Múrinn-vefrit um þjóðmál, pólitík og menningu
Múrinn-vefrit um þjóðmál, pólitík og menningu
 

Illa farið með góða drengi

Undanfarna daga hafa ill tíðindi borist frá Kaupmannahöfn. Þar eiga sér nú stað viðræður danskra og færeyskra stjórnvalda um mögulegan aðskilnað landanna og sjálfstæði Færeyja. Þessar hugmyndir nutu til skamms tíma yfirgnæfandi stuðnings í Færeyjum og meðal Dana hefur skilningur á þeim farið vaxandi. Því miður virðist danska ríkisstjórnin hafa ákveðið að bregða fæti fyrir þessi áform. Í stað þess að ræða málin á grunni metnaðarfullra hugmynda Færeyinga um fullan efnahagslegan aðskilnað ríkjanna fyrir árið 2015, þar sem hið árlega framlag ríkissjóðs Danmerkur til eyjanna lækkaði um helming strax á fyrsta ári og svo smátt og smátt á næstu þrettán árum, kaus stjórn Pauls Nyrups að setja viðsemjendum sínum afarkosti. Tilboð dönsku stjórnarinnar gerir ráð fyrir því að allur fjárhagsstuðningur falli niður á þremur árum. Í ljósi þess að fjárframlög þessi eru nálega fjórðungur fjárlaga Færeyja, má hverjum manni vera ljóst að tilboð þetta hefur þann eina tilgang að sigla viðræðunum í strand og hræða færeysku þjóðina frá því að berjast fyrir sjálfstæði. Ástæðan er augljós. Færeyingar þjóðin sem Danir vildu ekkert vita af fyrir örfáum misserum, eiga nú í vændum olíugróða ef tilraunaboranir á landgrunninu bera tilætlaðan árangur. Ekki eru mörg ár liðin frá því að danskir stjórnmálamenn sýndu í verki vinarþel sitt í garð granna okkar, þegar þeir nánast rústuðu bankakerfi eyjanna á einu bretti með tilheyrandi kreppu og efnahagsþrengingum, til þess eins að bjarga skinni nokkurra danskra bankamanna. Var þar að verki sama göfuglyndi og danskir ráðamenn sýndu í málefnum bandarískra herstöðva á Grænlandi, þar sem þeir tóku þátt í að hylma yfir veru kjarnorkuvopna í landinu. Óskandi væri að danska ríkisstjórnin hefði manndóm í sér til að taka á málaleitunum færeysku ríkisstjórnarinnar af sanngirni. Færeyingar hafa metnað til að standa á eigin fótum og þurfa ekki að vera upp á ölmusur Dana komnir. Sá metnaður á að vera forsætisráðherra Danmerkur fagnaðarefni, í stað þess að hann reyni að bregða fæti fyrir þessa fámennustu þjóð Norðurlanda.

sp


Prenta grein   Senda grein   Tilvísunar slóð



Leit   Eldra efni   Um Múrinn
Forsíða   Efst á síðu
Rss straumur