Múrinn-vefrit um þjóðmál, pólitík og menningu
Múrinn-vefrit um þjóðmál, pólitík og menningu
 

Sunnudagshugvekja

Hjálmar Jónsson, þingmaður Sjálfstæðisflokksis og fyrrum prestur í Skagafirði, var á dögunum spurður að því hvað honum fyndist rétt að gera við bréf frá hópi sem hvetur fólk til að heimta greiðslur fyrir þátttöku í gagnagrunninum fræga. Hjálmar svaraði því til að fólk ætti að henda því í ruslið eins og bréfum frá Vottum Jehóva og fór ekki dult með fyrirlitningu sína á þeim söfnuði.

Nú er ekki gott að segja hvað það er í boðskap Votta Jehóva sem fer svona ógurlega fyrir brjóstið á guðsmanninum. Vottarnir leggja vissulega mikla áherslu á að þeir boði trúna ómengaða, hreina frumkristni eins og hún var í árdaga kristindómsins. En flestir söfnuðir telja sig boða hina einu, sönnu trú þannig að Vottar Jehóva skera sig ekki úr að því leyti. Þeir trúa spádómum Opinberunarbókarinnar sjálfsagt bókstaflegar en flestir aðrir en það getur varla talist mjög ósvífið að leggja trúnað á að á endanum verði menn dæmdir af verkum sínum.

Ef til vill kristallast ágreiningur Hjálmars við Vottana í alþjóðlegu tákni þeirra sem er plógur smíðaður úr sverði. Vottar Jehóva fást ekki undir nokkrum kringumstæðum til að taka þátt í stríði af því að þeir taka boðorðin alvarlega og trúa því að eigi skuli mann deyða. Hjálmar Jónsson styður ríkisstjórn sem stóð ásamt stjórnvöldum annarra NATO-ríkja að tugum loftárása á borgaraleg skotmörk í Júgóslavíu, s.s. skóla, sjúkrahús, elliheimili og útvarpsstöðvar. Talsmaður flughers NATO tilkynnti fjölmiðlum það glaðhlakkalegur í júníbyrjun að B-52 sprengjuflugvélar hefðu í einni af árásarferðum sínum varpað sprengjum á u.þ.b. eitt þúsund manna hóp júgóslavneskra hermanna og þeir hefðu verið "gjörsamlega malaðir". Ríkisstjórn Hjálmars er líka óþreytandi í vörnum sínum fyrir viðskiptabannið á Írak sem hefur ekki komið Saddam Hussein frá völdum en kostað meira en eina milljón mannslífa í Írak, aðallega úr röðum yngstu kynslóðarinnar.

Hjálmar Jónsson gæti lært ýmislegt gagnlegt af Vottum Jehóva, t.d. að gjöra sverðið að plógi í stað þess að gjalda illt með illu. Vottar verða varla sakaðir um annað en að lifa samkvæmt ritningu sem prestar þjóðkirkjunnar vinna við að túlka og boða almenningi á Íslandi. Sá sem þetta skrifar hefur aldrei heyrt af því að Vottarnir hafi áreitt fólk með bréfasendingum hvað þá að hann hafi kynnst slíku áreiti af eigin raun. Hins vegar mega Vottar Jehóva eiga það að þeir skíra börn og unglinga ekki inn í sína reglu fyrr en þau þykja hafa öðlast nægilegan þroska til að taka ákvörðun um það sjálf.

sh


Prenta grein   Senda grein   Tilvísunar slóð



Leit   Eldra efni   Um Múrinn
Forsíða   Efst á síðu
Rss straumur