| |
Ertu friðarsinni eða stríðsæsingamaður?
28.11.2002
Ritstjórn Múrsins hefur rökstuddan grun um að efnt verði til mótmælafundar á Austurvelli á morgun, föstudaginn 29. nóvember klukkan 12:30, og telur það borgaralega skyldu sína að vekja á því athygli. Mótmælin munu koma sem andsvar við blindum stuðningi ríkisstjórnar Íslands við yfirvofandi stríð gegn almenningi í Írak og þeirri nýju stefnu sem ríkisstjórnin hefur tekið í hermálum með því að tilkynna skuldbindingar upp á allt að 300 milljónir króna til málaflokksins en hafna umræðu um málið. Sem betur fer er það enn fremur sjaldgæft í landinu að ráðherrar geti gefið út tilskipanir um að umræða um tiltekið mál sé ótímabær þótt ákvörðun hafi þegar verið tekin og þar af leiðandi talin mjög tímabær af sömu ráðherrum.
Einnig er fundurinn hugsaður sem svar við þeirri nýju stefnu íslenskra stjórnvalda að fyllast auknu stolti með hverjum pólitískum fanga sem bætist á afrekalistann, hvort heldur um ræðir íslenska friðarsinna eða erlenda ríkisborgara með kínversk eftirnöfn. Hin nýju hryðjuverkalög eiga þó ekki við alla sem gefa út viðvaranir við yfirvofandi hættu enda mættu þá bæði ritstjórar Morgunblaðsins og völvur Vikunnar fara að vara sig.
Fyrir þá lesendur sem velkjast í vafa um að taka þátt í mótmælunum er rétt að vekja athygli á afar vísindalegu persónuleikaprófi Múrsins sem sker úr um hvort viðkomandi er stríðsæsingamaður og þá hvers konar stríðsæsingamaður. Prófið geta allir netnotendur tekið sér að kostnaðarlausu.
Friðarsinnar mæta hins vegar á Austurvöll kl. 12:30 á morgun til að sýna stjórnvöldum álit sitt á nýjasta útspilinu í tindátaleiknum.
Ritstjórn
|
|