| |
Hreppsbörnin í Hafnarfirði
23.2.2001
Sem kunnugt er hefur bæjarstjórn Sjálfstæðis- og Framsóknarflokksins í Hafnarfirði ákveðið að bjóða niður barnafræðsluna í einu af hverfum bæjarins. Svo ákveðin eru bæjaryfirvöld í að hefja leitina að lægstbjóðandanum að forystumenn þeirra telja ekki taka því að mæta á fundi þar sem þeim er boðið að skýra þessa ákvörðun sína. Meirihlutinn hefur talað.
Í útboðslýsingu er margt eftirtektarvert. Einna fyrst verður þar fyrir kafli um virðingarröð skjala ef upp komi ágreiningur milli bæjarstjórnar og verktakans um kennsluna. Fyrst kemur samningurinn, svo útboðsgögn, því næst fyrirspurnir og svör á tilboðstímanum, tilboðið sjálft og í fimmta sæti er sérstakur gæðastaðall. Í sjötta sæti – á eftir öllum peningamálunum og gæðastjórnuninni – eru samþykktir skólayfirvalda í Hafnarfirði.
Í sama dúr er lýsingin á því hvernig tilboð í barnakennsluna skuli metin. Í fyrsta sæti, með helmingsvægi, er verðið. Þá kemur hugmyndafræði (25%) og þar á eftir gæðaáætlun (15%) en minnstu máli skiptir menntun og reynsla stjórnenda (10%). Kannski er það þetta sem átt er við í útboðslýsingunni þar sem segir eftirfarandi: „Meginmarkmið einkaframkvæmdar eru að nýta sér einkenni og kosti einkarekstrar þar sem sparnaði er náð með hugkvæmni og hæfileikum einkamarkaðarins ...“
Einnig segir að einkaframkvæmd sé „álitinn góður kostur í opinberum rekstri og víða er verið að kanna kosti þessarar leiðar við úrlausn á fyrirliggjandi verkefnum.“ Þeirri könnun er nú þegar lokið í sumum af nágrannalöndum okkar og Svíar virðast ætla að taka þann kostinn að leggja einkamarkaðarframkvæmdina af í velferðarþjónustu sinni og skólakerfi.
Fleiri dæmi má taka úr þessu bókmenntaverki bæjarstjórnarinnar, s.s. að verktakinn „skal meta sjálfstætt þörf fyrir kennara“. Kennsla skal vera í fullu samræmi við samþykktir skólayfirvalda í Hafnarfirði á hverjum tíma en nánast allt sem viðkemur peningum verður samt rétthærra ef ágreiningur rís. Verktakinn getur líka boðið upp á viðbótarþjónustu, til að hala inn aura í kassann, og verðlagt hana að vild.
Ríkisstjórn sömu flokka og stýra hreppsnefndinni í Hafnarfirði hefur tekið vel í beiðni félaga sinna um undanþágu frá lögum vegna tiltækisins. Framsóknarmenn eru að vísu auðvitað alveg andvígir þessari stefnu en samþykkja málið engu að síður eins og fleira. Enda er þetta „bara tilraun“. Á börnum.
sh
|
|