Múrinn-vefrit um þjóðmál, pólitík og menningu
Múrinn-vefrit um þjóðmál, pólitík og menningu
 

Að berja höfðinu við steininn

Hafi uppstyttulitlar dagbókarfærslur Jóns Kristjánssonar, alþingismanns, í dagblaðinu Degi ekki verið orðnar pínlegar í augum einhverra lesenda blaðsins þá hljóta þau síðustu vígi að falla í dag. Endurteknar tilraunir Jóns til að ýta fylgi Framsóknarflokksins upp og annarra niður hafa ekki borið árangur til þessa. Og þó að helsta haldreipi Framsóknarmanna á Austurlandi hafi fokið út í veður og vind í einum fréttatíma um daginn er Jón ekki hættur enda búinn að finna sér nýjan spotta, hálfu sverari en þann fyrri: Kárahnjúkavirkjun.

Það væri erfitt að þykjast ekki sjá samhengið á milli þess að stóriðjublaðran sprakk í andlitið á Framsókn og að áætluðum jarðgangaframkvæmdum hefur verið flýtt. Rannsóknum og undirbúningsvinnu vegna þeirra var ekki ætluð króna á fjárlögum þannig að ekki stóð nú mikið til í raun á þeim vettvangi. En nú hafa aðstæður breyst eins og það er kallað, þessum framkvæmdum verður flýtt og þó að það hafi ekki verið sagt berum orðum þá hljóta Austfirðir að verða fremstir í röðinni í þetta sinn.

Það er út af fyrir sig ánægjuefni að loksins verði hafist handa við slíkar samgöngubætur á Austurlandi. Aðdragandi málsins er auðvitað langt frá því að vera skemmtilegur og vissulega má deila um hvaða byggðarlög í fjórðungnum sé brýnast að tengja betur með jarðgöngum. Hefði til dæmis verið skynsamlegra að koma á góðum vetrarsamgöngum milli Vopnafjarðar og Héraðs með göngum undir Hellisheiði? Í þeim efnum er væntanlega farsælast að heimamenn fái að ráða sem mestu enda ættu þeir að vita hvar skórinn kreppir að.

Fróðlegt verður að sjá hvaða áhrif jarðgangagerðin mun hafa á byggð á Austfjörðum og vonandi að hún verði þeim ekki minni styrkur en göngin undir Breiðadals- og Botnsheiði urðu fyrir Vestfirði. Ljóst er að fáar eða engar aðgerðir stjórnvalda eru betur til þess fallnar að efla byggð á landsbyggðinni en samgöngubætur. Um það geta Vestfirðingar vitnað.

Eitt er víst, þessar framkvæmdir munu verða að ólíkt meira gagni en kosningaloforð Framsóknarmanna fyrir austan og trúlega eru ekki öll kurl komin til grafar í því hver fellur mest í áliti hjá hverjum.

sh/sp


Prenta grein   Senda grein   Tilvísunar slóð



Leit   Eldra efni   Um Múrinn
Forsíða   Efst á síðu
Rss straumur