Múrinn-vefrit um þjóðmál, pólitík og menningu
Múrinn-vefrit um þjóðmál, pólitík og menningu
 

Forsetakosningar í skugga þjóðarmorðs

26.8.2003

Í dag var tilkynnt að Paul Kagame hefði unnið yfirburðasigur í fyrstu forsetakosningunum í Rwanda frá fjöldamorðunum miklu árið 1994 en þá voru allt að 500-800 þúsund Rwandamenn myrtir á þremur mánuðum. Hann hlaut 94% fylgi en helsti andstæðingur hans, Faustin Twagiramungu aðeins 3,5%. Þriðji frambjóðandinn, Jean-Nepomuscene Nayinzira, fékk rétt rúmlega 1%. Hann hafði ekki háð neina kosningabaráttu. Sá fjórði hafði dregið sig til baka.

Í þessum kosningum kusu um 80% kjósenda. Þeir eru alls um 4 milljónir en alls búa um 8 milljónir í Rwanda.

Kagame er Tútsi en Twagiramungu er Hútúi — það þekkist gjarnan á nöfnunum en Hútunöfnin eru afar löng. Margir hafa bent á hversu gott merki það sé að Hútúar og Tútsar hafi sameinast um að kjósa forseta af minnihlutakyni. Hútúar eru um 85% Rwandabúa en Tútsar aðeins 14%. Hafa Hútúar lengst af farið með völdin í Rwanda enda eru þeir meirihluti íbúanna. Í hinum hræðilegu fjöldamorðum árið 1994 voru einkum Tútsar myrtir en einnig nokkrir hófsamir stjórnmálamenn af Hútukyni, þar á meðal forsætisráðherrann Agathe Uwilingiyama.

Aðrir hafa bent á að Kagame sé tekinn að sýna allnokkra einræðistilburði nú þegar. Twagiramungu var hinn súrasti og sagði að kosningarnir hefðu ekki verið neitt lýðræði heldur væri hér greinilega stefnt af einflokksræði í anda Stalíns. Það má til sanns vegar færa en hins vegar hefur lítið annað þekkst í Rwanda. Þar fór einn flokkur með öll völd frá 1962 til 1994, þegar morðaldan hófst í kjölfar morðsins á Habyarimana forseta.

Kagame sjálfur slapp naumlega til Úganda þegar hann var sex ára en þá var fjöldi Tútsa myrtur. Síðan var hann þar í útlegð í 30 ár og studdi Museveni að taka völdin árið 1986. Hefur sumum þótt margt líkt með vopnabræðrunum. Eftir það fór Kagame í þjálfunarbúðir bandaríska hersins í Kansas og leiddi síðan uppreisnarher Rwanda fram að fjöldamorðinu, sem hann stöðvaði þegar hann tók völdin í landinu árið 1994.

Kagame var fyrst helsti ráðgjafi Bizimungu forseta í hermálum en hefur verið forseti síðan 2000 og á vinsældir sínar ekki síst að þakka þætti sínum í að steypa Hútustjórninni sem stóðu að fjöldamorðunum í júlí 1994 og ljúka þeim um leið. Hann barðist síðan við hermenn hlynnta morðstjórninni árum saman. Á hinn bóginn barðist Twagiramungu einnig gegn þeim sem stóðu að þjóðarmorðinu. Fjórir bróðir hans voru myrtir og hann sjálfur slapp með því að klifra yfir vegg á flótta undan morðvörgum og komast úr landi með hjálp Sameinuðu þjóðanna. Hann var forsætisráðherra eftir að ógnaröldinni lauk árið 1994. Hann fór þó í útlegð ári síðar eftir að hafa lent upp á Kagame sem þá þegar var farinn að vera býsna ráðríkur.

