|
| |
Einfalt reikningsdæmi
19.4.2007
Að undanförnu hefur mikið verið rætt um tillögu nefndar um byggðavanda Vestfjarða þess efnis að reisa olíuhreinsunarstöð í Dýrafirði með framleiðslu sem nemur 150.000 tonnum á dag. Samkvæmt útreikningum Náttúruverndarsamtaka Íslands myndi losun gróðurhúsalofttegunda frá olíuhreinsistöð af þessari stærð jafngilda um milljón tonnum af koltvísýringi. Það eru um það bil 30% af heildarlosunarkvóta Íslands árið 1990. Samkvæmt Kýótó-bókuninni hafa Íslendingar leyfi til að auka losun sína um 10% á tímabilinu 2008 til 2012. Það þýðir að olíuhreinsistöðin myndi ein og sér sjá til þess að Íslendingar ættu enga möguleika á að standa við gerða alþjóðasamninga um aðgerðir gegn loftslagsbreytingum, hvað þá að hægt væri að standa við gefin loforð um að draga úr losun gróðurhúsalofttegunda um 50-75% fyrir 2050. Tölurnar tala sínu máli. Ef við ætlum að standa við loforð og alþjóðlegar skuldbindingar getum við ekki lofað Vestfirðingum þeirri töfralausn sem reykspúandi olíuhreinsistöð er sögð vera.
Við, sem viljum finna raunhæfar lausnir á byggðavanda Vestfjarða ættum frekar að horfa á hinar 37 tillögurnar sem var að finna í skýrslu nefndarinnar. Þar á meðal voru margar þær tillögur sem stjórnarandstaðan hefur talað fyrir: að bæta samgöngur, efla fjarskipti og færa opinber störf út á land þar sem það á við. En einhverra hluta vegna kjósa valdhafar þessa lands að horfa frekar á einu tillöguna sem nærri útilokað er að geti orðið að veruleika.
Tillagan um olíuhreinsistöð í Dýrafirði er raunar mjög í anda byggðastefnu þessarar ríkisstjórnar. Hún hefur gengið út á að gera búsetuskilyrði á landsbyggðinni svo slæm að byggðarlög neyðist til að heimta mengandi stóriðju sama hvað það kostar fyrir náttúruna í kringum þau. Byggðastefna ætti að ganga út á að fólki sé ekki mismunað eftir búsetu, að vörur og þjónusta kosti jafn mikið á landsbyggðinni og á höfuðborgarsvæðinu, og að allir geti nálgast grunnþjónustu nálægt þeim stað sem þeir búa á. Hún ætti ekki að snúast um að stjórnvöld ákveði að fólk á landsbyggðinni eigi allt að vinna í álbræðslum og olíuhreinsistöðvum.
fd
|
|
| |