|
| |
Handan Töfrasundsins
Halldór Ásgrímsson, utanríkisráðherra, er nú í opinberri heimsókn í Tyrklandi. Ráðherrann kveðst mjög áfram um að auka samskipti og viðskipti ríkjanna enda séu þar miklir möguleikar fyrir hendi. Eitthvað mun það hafa borið á góma í viðræðum utanríkisráðherra við tyrkneska ráðamenn að ýmislegt mætti þar betur fara á sviði mannréttinda, s.s. í máli Sophiu Hansen, Özcalans hins dauðadæmda og kúrdíska minnihlutans alls. Það er vel ef utanríkisráðherra hefur vakið máls á stöðu Kúrda í landinu og að sögn hans skilja tyrkneskir að þar verði að gera breytingar á.
Kúrdar, sem margir hverjir láta sig dreyma um sjálfstætt ríki, Kúrdistan, búa nú í þremur ríkjum, Tyrklandi, Íran og Írak. Barátta þeirra fyrir fullum mannréttindum innan þessara ríkja hefur kostað þúsundir mannslífa. Tyrkir hafa ekki dregið af sér í árásum á Kúrda og hvergi í heiminum er notað jafnmikið af bandarískum vopnum þótt nokkur ríki kaupi meira af þeim en Tyrkir.
Bospórussundið, sem skilur að Balkanskaga og Litlu-Asíu, hefur stundum verið nefnt Töfrasundið. Þegar farið er yfir sundið gerist það nefnilega að rangt verður rétt, gott verður illt og svart hvítt. Þetta veit Davíð Oddsson manna best sem svaraði því til, spurður um muninn á Kúrdum í Tyrklandi og Albönum í Kosovo, að þar værum við komin í aðra heimsálfu. Og Davíð benti réttilega á að Tyrklandi væri í NATO og NATO færi ekki að gera árásir á sjálft sig. Um Kosovo-Albani sagði Davíð hins vegar að NATO væri að bregða "hlífiskildi sínum fyrir þetta fólk sem er Evrópufólk".
Það er engin ástæða til að bregðast við mannréttindabrotum með linkind en það er heldur ekki vænlegt til árangurs að gjalda í sömu mynt. Þeim fer vafalítið fjölgandi sem vildu óska þess að íslensk stjórnvöld hefðu haft forgöngu um vinnu að friðsamlegum lausnum á Kosovo-deilunni í stað þess að hvetja til loftárása sem fyrst og fremst bitnuðu á óbreyttum borgurum í Júgóslavíu. Samningarnir sem gerðir voru eftir stríðið leiddu ekki til vitund betri niðurstöðu en náðst hafði í samningum fyrir stríð. Það væri utanríkisráðherra til framdráttar að hafa friðsamlegar lausnir deilumála að leiðarljósi það sem eftir er af ráðherradómi hans. En þá verður líka eitt yfir alla að ganga, hvort sem löndin eru austan eða vestan Bospórussunds.
sh
|
|
| |