Múrinn-vefrit um þjóðmál, pólitík og menningu
Múrinn-vefrit um þjóðmál, pólitík og menningu
 

Reaganisminn hefur innreið sína í íslenskt heilbrigðiskerfi

28.8.2002

Ronald Reagan er einn af mörgum forsetum Bandaríkjanna sem sýnt var banatilræði. Árásarmaðurinn reyndist ekki ganga heill til skógar og þótti mörgum það kaldhæðnislegt í ljósi að geðsjúkir voru meðal margra samfélagshópa sem þurftu á aðstoð að halda en settir voru út á gaddinn í valdatíð Reagans.

Staðan í málefnum geðsjúkra hér á landi hefur um árabil verið til skammar og nú tekur ekki betra við þegar kemur að Alzheimer-sjúklingum. Stjórn Landsspítala – Háskólasjúkrahúss hefur ákveðið að loka athvarfi þessa fólks sem er algerlega ósjálfbjarga og senda það heim til aðstandenda eða inn á dvalarheimili fyrir aldraða. Það þarf nefnilega að spara.

Eins og nærri má geta er þetta skelfileg aðgerð bæði fyrir sjúklingana og aðstandendur þeirra, ekki síst þar sem fyrirvarinn var örskammur. Stjórnarformaður spítalans, Guðný Sverrisdóttir, gaf þau svör í fréttum Sjónvarpsins að þetta væri bara alltaf svona. Það væri alltaf stuttur fyrirvari. Og það sem meira var, að sögn stjórnarformannsins er það alltaf þannig að „myndast erfiðleikar“ þegar ósjálfbjarga fólk er sent heim af sjúkrahúsum. Og það væri nú verr og miður en það sparaðist talsvert með þessari lokun.

Og auðvitað vissi heilbrigðisráðherra, Jón Kristjánsson, ekkert um málið. Ekki nokkurn skapaðan hlut. Hann sat að vísu fund með framkvæmdastjórn spítalans fyrir skemmstu og þar var talað um sparnaðaraðgerðir.

En það á heldur ekki alltaf að benda á heilbrigðisráðherrann þegar fjársvelti er að gera út af við heilbrigðisstofnanir þessa lands. Fjárveitingavaldið með Geir H. Haarde, varaformann Sjálfstæðisflokksins, í broddi fylkingar ber ekki síður ábyrgð á ástandinu. Öll ríkisstjórnin stendur að þessari fjársveltisstefnu sem hefur leitt af sér það ömurlega ástand að sjöunda ríkasta þjóð í heimi rekur fárveikt fólk út af sjúkrahúsum og segir aðstandendum að leysa málin. Hvað verður næst? Hverjum verður úthýst til að spara meira?

sh


Prenta grein   Senda grein   Tilvísunar slóð



Leit   Eldra efni   Um Múrinn
Forsíða   Efst á síðu
Rss straumur