Múrinn-vefrit um þjóðmál, pólitík og menningu
Múrinn-vefrit um þjóðmál, pólitík og menningu
 

Alþjóðavæðingin og Karl Th.

11.3.2002

Hann fer nú að verða heldur hvimleiður söngurinn um hina skyni skroppnu mótmælendur gegn alþjóðavæðingu. Með reglubundnum hætti má heyra hann í fjölmiðlum og lesa um á netmiðlum. Nýjasta röddin í þessum misradda kór er Karl Th. Birgisson en í nýlegum pistli sínum í Speglinum á RÚV mátti heyra Karl úttala sig um þá sem mótmæla skuggahliðum alþjóðavæðingarinnar.

Þar opinberaði hann annað af tvennu; slælega heimildaöflun pistlahöfundar sem ekki hefur fyrir því að kynna sér málefnin sem hann fjallar um, ellegar fordóma sína gagnvart mótmælendunum. Grípum niður í pistilinn:

"Ég hef reyndar aldrei þrátt fyrir einlægan vilja skilið almennilega hverju andstæðingar alþjóðavæðingar eru nákvæmlega að mótmæla og hef haft um það lúmskan grun að þeir viti það ekki alveg allir sjálfir. Mér hefur semsé fundist að þarna sé líklega á ferðinni sú tegund af fólki sem finnur til svo mikils vanmáttar gagnvart alls konar vondum hlutum í veröldinni að það finnur sér ekki fró í öðru en að mótmæla af öllum lífs og sálar kröftum. Mótmæla hverju? Ja mótmæla nokkurn veginn hverju sem er og það þarf ekki nema miðlungi sæmilegan málstað til að finna þeim mótmælum frekar ofsafenginn farveg. Og þessi misserin heitir sá málstaður semsagt alþjóðavæðing."

Hér kveður við kunnuglegan tón, en hingað til hafa hægri kratar verið hvað duglegastir við að draga í efa að þeir sem hafa risið upp gegn skuggahliðum alþjóðavæðingarinnar viti nokkuð hvað þeir eru að gera. Þannig er reglulega dregin upp mynd af þeim sem ýmist nytsömum sakleysingjum, sem í gegnum eiturlyfjavímu sína skynja ekki villu síns vegar, eða sem ofbeldisseggjum sem flakka á milli staða og fá útrás fyrir skemmdarfýsn sína.

Múrinn hefur áður fjallað um þessa mýtu sem á ekki við nein rök að styðjast. Enda sér það hver maður sem vill kynna sér málið að ekki er hörgull á ástæðum fyrir mótmælum gegn alþjóðavæðingunni. Þessir mótmælendur eru margleitur hópur og það hefur gert það að verkum að þeir sem trúa í blindni á allt sem hefur forskeytið alþjóða-, eiga hægar um vik en ella í rangfærslum sínum. Það þarf hins vegar enginn að velkjast í vafa um að mótmælin eiga sér eðlilegar skýringar.

Raunar er kannski stærsta klisjan sú að það sé verið að mótmæla alþjóðavæðingu sem slíkri því að mótmælin snúast um hvernig þessi alþjóðavæðing er og á hverra forsendum. Og mörgum blöskrar skelfilegar afleiðingar alþjóðavæðingarinnar. Í því samhengi nefna afleiðingar þess að tengja hagkerfi fátækra ríkja alþjóðahagkerfinu. Staðreyndin er nefnilega sú að Alþjóðabankinn sem hefur verið holdgerfingur alþjóðlegs fjármagnsstreymis með lánum til fátækari ríkja, hefur gert kröfur um miklar breytingar í þeim ríkjum sem hefur oftar en ekki leitt hörmungar yfir fátæka íbúa þeirra. Um þetta er reglulega fjallað á fundum Alheimshreyfingarinnar, en það eru samtök stjórnmálahreyfinga og félagasamtaka sem berjast gegn alþjóðavæðingunni. Um þetta má fræðast hér og hefði pistlahöfundi Spegilsins átt að vera í lófa lagið að kynna sér málið áður en hann reit pistil sinn, jafn alþjóðlegur og hann þykist nú vera.

Önnur hreyfing sem pistlahöfundurinn hefði að ósekju mátt kynna sér er hin franska ATTAC-hreyfing. Á heimasíðu hennar, www.attac.org, má kynna sér baráttumál hennar, en hreyfingin hefur verið virk í baráttu gegn neikvæðum afleiðingum alþjóðavæðingarinnar. Einnig má nefna það að á fyrirhugaðri ráðstefnu Sameinuðu þjóðanna í Jóhannesarborg, þar sem á að ræða sjálfbæra þróun 10 árum eftir Ríó-ráðstefnuna, á meðal annars að ræða neikvæðar hliðar alþjóðavæðingarinnar. Það er nefnilega staðreynd að hún gagnast ríkjum misjafnlega og munu Sameinuðu þjóðirnar ræða leiðir til að bregðast við því.

Það er því ljóst að næg eru efnin til að kynna sér málstað þeirra sem mótmæla skuggahliðum alþjóðavæðingarinnar. Í netvæddu þjóðfélagi nútímans, tekur það innan við mínútu að leita uppi heimasíður sem birta málstað mótmælenda. Karl Th. Birgisson virðist hins vegar ekki hafa mátt missa þessa mínútu í eitthvað jafn fánýtt og undirbúning fyrir pistil sinn.

kóp


Prenta grein   Senda grein   Tilvísunar slóð



Leit   Eldra efni   Um Múrinn
Forsíða   Efst á síðu
Rss straumur