Múrinn-vefrit um þjóðmál, pólitík og menningu
Múrinn-vefrit um þjóðmál, pólitík og menningu
 

Kúgararnir eru að sigra

18.1.2002

Öflugustu hryðjuverkasamtök heims, Ísraelsher, hafa undanfarna daga aukið árásir sínar á Palestínu. Ráðamenn í Ísrael fara ekki í grafgötur með eðli árásanna, um hefndaraðgerðir er að ræða. Þessi hefndarverk eru unnin vegna sjálfsmorðsárása örfárra Palestínumanna og miða að því að refsa þjóðinni fyrir verk einstaklinganna. Ísralesher reynir þannig að berja Palestínumenn til undirgefni með velþekktum aðferðum kúgarans.

Nú er svo komið að innviðir palestínsks samfélags eru við það að bresta. Það er ekki síst vegna síendurtekinna árása Ísraelsmanna á stofnanir palestínsku heimastjórnarinnar. Ísraelsher heldur Arafat í herkví og situr um skrifstofur heimastjórnarinnar um leið og Sharon kvartar yfir því að Arafat hafi ekki gripið til nógu harðra aðgerða gegn hryðjuverkamönnum. Ekki þarf snilling að sjá að stofnun sem er í herkví á ekki auðvelt með að sinna skyldum sínum.

Nú er svo komið að Palestínumenn biðla til alþjóðasamfélagsins um neyðaraðstoð, því aðgerðir Ísraela eru að eyðileggja heimastjórnina. Fari svo mun friðarferlið endanlega vera dautt, því við hvern ætla Ísraelsmenn að semja frið ef ekki palestínsku heimastjórnina?

Það er skylda alþjóðasamfélagsins að stöðva hryðjuverk Ísraela. Íslenskir ráðamenn, sem slógu sig til riddara fyrir stuðning við loftárásir á Afganistan, geta ekki skorast undan þeirri ábyrgð. Ljóst er að Bandaríkjamenn halda hlífiskildi yfir Ísraelum, en þeir gera það í skjóli alþjóðlegs stuðnings. Íslendingar eiga að leggja sitt af mörkum til að stöðva þennan glæp. Helst ætti að kalla þing saman nú þegar eða samþykkja áskorun á Ísraela og Bandaríkjamenn í næstu viku þegar þing kemur saman, þess efnis að ofbeldisverk Ísraela verði stöðvuð tafarlaust.

kóp


Prenta grein   Senda grein   Tilvísunar slóð



Leit   Eldra efni   Um Múrinn
Forsíða   Efst á síðu
Rss straumur