| |
Fjöldamorðingi í forsetaframboð?
26.5.2003
Nú lítur út fyrir að Efraín Ríos Montt verði frambjóðandi hinnar hægrisinnuðu Lýðveldisfylkingar við forsetakosningarnar sem fram fara í nóvember í Guatemala. Ríos Montt var æðsti maður herforingjastjórnarinnar í Guatemala í hálft annað ár 1982-1983. Það var í tíð hans sem stjórnarherinn gekk endanlega af göflunum í borgarastríðinu þar í landi og myrti hundruð þúsunda úr röðum óbreyttra borgara.
Ríos Montt hefur um nokkurt skeið verið forseti þingsins í Guatemala þrátt fyrir að bera ábyrgð á hryllilegum grimmdarverkum. Gereyðingarstríð herforingjastjórnarinnar, sem í orði kveðnu beindist gegn skæruliðum URNG, varð til þess að heilir þjóðflokkar frumbyggja af Maya-ættum voru nánast þurrkaðir út í El Quiché, Alta Verapaz, Peten og fleiri héruðum í norðvesturhluta landsins.
Nú stefnir Ríos Montt hærra og hyggst reyna að ná forsetaembættinu aftur eftir 20 ára hlé, að þessu sinni eftir lýðræðislegum leiðum. Andstæðingar hans halda því fram að herforinginn fyrrverandi sé ekki kjörgengur þar sem stjórnarskráin banni valdaránsmönnum að bjóða sig fram til forseta. Stuðningsmenn hans segja hins vegar að þar sem stjórnarskráin hafi ekki tekið gildi fyrr en 1986 eigi þetta ákvæði ekki við um Ríos Montt enda geti það ekki verið afturvirkt.
Búast má við að deilan um kjörgengi Ríos Montt komi til kasta dómstóla í Guatemala enda er þar annað og meira í húfi en það hvort framboðið teljist gilt. Hann hefur notið friðhelgi sem forseti þingsins en mun verða að láta af því embætti fyrr eða síðar. Ýmis mannréttindasamtök innanlands sem utan eru þess mjög fýsandi að Ríos Montt verði látinn svara til saka vegna fjöldamorðanna sem herinn framdi undir hans stjórn. Þannig má segja að framboð Ríos Montt sé öðru fremur tilraun til að framlengja friðhelgina.
Margir fyrrverandi skjólstæðingar og bandamenn Bandaríkjahers í Mið- og Suður-Ameríku munu trúlega fylgjast með máli Efraín Ríos Montt af nokkurri athygli. Ef til vill mun Alvaro Uribe, núverandi forseti Kólumbíu, líka hafa augun opin. Bardagaaðferðirnar sem Kólumbíuher hefur tekið upp eftir að bandarísku „hernaðarráðgjafarnir“ komu honum til hjálpar í hernaðinum gegn FARC minna ónotalega á gereyðingarstríðið í Guatemala svo ekki sé meira sagt.
sh
|
|