Múrinn-vefrit um þjóðmál, pólitík og menningu
Múrinn-vefrit um þjóðmál, pólitík og menningu
 

Sjúkleg heimsvaldastefna

18.2.2003

Engin takmörk virðast lengur fyrir ofsa Bandaríkjastjórnar í garð þeirra sem ekki vilja stíga með henni stríðsdans. Nú síðast berast fregnir af sérstökum refsiaðgerðum gagnvart Þjóðverjum vegna andstöðu þýskra stjórnvalda við árásarstríð gegn Írökum. Ekki þarf fílsminni til að rifja upp hversu þungbrýnn Colin Powell sat undir ræðu Joschka Fischer um það af hverju sá síðarnefndi væri einfaldlega engan veginn sannfærður um réttmæti innrásar eða rök sem færð hefðu verið fyrir hernaði.
 
Hugmyndir Donalds Rumsfeld um refsingu Þjóðverja eru tvíþættar. Í fyrsta lagi verði allir bandarískir hermenn kallaðir frá Þýskalandi og bandarískur vígbúnaður fluttur þaðan. Þakka skyldi, kynnu margir að segja og ekki er víst að þýskum almenningi verði sérstök eftirsjá í 42.000 manna herliði Bandaríkjanna, skriðdrekum, herflugvélum og fleiru sem því fylgir.
 
Í öðru lagi talar Rumsfeld fyrir þeim sérkennilegu sjónarmiðum að beita viðskiptaþvingunum til að hegna Þjóðverjum fyrir sjálfstæða stefnu í alþjóðamálum. Ekki er gott að segja hvernig það samrýmist reglum Alþjóðaviðskiptastofnunarinnar (WTO) sem Bandaríkjastjórn hampar svo mjög þegar henni hentar. En það er vert að hafa í huga pólitíkina í hótunum sem þessum. Hvaða lönd önnur sæta einhliða viðskiptaþvingunum af hendi Bandaríkjastjórnar? Þau eru ekki mörg en þar er erkióvinurinn Kúba efst á blaði. Líbýa er væntanlega enn á listanum.
 
Hvers konar hugarfari lýsir það ef Rumsfeld og félagar telja sig færa um að dæma Þýskaland til útlegðar fyrir það eitt að fylgja ekki harðlínumönnunum í Pentagon að málum? Svarið liggur í yfirlýstu markmiði refsiaðgerðanna enda er það alveg skýrt: Að skaða efnahag Þýskalands.
 
Kennisetningar kapítalískrar hnattvæðingar, sem Bandaríkin hafa haft forgöngu um í gegnum Alþjóðaviðskiptastofnunina, Alþjóðagjaldeyrissjóðinn og Alþjóðabankann, ganga jafnan út á að alþjóðleg samvinna ríkja aukist, öll samskipti fólks greiðari, opnari landamæri og aukna fríverslun. En þegar á reynir og hagsmunir hinna stóru eru í húfi þá eru andstæður alls þessa sýndar grímulaust. Raunveruleikinn einkennist af heimsvaldastefnu, einangrunar- og útlegðardómum yfir ríkjum og þjóðum, vopnuðu landamæraeftirliti og hækkandi tollum til að skaða þá sem einhverra hluta vegna eru í hinu liðinu þá og þá stundina.

sh


Prenta grein   Senda grein   Tilvísunar slóð



Leit   Eldra efni   Um Múrinn
Forsíða   Efst á síðu
Rss straumur