|
| |
Sýrland næst?
27.2.2003
Á döfinni er atkvæðagreiðsla í Öryggisráði Sameinuðu þjóðanna sem Bandaríkjastjórn segir varða framtíð þeirra. Það er alveg rétt: Því að samþykki ráðið stríð sem aðeins Bandaríkjastjórn vill er það í raun orðið marklaust tæki í höndum Bandaríkjanna, svipað og NATO og öll hin appírötin sem Bandaríkjastjórn notar þegar henni hentar en getur líka sniðgengið að vild.
Stríðið í Írak snýst nefnilega ekki um að Saddam Hussein sé vondur maður sem George Bush og Halldór Ásgrímsson segja að hafa drepið barnabörn sín (ætli Bush sé heimild Halldórs fyrir því?). Það snýst um að Bandaríkjastjórn vill fara í stríð við einhvern. Hún vill vígvæðingu til að mala gull fyrir hergagnaframleiðendur og önnur stórfyrirtæki sem komu henni til valda. Hún vill líka auka vinsældirnar heima fyrir og taka eins lítið tillit og unnt er til málfrelsis og mannréttinda.
En til þess að geta náð öllu þessu fram þarf stríð og þá er aukaatriði við hvern. Saddam Hussein er augljós kostur vegna þess að hann er vinalaus og ósympatískur. Engum fellur við Saddam enda engin ástæða til. Þess vegna er alltaf látið eins og væntanleg fjöldamorð á Írökum snúist aðeins um þennan eina mann.
Ef einhver efast um að það skipti meira máli að fara í stríð en við hvern stríðið er má rifja upp ræðu Bush um „öxulveldi hins illa“ sem var haldin áður en ákveðið var að það yrði Írak sem hernaðarvélin beindist gegn. Næst verða það Norður-Kórea eða Íran. Eða Súdan. Eða Líbýa. Eða jafnvel Sýrland eins og sendimaður Bandaríkjastjórnar hótaði um daginn. Stríðshótanir Bandaríkjastjórnar eru nú daglegt brauð.
Enn sem komið er treysta menn sér ekki í stríð við óþekk Evrópuríki. En bíðum bara róleg. Þessa dagana er verið að kynda undir hatur á Frökkum. Þjóðverjum hefur verið hótað refsiaðgerðum. Rússar eiga líklega aðeins of mörg kjarnorkuvopn ennþá og Kína treystir Bandaríkjastjórn sér ekki í. Því að hún vill fyrst og fremst auðunnin stríð til að styrkja vinsældirnar og hernaðarvélina. Þess vegna völdu þeir auðvitað Írak fram yfir Norður-Kóreu. Sem fyrsta kost.
Ef öryggisráðið lætur undan Bandaríkjastjórn í þetta sinn verður auðvitað ekki staðar numið. Fremur en í Afganistan. Þá voru margir bláeygir sem héldu að stríðið snerist um hryðjuverk í Bandaríkjunum og Osama bin Laden. Gaman væri að heyra viðkomandi reyna að tengja Saddam við alltsaman. Sumir reyna það raunar af veikum mætti. En annars eru rökin gamalkunnug: Endalaus misbrúkun á Münchenarfundinum og Hitlerslíkingum sem búið er að hrekja aftur og aftur annars vegar. Hins vegar útmálun á illsku Saddams Husseins sem lyktar þannig að utanríkisráðherra kemst upp með að segja „fréttahaukum“ Kastljóssins tröllasögu um að Saddam Hussein hafi drepið barnabörnin sín. Ætli hann hafi ekki étið þau næst.
Öryggisráð Sameinuðu þjóðanna má ekki láta undan hótunum. Og Íslendingar eiga auðvitað að gera þá kröfu til eigin ríkisstjórnar að hún fordæmi stríðsæsingarnar. Þetta stríð er illt og nauðsynjalaust, sama í hvers nafni það verður háð.
áj
|
|
| |