|
| |
Áfram Ísland!
20.10.2006
Eins og allir muna var kjörorð Sjálfstæðisflokksins í síðustu kosningum „Áfram Ísland“ og hefur flokkurinn svo sannarlega staðið undir því frumlega slagorði. Sjálfstæðismenn hafa í samstarfi við Framsóknarflokkinn tekið flestum öðrum fram í að kynna land og þjóð með jákvæðum hætti.
Ekki aðeins erum við friðelskandi þjóð eins og stuðningur okkar við frelsun Afgana og Íraka sýnir heldur er umhyggja okkar fyrir umhverfinu takmarkalaus. Við öxlum þá ábyrgð að reisa stórar sjálfbærar virkjanir fyrir álframleiðslu til að koma í veg fyrir að ríki þriðja heimsins neyðist til að brenna kol í gríð og erg til að knýja álverin sem heimurinn þarfnast. Við erum líka kjörkuð þjóð. Við erum óhrædd við að hefja hvalveiðar þó að borgarbörnin í útlöndum skilji ekki að það er í raun til hagsbóta fyrir þau. Ef hvalurinn fær að vaða uppi klárar hann allan fiskinn í sjónum og þá verða borgarbörnin varla ánægð. Múrinn ber ótakmarkaða virðingu fyrir leiðtogum landsins og vill að fleiri jákvæðum aðgerðum fyrir hönd lands og þjóðar verði hrint í framkvæmd. Hér er topp tíu listinn yfir framtíðaraðgerðir til að tryggja enn frekar gott orðspor Íslands á alþjóðavettvangi.
1. Ríkisstjórnin leggi það til að friðelskandi þjóðir geri árás á Íran til varnar heimsbyggðinni. Reynslan af svipuðum aðgerðum fyrir botni Miðjarðarhafs hefur reynst vel og því má vel byggja á þeim grunni.
2. Ríkisstjórnin hefji nýtt landhelgisstríð við Bretland nema í þetta skipti skulum við sækja þá heim. Sendum íslenska togara á veiðar á landgrunni Breta. Við ein kunnum hvort sem er að veiða fisk og höfum líka alltaf rústað Breta í landhelgisstríðum.
3. Ríkisstjórnin virki það sem hægt er, reisi og stækki álver hvar sem því má við koma. Ráðist síðan í alþjóðlega kynningarherferð um hvernig sú aðgerð bjargi heiminum og leysi vandann við hlýnun lofthjúpsins af völdum gróðurhúsalofttegunda.
4. Ríkisstjórnin leggi til að Abu Ghraib fangelsið í Írak verði sett á heimsminjaskrá UNESCO fyrir komandi kynslóðir til að skilja hvernig á að meðhöndla hryðjuverkamenn.
5. Ríkisstjórnin stefni leynt og ljóst að því að gera Halldór Ásgrímsson, fyrrverandi formann Framsóknarflokksins, að næsta aðalritara Sameinuðu þjóðanna. Það er kominn tími til að flytja menningarfyrirbærið Framsóknarflokkinn út til annarra landa.
6. Ríkisstjórnin dragi úr fjármagni til íslenskra háskóla og stefni að því að gera Háskóla Íslands að þeim fjársveltasta í Evrópu. Enn er til einn háskóli í Króatíu sem fær minna fjármagn á hvern nemanda og því vantar ekki mikið upp á að Evrópumetið falli með tilheyrandi fjölmiðlaathygli.
7. Ríkisstjórnin í Ráðhúsinu í Reykjavík getur kynnt heimsbyggðinni viðbrögð sín við umferðarhnútum og mengun af völdum bílaumferðar og stefnt að heimsmeti í að leggja sem mest af borgarlandinu undir bíla – það er jú aðeins helmingur ennþá. En þetta byggist auðvitað á því að borgarbúar hafi „valið einkabílinn“. Um það þarf ekki að ræða enda slík umræða ólýðræðisleg með öllu.
8. Ríkisstjórnin feli Samfylkingunni að boða til ráðstefnu alþjóðlegra umhverfisverndarsamtaka þar sem hugmyndin um virkjunarþjóðgarð verði útskýrð.
9. Ríkisstjórnin kynni aðferðir sínar við opnar rannsóknir á hneykslismálum, þ.e. að leyfa völdum fræðimönnum eða lögreglumönnum að rannsaka málin og niðurstöðurnar verði svo læstar inni í skáp.
10. Ríkisstjórnin flytji út skattalækkanaprógramm sitt sem gengur út á að lækka skatta með húrrahrópum en hækka um leið skattbyrðina – snjöll aðferð sem byggist á því að sleppa þeim ríku í gegn en leyfa láglaunalýðnum að borga.
hfþ
|
|
| |