Múrinn-vefrit um þjóðmál, pólitík og menningu
Múrinn-vefrit um þjóðmál, pólitík og menningu
 

Eltum fylgið

25.1.2003

Einu sinni, langt, langt í burtu, var flokkur …

Millispil: Landi og málefnum sökkt

Persónur og leikendur:

Svartkrulli, ógnvaldur (fjarri en andi hans svífur yfir vötnum)
Össi, heldur að hann sé formaður
Solla geimgengill, er formaður
Jóa, hennar tími mun koma
Palli pípa, uppstillingarlistamaður
Skalla-Grímur, vinstrivíkingur
Ögmundur ógurlegi, annar vinstrivíkingur
Fleiri vinstrivíkingar
Æstur múgur

1. atriði

Æstur múgur: Solla segðu nei, Solla segðu nei.

Solla geimgengill: Ég segi já.

Æstur múgur: Ónei, svik, svik, tjúúúúú.

Solla geimgengill: Ég segi já því að Svartkrulli verður að ráða þessu.

Æstur múgur: Pílatus, pílatus.

Solla geimgengill: Svartkrulli verður að ráða þessu því að ég á að ganga á hólm við hann og fram að því verður hann að ráða öllu og ég engu. Og það er ekki Pílatus heldur Pandóra sem þvoði hendur sínar. Kunnið þið ekkert í goðafræði?

Æstur múgur: En við megum ekki sökkva landinu.

Solla geimgengill: Skiljið þið ekki að það skiptir engu máli hvort landinu er sökkt eða ekki? Það sem skiptir máli er að ég fái að ganga á hólm við Svartkrulla. Og þið eruð að æsa ykkur útaf engu.

Vinstrivíkingar: Við viljum drepa Svartkrulla núna.

Solla geimgengill: Það er ekki ykkar hlutverk. Þið eruð ekki dóttir Svartkrulla … Nei, af hverju sagði ég þetta? Það var einmitt Svartkrulli sem drap föður minn.

Æstur múgur: Tjúúú, þú sveikst okkur, þú sveikst landið.

Solla geimgengill: Þið kjósið mig nú samt.

Æstur múgur: Ónei, ja, … jú, kannski. Við verðum að fá nýjan Svartkrulla.

Solla geimgengill: Já, og verið ekki með þetta múður og þetta óþolandi íhugunar- og slökunarpopp á þingpöllunum. Það truflar mig við jedi-æfingarnar mínar.

2. atriði

Össi: Já, þetta er fín uppstilling hjá þér nema …

Palli pípa: Nema hvað?

Össi: Eru ekki aðeins of margir þarna númer sex hjá þér.

Palli pípa: Of margir? Það eru engir númer sex nema Guffi og Bessi og Eiki og Logi og Sindri og Heimir og Mímir og Rósi og Goði. Ég hafði boðið miklu fleirum en þeir komu ekki.

Össi: En má vera nema einn?

Palli pípa: En við erum svo stór flokkur. Við hljótum að mega hafa marga í númer sex.

Össi: En þessir menn eru allir í liði Svartkrulla?

Palli pípa: Lið Svartkrulla, okkar lið. Hvaða máli skiptir það? Sama liðið.

Össi: Ja, það skiptir ekki máli þegar Solla geimgengill hefur sigrað Svartkrulla og orðið hann. En æfum frekar málefnin.

Palli pípa: Já, einmitt. Við ætlum að ráðast gegn hinu siðlausa og óréttláta kvótakerfi og það verður mál málanna.

Össi: Nei, það var seinast.

Palli pípa: Ekki núna?

Össi: Iss, nei, við verðum að hafa eitthvað nýtt.

Palli pípa: Já, ég skil, við verðum að ganga í Evrópusambandið.

Össi: Nei, við erum líka hætt með það. Núna er málið að við viljum að Solla geimgengill gangi á hólm við Svartkrulla.

Palli pípa: En hvernig gengur með skoðanakönnunina? Ætluðum við ekki að gera könnun um hvað væri vinsælt og lýsa svo stuðningi við það?

Össi: Jú, það gekk svo vel hjá félögunum í Hafnarfirði.

Palli pípa: Er þetta ekki umræðustjórnmál? Að finna út hvað meirihlutinn vill?

Össi: Jú, og meirihlutinn vill einmitt einvígi milli Sollu geimgengils og Svartkrulla.

Palli pípa: Já, Solla vinnur það. Er Svartkrulli ekki gamall og þreyttur?

Össi: Jú, ég er ekkert hræddur við hann. Sástu ekki hvernig ég massaði hann í sjónvarpinu um daginn?

Palli pípa: En þú drakkst bara brennivín, ekki ógeð eins og Solla geimgengill.

Össi: En ég ætla að drekka hland fram að kosningum, þá sjá allir að ég er aðaltöffarinn.

Palli pípa: En er það ekki Solla geimgengill sem er aðaltöffarinn?

Össi: En ég leiði hana. Við erum bæði aðaltöffarinn.

Palli pípa: Ekki skil ég hvers vegna þið megið bæði vera aðaltöffarinn en ég má ekki setja níu manns í sæti númer sex. Ég var búinn að lofa þeim öllum.

Össi: Talaðu við Sollu, hún er svo góð í svona loforðum.

3. atriði

Jóa: Eigum við ekki að fara að berjast við Svartkrulla? Sérðu ekki að hann er að skylmast við Skalla-Grím og Ögmund ógurlega?

Össi: Iss, það er ekki eins og okkar bardagi. Þeir eru að skylmast út af virkjunum og stríðinu við Írak. En þegar Svartkrulli og Solla geimgengill skylmast, þá verður það ekki út af neinu. Það er miklu fínna. Svo er enginn að horfa á þá. Allir eru að horfa á mig kynna Sollu geimgengil fyrir ykkur.

Jóa: En við þekktum hana öll fyrir!

Össi: Eitthvað verð ég nú að gera þegar hún er orðin foringi. Nú sé ég um að kynna fólk.

Jóa: En við verðum að taka upp geislasverðin og berjast við Svartkrulla við hlið Skalla-Gríms og Ögmundar!

Össi: Nei, þá heldur fólk bara að við séum fúl og neikvæð eins og þeir. Við styðjum Svartkrulla í þessum bardaga því að við viljum að fólk horfi frekar á okkar bardaga.

Jóa: En láglaunafólkið? En spillingin í bankakerfinu? En vextirnir? Á ekkert að skylmast um þá?

Össi: Mikið ertu gamaldags, Jóa! En ég hef raunar áhyggjur af stríðinu. Það er vinsælt að vera á móti því. Best að láta Einar stórmoffa skrifa grein í Moggann úr því að þessi könnun sýnir að stríðið sé óvinsælt.

Solla geimgengill (kemur inn með svartar krullur): Jæja hér er ég kominn að skipa ykkur fyrir.

a (dolfallin): Af hverju ertu með svartar krullur?

Solla geimgengill (rífur þær af sér): Bara að máta.

(Þau stilla sér öll upp fyrir myndatöku — nú nálgast einvígið mikla, dugar hárkollan til að sannfæra alla um að Solla sé betri Svartkrulli en sjálfur Svartkrulli? Eða mun hann höggva af henni höndina og stoppa byssukúlurnar með höndinni? Svarið fæst senn!)

áj


Prenta grein   Senda grein   Tilvísunar slóð



Leit   Eldra efni   Um Múrinn
Forsíða   Efst á síðu
Rss straumur