Múrinn-vefrit um þjóðmál, pólitík og menningu
Múrinn-vefrit um þjóðmál, pólitík og menningu
 

Af tvennu illu

6.4.2003

Samkvæmt skoðanakönnun sem sagt er frá í Helgarblaði DV 5. apríl er George W. Bush, Bandaríkjaforseti, óvinsælastur allra erlendra þjóðarleiðtoga meðal landsmanna. Meira en 80% aðspurðra svöruðu spurningu blaðsins um þann þjóðarleiðtoga sem væri í minnstu áliti hjá þátttakendum. Nær tveir af hverjum þremur sem tóku afstöðu nefndu Bush en tæpur þriðjungur Saddam Hussein. Meðal annarra sem fengu tilnefningu voru Kim Yong-il og Anders Fogh Rasmussen.

Niðurstöður þessarar könnunar eru sannarlega eftirtektarverðar og hljóta að teljast áfellisdómur yfir utanríkisstefnu ríkisstjórnarinnar. Án þess að spyrja þing og þjóð tók ríkisstjórnin þá ákvörðun að fylgja Bandaríkjastjórn, undir forystu George W. Bush, í árásarstríð einn ganginn enn. Sú staðreynd að Bandaríkjaforseti sé í svo litlum metum á Íslandi bætist nú við mikla andstöðu Íslendinga við stríðsreksturinn í Írak og yfirlýsingu ríkisstjórnarinnar um stuðning við árásaraðilana.

En hvernig stendur á því að tvöfalt fleiri virðast telja George W. Bush verra eintak en Saddam Hussein? Það er ekki síst forvitnilegt í ljósi þess að stríð hafa löngum notið vaxandi hylli eftir því sem nær dregur lokasennu og úrslitin virðast ljós. Landsmönnum eru daglega fluttar frásagnir af framsókn innrásarliðsins, ýmiss konar „árangri“ Bandaríkjamanna og Breta, vöruskemmum sem hafi að geyma ókjör af hvítu dufti og því að fundist hafi óþekkjanlegar líkamsleifar í stórum stíl. Þetta virðist ekki hrína á fólki, að minnsta kosti ekki enn sem komið er; svo mikil og einlæg er andstaðan við sprengjuregnið sem er drifið áfram af nakinni græðgi og bitnar fyrst og síðast á langhrjáðum almenningi í Írak.

Fylgjendur stríðsins eru óþreytandi að minna á að Saddam Hussein sé einræðisherra sem láti pynta og drepa andstæðinga sína, hafi háð tvö stríð við grannríki sín og beitt efnavopnum. Að auki halda þeir því fram að Íraksstjórn eigi gereyðingarvopn, hafi ætlað að beita þeim að fyrra bragði og styðji við bakið á hryðjuverkasamtökum.

Þetta virðist heldur ekki hafa borið tilætlaðan árangur úr því að tvöfalt fleiri nefna Bush en Saddam þegar spurt er um versta þjóðarleiðtogann. Hver er þá George W. Bush?

Er það ekki maðurinn sem minnihluti bandarískra kjósenda valdi til að gegna embættinu, var ríkisstjóri í Texas þar sem dauðarefsingum er beitt hvað ótæpilegast í Bandaríkjunum, hefur nú þegar háð tvö stríð frá því að hann tók við í ársbyrjun 2001 og neitar að taka þátt í alþjóðasamningum um útrýmingu efna- og sýklavopna? Er ekki Bush forsetinn sem rifti ABM-sáttmálanum og setti alla alþjóðlega samvinnu um kjarnorkuafvopnun í uppnám? Var það ekki hann sem dró Bandaríkin út úr Kyoto-ferlinu?

Samt sem áður er ekkert sem segir að samanburður af þessum toga leiði landsmenn að þeirri niðurstöðu að George W. Bush sé versti þjóðhöfðingi sem nú situr í embætti. Ef til vill er málið svo einfalt að friðarbarátta sé meirihlutabarátta og sá sem velur stríðið uppskeri eins og hann hefur til sáð.

sh


Prenta grein   Senda grein   Tilvísunar slóð



Leit   Eldra efni   Um Múrinn
Forsíða   Efst á síðu
Rss straumur