Múrinn-vefrit um þjóðmál, pólitík og menningu
Múrinn-vefrit um þjóðmál, pólitík og menningu
 

   Hálendisvegir   

Hver vegur að heiman ...

12.3.2007

Nú eru uppi hugmyndir um lagningu vegar yfir Kjöl, svokallaðs Norðurvegar, og er búið að smíða arðsemismat og mjög ákveðnar tillögur komnar að vegstæði. Með þessum vegi mun leiðin milli Akureyrar og Reykjavíkur styttast um nærri 50 km og leiðin Gullfoss-Akureyri verða aðeins 218 km eða um 230 km styttri en í dag. En með þessari umræðu varð aftur til gamalkunn skipting þjóðarinnar í hina „umhverfissinnuðu“ og „framfarasinnuðu“.

Í rökum þeirra sem ekki vilja að þarna verði lagður vegur er talað um óspillta náttúru, öræfakyrrð og nauðsyn þess að allt landið verði ekki lagt undir framkvæmdir. Jeppamenn í 4x4-klúbbnum eru orðnir birtingamynd þessarar málsvarnar, sem að mínu mati lýsir ákaflega vel hvað „umhverfisvernd“ ristir djúpt í þjóðarvitund okkar. Hvernig þessi klisja um kyrrð og óspillta náttúru festist við hálendið er mér illskiljanlegt. Þar eru jú staðir þar sem hinn rómaði öræfafriður ríkir tímabundið, og má einnig finna á heiðum og í dölum, allavega á Vestfjörðum og Norðanlands. Að setja Kjöl í þetta samhengi er fráleitt. Þar er þegar vegur sem er fólksbílafær, með herkjum þó, og er sá vegur í hraðri uppbyggingu.

Það er nefnilega þannig að ef til er vegur er hann farinn og það gerir fólk í hópum í dag á sínum bílum. Með stöðugt auknum umferðarþunga á Kili er vegurinn að spænast í sundur en vörubílar og jarðýtur reyna handahófskennt að „sparsla“ í hann þar sem ástandið er hvað verst. Vegurinn í núverandi mynd er því umhverfisslys sem komið er nokkuð vel á rekspöl, enda hafa menn séð að sér og hafið uppbyggingu og betrumbætur alla leið að Bláfellshálsi. Aðalmálið er það að það er tómt mál að tala um öræfakyrrð á Kili þar sem umferðin er það mikil yfir sumarið að rykský og vélardynur bíla (og flugvéla á góðum degi) láta menn ekki velkjast í vafa um að þeir séu ekkert einir í heiminum. Auk þess mun alltaf fleira fólk fara veginn, hvort sem hann verður gerður almennilega eða ekki þar sem alltaf er verið að bæta í hann hvort eð er, sem er ill nauðsyn vegna umferðarþungans.

Nú er ég ekki að reyna að tala máli þess að náttúru landsins skuli malbika, en staðreyndir málsins eru þær að Kjölur er kominn í afar svipaðan flokk og Landmannalaugar hvað umferð varðar og að reyna að stinga hausnum í sandinn gagnvart því er hinn raunverulegi umhverfisglæpur. Það sem þarf að gera er að átta sig á því hvað skal gera hvar og hvað ekki. Þar erum við afar skammt á veg komin; við erum ekki einu sinni búin að koma á hreint eignarhaldi á landinu og þjóðlendunefnd rétt að komast nú hálfan hringinn. Þegar þjóðlendunefnd lýkur störfum, um 2012 skilst mér, þá þarf að ganga úr skugga um að þjóðlendur séu einmitt það. Eins og auðlindir náttúrunnar eru skilgreindar í dag sýnist mér þar vera langt í land núna. Frelsi hvers og eins til að gera hvað sem honum sýnist, hvar sem er og hvenær sem er, er mikilvægara en sameiginlegur hagur okkar allra. Sumsé til að vitiborin umræða um umhverfisvernd geti farið fram þarf að liggja fyrir hvað skal gera hvar og hvernig. Tiltekin svæði skuli vernda önnur nýta á ábyrgan hátt. Að stilla fólki upp við vegg í umhverfismálum með klisjum um öræfakyrrð og fegurð, þegar vart er stoð fyrir slíku í raun er fáránlegt, rétt eins og að tala um drukknandi fjallkonur og Töfrafossa í umræðu sem í grunninn snýst um hvernig sumir geta farið sínu fram eins og þeim hentar í krafti þess að engin skilgreining liggi fyrir um hvað skuli gera hvar og hvar ekki.

Látum ekki blekkjast af fagurgala og ofurrómantík þegar landið okkar er annars vegar. Ummerki mannvistar eru um landið allt og ekki til sá staður sem er „ósnortinn“. Reynum því frekar láta umræðuna snúast um grunngildi og grundvallarmarkmið sem engin vanþörf er á að skilgreina og ræða og þannig setja þeim stólinn fyrir dyrnar sem í krafti þokukenndrar umræðu geta bara farið sínu fram. Ég, sem umhverfisverndarsinni, segi því: Byggjum upp Kjalveg og gerum hann að góðum heilsársvegi og björgum þannig þeim verðmætum sem á Kili er að finna.

ehh


Prenta grein   Senda grein   Tilvísunar slóð



Leit   Eldra efni   Um Múrinn
Forsíða   Efst á síðu
Rss straumur