Múrinn-vefrit um þjóðmál, pólitík og menningu
Múrinn-vefrit um þjóðmál, pólitík og menningu
 

Samúðarkveðjur til sýningarstjóra

3.2.2003

Sjö manns fórust þegar geimferjan Columbia sprakk á leið til jarðar um helgina. Það var fyrsta frétt í fréttatíma Ríkissjónvarpsins í gærkvöldi að rannsókn væri hafin á slysinu. Ekki er fyllilega ljóst hvað var svona fréttnæmt við það enda hefði það frekar talist til tíðinda ef ekki ætti að rannsaka málið. En við getum búist við einni frétt um málið á hverju kvöldi næstu daga og jafnvel vikur.

Bersýnilega er það sú staðreynd að þetta var geimferðaslys, sem dregur svo mikla athygli að dauðdaga sjömenninganna. Fjölmiðlar eru ennþá alvarlega veikir fyrir geimferðum og vélmennasendingum til Mars sem eru einhver furðulegasta leið til peningaeyðslu á okkar tímum. Ef litið er til Bandaríkjanna sætir furðu að almenningur styðji slíka sóun á sama tíma og ýmiss konar félagsleg vandamál eru að ríða milljónum manna á slig.

En það eru ekki bara fjölmiðlar sem draga fólk í dilka eftir því hvers konar slys verða því að fjörtjóni. Forseti Íslands sendi Bandaríkjunum og Ísrael sérstakar samúðarkveðjur vegna slyssins. Sama hafa Jiang Zemin, Gerhard Schröder, Jacques Chirac, Tony Blair og Atal Bihariu Vajpayee gert, svo nokkrir séu nefndir. Ekki svo að skilja að það sé neitt rangt við að votta aðstandendum hinna látnu samúð sína en hvað hefur það með ríki og ríkisstjórnir að gera? Furðulegust er sú skoðun Kofi Annan að slysið hafi verið áfall fyrir allt mannkyn.

Er það kannski tilfellið að geimferðir séu nú til dags farnar ríkjum og ríkisstjórnum til dýrðar? Er það, sem Halldór Laxness lýsti þannig að mönnum væri troðið í dós, skotið út í loftið og þveitt í hringi kringum jörðina, einmitt tákn um mátt þeirra og megin sem völdin hafa eins og á dögum kalda stríðsins? Er það þess vegna sem ríkisstjórnum og þjóðum eru sendar samúðarkveðjur - af því að sýningin mistókst en ekki af því að sjö manneskjur týndu lífinu?

Sjö háskólanemar létust í snjóflóði í Kanada um helgina. Fjörutíu manns fórust í sprengingu í Nígeríu. Meira en þrjátíu létust í eldsvoða í Kína. Fjörutíu og sex lík hafa fundist eftir rútuslys í Zimbabwe og margra er enn saknað. Ekkert hefur frést af því að opinberar samúðarkveðjur hafi verið sendar fyrir hönd allra landsmanna til Kanada, Nígeríu, Zimbabwe og Kína. En það verður auðvitað gert, er það ekki?

sh


Prenta grein   Senda grein   Tilvísunar slóð



Leit   Eldra efni   Um Múrinn
Forsíða   Efst á síðu
Rss straumur