Múrinn-vefrit um þjóðmál, pólitík og menningu
Múrinn-vefrit um þjóðmál, pólitík og menningu
 

Stjórnarskipti í Ungverjalandi?

14.4.2002

Sem betur fer stefnir allt í að Sósíalistar og bandamenn þeirra taki við stjórnartaumunum eftir næstu umferð þingkosninga þar í landi. Sósíalistar urðu stærsti flokkur landsins í fyrri umferð kosninganna, fengu litlu meira en Fidesz, flokkur Viktors Orban forsætisráðherra. Allt hafði stefnt í að Fidezs fengi hreinan meirihluta eða gæti myndað stjórn með Réttlætis- og lífsflokknum sem heyr harða baráttu gegn fólki af erlendum uppruna. Sem betur fer tókst þó Réttlætis- og lífsflokknum ekki að ná 5% fylgi og hann verður því utan þings.

Þetta voru fjórðu kosningarnar í landinu eftir umbyltingarnar miklu árið 1989 og í hvert sinn hefur ríkisstjórnin setið út fjögur ár en alltaf tapað næstu kosningum. Kosningaþátttaka var óvenju mikil nú, um 71%. Mikill æsingur fylgdi kosningunum og munu sjö manns hafa dáið af hjartaslagi á kjörstað.

Orban hefur kynt undir þjóðernisstefnu í landi sínu seinustu tvö ár og verið tíðrætt um þá daga sem Ungverjaland var voldugra en nú. Hann stóð einnig fyrir umdeildri löggjöf þar sem fólki af ungverskum uppruna í nágrannalöndunum Slóvakíu og Rúmeníu var veittur réttur til atvinnu og velferðarþjónustu. Hafa ríkisstjórnir þessara landa brugðist æfar við og sakað Orban um að vilja þenja út Ungverjaland. Orban hefur einnig átt í útistöðum við ríkisstjórn Tékklands og krafist þess að eignum Ungverja sem gerðar voru upptækar eftir seinni heimsstyrjöldina verði skilað.

Í efnahagsmálum hefur Orban þótt óútreiknanlegur. Hann státar sig sjálfur af hagvexti sem hefur þó verið mjög á kostnað hinna fátæku í landinu, enda hefur stéttaskipting þar aukist mjög. Hann var einnig sakaður um „einkavinavæðingu“ enda segir andófsmaðurinn Istvan Eörsi að í hverju einasta héraði landsins, alstaðar þar sem völdin og fjármagnið séu, megi nú finna lítinn Viktor Orban við völd.

Sósíalistar höfðu áður unnið allnokkuð umbótastarf í efnahagsmálunum og forsætisráðherraefni þeirra er Peter Medgyessy, 59 ára bankamaður sem þykir mun rólegri en eldibrandurinn Orban. Sósíalistar eru arftakar Kommúnistaflokksins sem réð Ungverjalandi eftir stríð og hafa legið undir stöðugum kröfum hægrimanna um uppgjör við fortíðina. Almenningi virðist þó standa á sama.

Sósíalistar geta þó ekki reiknað með neinu enda var kosningasigur Orbans árið 1998 óvæntur. Spekingar benda þó á að Orban geti ekki unnið með neinum öðrum flokki en Sósíalistar séu í góðu sambandi við Frjálslynda lýðræðisflokkinn. Munu ýmsir í Evrópusambandinu anda léttara ef ekki bætist enn eitt ríki með hægriöfgaflokk í ríkisstjórn við sambandið.

áj


Prenta grein   Senda grein   Tilvísunar slóð



Leit   Eldra efni   Um Múrinn
Forsíða   Efst á síðu
Rss straumur