| |
Stórsigur Lula – afhroð frjálshyggjumanna í Brasilíu
9.10.2002
Luis Inacio da Silva, sem þekktur er undir gælunafninu Lula, vann glæsilegan sigur í fyrri umferð forsetakosninganna í Brasilíu og hlaut um 47% atkvæða. Frambjóðandi ríkisstjórnarflokkanna, Jose Serra, reyndist hálfdrættingur á við Lula og fékk 23% fylgi. Næstir komu Anthony Garotinho með 18% og Ciro Gomes með 12%.
Það er ljóst að takist Lula að landa sigrinum í síðari umferð yrðu það mikil pólitísk tíðindi og gætu haft umtalsverð áhrif á stjórnmálalíf um álfuna alla og jafnvel víðar. Kannski er það þess vegna sem landsmenn þurfa að hlusta á stöku íslenska fjölmiðlamenn spá Lula erfiðleikum í síðari umferðinni og jafnvel staðhæfa að stuðningsmenn allra hinna frambjóðendanna muni sameinast gegn Lula og kjósa Serra í forsetaembætti. En það er jafn þungbært fyrir það.
Þeir sem byggja túlkanir sínar á kosningaúrslitunum á óskhyggju öðru fremur þurfa að líta framhjá æði mörgum staðreyndum. Sigur Lula var svo afgerandi að í raun mátti litlu muna að hann fengi hreinan meirihluta og næði kjöri strax í fyrri umferð. Forskot hans á Jose Serra reyndist heldur meira en margar kannanir bentu til, rúmlega 23% í stað ríflega 20. Þeir sem kusu Gomes munu tæplega fylkja sér um Serra í seinni umferðinni enda Gomes vinstra megin við miðju í brasilískum stjórnmálum og óravegu frá stefnu ríkisstjórnarflokkanna.
Það er að vísu ekki hægt að gera ráð fyrir því að Lula nái að vinna alla fylgismenn Gomes á sitt band en hann þarf heldur að ekki að bæta nema um fjórum prósentum við sig. Kjósendur helsta keppinautarins á vinstri vængnum á árum áður, Brizzola, skiluðu sér vissulega illa til Lula í annarri umferð á sínum tíma. En það liggur í augum uppi að þeir af kjósendum Gomes sem á annað borð skila sér á kjörstað í seinni umferð (sem er reyndar skylda samkvæmt lögum landsins) hljóta að styðja Lula miklu fremur en Serra. Eins má búast við að nokkur hluti stuðningsmanna Garotinhos halli sér að Lula í seinni umferðinni.
Stóru tíðindin úr fyrri umferðinni – fyrir utan sigur Lula – eru auðvitað þau að ríflega þrír fjórðu hlutar kjósenda höfnuðu frjálshyggjustefnu sitjandi forseta, Fernando Henrique Cardozo, og forsetaframbjóðanda stjórnar hans. Misskiptingin er einna mest í Brasilíu af öllum löndum heims og skuldir ríkissjóðs eru að sliga landsmenn – eftir margra ára leiðsögn Alþjóðagjaldeyrissjóðsins.
Kjósendur hafa nefnilega látið heimsendaspár hægrimanna, um hvernig færi fyrir Brasilíu með Lula á forsetastóli, sem vind um eyru þjóta. Að hluta til er það vegna þess að þær eru komnar fram hvort eð er vegna óstjórnar í tíð Cardozos en líka af því að niðurskurðurinn í samfélagslegum verkefnum er að ganga af heilu þjóðfélagshópunum dauðum. Það fer ekki á milli mála að Brasilíumenn vilja breyta til og það munu þeir ekki gera með því að velja Jose Serra, krónprins Cardozos, í seinni umferð kosninganna í lok mánaðarins.
sh
|
|