Múrinn-vefrit um þjóðmál, pólitík og menningu
Múrinn-vefrit um þjóðmál, pólitík og menningu
 

“Það er algjör vitleysa!”

29.1.2002

Í DV sl. fimmtudag (24. janúar) skrifaði Reynir Traustason ítarlega fréttaskýringu um brask Landssímans í fjarskiptafyrirtækinu @IPbell, undir yfirskriftinni "Sími í klóm skýjaglópa". Í greininni rekur blaðamaðurinn hvernig æðstu stjórnendur fyrirtækisins sóuðu hundruðum milljóna króna í glórulaust ævintýri með því að kaupa fyrirtæki sem vart var meira en ein skjalataska og skýjaborgir. Var skuldinni einkum skellt á Þórarinn V. Þórarinsson, fyrrum forstjóra og stjórnarformanninn Friðrik Pálsson, sem prangað hefði hugmyndinni inn á aðra stjórnarmenn.

Það er vissulega sláandi að lesa frásögn Reynis af fjárglæfrum Landssímastjórnendanna og hörmulegt til þess að vita að hálfur milljarður króna hafi farið í súginn með þessum hætti. Þá er ekki síður athyglisvert að sjá hversu glámskyggnir sumir af helstu viðskiptaforkólfum landsins reyndust vera í máli þessu - menn sem ítrekað hafa tjáð sig fjálglega um það hvernig best væri að reka íslenskt þjóðfélag.

Það eru þó hvorki æsilega atburðarásin eða hinar miklu fjárhæðir sem stinga mest í augu í frásögninni. Þvert á móti eru það viðhorf stjórnendanna sem lesa má út úr smáklausu aftarlega í fréttinni. Þar segir: "Stjórnarmenn sem DV hefur rætt við telja að þrátt fyrir að fjárfestingin sé fokin út í veður og vind skipti það litlu máli fyrir fyrirtækið sem annars hefði þurft að greiða skatta."

Ekki verður annað skilið af þessum orðum en að stjórnendur Landssímans, fyrirtækis sem a.m.k. enn sem komið er á að heita í eigu þjóðarinnar, viti fátt skelfilegra en að leggja sitt af mörkum til samfélagsins með því að greiða skatta. Að þeirra mati, eru skattgreiðslur svo slæmar að jafngott eða betra sé að brenna peningunum upp með hvaða leiðum sem er.

Þetta hugarfar hinna nafnlausu heimildarmanna Reynis Traustasonar er ömurlegt. Á sama hátt og það hlýtur að vera sérhverjum heilbrigðum einstaklingi keppikefli að leggja meira til samfélagsins um lífsleiðina en hann þiggur á móti, ætti það að vera markmið fyrirtækja að greiða sem mest í sameiginlega sjóði - einkum fyrirtækja sem eru í eigu almennings. Þeir stjórnarmenn sem aðhyllast það lífsviðhorf að betra sé að sóa fé en að greiða skatta, eru augljóslega ekki starfi sínu vaxnir og ættu að segja af sér hið fyrsta - hverjir svo sem þeir eru.

Fram að því ættu þeir að geta skemmt sér við að gera veglegan starfslokasamning við Þórarinn V. Þórarinsson - í þeirri vissu að þeir milljónatugir fari í það minnsta ekki í skatta.

sp


Prenta grein   Senda grein   Tilvísunar slóð



Leit   Eldra efni   Um Múrinn
Forsíða   Efst á síðu
Rss straumur