|
| |
Drögum Saddam fyrir rétt
24.3.2002
Ómögulegt er að segja hversu mikið er að marka nýjustu yfirlýsingar George W. Bush um að ekki standi til að ráðast inn í Írak. Forsetinn hafði áður boðað hið gagnstæða um nokkurt skeið og hafði meira að segja í hyggju að efna til sérstakrar ráðstefnu um nýja herför við Persaflóa í félagi við Tony Blair. Það hik sem komið er á þá blóðbræður gæti reynst skammgóður vermir.
Í sjálfu sér er einkennilegt til þess að hugsa að ekki hafi verið gerðar alvarlegar tilraunir til þess á alþjóðavettvangi að draga Saddam Hussein fyrir rétt í stað þess að níðast á þegnum þessa þaulsætna harðstjóra í tíma
og ótíma með loftárásum og viðskiptaþvingunum. Eins og mannréttindasamtökin Human Rights Watch hafa sýnt fram á er Saddam ábyrgur fyrir þjóðarmorði í Kúrdistan. Fyrir utan fjöldaaftökur í ógnvænlegum mæli beittu hersveitir hans meðal annars efnavopnum til að brjóta á bak aftur uppreisn Kúrda í nyrstu héruðum Íraks.
Það eru út af fyrir sig litlar líkur á að samstaða næðist innan Öryggisráðs Sameinuðu þjóðanna um að setja á fót dómstól vegna þessa þjóðarmorðs. Til þess eru hagsmunir ríkja sem þar hafa neitunarvald of ólíkir og miklir, sbr.
Bandaríkin, Rússland og Kína. Að líkindum myndu þá sjónir margra beinast einnig að þjóðarmorðinu norðan landamæranna, í þeim hluta Kúrdistans sem Tyrkir ráða.
Á hinn bóginn ætti ekkert að vera því til fyrirstöðu að ótiltekinn fjöldi ríkja tæki sig saman um að kæra Saddam Hussein fyrir Alþjóðadómstólnum. Því fleiri sem ákærendurnir væru, því meiri yrðu áhrif slíkrar málshöfðunar.
Alþjóðadómstóllinn hefur tekið slík mál til meðferðar og má í því sambandi minna á að það var á þeim vettvangi sem Bandaríkjastjórn var fundin sek um stríðsglæpi á sínum tíma, nánar tiltekið fyrir að loka höfnum Nicaragua með tundurduflagirðingum í tíð ríkisstjórnar Sandínista.
Þó að Bandaríkjastjórn hafi í framhaldi af þeim dómi hætt að viðurkenna Alþjóðadómstólinn er engin ástæða til að líta framhjá þeim möguleikum sem þar eru fyrir hendi. Saddam Hussein hefur margfaldlega til þess unnið að svara til saka fyrir óvilhöllum dómstólum.
sh
|
|
| |