Múrinn-vefrit um þjóðmál, pólitík og menningu
Múrinn-vefrit um þjóðmál, pólitík og menningu
 

Made in USA

21.1.2003

Loksins kom að því að vopnaeftirlitsmönnum Sameinuðu þjóðanna tækist að finna eitthvað sem þykir markvert í Írak. Í leitirnar hafa komið ellefu tómir sprengjuoddar sem nota mætti undir efnavopn. Írakar halda því fram að þessara sprengjuodda sé getið í hinni margfrægu tólf þúsund síðna skýrslu sem send var Sameinuðu þjóðunum; þeir hafi ekkert að fela. En er nokkur leið að sanna það? Heldur ólíklegt. Ekki síst í ljósi þess að Bandaríkjamenn tóku skýrsluna og ritskoðuðu hana vandlega. Því má ætla að örðugt verði fyrir aðra að meta gildi þessa fundar vopnaeftirlitsmanna.

En þetta leiðir hugann að öðru. Skelfilegt er til þess að hugsa að þessir ellefu tómu sprengjuoddar verði notaðir sem átylla til að fara í stríð. En svo er hitt málið, hvers vegna þurftu Bandaríkjamenn að ritskoða skýrsluna?

Ljóst er að þegar Saddam átti í stríði við Íran, þá studdu Bandaríkjamenn hann í þeim hernaði. Fullsannað þykir að þeir hafi á þeim tíma selt og haft milligöngu um efna- og sýklavopn. Óþarft er að fjalla náið um ömurlegar afleiðingar af notkun slíkra vopna, auk þess sem notkun þeirra er með öllu bönnuð samkvæmt alþjóðalögum. Til að bæta gráu ofan í svart hefur komið fram að Bandaríkjamenn seldu Írökum vopn fram yfir Flóabardaga síðari, 1991, bæði í trássi við alþjóðalög um efna- og sýklavopn, og viðskiptabann Sameinuðu þjóðanna gegn Írak. Því má ætla að helsta ástæða þess að Bandaríkjamenn ritskoðuðu hina frægu skýrslu, til að koma í veg fyrir að heimsbyggðin fengi óyggjandi sannanir fyrir því að það væru Bandaríkjamenn sjálfir sem hefðu séð um að birgja vopnabúr Saddams.

Nú vofir yfir sú hætta að Bandaríkjamenn noti þessa ellefu tómu sprengjuodda sem átyllu til að fara í stríð. Illu heilli er lítil von til þess að óháðir aðilar fái að rannsaka þessi vopn, a.m.k. miðað við hvernig fór með hina margtuggnu skýrslu.

Skyldi þó aldrei koma upp úr dúrnum að á þessum sprengjuoddum standi með smáu letri: Made in USA.

Ingimar Helgason


Prenta grein   Senda grein   Tilvísunar slóð



Leit   Eldra efni   Um Múrinn
Forsíða   Efst á síðu
Rss straumur