Múrinn-vefrit um þjóðmál, pólitík og menningu
Múrinn-vefrit um þjóðmál, pólitík og menningu
 

Manstu...?

21.3.2003

* Manstu eftir Flóabardaga 1991?

* Manstu hvernig fréttamennirnir spenntust upp og lýstu stríðinu eins og það væri íþróttakappleikur - hversu óþreyjufullir þeir urðu þegar "ekkert var að gerast"?

* Manstu eftir öllum fréttaskýringunum um það hvernig það stríð átti að vera öðruvísi en öll önnur stríð?

* Manstu eftir hárnákvæmu sprengjunum sem áttu að hitta títuprjónshaus á jörðu niðri?

* Manstu eftir hrifningunni í röddum fréttamannanna og sérfræðinganna sem hömruðu á því að mannfall almennra borgara væri nánast ekkert - að sprengjurnar féllu einungis á hernaðarleg skotmörk?

* Manstu eftir vantrúnni þegar fyrstu fréttirnar bárust af því að konur og börn hefðu fallið?

* Manstu eftir kenningunum um að þau dauðsföll hlytu að vera sviðsett að harðstjórunum í Bagdad?

* Manstu eftir fyrstu frásögnunum að stríðinu loknu af hinni raunverulegu eyðileggingu? Frásögnum sem ekki fengust birtar í stærstu fjölmiðlunum fyrst í stað.

* Manstu hversu sneyptir margir urðu nokkrum mánuðum eftir stríðið þegar sannleikurinn kom í ljós?

* Manstu þegar Pentagon lýsti því yfir að stærsti sigurinn í Flóabardaga hefði falist í því hvernig tókst að stýra fréttaflutningnum af stríðinu?

* Manstu þegar fjölmiðlarnir lofuðu að láta ekki blekkjast aftur með þessum hætti?

* Manstu hvað við vorum fljót að gleyma Írak aftur og snúa okkur að öðrum málum?

* Manstu eftir Júgóslavíu? Manstu eftir Kosovo? Manstu eftir Afganistan? - Hvernig öll þessi stríð voru kynnt til sögunnar sem nútímaleg hátæknistríð, án borgaralegs mannfalls, þar sem allar sprengjur lentu á illmennum?

- En til hvers svo sem að muna? Eins og við vitum öll verður þetta stríð öðruvísi en öll önnur stríð. Það getur hvaða barn sem er séð - í sjónvarpinu.

sp


Prenta grein   Senda grein   Tilvísunar slóð



Leit   Eldra efni   Um Múrinn
Forsíða   Efst á síðu
Rss straumur