Múrinn-vefrit um þjóðmál, pólitík og menningu
Múrinn-vefrit um þjóðmál, pólitík og menningu
 

Þjóðnýting er lausnin

11.1.2002

Að gefa út vefrit er góð skemmtun! Með því að birta eina litla grein á hverjum degi, er hægt að valda ótrúlega mikilli geðshræringu hjá vissum hópi fólks og kalla á hvers kyns skammargreinar og bölbænir, allt eftir því hvernig hvernig staðið er að málum.

Auðveldasta leiðin til að æsa upp íhaldsmenn, Framsóknarfólk og krata er sú að benda á fánýti þess að Ísland sé eina herlausa þjóðin í heiminum sem sé aðili að hernaðarbandalagi. Til að gera þessa hópa ennþá trylltari, er tilvalið að setja sig upp á móti því að Vesturlönd drepi fólk í þriðja heiminum eða leggi líf þess í rúst - ýmist beint (með loftárásum og stríðsrekstri) eða óbeint (með kapítalisma og óheftri alþjóðavæðingu fjármagnsins).

Pottþéttasta aðferðin til að tryggja það að lýðræðisöflin (Sjálfstæðismenn og Hræðslubandalagið) gangi af göflunum er þó sú að draga í efa réttmæti þess að færa verkefni úr höndum ríkisins til einkaaðila. Fáir verða þó jafn æfir og kratar þegar stungið er upp á því að rekstur sem fluttur hefur verið frá ríkinu verði á nýjan leik falinn samfélaginu. Það telja nútímalegir jafnaðarmenn vera stalínisma af verstu sort - og að með öllu tali um þjóðnýtingu sé verið að hverfa áratugi aftur í tímann.

Það er því vissulega kaldhæðnislegt að fylgjast með umræðum í breskum fjölmiðlum þessa daganna. - Bretland er sem kunnugt er eitt hægrisinnaðasta samfélag Evrópu og breskir jafnaðarmenn langtum íhaldssamari en félagar þeirra hvarvetna á meginlandinu. Sætir því nokkrum tíðindum að íslenskir ungkratar skuli hafa valið sér Tony Blair sem helsta hugmyndafræðing og átrúnaðargoð. En jafnvel í hinu fyrirheitna ríki þriðju leiðarinnar hika menn ekki um að ræða um þjóðnýtingu á þann hátt að nútímalegum jafnaðarmönnum á klakanum hlýtur að stökkva kaldur sviti.

Í gær, fimmtudaginn 10. janúar, birtist viðtal við Gavin Strang, sem var samgönguráðherra í fyrsta ráðuneyti Blairs árið 1997. Strang, hefur alla tíð verið í hópi þeirra sem harðast hafa gengið fram í því að "nútímavæða" breska Verkamannaflokkinn, en kallar nú eftir því að flokkurinn taki upp þá "djörfu" stefnu að þjóðnýta bresku járnbrautirnar á nýjan leik.

Þjóðnýting breska járnbrautakerfisins er raunar ekki "djarfara" stefnumál en svo að 70% þjóðarinnar segist vera því fylgjandi í skoðanakönnunum. Þar af eru nánast allir stuðningsmenn Verkamannaflokksins hlynntir þjóðnýtingu og meira en helmingur íhaldsmanna! Ástæðan er einföld - einkavæðing sú sem Margrét Thatcher stóð fyrir á níunda áratugnum gerði ekki annað en að færa gríðarleg verðmæti úr sameiginlegum sjóðum í vasa stórfyrirtækja.

Á dögunum viðurkenndi Peter Hain, ráðherra Evrópumála, að breska lestarkerfið væri það versta í Evrópu. Fargjöld eru dýr, ferðir eru stopular, öryggi farþega er ófullnægjandi, laun starfsfólks eru lág, leiðakerfið er úrelt og tímaáætlanir standast illa.

Einkavæðing bresku íhaldsstjórnarinnar á lestakerfinu var á sínum tíma hampað mjög af hægrimönnum um heim allan - þar á meðal á Íslandi. Einhverra hluta vegna vilja þeir minna um hana fjalla núorðið. Væntanlega verða þeir enn þöglari þegar og ef hin nýja íhaldsstjórn Tony Blairs lætur undan háværum kröfum almennings í Bretlandi og þjóðnýtir lestakerfið.

Múrinn óskar sjálfum sér og lesendum til hamingju með tveggja ára afmælið.

sp


Prenta grein   Senda grein   Tilvísunar slóð



Leit   Eldra efni   Um Múrinn
Forsíða   Efst á síðu
Rss straumur