| |
Alþjóðleg handtökuskipun gefin út á hendur Fujimori
8.3.2003
Alþjóðalögreglan Interpol hefur gefið út handtökuskipun á hendur Alberto Fujimori og óskað eftir því við japönsk stjórnvöld að hann verði framseldur. Fujimori var forseti Perú frá 1990 þar til hann flúði land í nóvember árið 2000 og fékk hæli í landi forfeðra sinna, Japan. Hann er m.a. ákærður fyrir morð og mannrán en honum er gefið að sök að bera ábyrgð á tveimur fjöldamorðum í Perú á árunum 1991-1992.
Fujimori vann forsetakosningarnar 1990 mjög óvænt en þá atti hann m.a. kappi við rithöfundinn Vargas Llhosa sem naut mikilla vinsælda meðal hægrimanna og yfirstéttarfólks. Fáir höfðu fyrirfram trú á að afkomandi japanskra innflytjenda gæti náð kjöri sem forseti Perú.
Eins og önnur lönd Rómönsku Ameríku sem hafa verið þjökuð af stríðsátökum og þvinguð til að fara eftir kokkabókum Alþjóðagjaldeyrissjóðsins (IMF), hefur Perú um langa hríð strítt við talsverða efnahagserfiðleika. Fujimori gat sér fljótlega gott orð í hinum alþjóðlega fjármálaheimi og varð eftirlæti ritstjórnar The Economist jafnt sem bankastjórnar IMF. Fujimori einkavæddi hraðar en flestir aðrir, skar veikburða velferðarþjónustu niður við trog og felldi gengið meira en harðsvíruðustu ráðgjafar þorðu að mæla með. Meðferðarúrræði Fujimoris voru kölluð “Fuji-shock” enda sýnu hastarlegri en hinn venjulegi kúr IMF sem gekk undir nafninu “shock-treatment”.
Ennfremur þótti mörgum að Fujimori hefði unnið þrekvirki við að uppræta dómsdagshreyfinguna Skínandi stíg (Sendero Luminoso) og binda þannig enda á ríflega 20 ára borgarastyrjöld í landinu. En meðul Fujimoris á því sviði voru ekki síður svakaleg en í efnahagsmálunum. Líkt og svo margir aðrir valdsmenn álfunnar kaus hann að fara um með eldi og brennisteini gegn óvininum og hirða lítt um þá sem yrðu saklausir fyrir. Þannig var því til dæmis farið þegar sérsveitarmenn myrtu níu stúdenta og einn háskólakennara vegna gruns um vinstrimennsku. Þúsundir eru taldar hafa horfið sporlaust af völdum stjórnar Fujimoris.
Á endanum var það spilling sem varð ríkisstjórn Alberto Fujimoris að falli haustið 2000. Hann hafði þá gripið til örþrifaráða eins og að leysa upp þing landsins og nema úr gildi stjórnarskrárákvæði sem bannaði að hann sæti lengur en tvö kjörtímabil í embætti. Skammt var liðið á þriðja kjörtímabilið þegar veldi hans hrundi jafn skyndilega og það hafði byggst upp.
sh
|
|