Múrinn-vefrit um þjóðmál, pólitík og menningu
Múrinn-vefrit um þjóðmál, pólitík og menningu
 

Nokkrir góðir glæpir án ábyrgðar

Hannes H. Gissurarson, prófessor, ritaði yndislega grein í DV á dögunum um Margréti Thatcher og Ágúst Pinochet, sem prófessorinn kýs að kalla svo, og ber lof á Thatcher fyrir að hafa heimsótt Pinochet í fangelsið til að hughreysta hann. Prófessorinn hrósar herforingjastjórninni fyrir vel heppnaða efnahagsstefnu og telur breytingar hennar í átt til markaðshagkerfis til málsbóta fyrir herforingjana. Til að girða fyrir þann mögulega misskilning að með þessum málflutningi sé prófessorinn að gera lítið úr mannréttindabrotum Pinochet-stjórnarinnar birtir hann niðurstöður nettrar skoðanakönnunar sem hann gerði í Chile á ferð sinni um landið fyrir skemmstu. Og mennirnir sögðu að það hefði verið stríð og svona gerðist alltaf í stríði og Pinochet hefði komið í veg fyrir valdatöku kommúnista. Eftir hana hefðu ""ekki þrjú þúsund manns fallið, heldur þrjú hundruð þúsund"". Og þetta virðist nægja prófessor í félagsvísindum til að hafa ekki frekari áhyggjur af mannréttindabrotum herforingjastjórnarinnar. Hvernig myndi þessi röksemdafærsla virka á aðra stórviðburði í stjórnmálum á öldinni sem er að ljúka? Er það virkilega skoðun prófessorsins að herinn í Chile hafi rænt völdum í sjálfsvörn? Er réttlætanlegt að brjóta mannréttindi í stórum stíl í fullvissu þess að annars hefðu mannréttindabrotin orðið ennþá meiri? Með sömu rökvísi myndi Hannes líklega hafa stutt Norður-Kóreumenn í því að ráðast á Suður-Kóreu af því að stríð hafi verið yfirvofandi og betra að verða fyrri til. Maður að nafni Adolf Hitler taldi nauðsynlegt að útrýma gyðingum til að þeir myndu ekki útrýma aríska kynstofninum, hver sem hann nú er og var. Því verður seint trúað að prófessorinn geti lagt óbeina blessun sína yfir það. En svo mikið er víst að Hannes H. Gissurarson er í röksemdafærslu sinni kominn óhuggulega nálægt því sem ýmsir stalínistar sögðu í gamla daga sér til varnar: Það er ekki hægt að búa til eggjaköku án þess að brjóta egg.

sh


Prenta grein   Senda grein   Tilvísunar slóð



Leit   Eldra efni   Um Múrinn
Forsíða   Efst á síðu
Rss straumur