talsverðra vinsælda. Þáttarstjórnendur eru atvinnutöframennirnir og grínistarnir Penn Jillette og Teller, og upphaflega hugmyndin með þáttunum var sú að taka fyrir eitt málefni, oftast nær af yfirskilvitlegum toga, í hverjum þætti og, já, afhjúpa það sem kúadellu eða kjaftæði eins og Íslendingar myndu segja. Á formlegra máli mætti því segja að yfirlýst markmið þáttanna sé að leiðrétta útbreiddar ranghugmyndir um hin ýmsustu mál, og alltaf er það framkvæmt á skemmtilegan og snaggaralegan máta af þessu töfra-tvíeyki. Penn er stór og feitur, með stóran munn sem hann er óhræddur við að nota og lætur dæluna ganga með stórum fullyrðingum og blammeringum á báða bóga, á meðan Teller er lítill og mjór og segir aldrei aukatekið orð.
En fljótlega tóku þessir yfirlýstu efahyggjumenn að breikka efnisval sitt eftir að hafa t.d. fjallað um fljúgandi furðuhluti, óhefðbundnar lækningar eða skyggnigáfu og hafa nú tekið fyrir alls kyns málefni á borð við stríðið gegn eiturlyfjum, samsæriskenningar og snyrtivöruiðnaðinn. Þó að þáttastjórnendur viðurkenni fúslega að þeir séu alveg bullandi hlutdrægir í umfjöllun sinni, og þótt auðvitað sé ekki alltaf öruggt að þeirra niðurstaða sé eina rétta niðurstaðan, þá hafa þættirnir nær alltaf hátt afþreyingargildi og hvetja jafnan til gagnrýninnar hugsunar, hvort sem áhorfandinn er sammála þeim eða ekki. Skemmtilegastir eru þættirnir yfirleitt þegar þeir taka á málefnum sem standa manni sjálfum nær sem vinstrimanni, svosem í þættinum um réttindi dýra þar sem þeir kumpánar fara rækilega í saumana á dýraverndarsamtökunum P.E.T.A. og útmála þau sem hið versta samansafn hræsnara og siðleysingja, eða þegar þeir taka náttúruvernd fyrir og tala tæpitungulaust um allskyns umhverfisverndar-móðursýki.
Form þáttanna er alla jafna einfalt. Þeir félagar fara á stúfana og taka viðtöl við viðmælendur sem þeir telja vera uppfulla af kjaftæði, sýna myndbrot úr viðtölunum og rakka niður viðmælendurna og sjónarmið þeirra, og kynna síðan til sögunnar andmælendur sem yfirleitt hafa eitthvað gáfulegra fram að færa. Inn á milli slá þeir félagar svo á létta strengi.
Á Íslandi eru ekki ýkja margir sem heyrt hafa af þættinum Bullshit! en það er helst fólk sem er duglegt að stunda niðurhal af netinu sem komist hefur á snoðir um þá og líkað vel. Íslenskar sjónvarpsstöðvar gætu gert margt vitlausara en að tryggja sér sýningarréttinn á þeim, hvort heldur sem væri RÚV eða einkareknu stöðvarnar. Í stað þess að bjóða áhorfendum sínum uppá endalaust flæði hallærislegra og lágkúrulegra “raunveruleikaþátta” myndi það varla drepa neinn þótt einkastöðvarnar sýndu einn þátt sem hvetur til gagnrýninnar hugsunar og getur líka verið skemmtilegur. Hjá RÚV stendur til að stórauka hlut innlendrar dagskrárgerðar, en einhvern veginn verður maður skeptískur yfir svoleiðis plönum eftir að hafa séð hve gífurlega erfitt getur reynst íslensku dagskrárgerðarfólki að fá frumlegar hugmyndir í stað þess að gera bara íslenskar eftirhermur af bandarískum þáttum.
Undirritaður biðst undan því að horfa á slíkt kjaftæði og mælir þess í stað með Bullshit! Það er nefnilega sitthvað, kjaftæði og kjaftæði að hætti Penn og Teller.
kpó
|
|