| |
Lækkað vöruverð - á kostnað hverra?
7.2.2002
Í vikunni voru kynntar lokatillögur svonefndrar grænmetisnefndar um aðgerðir til að lækka verð á grænmeti. Kom fram á blaðamannafundi sem landbúnaðarráðherra efndi til að meðalverð á grænmeti til neytenda gæti lækkað um 15% en í sumum tilvikum meira. Þannig gæti afnám tolla af gúrkum, tómötum og papriku leitt til 50% lækkunar á verði á gúrkum og tómötum en 55% lækkunar á verði á papriku.
Þetta hljómar allvel. En þá er að líta á hvað þetta kostar. Nefndin leggur til að verðtollur á sveppum, kartöflum og ýmsum tegundum útiræktaðs grænmetis verði felldur niður en magntolli viðhaldið á þessum afurðum. Á gúrkum, tómötum og papriku falli verð- og magntollar niður. Þess í stað fá framleiðendur beingreiðslur sem gætu numið um 195 milljónum króna á ári. Í stuttu máli er verið að fella niður árstíðabundna tolla á vissum afurðum grænmetisbænda, en þess í stað verða teknir um beinir framleiðslustyrkir til þeirra eins og margra annarra bænda.
Þar að auki á ríkið að styrkja þessa bændur með ýmsu móti. Til dæmis á að að greiða niður rafmagn til lýsingar í gróðurhúsum, styrkja úreldingu gróðurhúsa og endurskoða stofnlán til garðyrkju. Þessar aðgerðir gætu kostað ríkið 280 milljónir króna á ári.
Hér er því verið að tala um tæpan hálfan milljarð á ári sem skattgreiðendur eiga að borga til að halda niðri vöruverði á innlendri framleiðslu til neytenda. Þar sem neytendur og skattgreiðendur eru í flestum tilvikum sama fólkið má segja að hér sé verið að seilast í fé í öðrum vasanum og færa yfir í hinn. Allt á þetta að vera til stórfelldra hagsbóta fyrir íslenska neytendur.
Það kerfi framleiðslustyrkja sem nú er verið að taka upp í garðyrkjubúskap er mjög í ætt við það sem stundað hefur verið um árabil í kindakjötsframleiðslu. Það kerfi hefur verið gagnrýnt og sjá margir ofsjónum yfir ríkisstyrkjum sem fara til landbúnaðar. En nú hafa ráðamenn þjóðarinnar ákveðið að það sé til fyrirmyndar og það eigi að taka upp á fleiri sviðum landbúnaðar.
Búast má við að það verði umdeild ákvörðun.
sj
|
|