Kagame er tággrannur og alvarlegur maður, eins ólíkur Idi Amin og hugsast getur. Hann hefur notið virðingar fyrir að berast ekki á og fyrir að reyna að útiloka kynþáttahyggju úr pólitík í Rwanda. Þar með er ekki sagt að virðing hans fyrir lýðræði sé djúpstæð. Í baráttunni lagði hann megináherslu á að hann sé sá eini sem getur tryggt sættir milli Tútsa og Hútúa. Stuðningsmenn Twagiramungu sökuðu hann um hræðsluáróður og um að hafa reynt að ljúga því að Twagiramungu vildi ná kjöra á etnískum forsendum. Twagiramungu hefur verið sakaður um að kynda undir kynþáttuhyggju og jafnvel verið kallaður nasisti. Enginn fótur virðist fyrir slíkum áróðri.

Enginn vafi er á að kosningarnar voru ójafn leikur. Twagiramungu var nánast ósýnilegur en veggspjöld af Kagame alstaðar. Á bak við Kagame var mikil áróðursvél og hann er grunaður um að hafa látið bófa sína ógna stuðningsmönnum Twagiramungu. Jafnvel er fullyrt að þeir sem kusu Twagiramungu hafi verið látnir kjósa aftur og kjósa þá „rétt“. Stjórnarandstöðuflokknum MDR hefur ekki verið leyft að starfa undanfarna mánuði og sumir forystumenn hans hafa horfið en aðrir verið fangelsaðir.

Ef það sannast eru kosningarnar lítill sigur fyrir Kagame, þvert á móti axarskaft því að hann hefur notið þess um heim allan að hafa stöðvað fjöldamorðin árið 1994 og verið studdur dyggilega á Vesturlöndum. Sektarkenndin yfir að hafa ekki hafst af árið 1994 hefur gert að verkum að menn hafa verið rausnarlegir á styrki við stjórn Kagame sem hefur þó ekki skirrst við að gagnrýni aðgerðaleysið á stundu neyðar. Clare Short þróunarmálaráðherra Bretlands var einn helstu aðdáenda hans og stundum sökuð um að þykjast ekki taka eftir að hermenn frá Rwanda hafa farið með báli og brandi inn í önnur lönd.

Nú hefur komið á daginn að menn í uppreisnarher Kagame myrtu sjálfir um 50 þúsund Hútúa árið 1994. Eins hefur Kagame verið gagnrýndur fyrir að ráðast inn í Kongó árið 1998 til að leita að morðingjunum frá 1994. Það kom af stað frekari átökum sem enn sér ekki fyrir endann á þó að Kagame hafi dregið Rwandaher til baka í fyrra.

Kagame er í stuttu máli sterkur maður, hálfgerður einræðisherra þó að margir verri séu til. Vandi Rwandabúa er fyrst og fremst sá að þeir þora ekki að hætta á að fá neinn annan. Þrátt fyrir allt var það hann sem stöðvaði ein viðbjóðslegustu fjöldamorð í heimssögunni og kom á friði og öryggi. Fréttamaður Independent sem er afar gagnrýninn á Kagame tók viðtal við konu sem slapp naumlega lífs í apríl 1994 með því að þykjast vera dauð undir hrúgu af líkum. Hún sagðist ætla að kjósa Kagame. Ástæðan er einföld: Hann stöðvaði morðin.

Þeir sem hafa heyrt sögur frá Rwanda árið 1994 hljóta að sýna þeim Rwandabúum skilning sem fylkja sér nú um sterka manninn. Fleiri voru myrtir þar í landi á hverjum einasta degi um 100 daga skeið en dóu í árásinni á World Trade Center árið 2001. Allt landið var þakið í blóði vikum saman. Hútúmenn sem áttu maka af Tútsakyni voru neyddir til að myrða þá og börn þeirra. Drjúgur hluti þeirra sem nú býr í landinu var samsekur um morð sem voru þaulskipulögð af stjórninni í Kigali og voru jafnvel grófari en það sem gert var í útrýmingarbúðum nasista.

Eftir þann viðbjóð þarf Kagame ekki mikið að gera. Allir muna eftir morðöldunni og honum nægir að sannfæra landsmenn um að hann sé sá eini sem geti tryggt að þetta gerist aldrei aftur.

áj


Prenta grein   Senda grein   Tilvísunar slóð



Leit   Eldra efni   Um Múrinn
Forsíða   Efst á síðu
Rss straumur